Morgunblaðið - 08.10.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000 11
inn hópur feiminn við að koma í
verslunina. Smám saman hafa við-
skiptin í gegnum netverslunina ver-
ið að aukast og nema núna um
25% af heildarviðskiptunum.“
Hvað þróun netverslunar varðar
segist Þór hafa orðið var við að
viðskiptavinir hafi farið að kaupa
fleiri vörur í einu á Netinu. „Áður
var fólk að kaupa eina og eina
vöru. Núna er oftar verið að kaupa
meira í einu. Hægt er að velja á
milli þessa að greiða með gíróseðli
eða greiðslukorti. Við höfum yfir að
ráða sérstakri dulkóðunartækni til
að koma í veg að aðrir komist í
kortanúmerin. Jafnframt er ófrá-
víkjanleg regia að kennitala og
númer korthafa stemmi sarnan."
HEIL VERSLUN Á NETINU
Þorsteinn Baldur Friðriksson,
vefstjóri BT, segir að netverslun
hafi verið opnuð árið 1996. „Fyrst
eftir að netverslunin var opnuð var
ýmiss konar afþreyingarefni vin-
sælast, t.d. geisladiskar, tölvuleikir,
myndbönd og dvd-geisladiskar.
Með tímanum fóru stærri tæki að
seljast betur og er þar hægt að
nefna geislaspilara, myndbönd og
dvd-spilara. Eins og eðlilegt hlýtur
að teljast hafa stærri hlutirnir aðal-
lega farið út á land. íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu kjósa heldur að
koma í verslunina. Án þess að
hafa nokkrar tölur sýnist mér að
viðskiptavinirnir séu frekar í yngri
kantinum. Á kennitölunum sést að
aðeins lítill hópur viðskiptavina
netverslunarinnar er í eldri aldurs-
hópunum. Hins vegar virðist eng-
inn munur á hlutföllum karla og
kvenna.“
Þorsteinn segir að nýjunga sé
að vænta í netversluninni. „Núna
erum við að breyta versiunarkerf-
inu og stefnum að því að opna
breytta netverslun í byrjun nóvem-
ber. Eftir breytinguna verður hægt
að fá allar vörur í BT-versluninni í
gegnum netverslunina og auðvelt
verður að sjá hvað eftir er á lager
hverju sinni. Eins og áður verður
verðið eins og í versluninni fyrir ut-
an sérstök nettilboð. Nettilboðin
hafa ætíð notið mikilla vinsælda
enda um umtalsverða verðlækkun
að ræða.“
Þorsteinn segir að fyrir verslun
með tæknivörur sé netverslun
nærtækur vettvangur. „Netverslun-
in hefur reynst okkur ágætlega og
viðskiptin hafa farið vaxandi síð-
ustu árin. Engu að síður er ekki
um hátt hlutfall af viðskiptunum að
ræða. BT hefur lagt áherslu á að
gaman sé að koma í verslunina.
Sú áhersla virðist hafa skilað sér
ágætlega. Að sama skapi er auð-
vitað aðalvandinn við netverslun-
ina fólginn í upplifuninni. Þó mynd-
irnar í netversluninni séu góðar er
enn betra að fá tækifæri til að sjá
og skoða vöruna í versluninni,"
segir Þorsteinn og tekur fram að
viðskiptavinir netverslunarinnar
geti í langflestum tilvikum valið um
að greiða fyrir varninginn með
greiðslukorti eða í póstkröfu. „Eina
skilyrðið er að stórir hlutir séu
greiddir með greiðslukorti enda
viljum við vera vissir um að sitja
ekki uppi með kostnaðinn við dýra
flutninga út á landsbyggðina. Með
nýju netversluninni verður síðan
boðið upp á þriðja kostinn, þ.e.
netgreiðslur með beinni millifærslu
af bankareikningum."
MATVARA NÆST Á DAGSKRÁ
Þór Curtis er verkefnisstjóri raf-
rænna viðskipta hjá Hagkaupi.
Hann segir að hægt sé að rekja
rafræn viðskipti á vegum fyrirtæk-
isins allt aftur til ársins 1995. „Hag-
kaup hieypti af stokkunum net-
verslun með matvöru árið 1995.
Netverslunin lagði því miður upp
laupana tveimur árum síðar.
Helsta ástæða þess var að netað-
gangur almennings var ekki orðinn
jafn almennur og hann er í dag.
Þröngur hópur viðskiptavina náði
ekki að halda viðskiptunum uppi.
Fyrirtækið hélt síðan tímabundið
uppi netverslun með ýmiss konar
sérvöru í samvinnu við visir.is fyrir
jólin 1998 og 1999. Nokkur tíma-
mót urðu við opnun netverslunar-
innar hagkaup.is í febrúar á þessu
ári. Netverslunin býður upp á ýms-
ar sérvörur sem margar hverjar eru
undir almennu verslunarverði, t.d.
eru snyrtivörur seldar á fríhafnar-
verði í netversluninni. Ofan á vöru-
verðið bætist heimsendingarkostn-
aður og sér íslandspóstur um
þjónustuna. Nú verður opnuð ný
netverslun hjá hagkaup.is, þ.e.
hagkaup.is - matvara, um miðja
vikuna. Þar verður boðið upp á
rúmlega 5.000 vörutegundir. Verð-
ið verður eins og í Hagkaupsversl-
ununum og verður viðskiptavinun-
um boðið að sækja vörurnar í
afgreiðslu netverslunarinnar í Hag-
kaupi við Smáratorg. Fyrst um
sinn verður aðeins heimsendingar-
þjónusta í Kópavog. Fljótlega verð-
ur hægt að bjóða upp á heimsend-
ingarþjónustu á öllu
höfuðborgarsvæðinu. Aðalvandinn
við að selja matvöru á Netinu hefur
falist í því að koma matnum nægi-
lega ferskum heim að dyrum við-
skiptavinarins á fyrirfram ákveðn-
um tíma. Þess vegna verður
matvörunum keyrt heim til fólks í
sérstökum kælibílum. Mikil áhersla
verður lögð á að velja aðeins
fyrsta flokks vörur til að viðskipta-
vinir geti verið öruggir um að fá áv-
allt ferskustu vörurnar," sagði Þór
og fram kom að heimsendingin
kostaði 500 kr.
Þór segir að viðskiptavinir greiði
ekki fyrr en rukkanirnar fara að
berast. Eins eru þess dæmi að
hingað berist færslur á kort sem
korthafar kannast ekkert við. Slíkar
færslur eru þá bakfærðar, en því
fylgir mikil vinna."
Andri sagðist telja að fáir sem
misnotuðu kortanúmer á Netinu
hafi komist yfir þau þar. Honum
þykir margir, ekki síst hinir yngri,
kærulausir með kortnúmerið sitt.
„Menn taka ekki greiðslukortakvitt-
anir eða jafnvel henda þeim á al-
mannafæri. Þetta býður þeirri
hættu heim að þetta einkanúmer
þeirra fari í umferð."
REYNT AÐ TRYGGJA ÖRYGGI
Varðandi hættur í netviðskiptum
sagði Andri að viðskipti á milii að-
ila, sem ekki þekktust og gætu
ekki gengið úr skugga um trúverð-
ugleika hvors annars, eins og ai-
gengt er á Netinu, hlytu að bjóða
upp á nokkra áhættu. Ef ekki vært
stuðst við nein öryggistæki væri sú
hætta fyrir hendi að kaupandi fengi
ekki vöru afhenta eða seljandi
enga greiðslu.
Hann sagði að greiðslukortafyrir-
tækin væru langstærst í miðlun
greiðslna vegna vefverslunar og
þeirra sem eiga í viðskiptum.
Andri sagði að SET-staðallinn
væri tvímælalaust öruggasta verk-
færið til að tryggja greiðslukorta-
viðákipti á Netinu. Búnaðurinn hafi
því miður ekki náð þeirri útbreiðslu
sem vonast var eftir. Líklega hafi
hann verið of dýr fyrir kaupmenn
og of fyrirhafnarsamur fyrir við-
skiptavini.
A næsta ári er von á nýrri útgáfu
af SET-búnaði, sem væntanlega
verður vistaður á miðlara hjá Visa,
í stað þess að búnaðurinn sé vist-
aður á tölvum seljenda og kaup-
enda. Þannig á nýja útgáfan að
verða notendavænni.
ÖR VÖXTUR VEFVIÐSKIPTA
Andri segir engum vafa undir-
orpið að viðskipti á Netinu vaxi ört.
Nú þegar séu nokkur íslensk fyrir-
tæki orðin umsvifamikil á þessu
sviði. Hann nefndi til dæmis farm-
iðasölu hjá Flugleiðum og viðskipti
með getraunaseðla á borð við 1X2
og Lengjuna.
„Það eru margir í startholunum
og ætla sér stóra hluti hér. Nú þeg-
ar hafa um 100 aðilar gert við okk-
ur sérstaka þjónustusamninga um
netviðskipti," sagði Andri. Til marks
HAGKAUP OPNAR MATVÖRUVERSLUN Á NETINU UM MIÐJA VIKUNA.
fyrir varning á Netinu með
greiðslukorti. Með sérstöku örygg-
iskerfi sé tryggt að greiðslukorta-
númerið berist ekki annað. „Hing-
að til hafa rafræn viðskipti ekki
verið hátt hlutfall af viðskiptum
Hagkaups. Engu að síður hafa við-
skiptin verið að aukast mjög hratt
og eiga án alls vafa eftir að marg-
faldast með tilkomu matvörunnar.
Hingað til hefur verið nokkuð jöfn
skipting á milli viðskiptavina á höf-
uðborgarsvæðinu og landsbyggð-
inni. A hinn bóginn hafa konur ver-
ið nokkuð fjölmennari en karlar.
Eins er athyglisvert að aldurhópur-
inn hefur verið talsvert breiðari en
almennt gerist á Netinu þar sem
stærsti hópurinn hefur verið á aldr-
inum 25 til 34 ára. Okkar við-
skiptavinir hafa flestir verið á bilinu
25 til 50 ára.“
VEFVIÐSKIPTI EKKI HÆTTULAUS
Andri V. Hrólfsson, forstöðumað-
ur fyrirtækjasviðs hjá Visa (slandi,
taldi að vefverslun milli aðila hér á
landi hafi almennt reynst örugg og
að mestu laus við svik og pretti.
Þess væru þó mörg dæmi að ís-
lenskir korthafar Visa hafi verið
hlunnfarnir í viðskiptum við erlenda
vefaðila.
„Það er til dæmis algengt að
menn skoði útlendar vefsíður og
gefi upp kortanúmer til að fá upp-
lýsingar. Hins vegar átta þeir sig
ekki á því að þar með eru þeir
orðnir áskrifendur að þjónustu, -
Visa hafi sett sér það markmið að
tryggja öryggi slíkra viðskipta. Ým-
islegt hafi verið reynt í því skyni.
Einfaldasta aðferðin er sú að
menn kynni sér vöru og þjónustu á
Netinu og geri svo út um viðskiptin
með aðstoð síma eða símbréfs.
Ekki ósvipað símasölu.
í eiginlegri vefverslun, þar sem
gert er út um viðskiptin á Netinu,
er algengast að kaupandi gefi upp
númer á greiðslukorti og gildistíma
þess. Margir hafa tortryggt þá að-
ferð og talið að óprúttnir eigi of
greiða leið að upplýsingum um
kortanúmer, gildistíma og nafn
korthafa. Svonefndur SSL-búnaður
(Secure Sockets Layer) hefur til
þessa verið einna algengastur til
að tryggja öryggi slíkra viðskipta.
Hann kóðar upplýsingar, t.d. um
númer greiðslukorts, og eiga þær
ekki að vera aðgengilegar öðrum
en kaupanda og seljanda hverju
sinni.
SKJÁVESKI
Visa ísland hefur um nokkurt
skeið boðið viðskiptavinum svo-
nefnt skjáveski, eða SET-búnað
(Secure Electronic Transaction).
SET-búnaðurinn virkar þannig að
sá sem miðlar greiðslunni, t.d.
greiðslukortafyrirtækið, vottar að
kaupandi og seljandi séu í raun
þeir sem þeir segjast vera og hefur
milligöngu um að miðla greiðslunni
frá kaupanda til seljanda, án þess
að greiðslukortsnúmerið fari á milli
um hina öru þróun sagði Andri að
fjöldi slíkra samninga hafi tvöfald-
ast á tímabilinu frá júní og fram í
október á þessu ári. Þar vó þungt
tilkoma vefverslunar Strik.is, sem
er einskonar verslanaklasi.
í þessum samningum skuld-
binda söluaðilar sig m.a. tii að
setja upp SET-búnað og taka öll
Visa-greiðslukort gild þegar upp-
lýsingar um greiðslur eru sendar
með SET-hugbúnaði. Eins eru
heimiluð greiðslukortaviðskipti
þeirra, sem ekki hafa SET, séu
þau brengluð samkvæmt SSL-
staðlinum. Hins vegar ábyrgist
Visa ísland ekki greiðslu til söluað-
ila vegna vefverslunar nema SET-
staðallinn sé notaður. í reynd er þó
varan greidd hafi hún verið afhent
með sannanlegum hætti. Andri
sagði að auk þeirra sem gert
hefðu sérstaka þjónustusamninga
við Visa um vefviðskipti stunduðu
margir vefviðskipti með aðstoð
greiðslukorta líkt og um venjulega
símsölu væri að ræða, en slíkt er
ekki heimilt. Umsvif vefverslunar-
innar væru því mun meiri en ætla
mætti af umfangi vefviðskipta-
samninga.
NETGREIÐSLA - STAÐGREIÖSLA
íslensku bankarnir hafa boðið
viðskiptavinum sínum upp á svo-
nefndar netgreiðslur. Þar er um að
ræða staðgreiðslu vöru eða þjón-
ustu á Netinu án þess að gefnar
séu viðkvæmar upplýsingar, t.d.
um kortanúmer og gildistíma.
Þessi viðskipti fara um heima-
banka viðskiptavina. Þegar þeir
ákveða að kaupa einhverja vöru
hjá verslun, sem er í netgreiðslu-
samstarfi við bankann, verður til
reikningur sem sendur er til kaupa-
ndans. Þegar hann greiðir reikn-
inginn í heimabankanum berast
upplýsingar um það til seljandans
og varan er send.
AUKNING í
HEIMSENDINGUM
Reynir Árnason, sölu- og þjón-
ustustjóri íslandspósts hf., sagði
að mikið væri leitað tii íslands-
pósts varðandi dreifingu á seldum
varningi frá vefverslunum. íslan-
dspóstur er með dreifikerfi sem
nær til allra landsmanna. Einnig
hefur fyrirtækið byggt upp heima-
ksturskerfi fyrir stærri sendingar,
þar sem bögglum er ekið heim til
viðtakenda, og nær það til um 90%
landsmanna.
„Við hjá íslandspósti höfum
merkt aukningu í vefverslun á und-
anförnum mánuðum," sagði Reyn-
ir. Hann sagði að margar vefversl-
anir hafi sprottið upp fyrir síðustu
jól og gerði ráð fyrir mikilli aukn-
ingu það sem eftir er af árinu. Stór
hluti vefviðskiptanna væri hjá rót-
grónum verslunarfyrirtækjum sem
nýttu Netið til að auka aðgengi við-
skiptavina að vörum sínum. En
hvaða vörur eru algengastar í
bögglunum?
„Það er allt frá bókum og upp í
húsgögn. Ég held að vöruúrvalið á
Netinu sé orðið mjög fjölbreytt og
hægt að nálgast næstum hvað
sem er þar,“ sagði Reynir.
Sendingarnar eru ekki síður tii
viðtakenda á höfuðborgarsvæðinu
en úti á landi. „Fólk sem stundar
heimaverslun vill einfaldlega losna
við að fara út, vill heldur sitja
heima og finna vöruna þar - og fá
svo vöruna heim að dyrum.“
Reynir sagði að margar vefversl-
anir væru í fyrirtækjaþjónustu hjá
íslandspósti. Þá eru póstsending-
arnar sóttar í fyrirtækin. Pósturinn
er flokkaður á kvöldin og honum
ekið út um land á nóttinni. Póst-
sendingum er svo dreift til viðtak-
enda daginn eftir, í fyrirtæki á
vinnutíma og til einstaklinga á
tímabilinu frá kl. 17 til kl. 22.
Reynir sagði að töluvert væri um
póstsendingar frá útlendum vef-
verslunum. Hann nefndi sérstak-
lega bókaverslunina Amazon.com,
sem hafi verið ein fyrsta vefverslun
sem eitthvað kvað að. Að sögn
Reynis verður á næstu vikum farið
að aka sendingum frá útlendum
vefverslunum heim til viðtakenda
og gefst þeim kostur á að greiða
þar aðflutningsgjöld, í stað þess
að þurfa að sækja erlendar send-
ingar á pósthús eins og verið hef-
ur.
Að sögn Reynis eru mjög góð
skil á sendingum frá vefverslunum,
ekki síst eftir að heimakstur var
tekinn upp.
NEYTENDAVERND AUKIN
Af samtölum við stjórnendur net-
verslana er greinilegt að ákveðinn
kippur er að koma í rafræn við-
skipti. Netverslanir eru að þróast
og viðskiptin að aukast með al-
mennari netaðgangi. Hins vegar er
að ýmsu að hyggja eins og kemur
fram í grein Valgerðar Sverrisdótt-
ur, iðnaðarráðherra, undir yfirskrift-
inni Stór skref í átt til aukinnar
neytendaverndar á íslandi í Morg-
unblaðinu 20. maí í vor. Valgerður
minnir á að einkenni viðskipta með
fjarsölusamningi séu að neytand-
inn hafi ekki haft tækifæri til að
skoða vöruna með sama hætti og í
verslunum. Fram kemur að með
lögum um hússölu- og fjarsölu-
samninga sé réttarvernd neytenda
stórlega bætt. í lögunum sé sór-
staklega tekið á upplýsingaskyldu
seljanda í fjar- og húsgöngusölu.
Jafnframt er neytanda veittur 14
daga skilafrestur þegar kaup eru
gerð með framangreindum hætti.
Neytendinn getur fallið frá kaup-
samningnum innan þess tíma og
ber að endurgreiða honum án
nokkurs kostnaðar þær greiðsiur
sem hann kann að hafa innt af
hendi. Lögin stemma einnig stigu
við notkun ýmissa fjarskiptaað-
ferða við fjarsölu, t.d. símbréfa,
tölvupósts o.fl.