Morgunblaðið - 08.10.2000, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Pétur er kominn
heim og líður vel
Pétur Karl Guðmundsson, fyrrverandi at-
vinnumaður í NBA, Argentínu og Englandi,
er þjálfari hjá nýliðum Vals/Fjölnis í úrvals-
deildinni og þrátt fyrir að eiga að baki lang-
an feril sem atvinnumaður er hinn hávaxni
miðherji að takast á við nýtt og spennandi
verkefni sem tengist íþróttinni. Sigurður
Elvar Þórólfsson ræddi við Pétur um gang
mála í körfunni í viðum skilningi.
Morgunblaðið/Golli
Pétur Guðmundsson fbygginn á svip í hlutverki þjálfara úrvals-
deildarliðs Vals/Fjölnis í körfuknattleik.
Eg fór tíl Bandaríkjana árið 1994
af persónulegum ástæðum eftir
að hafa leikið í þrjú ár hér á landi, tvö
tímabil með Tindastóli og eitt með
Breiðabliki. í Bandaríkjunum hvíldi
ég mig aðeins á körfuboltanum og
sneri mér að öðrum hlutum. Það
blundaði samt alltaf í mér að fara að
þjálfa og miðla af minni reynslu og
mér líður mjög vel að vera kominn
heim á nýjan leik,“ sagði Pétur er
hann var spurður um ástæður þess
að hann hefði ákveðið að taka að sér
þjálfun á íslandi.
Pétur er eins og áður segir þjálfari
Vals/Fjölnis ásamt því sem hann
starfar við sölu á ýmiskonar atvinnu-
húsnæði á fasteignasölu í Hafnar-
firði.
Hvernig upplifír þú íslenskan
körfuknattleik í dag ef við miðum við
árín 1991-1994, hafa orðið miklar
breytingar?
„Fyrir það fyrsta er mesti munur-
inn að upplifa leikinn frá hliðarlín-
unni sem þjálfari en ekki sem leik-
maður inni á vellinum. Eg er að átta
mig betur á því hverju maður getur
stjórnað sem þjálfari og hvernig
maður getur komið því sem best til
skila. Þegar ég lék með Tindastól og
Breiðablik á árunum 1991-1994 var
ákveðið agaleysi í leik flestra ís-
lenskra liða og menn komust upp
með meira frjálsræði en ég átti að
venjast frá Bandaríkjunum. Mér
sýnist að lítið hafi breyst hvað varðar
heildarsvipinn á körfuboltanum en
það eru komnir fleiri góðir einstakl-
ingar á borð við Jón Amór Stefáns-
son og Loga Gunnarsson.“
Hvað er það sem er einkennir ís-
lenskan körfuknattleik mest?
„Það hefur alltaf verið mikið af
skyttum á Islandi og ég sem mið-
herji hef oft tautað í hljóði yfir því
hve illa okkur tekst að nýta þá eigin-
leika sem stóru íslensku leikmenn-
imir hafa. Flest lið fá sér stóra er-
lenda leikmenn og þannig fá
hávöxnu íslensku leikmennirnir oft
minni leiktíma og þroskast seinna en
ella sem leikmenn.
Það hefur einnig loðað lengi við
okkur á íslandi að stóla meira á ein-
staka leikmenn en liðsheildina og
það skýrir kannski best þann fjölda
erlendra leikmanna sem hefur komið
og farið á undanförnum ámm. Við
höfum ekki þolinmæði tíl að byggja
upp og viljum ná fram breytingum
strax og þá er auðveldast að skipta
um erlendan leikmann."
Hvernig fínnst þér til hafa tekist
með nýju reglubreytingunum,
styttrí skotklukku ogfjóra leikhluta?
„Við fyrstu sýn em litlar breyting-
ar á leiknum. Islensk lið hafa aldrei
átt í vandræðum með að klára sóknir
á stuttum tíma og 24 sekúndna skot-
klukka breytir sáralitlu að mínu
mati. Reyndar er stutt síðan þessi
breyting var gerð og kannski tekur
þetta einhvern tíma hjá leikmönnum
að átta sig á breytingunum."
Finnst þér áhugi á íþróttum hafa
minnkað meðai almennings á ís-
landi?
„Ég tel að allar íþróttir séu af hinu
góða og það er undir okkur sjálfum
komið hvernig til tekst að markaðs-
setja vörana sem við emm að fá fólk
til að stunda og horfa á. Það er margt
í boði fyrir almenning í dag og
áhuginn er mikill t.d. ef tekið er mið
af sjónvarpsáhorfi en við verðum að
ná til yngri kynslóðarinnar og fá
fleiri böm og unglinga til að stunda
íþróttir.
Það var virkilega gaman að fylgj-
ast með okkar fólki á Ólympíuleikun-
um og afrek þeirra sem stóðu sig
best skila sér vonandi með fleiri iðk-
endum og það er jákvætt fyrir
íþróttalífið á Islandi."
Einstaklingsf ramtakið í háveg-
um haft í NBA-deildinni
Þú minnist á Ólympíuleikana, er
forskot Bandaríkjanna að minnka
eitthvað íkörfuknattleiknum ?
„Bandaríkin byggðu leik
karlalandsliðs síns á einstaklings-
framtaki líkt og þekkist í NB A-deiId-
inni. Litháen og Frakkland vom lið
með sterka liðsheild og það sýndi sig
í þeim leikjum þar sem Bandaríkja-
menn áttu í vandræðum að leikmenn
liðsins em frábærir íþróttamenn
sem geta stokkið hátt og hlaupið
hratt, en þeir vinna ekki vel saman.
Ég gæti alveg trúað því að keppnin á
næstu Ólympíuleikum verði enn erf-
iðari fyrir Bandaríkjamenn þar sem
sú kynslóð sem leikur í NBA-deild-
inni í dag er gjörólík því sem við átt-
um að venjast frá mönnum á borð við
Larry Bird, Magic Johnson og
Michael Jordan.“
Pétur Guðmundsson, fyrrverandi
leikmaður með Los Angeles Lakers,
opnaði það ekki möguleika fyrir þig á
öðrum sviðum?
„Ég er búinn að vera í Bandaríkj-
unum í um 25 ár samanlagt og hef
upplifað velgengni og mótlæti þar í
landi. Mér stóð til boða að starfa
áfram við körfuknattleik í gegnum
ýmsa háskóla en ég þekki það af eig-
in raun að það er ekki fyrir hvem
sem er að kljást við öll vandamálin
sem því fylgja. Þegar maður lítur til
baka var ég ekki mikið fyrir það að
koma sjálfum mér á framfæri þegar
ég hætti að leika sjálfur í NBA-deild-
inni. Ég kynntist mörgu fólki á þess-
um tíma sem var áhrifamikið á
mörgum sviðum fþróttarinnar en
einhvern veginn var ég ekki tilbúinn
að gefa mig í það á þeim tíma.“
Hvað varstu að gera í Bandaríkj-
unum áður en þú komst heim isum-
ar?
„Ég flutti til San Antonio árið 1994
og bjó þar í eitt ár. Flutti síðan til
Seattle þar sem ég hafði verið áður í
háskóla og bjó þar í tæp fimm ár.
Það tók mig lengri tíma en ég átti
von á að finna hvað gæti verið heppi-
legt framtíðarstarf hjá fyrrverandi
atvinnumanni í körfuknattleik, ann-
að en að starfa við þjálfun. A tímabili
starfaði ég við að koma efnilegu
náms- og íþróttafólki í samband við
litla háskóla sem ekki höfðu fjár-
magn til þess að auglýsa sína starf-
semi. Þar sé ég mikla möguleika fyr-
ir íslenskt íþróttafólk og hef áhuga á
að þróa þau samskipti er fram líða
stundir, það em gríðarlega margt
hægt að gera til þess að sameina
nám og íþróttir og má þar nefna sem
dæmi mjúkbolta sem líkist hafna-
bolta og er íþrótt sem hentar íslensk-
um handboltakonum mjög vel ef þær
hafa áhuga.“
Hvernig er eftirlaunamálum hátt-
að hjá fyrrverandi NBA-leikmanni,
ertu ekki vel staddur fjárhagslega?
„Það hefur orðið mikil breyting á
starfsemi félags sem stofnað var af
fyrrverandi NBA-leikmönnum og
sér um öll eftirlauna- og trygginga-
mál. Ég er kominn í hóp þeirra sem
fá eftirlaun þar sem ég var á mála
hjá NBA-liðum í tilskilinn fjölda ára
en það era engar stórar upphæðir
sem um er að ræða. Þegar ég verð
fimmtugur fæ ég mánaðarlega
greiðslur úr eftirlaunasjóði NBA-
deildarinnar í hlutfalli við þann tíma
sem ég var í deildinni, þannig að ég
fæ eitthvað minna en Kareem
Abduhl Jabbar eða Robert Parish.“
Þú lékst með Portland, San Ant-
onio, Lakers og bjóst síðan lengi í
Seattle. Hvað er liðið þitt í NBA-
deildinni?
„Það er Los Angeles Lakers. Mér
gekk best þar, á góðar minningar frá
þeim tíma og margir af þeim sem
störfuðu við félagið þá era þar enn
og ég held ágætu sambandi við Lak-
ers. Það hafa orðið meiri breytingar
hjá Portland og San Antonio en
áhangendur San Antonio muna vel
eftir Islendingnum þar sem ekkert
annað atvinnumannalið er í borginni
og sérstök stemmning í kringum lið-
ið. Ef eitthvað sérstakt kæmi upp á
þá væri það lítið mál að þróa ein-
hvers konar samstarf við þessi félög
en það er bara að finna rétta flötinn á
því samstaríi," sagði Pétur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingi Sturla og Silja fara á HM í Chile.
Tveimur
boðið til
Örgryte
SÆNSKA knattspyrnufé-
lagið Örgryte hefur boðið
tveimur efnilegum íslend-
ingum til sín til reynslu síðar
í þessum mánuði. Það eru
Magnús S. Þorsteinsson, 18
ára unglingalandsliðsmaður
úr Keflavík, og Bjarni Hólm
Aðalsteinsson, 16ára
drengjalandsliðsmaður úr
Hugin á Seyðisfírði. Magnús
lék með Keflavík í efstu
deild í sumar og skoraði eitt
mark f 8 leikjum og Bjami
lék með Hugin/Hetti í 3.
deild.
Jón Pétur Róbertsson
þjálfar unglingalið Örgryte,
18 ára og yngri, og hann
hafði milligöngu í málinu.
Einn íslenskur leikmaður er
í herbúðum Örgryte, Atli
Sveinn Þórarinsson, fyrr-
verandi KA-maður, sem
leikur með unglingaliði og
varaliði félagsins.
Bjarki
enn í vand-
ræðum
BJARKI Gunnlaugsson,
leikmaður enska 1. deildar-
liðsins Preston, á enn í vand-
ræðum vegna nárameiðsla
sem hafa hijáð hann frá því í
sumar. Bjarki haltraði af
velli eftir hálftíma í leik með
varaliðinu í vikunni og útlit
er fyrir að hann verði ekki
leikfær enn um sinn. Bjarki
hefur aðeins komið við sögu
í einum leik með aðalliði
Preston það sem af er tíma-
bilinu, lék þá sem varamað-
ur í 22 mínútur.
Helgi og
félagar
áfram
HELGI Jónas Guðfinnsson
og félagar í belgfska félag-
inu Ieper komust í fyrra-
kvöld í 2. umferð Korac-
Evrópukeppninnar í körfu-
knattleik. Þeir sigruðu þá
Donar Groningen frá Hol-
landi, sem Helgi Jónas lék
áður með, 76:72, á heima-
velli sinum í Belgiu en Ieper
vann fyrri leikinn í Holiandi,
88:70. Helgi Jónas skoraði 4
stig í leiknum í fyrrakvöld
en hann gerði 8 stig íþeim
fyrri. Ieper mætir Girona
frá Spáni í 2. umferð keppn-
innar síðar í þessum mánuði.
Á HM ungl-
inga í Chile
TVEIR ftjálsíþróttamenn, Silja Úlf-
arsdóttir og Ingi Sturla Þórisson,
bæði úr FH, halda í dag til Santíago
í Chile þar sem þau taka þátt í HM
unglinga í frjálsum. Silja keppir þar
í 200 og 400 metra hlaupi en Ingi
Sturla í 110 metra grindahlaupi. Óð-
inn Björn Þorsteinsson úr IR náði
einnig lágmarkinu í kringlukasti en
átti ekki heimangengt vegna anna í
námi í Bandaríkjunum.
Krakkarnir fara fyrst til Noregs
og verða samferða frændum vomm
til Chile og verða með Norðurlanda-
búum í æfingabúðum í viku fyrir
kegpnina.
A meðan krakkarnir dvelja í
Chila er ætlunin að þau sendi fréttir
inn á heimasíðu Vífilfells, sem
styrkir för þeirra, og er slóðin
www.cocacola.is.