Morgunblaðið - 08.10.2000, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
F.v.: Jón Þór Iljaltason sljórnarformaður, Bjöm Einarsson markaðs- og sölustjóri og Guðmundur Halldórsson framkvæmdasljóri.
HEILDARLA USNIR
ERU OKKAR STYRKUR
VIÐSKEPnAlVINNUllF
Á SUNNUDEQI
► Jónar Transport hf. er stærsta fyrirtæki landsins í al-
hliða flutningsmiðlun til og frá Islandi auk þess að vera
með stór verkefni erlendis og er stjórnað frá skrifstofum
fyrirtækisins í Hollandi og Danmörku. Fyrirtækið er í
örum vexti og hyggur á aukin strandhögg.
eftir Guðmund Guðjónsson
ÓN Þór Hjaltason er stjórn-
arformaður fyrirtækisins
og Guðmundur Halldórsson
framkvæmdastjóri þess.
Guðmundur er fæddur 12. júlí
1950, er kvæntur Sólveigu Hauks-
dóttur og þau eiga þrjú börn. Guð-
mundur er viðskiptafræðingur frá
Háskóla Islands, starfaði hjá Eim-
skipi í ýmsum deildum til ársins
1982, en fór þá til Rotterdam og
starfaði sem fulltrúi Eimskips hjá
umboðsmanni fyrirtækisins fyrst í
stað. Opnaði síðan fyrstu eigin
skrifstofu Eimskips erlendis í
Rotterdam og var framkvæmda-
stjóri hennar fyrstu árin. Síðan
flutti hann aftur til íslands og tók
við Norðurlandadeild Eimskips,
tók síðan þátt í uppbyggingu
Flutningsmiðlunarinnar Jóna í
Hafnarfirði frá 1986 og var fram-
kvæmdastjóri hennar til ársins
1992. Stofnaði þá gisti- og veitinga-
staðinn Nesbúð á Nesjavöllum og
rak hann til 1994, en gerðist þá
framkvæmdastjóri BM Flutninga
og síðan, við sameiningu BM
Flutninga og Flutningsmiðlunar-
innar Jóna, framkvæmdastjóri hins
nýja fyrirtækis, Jónar Transport.
Flutningsmiðlunin Jónar hefur
starfað síðan Jón Þór Hjaltason og
Jón Helgi Guðmundsson stofnuðu
fyrirtækið árið 1978 og nefndu eft-
ir sjálfum sér. Frá árinu 1978 hef-
ur fyrirtækið séð inn- og útflytj-
endum á íslandi fyrir „hágæða
flutningsmiðlunarþjónustu um all-
an heim,“ eins og þeir Jón Þór og
Guðmundur komast að orði. Fyrir-
tækið hefur verið á hraðri uppleið,
ekki síst á þann hátt að hafa sam-
einast keppinautum og útvíkkað
þjónustu sína, t.d. með því að taka
að sér þjónustu DHL-hraðflutn-
inga á Islandi. Stærstu leikirnir
voru þegar Jónar sameinuðust
Flutningsmiðluninni árið 1995 og
hét fyrirtækið um tíma Flutnings-
miðlunin-Jónar. Ekki hafði samein-
ing við BM Flutninga 1. júlí síð-
astliðinn minni áhrif á hag
fyrirtækisins. Þá hét fyrirtækið
BM Jónar um stutta hríð, en síðan,
er eigendur fyrirtækisins settu
aukna útrás á oddinn, varð núver-
andi nafn, Jónar Transport, fyrir
valinu.
I kynningu þar sem Jónar
Transport skilgreina sig segir að
fyrirtækið hafi frá upphafi leitast
við að vinna með bestu mögulegu
flutningsaðilum, bæði heima og er-
lendis og þar sé átt við skipa-,
flug- og hraðsendingar hvaðanæva
úr heiminum. Jónar Transport
bjóði upp á alla tengda flutnings-
þjónustu og í því sambandi megi
nefna alla skjalameðhöndlun,
heimakstur eða annan innanlands-
flutning, vöruhúsaþjónustu, þar
með talda tollvörugeymslu- og
vöruhótelaþjónustu.
Þá sé staðsetning fyrirtækisins í
Skútuvogi mikilsverð, þar sem í
næsta nágrenni séu stærstu skipa-
vöruhafnir landsins, vörumiðstöðv-
ar flugfélaganna og helstu dreif-
ingaraðilamir innanlands. „Það er
hérna sem hjartað slær,“ segja
þeir félagar um Skútuvoginn og
nágrenni hans.
AtilB
Þeir félagar segja að umsvif
þeirra hafi aukist mjög og það sé
ekki einvörðungu góðæri og þenslu
að þakka, heldur beinskeyttri
markaðssókn þeirra sjálfra, þeir
hafi í vaxandi mæli boðið fyrir-
tækjum og einstaklingum „heildar-
lausnir", eins og þeir komast að
orði.
„Við höfum byggt upp net sam-
starfsaðila erlendis og getum sinnt
öllum gerðum vöruflutninga, allt
eftir kröfum og þörfum viðskipta-
vinarins í hverju tilviki. Við nýtum
okkur flugfélögin fjögur, Cargolux,
Flugleiðir, Atlanta og íslandsflug
og skipafélögin þrjú, Samskip,
Eimskip og Atlantsskip. Okkar
hlutverk er að finna hagstæðustu
leiðirnar, s.s. hámarkstíma fyrir
lágmarkskostnað. Það sem við höf-
um síðan bætt við þjónustua eru
heildarlausnirnar. Við getum sagt
að flugfélag eða skip flytji vöru frá
A til B. Við bjóðum hins vegar
miklum mun meira, sannkallaða
heildarlausn. Við sækjum í hús eða
verksmiðjur og komum varningi til
viðskiptavina með þeim hætti að
þeir þurfa varla að lyfta litla fingri.
Það er séð um allt, samninga,
pappírsvinnuna, uppskipun og
flutning. Allt. Þetta höfum við ver-
ið að þróa með góðum árangri síð-
ustu 3-4 árin og þarna liggja mikil
sóknarfæri, bæði heima og erlend-
is,“ segir Guðmundur.
Þið talið um útrás?
„Já, við stefnum á aukin umsvif
erlendis. Við erum komnir með
tvær skrifstofur erlendis, aðra í
Danmörku og hina í Hollandi.
Fleiri verða opnaðar á næstunni og
munum við kynna það sérstaklega
þegar þar að kemur. Starfsemi
okkar hefur lengst af snúist um að
flytja til og frá Islandi, en æ fleiri
verkefni koma aldrei til Islands og
við erum að þreifa fyrir okkur víða
erlendis. Það liggur við að það séu
alls staðar sóknarfæri ef menn
vinna vandaða vinnu og þá skiptir
ekki máli hverrar þjóðar fyrirtæk-
ið er. Við bindum t.d. miklar vonir
við Norður- og Suður-Ameríku og
Asíu. Til marks um það eru Jónar
með vikulegar safnsendingar í
skipafragt frá ótal höfnum ytra,
Rotterdam, Hamborg, Imming-
ham, Árósum, Kaupmannahöfn,
Gautaborg, Varberg, Fredrikstad,
Moss og Norfolk. Aðeins ein þess-
ara hafna er vestan hafs. Safn-
sendingar eru nýtt fyrirbæri í
flutningsmiðlun hérlendis og hug-
myndafræðin er að við kaupum
óháðir pláss í skipum, flugvélum
eða gámum og berum sjálfir
ábyrgð á kostnaðarhliðinni. Með
því að viðskiptavinir nýti plássið
vel lækkar kostnaður. Þannig virk-
ar það.“
Guðmundur undirstrikar að fyr-
irtækið nýti ekki síður flugið til
sendinga og að Jónar Transport
séu frumkvöðlar á sviði safnsend-
inga í flugi til íslands, hafi alla tíð
verið í forystu á markaðnum á því
sviði og njóti samvinnu færustu
fyrirtækja erlendis til að allt
standi eins og stafur á bók. í
tengslum við flugsendingar sé síð-
an nýjasta viðbótin við starfsemi
Jóna, hraðþjónusta DHL. „DHL er
stærsta hraðflutningsþjónusta
Evrópu og frá og með 1. septem-
ber sl. höfum við séð um alla toll-
afgreiðslu og dreifingu sendinga
hér á landi fyi-ir þá,“ segir Guð-
mundur.
SMT-tengdir
Jónar Transport nýta sér ríku-
lega að vera nettengt fyrirtæki og
segja þeir félagar að áhugasamir
geti orðið margs vísari um starf-
semina með heimsókn á heimasíðu
fyrirtækisins. Síðan nýti þeir sér
tölvutæknina á margvíslegan máta
annan, t.d. séu bókunarupplýsing-
ar, svokallað „preadvice“, sendar
beint af tölvukerfi Jóna til við-
skiptamanna um leið og skráningu
er lokið. Það sé gert nokkrum dög-
um áður en sendingin kemur til
landsins ef um safnsendingar er að
ræða. „Það liggur nú í hlutarins
eðli að fyrirtæki á borð við Jóna
nýtir sér í ríkum mæli tölvutækn-
ina og það gerum við á mörgum
sviðum. Þar má nefna í sömu and-
ránni fleiri svið þar sem við höfum
komið okkur fyrir eins og til dæm-
is tollskýrslugerð og heimakstur,
en sú starfsemi okkar hefur vaxið
hröðum skrefum enda eru það sí-
fellt fleiri innflytjendur sem nýta
Starfsemi okkar
hefur lengst af
snúist um að
flytja til og frá
íslandi, en æ
fleiri verkefni
koma aldrei til
íslands og við
erum að þreifa
fyrir okkur er-
lendis
sér slíka þjónustu, ásamt því að fá
vörunni skilað heim á hlað. Við
höfum um langt skeið verið SMT-
tengdir við tollinn hér heima, en
samkvæmt nýjum lögum þurfa all-
ir sem hyggjast tollafgreiða vörur
að SMT-tengjast tollinum frá árs-
byrjun 2001. Þessi hluti starfsem-
inar mun því aukast enn meira,
enda er það raunin um allan heim
að sérhæfðir flutningsmiðlarar sjá
um þennan þátt að mestu eða öllu
leyti. Almennt séð bjóðum við þá
þjónustu að tollafgreiða og afhenda
sendingar samdægurs eða næsta
virka dag eftir komu til landsins,"
segir Guðmundur og heldur áfram:
„Við rekum einnig tollvöru-
geymslu í Holtagörðum. Þar er
leitast við að veita viðskiptavinum
alhliða þjónustu, þannig að hann
þarf yfirleitt ekki að koma á stað-
inn þar sem varan er afhent
skömmu eftir að hann hefur pant-
að. Við getum nefnt sem dæmi, að
í gegnum tollvörugeymslu okkar er
afgreiddur meirihluti alls áfengis
sem kemur inn í landið.
Við erum enn fremur með al-
hliða viðskiptaþjónustu, enda höf-
um við yfir færasta starfsfólki á
þessu sviði að ráða.
Loks má nefna að við tökum að
okkur ýmiss konar sérverkefni og
sýningar. Jónar Transport hafa í
gegnum tíðina tekið að sér stærri
verkefni, t.d. flutning á 70 tonna
spennu fyrir raforkuver. Við erum
einnig sérhæfðir í sýningum af
ýmsu tagi og sú þjónusta er veitt í
samræmi við þarfir og kröfur við-
skiptavina. Starfsfólk okkar sér þá
um öll formsatriði, þar á meðal alla
skjalameðhöndlun, innflutning og
endursendingu á sýningarmunum,
einnig flutning, afhendingu og
frágang á sýningarstað ef nauðsyn
krefur.“
Háðir sveiflum
Guðmundur segir að áætluð
velta fyrirtækisins á þessu ári sé
rúmlega tveir milljarðar. Ekki sé
hægt að bera það saman við neitt,
því svo stutt sé síðan fyrirtækið
var mun smærra og minnir á sam-
runann við BM Flutninga. Um
vöxt og viðgang vill hann aðeins
segja að fyrirtækið sé „langstærst“
á sínu sviði hér á landi. Erfitt eða
ógjörningur sé hins vegar að nefna
prósentutölur í þeim efnum. Guð-
mundur segir enn fremur að gott
efnahagslíf og stöðugleiki glæði
starfsumhverfið og niðursveifla í
þjóðfélaginu myndi að sama skapi
hafa sams konar áhrif á starfsem-
ina. „Versnandi efnahagsástand
myndi hafa bein áhrif á okkur, um
það er engin spurning. Við erum
svo heppnir að ástandið hefur ver-
ið gott á þessum uppgangstímum
okkar og það er á okkar valdi að
búa svo um hnútana að fyrirtækið
standi styrkum fótum þótt á móti
kunni að blása síðar meir. Það er
ekki síst ástæðan fyrir því að við
leggjum nú svo mikla áherslu á að
byggja upp starfsemi okkar er-
lendis. Við erum ekki einir í flutn-
ingsmiðlun á íslandi, en auk þess
að vera langstærstir í geiranum er-
um við eina fyrirtækið sem farið
hefur í útrás. Það er engin ástæða
til að draga af sér í þeim efnum,
verkefnin eru úti um allt og æ
betra að nálgast þau eftir því sem
fyrirtækið getur sér frekara orð
fyrir vönduð vinnubrögð. „Góð
þjónusta" eru kjörorð okkar og
það hefur reynst ágætlega."