Morgunblaðið - 08.10.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000 39
MINNINGAR
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Þinn tengdasonur,
Óskar Gísli.
Við fráfall ástkærs tengdaföður á
borð við Vilhelm Guðmundsson hlað-
ast upp endurminningar í ríkari mæli
en hægt að greina frá nema að tak-
mörkuðu leyti.
Kynni okkar hófust íyrir um hálf-
um öðrum áratug er við Kidda dóttir
hans hófum sambúð sem síðan leiddi
til hjónabands. Aldrei hefur fallið
skuggi á samband okkar og tengda-
foreldra minna síðan, sem fyrst og
síðast er að þakka hjartalagi þeirra
beggja.
Það sem mér fannst bera hæst í
fari Villa var hvað hann setti aðra
ávallt í fyrirrúm og vék ekki að sjálf-
um sér fyrr en hann var orðinn úr-
kula vonar um að aðrir þyrftu á hjálp
hans að halda. Skipti þá engu hvort
um var að ræða nákomna ættingja
eða aðra alls óskylda.
Hann var ekki einn um þessa lífs-
sýn því hann naut fyllsta stuðnings
Óldu konu sinnar í þessu hjálpar-
stai-fi í þá rúma fjóra áratugi sem þau
voru samvistum. Þessi náungakær-
leikur er að vísu uppistaðan í krist-
inni trú en ég hef aldrei, hvorki fyrr
né síðar kynnst annarri eins ræktar-
semi á þessu sviði. Fyrir Villa og
Öldu var þetta hinsvegar jafn eðlileg-
ui' þáttur í daglegu lífi og að draga
andann.
Villi var einstaklega duglegur og
eljusamur maður sem aldrei féll verk
úr hendi meðan hann lifði. Hann og
Alda bjuggu fjölskyldu sinni fallegt
heimili þótt launin væru lág og komu
fimm góðum bömum sínum til
manns. Þetta þætti mikið afrek út af
fyrir sig þótt ekki kæmi til „stóriðja"
þeirra hjóna í hjálpsemi sinni við aðra
eins og raun bar vitni.
Fyrir nokkrum mánuðum ákváðu
þau Villi og Alda að hægja aðeins
ferðina og seldu húsið sitt í Ljárskóg-
um og keyptu sér rúmgóða íbúð á
Barðastöðum í Grafarvogi og hugðu
nú á náðuga daga á efri árum enda
virtist heilsan í góðu lagi og þægilegt
ævikvöld framundan.
En enginn veit sína ævina fyrr en
öll er því þau voru tæpast búin að
taka upp úr kössum þegar Villi veikt-
ist. Veikindastríðið stóð hinsvegar
skamman tíma og tók snögglega
enda 2. október síðastliðinn.
Ég veit að Guð almáttugur skipar
Villa veglegan sess á himnum eftir öll
góðverkin í jarðlífinu. Það verður
okkur sem eftir lifum huggun í því
mikla tómarúmi sem hann skilur eftir
sig. Guð blessi minningu hans.
Atli Edgarsson.
Elsku afi Villi.
Okkur langar til að þakka fyrir allt
sem þú gerðir fyrir okkur, ferðimar
niðui- á tjörn, í Kolaportið, á höfnina
og fleira. Það var alltaf gaman þegar
við vorum hjá ykkur ömmu. Þegar við
fórum snemma á fætur og færðum
ömmu morgunmat í rúmið og fengum
okkur síðan „súllepo" sem er sérstök
blanda af morgunmat sem þú fannst
upp og nefndir.
Við lofum því að passa vel upp á
ömmu og halda áfram að gera
skemmtilega hluti með henni. Okkur
þótti svo vænt um þig og söknum þín
svo mikið en sem betur fer eigum við
mikið af fallegum minningum sem við
varðveitum.
Við vitum að þú situr núna með
Guðlaugu frænku í fanginu og fylgist
með okkur og verndar.
Láttu nú ljósið þitt,
logaviðrúmiðmitt.
Hafðuþarsessogsæti,
signaðiJesúsmæti.
(Höf. ók.)
Hvíl í friði, elsku afi.
Þín bamaböm,
Alda Guðlaug, Bryndís Ósk,
Ragnar Bjöm og Hanna Liv.
Elsku Villiminn.
Aldrei gmnaði mig að kveðju-
stundin kæmi svona fljótt. Þú varst
alltaf sérstakur frændi í huga mínum
þar sem þú varst alltaf svo góður við
mig. Ég vil þakka þér fyrir árin sem
ég ólst upp með þér hjá ömmu í
Granaskjólinu. Ég á margar góðar
minningar þaðan sem ég geymi í
hjarta mínu nú þegar þú ert farinn.
Þetta eru minningar um þann góða
dreng sem þú hafðir að geyma.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Kg umveQi blessun og bænir,
égbiðaðþúsofirrótt.
Þótt svíði sorg mitt hjarta
þásælteraðvitaafþví,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þínverölderbjörtáný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um huga minn fer.
Þótt þú sért horfinn úr heimi.
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir og lýsir
umókomnatíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Alda, Kidda, Mummi,
Ragna, Linda og Halldór og aðrh-
aðstandendur, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð og bið góðan guð að
styrkja ykkur á þessum sorgartíma.
Þín frænka,
Erla.
Það var fyrsti dagur í sumarvinnu
fyrir 45 árum. Væntanlegir vinnufé-
lagar í blikksmiðju JBP voru misvel
upplagðir þennan morgun, sumir
með stírur í augum, aðrir skapstirðir
eins og gengur en flestir þögulir og
fremur skeytingarlitlir um þennan
renglulega fimmtán ára skólastrák.
Einn skar sig þó úr hópnum er
hann bauð óvart góðan daginn með
nokkuð hvellri en þó vingjarnlegri
rödd. Ég leit sem snöggvast upp úr
feimninni og á laglegan, myndarleg-
an, vingjarnlegan, skælbrosandi og
svo ofboðslega rauðhærðan mann að
ekki þurfti annan ljósgjafa í verk-
smiðjusalnum.
Þetta var hann Villi sem hafði lag á
því að blása burt alla feimni og láta
öllum líða vel í návist sinni enda fyrir-
fannst ekki svo daufleg tilvera að
hann lífgaði ekki upp á hana án fyrir-
hafnar hvað þá að vita af því. Af þeim
ástæðum fyrst og fremst á ég afskap-
lega góðar minningar um þennan
vinnustað.
Blikksmíði er afar krefjandi iðn-
grein þar sem orðtækið „í upphafi
skal endinn skoða“ á betur við en um
flestar aðrar greinar. Hún gerir að
auki miklar kröfur til djúprar þekk-
ingar á efni og tækjum auk ná-
kvæmni í vinnubrögðum svo ekki sé
minnst á tilfinningu fyrir flatarmáli
og mmfræði.
Það fór ekki fram hjá neinum að
Villi var afburða fagmaður og þurfti
því engan að undra að hann væri kall-
aður til að kenna iðgrein sína í Iðn-
skólanum í Reykjavík um ái'atuga
skeið en á þeim vettvangi áttum við
gott samstarf enn á ný um nokkra
hríð.
Mér hlýnaði þessvegna mjög um
hjartarætur þegar Atli sonur minn
gekk að eiga Kristínu Sólveigu dóttur
Villa og Öldu hans ágætu eiginkonu.
Hjónaband Villa og Öldu, baj'nalán
þeirra og samheldni í blíðu og stríðu
var með fádæmum.
Fráfall Villa átti sér ekki langan
aðdraganda. Alda horfir nú skyndi-
lega á bak ástríkum eiginmanni, börn
og tengdabörn eftir umhyggjusöm-
um föður, tengdaföður og vini og
barnabörnin fá ekki lengur að sitja í
fanginu á þessum öndvegisafa. Þeirra
söknuður er mikill og einlægur enda
var allur æviferill hans hlaðinn góð-
mennsku, tillitssemi og umhyggju.
Við Hanna flytjum Öldu og afkom-
endum þeirra hlýjar samúðarkveðjur
á þessum sorgartímum.
Edgar Guðmundsson.
Elsku Villi frændi!
Mig langar til að kveðja þig með
nokkrum orðum og þakka þér íyrir
allt það góða sem þú hefur alltaf sýnt
mér og fjölskyldu minni.
Alltaf varstu léttur í lund og gerðir
oft góðlátlegt grín að ýmsu sem um
dagana hafði drifið og árin sem þú
varst ungur drengur vestur á Þing-
eyri við Dýrafjörð. Síðar fluttust þið
amma á Fálkagötuna og var ég þar
mikið, enda stutt að fara er ég bjó hjá
foreldrum mínum á Reynimelnum.
Ég man hvað þú varst duglegur að
byggja nýja húsið þitt í Granaskjól-
inu. Þú varst nýfluttur inn er ég
missti móður mína ung að aldri og
tókstu mér opnum örmum ásamt
Öldu eiginkonu þinni og ömmu. Ég
hefði ekki getað fengið betra heimili.
Hjá ykkur var mér var sýnd mikil ást
og væntumþykja og fann ég ávallt
hlýhug ykkar til mín.
Er þú starfaðir í Blikksmiðju
J.B.P. við Vesturgötuna voru ófá
skiptin sem ég kom þangað til að vera
þér samferða heim úr vinnunni. Mik-
ill smiður varstu og hafðir gaman að
gera fallega hluti. Ég man hvað þú
varðst ánægður þegar þú byrjaðir að
kenna í Iðnskólanum og hvað þú
hafðir gaman af að kenna syni mínum
og vinum hans suðu og smíði er þeir
voru við nám í vélaverkfræðideild
Háskólans.
Einnig vil ég þakka ykkur Öldu
hve góð þið voruð alltaf að hugsa um
ömmu og hafa hana á heimilinu öll ár-
in sem hún lifði, enda vildi hún hvergi
annarsstaðar vera en hjá ykkur og
segir það sína sögu.
Kveð ég þig með sámm söknuði og
þakka þér fyrir allt elsku Villi.
Ég og fjölskylda mín senda samúð-
arkveðjur til Öldu, barna og barna-
barna og megi góður guð gefa þeim
styrk í sorg sinni.
Helga Vallý.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
\ W-Í5
_
*
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
+
Ástkær unnusti minn, sonur okkar, tengda-
sonur, bróðir og mágur,
ÁGÚST ÞÓR ÞÓRSSON,
Sogavegi 109,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 10. október kl. 15.00.
Erla Rut Kristínardóttir,
Helga Hallbjörnsdóttir, Egill Ólafsson,
Þór Ottesen, Brynhildur Ólafsdóttir,
Kristín Viðarsdóttir, Jónas Rútsson,
Hallbjörn Eðvarð Þórsson, Anna María Magnúsdóttir,
Fjóla Helgadóttir, Einar Rúnar Friðbjörnsson,
Anna Lovísa, Áslaug, Brynja, Bjarki,
Kristinn Viðar og Heiða Björg.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
AUÐUR GUÐRÚN ARNFINNSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áðurtil heimilis í Lönguhlíð 19,
andaðist miðvikudaginn 4. október.
Útför hennar verður gerð frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 12. október kl. 13.30.
Karen Guðmundsdóttir,
Guðmunda Gunnur Guðmundsdóttir isfeld, Ingþór isfeld,
Auður Inga Ingvarsdóttir, Guðjón Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, afi og langafi,
AAGE R. L'ORANGE,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju mánu-
daginn 9. október kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega
bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra
barna.
Anna S. L'Orange,
Emilía L'Orange
og fjölskyldur.
+
Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur vináttu,
hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs
unnusta míns, sonar okkar, bróður, mágs,
frænda og tengdasonar,
KRISTJÁNS BJÖRNSSONAR
löggilts fasteignasala,
Langholtsvegi 186,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Berglind Valgeirsdóttir,
Sigrún Oddgeirsdóttir, Björn B. Kristjánsson,
Oddgeir Björnsson, Rósa I. Jónsdóttir,
Matthías Björnsson, Anna E. Gunnarsdóttir,
Birna Rún Björnsdóttir,
Hildur Rún Björnsdóttir, Hallur G. Hilmarsson,
systkinabörn,
Soffía R. Ragnarsdóttir,
Valgeir Ingi Ólafsson, Kristín Anný Jónsdóttir,
Jón Ómar Valgeirsson.
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát
og útför
SIGURVEIGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Kjarnalundi,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimiiis-
ins Kjarnalundar og starfsfólks lyflækninga-
deildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Svava Ásta Jónsdóttir,
Guðmundur Örn Árnason,
Haukur Árnason,
Þórunn Árnadóttir,
Svava Árnadóttir,
Guðjón Steinþórsson,
Sólveig Runólfsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Tómas Agnar Tómasson,
Jón Guðnason.