Morgunblaðið - 11.10.2000, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um stefnu íslands í alþ.jóðasamskiptum
Leysum ekki ein og
óstudd vandamál
sem steðja að full-
valda ríkjum
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í
gær að ísland gæti ekki eitt og óstutt leyst ýmis þau vanda-
mál sem steðja að fullvalda ríkjum nú á tímum. Hann sagði að
íslendingar ynnu best að hagsmunum sínum með því að vera í
samstarfi við aðrar þjóðir og gagnrýndi þess vegna harðlega
þingsályktunartillögu Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs, sem Steingrímur J. Sigfússon mælti fyrir í gær, um
stefnu íslands í alþjóðasamskiptum.
Tillaga vinstri
grænna gerir ráð
fyrir að Alþingi
álykti _að hags-
muna Islands sé
best gætt með því
að ísland standi
utan efnahags-
bandalaga og
ríkjasambanda en
hafi við þau sem
besta samvinnu
með sérsamning-
um án aðildar.
Þannig verði sjálfstæði og óháð
staða landsins nýtt til að treysta
samskiptin við ríki og markaði
beggja vegna Atlantshafsins og við
aðra heimshluta. Ennfremur að
leitast verði við að þróa EES-
samninginn í átt til tvíhliða samn-
inga um viðskipti og samvinnu.
Steingrímur J. Sigfússon gerði
umræður um aðild að Evrópusam-
bandinu raunar að sérstöku um-
talsefni í framsöguræðu sinni í
gær og sagði hann mikilvægt að
eyða allri óvissu um stöðu íslands
í þeim efnum.
Ekki verið að afsala fullveldi
með samstarfi við aðrar
Halldór Ásgrímsson var hins
vegar ómyrkur í máli og sagði til-
lögu vinstri grænna ganga full-
komlega gegn núverandi stefnu ís-
lands í utanríkismálum. Kvaðst
hann hafa orðið undrandi þegar
hann las tillöguna enda hefði utan-
ríkisstefna Islands grundvallast á
þátttöku í ríkjasamböndum. Benti
hann á það sem hann taldi mót-
sögn, nefnilega að talað væri um
ríkjabandalög og ríkjasambönd í
tillögugrein-
inni en Norð-
urlandaráð
væri hins veg-
ar ríkjabanda-
lag, Öryggis-
og samvinn-
ustofnun
Evrópu (ÖSE)
væri það einn-
ig, sem og
Sameinuðu
þjóðirnar.
Kvaðst hann
því skilja tillöguna svo að vinstri
grænir vildu ekki taka þátt í al-
þjóðavæðingunni, þeir vildu ein-
angrunarstefnu.
Halldór sagði íslendinga hafa
barist fyrir fullveldi til þess að
geta verið fullir þátttakendur í
samfélagi þjóðanna. „Hvers virði
er fullveldi ef við munum einangr-
ast frá öðrum ríkjum í stað þess að
vera stoltir þátttakendur í sam-
starfi fullvalda ríkja, eins og við
höfum verið?“ spurði Halldór. „Er
það ekki það sem við viljum? Er
það ekki hins vegar alveg ljóst að
miðað við alþjóðavæðinguna þá er-
um við ekki fær um það sem full-
valda þjóð, ein og óstudd, að leysa
þau vandamál sem steðja að full-
valda ríki nú á tímum. Eg held að
það sé alveg ljóst að miðað við að-
stæðurnar í dag þá getum við ekki
leyst ýmis vandamál nema í sam-
starfi og samvinnu við aðrar þjóð-
ir.“ Tók utanríkisráðherra hins
vegar fram að með því værum við
ekki að afsala okkur fullveldi okk-
ar. „Við erum að styrkja fullveldi
okkar. Og við erum að vinna að
hagsmunum okkar fólks og það
ALÞINGI
gerum við best í samstarfi með
öðrum þjóðum.“ Talsmenn Sam-
fylkingar slógu á sömu strengi og
utanríkisráðherra í umræðunni í
gær. Sighvatur Björgvinsson sagði
rétt að vinstri grænir drægju til-
lögu sína til baka og umorðuðu
hana ef það væri svo, að fyrst og
fremst væri verið að ræða um
standa utan ESB en ekki annarra
ríkjabandalaga, svo sem SÞ, eins
og ráða mætti af orðalaginu. Þór-
unn Sveinbjarnardóttir gagnrýndi
einnig harkalega það sem hún
taldi vera algera einangrunar-
stefnu vinstri grænna. Raunar
væri undrunarefni að tillaga sem
þessi væri flutt því þróunin hefði
verið í þá átt undanfarin ár að ríki
ykju samstarf sitt. Þórunn velti
jafnframt fyrir sér hversu líklegt
það eiginlega væri að tvíhliða
samningar tækjust við öll aðildar-
ríki ESB, líkt og tillagan legði til
að yrði meginstefnan. Kom síðar
fram í máli utanríkisráðherra að
hann teldi þá leið ekki framkvæm-
anlega.
Utanríkisráðherra sakaður
um að veikja stöðu Islands
Steingrímur J. Sigfússon varðist
ásökunum um einangrunarhyggju í
umræðunni í gær. „Til þess að það
sé alveg á hreinu,“ sagði hann. „Þá
er þessi tillaga ekki um það að við
segjum okkur úr Sameinuðu þjóð-
unum. Hún er ekki um að við segj-
um okkur úr Norðurlandaráði, hún
er ekki um að við segjum okkur úr
Evrópuráðinu, hún er ekki um að
við hættum þátttöku í starfi Stofn-
unarinnar um öryggi og samvinnu
í Evrópu. Þar viljum við einmitt að
þátttaka íslands sé öflug og mynd-
ug vegna þess að það er það form
á samstarfi ríkja sem við höllumst
að. Og í þeim skilningi erum við
ekki lakari alþjóðasinnar en allir
aðrir.“ Steingrímur gagnrýndi ut-
anríkisráðherra ennfremur harð-
lega fyrir það hversu mjög hann
hefði lagt sig eftir því að lýsa
þeirri skoðun sinni að ýmis vanda-
mál væru uppi í sambandi við
Morgunblaðið/Þorkell
Þingmenn tókust á í umræðum
á Alþingi í gær. Hér virðist sem
Sverrir Hermannsson, for-
maður Frjálslynda flokksins,
eigi eitthvað vantalað við Jó-
hönnu Sigurðardóttur, þing-
mann Samfylkingarinnar.
Vilja skýrslu
um meðferð-
arstofnanir
EES-samninginn. Taldi hann utan-
ríkisráðherra með þeim málflutn-
ingi sínum mjög grafa undir trú-
verðugleika núverandi grundvelli
samskipta íslands við ESB. Með
því væri staða Islendinga aðeins
gerð veikari.
Tómas Ingi Olrich, formaður ut-
anríkismálanefndar og þingmaður
Sjálfstæðisflokks, kom Steingrími
J. til aðstoðar í umræðunni í gær
en hann sagðist ekki geta skilið til-
lögu vinstri grænna á þann hátt,
sem fyrri ræðumenn hefðu gert.
Taldi hann skýrt að verið væri að
ræða um ESB og ekkert annað.
Tómas var heldur jákvæður í garð
tillögunnar en sagðist henni þó
ekki hlynntur enda beindist hún
gegn EES-samningnum, sem að
hans mati hefði sannað gildi sitt.
Tómas lét þess reyndar getið að
hann teldi það ekki geta gengið
upp að menn annars vegar héldu
því fram að EES hefði sannað
gildi sitt, og hins vegar að vægi
samningsins væri að minnka.
TÍU þingmenn úr fjórum stærstu
þingflokkunum hafa lagt fram á Al-
þingi beiðni um skýrslu frá heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
um meðferðarstofnanir. Er gert ráð
fyrir að Alþingi ákveði nú á mánu-
dag hvort beiðnin verður heimiluð
en ekki er ástæða til að ætla að því
verði hafnað.
Þingmennimir sem standa að
beiðninni eru Einar K. Guðfinnsson,
Gunnar Birgisson, Kristján Pálsson
og Pétur H. Blöndal úr Sjálfstæðis-
flokki, Lúðvík Bergvinsson, Guðrún
Ögmundsdóttir og Ásta R. Jóhann-
esdóttir úr Samfylkingu, Hjálmar
Ámason úr Framsóknarflokki og
Þuríður Backman og Jón Bjamason
úr Vinstrihreyfingunni - grænu
framboði. Fara flutningsmenn fram
á að í skýrslu heilbrigðisráðherra
komi fram ítarlegar upplýsingar um
framlög til meðferðarstofnana á
landinu, hvaða stofnanir sinni sam-
bærilegum verkefnum án stuðnings
hins opinbera, hvar meðferðarstofn-
anir em á landinu og hvers konar
meðferð sé veitt á viðkomandi stofn-
unum, svo fátt eitt sé nefnt.
Samgönguráðherra við utandagskrárumræðu á AlJjingi í gær
Hafnar því að stefnuleysi
ríki í samgöngumálum
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR sögðu stefnu-
leysi ríkja í samgöngumálum í utandagskrár-
umræðu um innanlandsflug sem fram fór á AI-
þingi í gær. Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra sagði stefnuna hins vegar alveg skýra.
Lögð væri áhersla á að efla flug til þeirra staða
sem standa vel undir sér og styrkja áætlunar-
flugleiðir út frá þeim stöðum, eins og gert sé
með útboðum á vegum ríkisins.
Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingar,
hóf umræðuna í gær. Hann sagðist til þess
knúinn og ástæðan væri augljós, flugfélögin
væru að hætta flugi til ýmissa staða, m.a. vegna
þess hve stefnumótun samgönguráðuneytisins
og undirbúningur útboðs hefði tekið langan
tíma. Kristján sagði að í þrengingum flugfélag-
anna væri það algjör óhæfa að ríkisstjórnar-
flokkarnir skyldu samþykkja nýjan skatt á
flugfarþega í innanlandsflugi, skatt sem eigi að
skila ríkissjóði 50-60 milljónum króna á næsta
ári.
Kristján sagði það grundvallaratriði að ríkis-
valdið tæki ákvörðun um framtíð innanlands-
flugsins. „Ákvörðunina þarf að taka út frá
skýrri stefnu um það hvernig á að standa að
uppbyggingu á grunni samgöngukerfisins í
landinu þannig að íbúum á landsbyggðinni verði
sköpuð samkeppnishæf skilyrði til búsetu og at-
vinnustarfsemi. Markaðsöflin ein eiga ekki að
ráða uppbyggingu samgöngukerfis okkar ís-
lendinga."
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði
innanlandsflugið lengi hafa verið í mikilli
kreppu og að það væri ábyrgðarleysi að láta
sem sú staða kæmi mjög á óvart nú. Hann
sagðist ekki hafa talið vera forsendur fyrir því
að styrkja flug til Húsavíkur vegna þess hversu
góðar samgöngur væru við Akureyri um land-
veg og átta flugferðir daglega frá Akureyri til
Reykjavíkur. Aftur á móti hefði hann talið rétt
að hafa Siglufjörð í útboðinu, með vali um hvort
flogið yrði frá Akureyri eða áfram um Sauðár-
krók.
„Þetta breytir þó engu um að við verðum að
horfast í augu við þá staðreynd að gríðarlegar
fjárhæðir hafa verið, og munu verða, lagðar í að
bæta samgöngur á landi - og bættar samgöng-
ur á landi hljóta að hafa mikil áhrif á samgöng-
ur í lofti,“ sagði Sturla. Bætti hann því við að
ekki væri eðlilegt að krefjast bæði betri vega
og ætlast til þess um leið að haldið sé uppi rík-
isstyrktu flugi til staða sem geta verið í góðu
vegasambandi við áætlunarflugvöll, svo sem
eigi við um Húsavík. Sagði hann ennfremur að
flugmiðagjaldið svokallaða hefði ekki haft nokk-
ur áhrif á innanlandsflugið. Engin áform væru
uppi um að hækka þetta gjald.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR hefst í Alþingi í
dag kl. 13.30. Dagskrá fundarins
er sem hér segir:
1. Verkefni sem unnt er að sinna
á landsbyggðinni, fyrirspurn til
iðnaðarráðherra.
2. Samkeppni olíufélaganna,
fyrrspurn til viðskiptaráðherra.
3. Alþjóðleg viðskiptafélög, fyr-
irspurn til viðskiptaráðherra.
4. Stefna íslands í alþjóðasam
skiptum. Frh. fyrri umræðu.
(Atkvæðagreiðsla.)
5. Endurskoðun viðskiptabanns á
írak. Frh. fyrri umræðu.
(Atkvæðagreiðsla.)
6. Réttarstaða sambúðarfólks,
beiðni um skýrslu. Hvort leyfð
skuli.
7. Afnám skattleysissvæða. Fyrri
umræða.
8. Aðlögunarstuðningur við líf-
rænan landbúnað. Fyrri um-
ræða.
9. Uppsagnir eða inismunun í
starfi vegna aldurs. Fyrri
umræða.