Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Það er ekki mikið eftir af snyrtivöruversluninni Hneyksli (Scandal), sem er í eigu Marko Milosevic. Bambiland lokað / I borginni Pozarevac réð Marko Milosevic, sonur Slobodans Milosevic, ríkjum þar til fyrir skemmstu. Urður Gunnarsdóttir blaðamaður og Þorkell Þorkelsson ljós- myndari brugðu sér til Pozarevac og virtu m.a. fyrir sér skemmtigarðinn Bambiland. Morgunblaðið/Porkell BAMBILAND, Cafe Rolex, Pizzería Non-Stop, tölvu- verslunin Cyberland og appelsínurauður óskapn- aður kallaður Madonnudiskótekið. Þetta eru staðimir sem þeir fáu sem leggja leið sína til borgarinnar Pozar- evae heimsækja. Þeir eru í eigu hins illræmda sonar Slobodans Milosevic, Markos, sem er reyndar ekki lengur búsettur í borginni. Tveir lögreglu- menn eru á vakt fyrir utan glæsihýsi Mai-kos, sem sá sitt óvænna er Ijóst var að faðir hans hefði tapað kosning- unum og flúði til Moskvu. Posarevac virðist ósköp venjuleg borg og erfitt að trúa því að fyrir að- eins viku réð svokallaður einkaher Markos lögum og lofum þar. Hann átti það til að loka aðalgötunni svo að Marko gæti stundað hraðakstur að vild og sá til þess að engir óviðkom- andi væru á ferð við heimili hans. Um það vitnar ferðafélagi okkar, hol- lenska blaðakonan Yael sem var handtekin í maí sl. þegar hún reyndi að nálgast hús Markos. Þrúgandi andrúmsloft Kosningaspjöld hanga enn uppi, langflest eru með mynd móður hans, Miru, stofnanda stjórnmálaflokksins JUL. Og fulltrúar stjórnar- andstöðunnar í borginni segja þrúg- andi andrúmsloft hafa verið þar um langt skeið vegna tengsla Miiosevic- fjölskyldunnar við borgina. í maí sl. urðu þrú' menn á vegi Markos Milos- evic, sem var að sjálfsögðu í fylgd fjölda lífvarða. Þeir voru í bolum merktum stúdentahreyfingunni Otpor, sem er í andstöðu við föður hans. Marko brást hinn versti við og fyrirskipaði lífvörðunum, níu talsins, að ganga í skrokk á þremenningun- um. Atburðurinn átti sér stað um hábjartan dag á aðalgötu borgarinn- ar en enginn þorði að koma þeim til aðstoðar. Þeir voru nær dauða en lífi þegar bai'smíðunum linnti. Atburðurinn var einn þeirra sem mörkuðu þáttaskil í baráttunni gegn Milosevic. Kosningaspjöldum með myndum af einum þremenninganna og merki Otpor var dreift og vakti reiði jafnt sem vanmátt meðal al- mennings. Það sást berlega þegar ljóst vai' að Kostunica hafði unnið kosningamar en aðeins 100 manns þorðu að koma á fyrsta mótmæla- fund stjómarandstöðunnar í borg- inni, viku eftir kosningar. Þeim fjölg- aði þó jafnt og þétt og mótmælendur frá Pozarevac streymdu til Belgrad í stómm hópum er upp úr sauð sl. íimmtudag. Dreymdi um að verða bófí Marko Milosevic var umfangsmik- ill kaupsýslumaður í borginni. „Hann dreymdi um að verða mafíósi og tókst það vegna valds föðurins. Einn og óstuddur hefði hann aldrei náð langt, hann er veiklundaður og skort- ir sjálfsöryggi,“ segir Zoran Petko- vic, sem hefur þekkt son fyrrverandi forseta frá unglingsámm. Zoran er þó ekki skoðanabróðir Markos, hann hefur stutt Vuk Dra- skovic, sem margir muna frá mót- mælunum miklu haustið 1986. Dra- skovic var ekki hluti flokkabanda- lagsins sem studdi Kostunica en Petkovic segist engu að síður fagna úrslitunum. Gerir lítið úr áhrifum Draskovics innan eigin flokks og seg- ir hann hafa verið of viðkvæman, tek- ið gagnrýni of persónulega. Margir flokksmenn hafi því gengið til liðs við Kostunica. Eins og gefur að skilja var kosn- ingabaráttan í Pozarevac lituð af nærvem Markos og Petkovic segir hana hafa verið erfíða. „Ég skamm- aðist mín meira að segja fyrir að segjast vera frá Pozarevac. Eftir mótmælafund hér sem um 15.000 manns sóttu er ég hins vegar stolt- ur.“ Nenad Gjordevac er hins vegar ekki stoltur af því sem hefur átt sér stað í Pozarevac. Hann er félagi í æskulýðshreyfingu serbneska sósíal- istaflokksins og dyggur stuðnings- maður Milosevic. Gjordevac, sem er aðeins 19 ára, er einn á vakt í höfuð- stöðvum flokksins, sem hafa verið látnar í friði óh'kt höfuðstöðvum JUL, þar sem allt er brotið og braml- að. Hann segist virða vilja fólksins, ef það vilji breytingar verði svo að vera og nú voni hann bara að þær verði til góðs. Gjordevac segist hins vegar ekki skilja réttlætið í því að Milosevic hafi tapað kosningunum, og kennir þrýstingi vesturveldanna um. Skemmtigarðurinn Bambiland er lokaður. Fyrii' innan girðinguna sést í Öfgabar (Extreme bar) og barinn Arásargirni (Aggressive). Afai' fjandsamlegur vörður vill ekkert við neinn tala. Ékki heldur verðirnir við heimili Markos, sem bjóða gestum skoðunarferð um húsið, kaldhæðnin drýpur af hverju orði. Við verðum að færa bflinn, megum ekki taka mynd- ir, jáum engin svör. í miðbænum hafa Cafe Rolex og tölvuverslunin Cyberland fengið heimsókn svo þar er fátt eftir en í út- jaðri borgarinnar trónir óskapn- aðurinn Madonna, appelsínurautt og blátt útidiskótek sem stingur grát- lega í stúf við dæmigerð serbnesk íbúðarhúsin. Enginn hefur lagt til at- lögu við það, ástæðan er skýr skila- boð frá leiðtogum Otpor um að hreyfa ekki við diskótekinu og heldur ekki skemmtigarðinum. Petkovic segir báða staði eiga að vera í eigu al- mennings. Enginn reyndi hins vegar að stöðva þá sem gerðu sér að góðu ránsfeng úr verslunum Markos og heldur ekki að stöðva þá sem hugðust elta hann uppi er hann ílúði til Moskvu. Sumir segja til að refsa hon- um opinberlega á torgi bæjarins, aðr- ir segja Marko hafa skuldað mörg- um. Það eina sem er eftir af Milosevic-fjölskyldunni í Pozarevac er minningin. Þingkosningar í Litháen Miðju- og vinstri- flokkar unnu sigur Ríga, Vilníus. AFP, AP, Reuters. MIÐJU- og vinstriflokkar fóru með sigur af hólmi í þingkosningunum í Litháen, sem fram fóru um helgina. Hægriflokkur forsætisráðherrans Andriusar Kubiliusar, Föðurlands- sambandið, tapaði miklu fylgi og hlaut aðeins 11 þingsæti af 141, en flokkurinn gæti þó komist í odda- aðstöðu við stjórnarmyndun. Jafnaðarmannaflokkur Algirdas Brazauskas, fyrrverandi forseta landsins, fékk flest atkvæði og hlýtur 51 þingsæti. Bandalag frjálslyndra, sem er aðeins til hægri við miðju, fær 34 þingsæti og Nýja bandalagið, sem er rétt til vinstri við miðju, hlýtur 29 sæti. Tveir síðastnefndu flokkarnir, sem báðir voru stofnaðir skömmu fyrir kosningar, hafa hafið tilraunir til stjórnarmyndunar ásamt einhverj- um af minni flokkunum og óháðum þingmönnum. Brazauskas brást harðlega við því og sagði það skjóta skökku við ef stærsti flokkurinn á þingi væri neyddur til að vera í stjórnarandstöðu. Hvatti hann for- vígismenn hinna flokkanna í gær til að ganga til stjórnarsamstarfs með Jafnaðaimannaflokknum. Nýrrar stjórnar bíður það verk- efni að fylgja eftir inngöngubeiðn- um í Evrópusambandið og Atlants- hafsbandalagið. Embættismenn sögðu í gær að breytinga á stefnu landsins þar að lútandi væri ekki að vænta við stjórnarskiptin, því allir flokkarnir á þingi væru.fylgj- andi aðild að ESB og NATO. Þingkosningarnar um helgina voru þær þriðju síðan Litháen hlaut sjálfstæði árið 1991. 1.500 minkum sleppt í Noregi Þrándheimi. Morgnnblaðið. AÐFARANÓTT mánudags var 1500 minkum sleppt úr búrum sínum frá minkabúinu Stensby í Nordkisa skammt norður af Ósló. Samkvæmt norska dag- blaðinu Aítenposten ríkti mikill glundroði við minkabúið í gær er eigendur, nágrannar og vinir reyndu hvað þeii' gátu að fanga minkana sem földu sig undir bílum, húsum og hvarvetna sem finna mátti holu. Einnig höfðu minkarnir komist út í skóg í nágrenni búsins. Ekki er vitað með vissu hverjir voru að verki en ef ætl- unin var að frelsa minkana og veita þeim betra líf er hún dæmd til að mistakast að sögn eiganda búsins, Hans-Olav Stensby, sem segir minkana svelta í hel á skömmum tíma þar sem þeir kunni ekki að veiða sér til matar sjálfir. Þá var strax í gær búið að keyra yfir fjölda dýra á nálægum vegi. Þeir sem slepptu dýrun- um létu sér það ekki nægja heldur fjarlægðu einnig ætt- bækur dýranna og af þeim sök- um þarf að slátra öllum mink- um sem finnast því erfitt er að selja pels af dýri sem ekki er ættbókarfært. Fjárhagslega er tjónið mikið því pelsar dýranna eru metnir á hálfa milljón norskra króna. Stensby, sem hefur aðeins rekið búið í eitt ár, segist nú þurfa að byggja búið aftur upp frá grunni. Morgunblaðið/Þorkell Miloscvic-fjölskyldan er ekki hátt skrifuð hjá íbúum Belgrad þessa dagana og víða má sjá fúlk bera borða, þar sem hæðst er að Slobodan Milosevic.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.