Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 61 BREF TIL BLAÐSINS TALSVERT annríld var hjá lög- reglunni í Reykjavík um lielgina og sinnti hún rúmlega 500 verkefnum og áttu þeir lögreglumenn sem voru við störf um helgina því annasama daga og nætur. Að venju var stór hluti verkefnanna tengdur umferð- inni í umdæminu en ljóst er þó að lögreglumenn sjá ýmislegt í borg- armannlífinu sem flestum íbúum er óþekkt og hegðun og framkoma borgaranna er ekki alltaf til eftir- breytni. Talsvert um hraðakstur Um helgina vora tilkynnt til lög- reglu 46 umferðaróhöpp en engin alvarleg slys urðu á fólki þótt nokkrir hafi leitað aðstoðar á slysa- deild vegna áverka. Talsvert var um hraðakstur í borginni um helgina og voru höfð afskigti af 51 ökumanni af þeim sök- um. í nokkrum tilvikum eru við- komandi ökumenn einnig grunaðir um önnur umferðarlagabrot eins og ölvun við akstur eða réttindaleysi. Á föstudagskvöld var 19 ára öku- maður stöðvaður eftii- að hafa mælst aka á 139 km hraða á Vestur- landsvegi við Korpúlfsstaði. Annar ökumaður 17 ára var stöðvaður á föstudagskvöld á Stekkjarbakka vegna hraðakstur og brota á stöðv- unarskyldu. Hinn ungi ökumaður gaf þá skýringu á akstursmáta sín- um að hann hefði ætlað að elta sjúkrabifreið sem þar fór um með forgangsljós. Eins og allir ökumenn eiga að vita er heimild lögreglu- og sjúkra- bifreiða til aksturs umfram lög- bundinn hraða ekki til eftirbreytni fyrir aðra ökumenn. Þá var 19 ára ökumaður sviptur ökuréttindum en hann ók á 115 km hraða á Víkurvegi snemma að morgni laugardags og sama dag var 46 ára ökumaður stöðvaður á Vesturlandsvegi við Sandskeið eftir að hafa mælst aka á 124 km hraða. Á laugardagskvöld var 22 ára ökumaður stöðvaður á Vesturlandsvegi en hann ók bifreið sinni á 126 km hraða. Þá var 19 ára ökumaður sviptur ökuréttindum eftir að hafa mælst aka á 126 km hraða á Eiðsgranda á laugardags- Ur dagbók lögreglunnar Mikið um umferð- ar- og ofbeldisbrot Dagbók lögreglu 6.-9. október 2000 kvöld. Á mánudagsmorgun var öku- maður stöðvaður á Miklubraut við Grensásveg eftir að hafa mælst aka á 120 km hraða. Ofbeldi og átök Um hádegisbil á föstudag var starfsfólki verslunar í miðbænum ógnað af manni með hníf. Starfs- maður hugðist ræða við manninn vegna gruns um að hann hefði sett inn á sig verðmæti án þess að greiða fyrir. Lögreglan leitaði mannsins í miðbænum án árangurs. Á föstudagskvöld var karlmaður handtekinn á veitingastað í mið- bænum en hann hafði ráðist á gesti og starfsmenn veitingastaðarins. Hann réðst síðan einnig á lögreglu- menn þegar þeir komu á staðinn. Maðurinn sem er 23 ára var hand- tekinn og fluttur á lögreglustöð. Þá var lögreglan kölluð til vegna átaka sem komu til vegna ágrein- ings vegna umgengni um sameign við Hlemm. Ölvaður maður gekk í veg fyrir leigubifreið í Austurstræti aðfara- nótt laugardags og sparkaði í bifreiðina. Þegar ökumaðurinn hugðist ræða við manninn brást hann illa við og sló til hans. Þá var lögreglulið kallað að veitingastað á Laugavegi aðfaranótt laugardags vegna átaka innan dyra. Þar reynd- ist 22 ára gestur höfuðborgarinnar hafa tryllst og valdið miklum skemmdum á innanstokksmunum og rotað einn gesta. Maðurinn var handtekinn og rístaður í fanga- geymslu. Átök stöðvuð í fæðingu í tvígang um helgina veittu lög- reglumenn sem störfuðu við eftir- litsmyndavélar því athygli að átök voru að byrja og gátu sent lögreglu strax á staðinn. Mjög mikilvægt er að geta gripið strax inn í atburðarás með þessum hætti og hindrað að al- varleg átök brjótist út. Aðfaranótt sunnudags var ráðist að pitsusendli og stolið af honum fjármunum og persónuskilríkjum auk þess að brjóta gleraugu send- ilsins. Ekki höfðu ránsaðilar mikið upp úr ofbeldisverki sínu því eftir ráðleggingar lögi-eglu eru sendl- arnir með mjög takmarkaða fjár- muni á sér. Hjálpartækjum ástarlífsins stolið Tilkynnt var um innbrot í fyiir- tæki í Skeifunni þar sem stolið var rafstöðvum og háþrýstidælum auk einhverra fjármuna. Þá var brotin rúða i útstillingarglugga tölvufyrir- tækis í Hlíðahverfí aðfaranótt laug- ardags. Jafnframt var stolið þaðan nokkrum verðmætum. Síðdegis á laugardag var lög- reglu tilkynnt að starfsmenn mat- vöruverslunar í vesturbænum væni á hlaupum eftir einstaklingi sem hefði stolið verðmætum úr verslun- inni. Þegar stöðva átti hinn 31 árs gamla mann dró hann upp hníf og hafði í hótunum. I ljós kom að þjóf- urinn var í slagtogi með öðrum manni og konu sem tóku þátt í þjófnaðinum. Lögreglan handtök þau þrjú og fannst þýfið allt í fórum þeirra og var því komið til skila. Maður í annarlegu ástandi kom inn í verslun á Laugavegi síðdegis á laugardag og réðst að starfsfólki með höggum og spörkum og gekk svo á brott. Lögreglan telur sig vita hver var þar að verki og er unnið að málinu. Þá var lögreglu á laugardag til- kynnt um fremur óvenjulegan þjófn- að í verslun sem sérhæfir sig í hjálp- artækjum ástarlífsins. Tveir karl- menn stálu „gervisköpum" og „rafknúnum gervilim“ og hlupu svo á brott. Ekki er vitað hvort viðkom- andi karlmenn hafi verið svo dreymnir með feng sinn að þeir hafi misst einbeitingu sína en þeir skyldu eftir persónuskiháki sín á staðnum. Málefni barna og ungmenna Lögregla var kölluð að verslun í Breiðholti á laugardag vegna fram- komu þriggja 10 ára barna. Þau höfðu komið inn í verslunina og tek- ið að gæða sér á ýmsum matvörum. Lögreglan útskýrði málið fyrir for- eldrum barnanna. Höfð voru afskipti af þremur 15 ára ungmennum í miðbænum á laugardagskvöldið og voru þau sótt af foreldrum. Bruni í Krummahólum Á laugardagskvöld fann einhver sig knúinn til að leggja eld að leikfangakastala á leikskólalóð í Geitlandi. Ekki er vitað um gerend- ur. Þá var lögregla og slökkvilið kall- að að húsi við Háteigsveg en mikill reykur var í húsinu vegna feiti sem verið var að hita. Skömmu eftir miðnætti aðfaranótt mánudags var tilkynnt um svartan reyk á stiga- gangi í fjölbýlishúsi við Krumma- hóla. Þar hafði komið upp eldur í kjallaraíbúð og voru miklar skemmdir í þeirri íbúð og reykur og sót um allan stigagang og í nokkr- um íbúðum. Tvennt var flutt á slysadeild vegna gruns um reyk- eitrun. Klukkan rúmlega fimm að morgni mánudags var tilkynnt um lausan eld í ruslagámi við Héraðs- dóm Reykjavíkur. Slökkvilið slökkti og gámurinn var fjarlægður. Eldurlagður að fána Lögreglan samþykkti útifund og göngu frá Lækjartorgi að skrifstofu ræðismanns Israels við Laugaveg síðdegis á föstudag. Talið er að um 100 manns hafi tekið þátt í göng- unni sem fór að mestu friðsamlega fram. Ræðismanni var afhent bréf frá fundarmönnum en einn þátttak- andi fann sig knúinn til að leggja eld að eftirlíkingu af ísraelska fánan- um. Fram til þessa hafa mótmæla- fundir og aðgerðir farið fram í góð- um samskiptum við lögreglu og með fullri virðingu við þann málstað sem vakin er athygli á. í flestum til- vikum er verið að vekja athygli á of- beldis- eða mannréttindabrotum og er það von lögreglu að slíkum málstað sé komið á framfæri með þeim hætti að ekki þurfi að koma til valdbeitinga. Það getur vart verið slíkum málflutningi til framdráttar. Lögreglan var á laugardag kölluð til vegna ósamkomulags milli leigj- anda og leigusala í miðbænum. Þar hafði leigusali farið inn í íbúð sína og borið út búslóð leigjanda og skipt um læsingu á íbúðinni. Vandaðir viðarbrennslu- arnar frá Spáni. 20 tegundir. Stórhöfða 17 ■ Sími 567 2133 www.arinn.is ngabúðin Álnabær sala á dúkum Cf gardínuefmm ðumúla 32 - Reykjavik • Tjamargötu 17 - Keflavík S: 588-5900 • www.alnabaer.is Fasteignir á Netinu vg'mbUs ESTEE LAUDER HL Lesiö í liti • jsm*. ^ Nú geturðu látið greina húðlit þinn...fljótt, auðveldlega og nákvæmlega. Estée Lauder nýtir sér tölvutæknina til að lesa í húðlit eins og spákona í lófa. Litgreinirinn les á augabragði hvaða litur af Estée Lauder andlitsfarðanum fer hverri konu best. Líttu inn og láttu sannfærast! Estée Lauder býður viðskiptavinum sínum þessa þjónustu í Lyfju i dag, miðvikudag 11. okt. kl. 13-18. fimmtudag 12. okt. kl. 13-18. l£b LYFJA U Fvrlr útlitið Lágmúla, sími 533 2300 * LYFJA Fvrir útlitið Laugavegi, sími 552 4045 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.