Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 72
Heimavörn SECURITAS Sími: 580 /000 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Jim Smart 1 Av U T'VifSuM jfc AV/ • * ti: W&R/ vi| iHu ’ Fordómum kastað á eld Hátt verð á saltfiski ÍSLENDINGAR eru stærstu inn- flytjendur saltfisks til Portúgal en landið hefur um langt árabil verið einn helsti saltfiskmarkaður Norð- manna. Mjög lítið framboð er nú á saltfiski frá Noregi og hefur út- flutningurinn dregist saman um nærri helming á einu ári. Framboð á saltfiski hefur al- mennt verið mjög lítið að undan- förnu og því hefur verð á hæstu stærðarflokkum hækkað mikið undanfarna mánuði. Nú fást ríflega 500 krónur fyrir kílóið af stærsta saltfiskinum en til samanburðar má nefna að verðið var um 430 krónur síðastliðinn vetur. Verð á minni stærðarflokkum hefur hins vegar lítið sem ekkert hækkað. Helgi Már Reynisson hjá Valeik ehf. seg- ir verð á saltfiski sjaldan eða aldrei hafa verið eins hátt. Hins vegar sé viðbúið að verð leiti jafnvægis þeg- ar svokallaðri jólasölu lýkur um miðjan nóvember. Á fyrstu átta mánuðum ársins nam verðmæti saltfiskafurða, samkvæmt tölum Hagstofu íslands, um 14.916 millj- ónum króna en það er 13,8% aukn- ing frá sama tímabili á síðasta ári. FJÖLMENN ganga áhugafólks um bætta geð- heilsu gekk fylktu liði frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsinu í Reykjavík í gær á degi alþjóðlegs geðheilbrigðis. Ferðin var farin til að vekja almenning til vitundar um mikilvægi þess að vinna bug á fáfræði og fordómum gagnvart geðröskunum. Flestir göngumanna huldu andlit sfn með pappirspokum sem tákn um fordóma gegn geðsjúkum. Þegar að ráð- húsinu kom var pokunum svipt af og þeir brenndir á opnum eldi og fordómunum þar með eytt á táknrænan og eftirminnilegan hátt. ■ Táknrænn/6 I Varð á/Bl Stofnfundur nýs landssambands verkafólks hefst á morgun Ekkert samkomulag um formann og varaformann STOFNFUNDUR nýs landssam- bands verkafólks sem til verður með sameiningu Verkamannasam- bands íslands, Landssambands iðnverkafólks og Þjónustusam- bands íslands hefst á Hótel Sögu á morgun. Skv. heimildum Morgun- blaðsins hefur enn ekki náðst sam- komulag á milli aðildarfélaganna um hverjir skuli gegna formennsku og varaformennsku í þessu stærsta r j^andssambandi launafólks á íslandi prátt fyrir mikil fundahöld og þreifingar að undanförnu á milli verkalýðsforingja og í starfshópi sem hefur unnið að undirbúningi að stofnun landssambandsins. Lagt til að sambandið fái nafnið Starfsgreinasamband Islands Skv. upplýsingum blaðsins virð- ist þó liggja fyrir samkomulag um að formaður sambandsins komi af höfuðborgarsvæðinu en varafor- maðurinn verði af landsbyggðinni. Er nú helst rætt um Halldór Björnsson, fyrrv. formann Eflingar stéttarfélags, eða Guðmund Þ. Jónsson, formann Landssambands iðnverkafólks, í embætti formanns og Aðalstein Þ. Baldursson, for- mann Verkalýðsfélags Húsavíkur, eða Björn Snæbjörnsson, formann Einingar-Iðju á Akureyri, í emb- ætti varaformanns. Fær kjörnefnd það verkefni á fundinum að gera tillögur um for- mann, varaformann og 13 manna framkvæmdastjórn sambandsins. Skv. upplýsingum blaðins hefur náðst samstaða um skipulag lands- sambandsins og jafnframt hefur náðst samkomulag um að leggja til við fulltrúa á stofnfundinum að því verði gefið nafnið Starfsgreinasam- band Islands. Búist er við á þriðja hundrað fulltrúum á stofnfundinn. Þrír „gervi- lögreglu- þjónar“ hurfu GERVILÖGREGLUÞJÓNAR í umdæmi Hafnarfjarðarlög- reglunnar fengu ekki að vera lengi í friði því að sögn varð- stjóra hjá lögreglunni hurfu þrír sporlaust strax á fyrsta degi. Álls var um tugur genú- lögregluþjóna settur niður í vegkanti Reykjanesbrautar- innar, allt frá Mjódd að Flug- stöð Leifs Eiríkssonar, í gær. Þeim var ætlað að minna veg- farendur á að virða umferðar- lögin. I gærmorgun voru þrír gervilögregluþjónar horfnir, tveir við Hvammahverfi í Hafnarfirði og sá þriðji suður við Lónkot. Telur lögreglan að þessir samstarfsmenn sínir hafi horf- ið strax í fyrrakvöld. Búast má við meiri áraun á mannvirki ÞITT FE Máestro HVAR SEM ÞÚ ERT BÁRÐUR Guðmundsson, skipu- lags- og byggingarfulltrúi í sveitar- félaginu Arborg, segir að nýútkom- in skýrsla um áhrif jarðskjálftanna á Suðurlandi 17. og 21. júní sl., sem unnin er af Rannsóknarmistöð Há- skóla íslands í jarðskjálftaverk- fræði og kynnt var í gær, kunni að eiga eftir að hafa mikil áhrif. „Nið- urstöðurnar, sem þeir eru að bera þarna á borð, sýna að það má búast við miklu meiri áraun á mannvirki heldur en talið hefur verið hingað til. A.m.k. gera þeir staðlar sem við notum, eins og t.d. jarðskjálfta- staðallinn IST 13, ekki ráð fyrir líkt því eins mikilli áraun á húsin. Eg vil meina að í framhaldi af þessu þurfi að endurskoða byggingarreglugerð og þær kröfur sem eru gerðar til burðarþolshönnunar mannvirkja, þ.e. að endurmeta allar álagsfor- sendur. Ég er sjálfur að meðhöndla teikningar að burðarþoli fimm hæða fjölbýlishúss sem fyrirhugað er að byggja á Selfossi. Miðað við niður- stöður skýrslunnar sé ég ekki betur en það verði að endurhanna húsið algjörlega. Og þá vaknar sú spurn- ing hvort byggingaryfirvöld og sveitarstjórnir geti hert kröfur um álagsforsendur varðandi þolhönnun bygginga eða hvort þetta verði að fara fyrir löggjafann. Sumir álíta að heimildir fyrir slíku séu skýrar í byggingarreglugerð og vissulega er þar að finna setningar sem gefa manni kannski aukið olnbogarými hvað þetta varðar en engu að síður er það tilfinning mín að það verði að skoða þetta nánar út frá hinni laga- legu hlið. Og slíkt gæti tekið sinn tíma,“ segir Bárður að lokum. ■ Endurmeta/12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.