Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Hreinsun Skerja- fjarðar lokið Garðabær LOKAÁFANGA í hreinsun Skeijaflarðar var fagnað með gangsetningu dælustöðvar Garðabæjarfráveitu við Arnar- nesvog sl. föstudag. Fráveitan er sú siðasta í röð fráveitna sem Garðabær, Kópavogur, Selljænarnes og Reykjavík ákváðu að reisa með samningi um hreinsun skolps árið 1992. Samkvæmt samningnum er allt skólp frá Garðabæ, Kópa- vogi og Sehjamamesi og vem- legur hluti skolps frá Reykja- vík leitt í Skerjafjaröarvcitu sem sameinast í einni útrás sem dælir skolpinu út fyrir Ak- urey. Garðabæjarfráveita var siðasti leggur í röð fráveitna en áður hafði verið komið upp dælustöðvum á Kársnesi og í Skeijafirði. Adls kostar þátttaka í lausn fráveitumálanna Garðabæ 342 milljónir króna, þar af kostar Garðabæjarfráveita 215 m. kr. Vegna frumkvæmdanna var lagt holræsagjald á húseigend- ur fbænum. Garðarbæjarfráveita, sem stendur við Amameslæk, var hönnuð af Verkfræðistofúnni Hnit og Uti og inni arkitektum. Völundarverk var verktaki við framkvæmdimar en Gatna- málastjórinn í Reykjavík og Þjónustumiðstöð Garðabæjar annast reksturinn. Morgunblaðið/Jim Smart Dælustöðin við Arnarneslæk er áþekk öðrum dælustöðvum á svæðinu í útliti. Morgunblaðið/Jim Smart Forsvarsmenn sveitarfélaganna vom viðstaddir ásamt hópi annarra gesta við gangsetningu dælustöðvarinnar. Tillaga um brjóstmynd Garðabær EINAR Vilhjálmsson, íbúi í Garðabæ hefur sent bæjarstjórn bréf og kom- ið á framfæri þeirri til- lögu að hún láti gera brjóstmynd af Ólafi G. Einarssyni, fyrrverandi bæjarstjóra og mennta- málaráðherra, og láti steypa hana í brons. Myndinni verði síðan komið fyrir við inngang ráðhússins í bænum. Ólafur G. Einarsson var sveitarstjóri í Garða- hreppi frá 1960-1974. Hann sat í sveitarstjórn- inni frá 1966 og varð for- seti bæjarstjórnar þegar Garðabær fékk kaup- staðaréttindi árið 1976 en lét af starfi bæjarfulltrúa 1978, þegar hann hafði setið í 7 ár á Alþingi. „Það má segja að Ólaf- ur G. Einarsson sé faðir þess bæjar,“ sagði Einar í samtali við Morgunblaðið í gær. „Hann tók við sem sveitarstjóri Garðahrepps og hafði forgöngu, ásamt Einari á Setbergi, oddvita hreppsins, um uppbygg- ingu þessa kaupstaðar. Ólafur var alveg frábær stjórnandi í þessu bæjar- félagi. Hann var ötull í því að vinna þessari uppbygg- ingu allt það gagn sem hann mátti og stóð að verki á mjög framsýnan hátt.“ Einar fluttist í Garða- hreppinn 1965, norðan úr landi, og hafði þá verið í fimm ár að byggja hús sitt við Smáraflöt, þar sem hann býr enn. Þá var verið að byggja upp Flat- irnar en byggð var komin í Silfurtúnið og Grundirn- ar. Einnig voru nokkrir bæir í landinu þar sem nú er kaupstaður allt milli Ai’narness, Garða og Víf- ilsstaða. Einar sagði að t.d. hefðu Garðbæingar orðið fyrstir til að leggja götur áður en húsin voru reist, sem standa áttu við þær. „Ég sá eftir Ólafi þegar hann fór en hann var náttúrlega sjálfkjörinn til að fara fram í Reykja- neskjördæmi þegar Pétur Benediktsson dó. En það var eftirsjá að honum úr sveitarstjórnarmálunum hér“ sagði Einar. Einar sagðist hafa nefnt hugmynd sína um brjóstmyndina munnlega við Ingimund Sigurpáls- son bæjarstjóra fyrir um tveimur árum síðan en hefði nú ákveðið að senda erindið inn bréflega. „Ég vona að það fái jákvæða afgreiðslu," sagði Einar. I bréfinu stingur hann upp á að Ríkeyju Ingimundar- dóttur, myndhöggvara, verði falið verkið. „Hún hefur gert skemmtilegar myndir," sagði hann. Endurgerð og færsla Njarðargötu í Vatnsmýri er ekki háð umhverfismati að mati Skipulagsstofnunar Hægt að tryggja rennsli til Tjarnarinnar og aðkomuleiðir fugla Vatnsmýri - ENDURGERÐ og færsla Njarðargötu í Vatnsmýri er ekki háð umhverfismati, að mati Skipulagsstofnunar. Ákvörðunin er tekin á grund- velli gagna • frá gatnamála- stjóra Reykjavíkur, sem er framkvæmdaraðili, og að fengnu áliti borgarráðs, Nátt- úruverndar ríkisins og Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur. Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýrin eru á náttúrum- injaskrá og heyra undir borg- arvemd samkvæmt Aðal- skipulagi Reykjavíkur, sem gildir frá árinu 1996 til 2016. Skipulagsstofnun telur að hægt sé að tryggja vatns- rennsli til Tjarnarinnar og að- komuleiðir fyrir fugla inn á svæðið með samvinnu fram- kvæmdaraðila og Náttúru- verndar ríkisins. Samkvæmt lögum má kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar til um- verfisráðherra og er kæru- frestur til 6. nóvember. Hluti verksins boðinn út í vetur Fyrirhuguð framkvæmd felst í að endurgera og færa Njarðargötu á um 650 metra löngum kafla frá Hringbraut til suðvesturs að Eggertsgötu og er framkvæmdin í sam- ræmi við aðalskipulag og deil- iskipulag fyrir Háskólasvæð- ið og Reykjavíkurflugvöll. Stefnt er að því að bjóða út og byggja suðvesturhluta göt- unnar, um 400 metra langan kafla í vetur, en nyrstu 250 metrar hennar, sem verða áfram nánast í núverandi götustæði, verða endur- byggðir samhliða færslu Hringbrautar. í erindi Skipulagsstofnun- ar um fyrirhugaða fram- kvæmd segir m.a.: „Það er álit framkvæmda- raðila að framkvæmdin muni ekki hafa umtalsverð um- hverfisáhrif. Samkvæmt um- ferðarspá sé ekki gert ráð fyr- ir að umferð aukist um Njarðargötu og því ætti fram- kvæmdin að hafa lítil áhrif á loftmengun og hávaða. Áhersla verði lögð á að jarð- rask verði sem minnst við byggingu götunnar. Fram- kvæmdin sé talin litlu skipta fyrir fuglalíf svæðisins. Einn- ig kemur fram það álit framkvæmdaraðila að endur- gerð og færsla Njarðargötu breyti ekki grunnvatns- ástandi svæðisins og þar með innrennsli til Reykjavíkur- tjamar. Stefnt sé að því að regnvatn götunnar verði tekið í niðurföll og safnleiðslu og því hleypt aftur út í nálæga skurði. Ef slíkt fyrirkomulag reynist illa muni fram- kvæmdaraðili gera ráðstafan- ir til að koma regnvatninu í holræsakerfi borgarinnar." Mikilvægt varpland andfugla og mófugla Borgarráð fjallaði um málið í síðustu viku og sendi Skipu- lagsstofnun álit sitt en ráðið telur að umhverfisáhrif fyrir- hugaðrar endurgerðar og færslu á Njarðargötu í Vatns- mýri verði ekki umtalsverð og því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur gerir heldur ekki at- hugasemd við fyrirhugaða endurgerð og færslu á Njarð- argötu og telur að fram- kæmdin muni ekki hafa telj- andi neikvæð áhrif á umhverfið á þessum slóðum. Samkvæmt áliti Náttúru- verndar ríkisins geta fram- kvæmdirnar haft áhrif á svæðið, sem fellur undir al- menna borgarvernd og náttúruminjaskrá og vekur stofnunin athygli á því að end- urbygging og færsla Njarðar- götu muni m.a. skera skurði sem veita vatni inn í Tjörnina. Ennfremur bendir Náttúru- vemd á að gatan muni verða lögð um óræktað svæði sem nú sé mikilvægt varpland andfugla og mófugla og telur stofnunin því rétt að sem mót- vægisaðgerð við fyrirhugaða byggingu og færslu Njarðar- götu verði strax girt af það land sem ætlað sé undir frið- landið. Að mati stofnunarinn- ar má þannig að einhverju leyti vinna upp það varpland sem tapast við framkvæmd- irnar. Náttúruvernd ríkisins bendir á að nauðsynlegt sé að skoða allar fyrirhugaðar framkvæmdir á vatnasviði Tjarnarinnar í heild sinni, þ.e. færslu Njarðargötu og Hringbrautar. Hún vill að staðið verði þannig að fram- kvæmdum að vatnsstreymi til Tjarnarinnar skerðist ekki eða aðkomuleiðir fugla að henni verði ekki heftar. Framkvæmdir hafí sem minnst áhrif á vatnsbúskap Náttúruvernd ríkisins fellst á að ekki fari fram mat á umhverfisáhrifum fram- kvæmdarinnar að því tilskildu að: • „Lagðar verði fram til- lögur að tæknilegum útfærsl- um á lagningu fyrirhugaðra vega (Njarðargata og Hring- braut) sem tryggja eiga vatnsrennsli og aðkomuleiðir fyrir fugla inn á svæðið. • Samtímis verði hafnar framkvæmdir við að fylgja eftir samþykktu deiliskipu- lagi varðandi stærð friðlands fyrir fugla. Við þær aðgerðir verði haft samráð við sér- fræðinga sem fylgst hafa með fuglalífi tjarnarinnar, s.s. starfsmenn Náttúrufræði- stofnunar íslands.“ í erindi Skipulagsstofnun- ar segir: „í frekari upplýsing- um framkvæmdaraðila kemur fram að unnið sé að heildar- lausn vegna afrennslis ofan- vatns af svæðinu. Markmiðið sé að fyrirhugaðar fram- kvæmdir hafi sem minnst áhrif á vatnsbúskap í mýrinni. Sennileg lausn sé að leiða of- anvatn eftir lögnum í tjarnir sem þegar séu á svæðinu eða verði gerðar síðar. Til skoð- unar sé hvort krafist verður olíugildru vegna afrennslis af bifreiðastæðum. Einnig kem- ur fram að framkvæmdaraðili telur ekki ástæðu til að gera ráðstafanir til að tryggja að- komuleiðir fugla frá flugvall- arsvæðinu að friðlandinu í Vatnsmýrinni þar sem svæðið austan við Njarðargötu sé fyrirhugað sem byggingar- svæði eða helgunarsvæði mannvirkja. Hugað verði að aðkomuleiðum fugla frá frið- landinu að Tjörninni þegar færsla Hringbrautar verður hönnuð. Fram kemur að svæðið vestan við núverandi friðland í Vatnsmýrinni sé innan lóðar Háskóla íslands og framkvæmdir þar séu því óháðar endurbyggingu og færslu Njarðargötu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.