Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
landsmótsins Gleði frá Prestbakka,
Þilja frá Hólum og Rauðhetta frá
Kirkjubæ. Gleði kemur þarna ný,
hækkar um 9 stig hvorki meira né
minna. Rauðhetta lækkar um 2
stig, var í öðru sæti í fyrra en Þilja
sem er dóttir Þrennu hækkar um 1
stig, var í 7. sæti í fyrra.
Þá kemur næst önnur stjarna frá
landsmóti, Bringa frá Feti, með
131 stig, hækkar um 1 stig en jafn-
ar í 5. til 10 sæti með 130 stig eru
Þeysa frá Hólum, Trú frá Auðs-
holtshjáleigu, Gletting frá Holts-
múla I, Vigdís frá Feti og Orða frá
Víðivöllum fremri.
Þrautseigu Þ-in frá Hólum
Þótt enn sé Hólahryssa í efsta
sæti og tvær aðrar í þessum 10
hryssna hópi er aðeins farið að
kvarnast úr sterku vígi Hólarækt-
unarinnar. Það hefur reyndar verið
með ólíkindum í gegnum tíðina
hversu Þ-hryssurnar frá Hólum
hafa verið þarna sterkar. Nú ber
hins vegar svo við að hornsteinninn
í þessu veldi og formóðirin Þrá frá
Hólum er ekki lengur á meðal
þeirra fremstu og er það út af fyrir
sig jákvætt ræktunarlega séð að
yngri hryssur skuli taka yfír.
Þrenna er dóttir hennar og hinar
tvær hryssurnar frá Hólum eru
dætur Þrennu.
Drottningin Rauðhetta frá
Kirkjubæ er ennþá inni þrátt fyrir
að hafa ekki skilað neinu afkvæmi í
dóm ennþá en ef að líkum lætur
mun koma fram fyrir sjónir manna
stóðhestur undan henni á næsta
ári. Sá er undan Trostani frá
Kjartansstöðum.
I hryssuflokknum er Orri einnig
atkvæðamikill á þar 5 af þessum 10
efstu og ein þeirra, Gleði, er sonar-
dóttir hans.
Innan tíðar mun koma út á veg-
um Bændasamtakanna, Hrossa-
ræktin I sem inniheldur kynbóta-
mat efstu hrossa. Sömuleiðis hafa
verið birtir listar yfír efstu hross
fyrir hvert atriði og er sá listi mjög
gagnlegur ef verið er að leita eftir
stóðhestum sem eru sérlega sterkir
í einhverjum ákveðnum þáttum.
Einnig er verið að uppfæra kyn-
bótamatið á Veraldarfeng þannig
að hrossaræktendur geta von bráð-
ar flett upp hrossum sínum og
kynnt sér hugsanlegar breytingar.
Þá er hægt að skoða sundurliðaðar
einkunnir kynbótamats tíu efstu
hrossa í hverjum flokki á mbl.is
með því að fara inn á íþróttir og
þaðan í hesta.
Víkingurinn
kominn til
meðvitundar
NORSKI víkingaskipstjórinn
Ragnar Thorsed, sem flutti
þrjú hross með sér á víkinga-
skipi sfnu frá Höfn í Hornafirði
til Noregs, er nú kominn til
meðvitundar eftir að hafa
fengið höfuðhögg í útreiðartúr
skömmu eftir komu sína þang-
að. Lá hann meðvitundarlaus í
fimm vikur á sjúkrahúsi og um
tíma var tvísýnt; um líf hans.
Af útflutningi þessara hrossa
spunnust allnokkrir eftirmálar
og ásakaði Halldór Runólfsson
yfirdýralæknir Sigurbjörn
Bárðarson um að hafa brotið
lög vegna útflutnings á þessum
hrossum og kærði hann málið
til sýslumannsins á Hornafirði.
Sigurbjörn, sem átti um
klukkustundar langt simtal við
Thorsed nýlega, sagði að í ljós
væri komið að hann hefði ekki
dottið af baki heldur hafi hann
líklegast verið að teyma hest-
inn sem hafi fælst af einhverj-
um orsökum og hann undið
upp á sig og slæmt fæti í höfuð
víkingsins.
Engin vitni voru að þessu at-
viki og sagði Sigurbjörn að það
síðasta sem norski víkingurinn
myndi væri þegar hann teymdi
hestinn við hlið sér og það hafi
verið mikið flugnager að angra
hestinn.
Viðvíkjandi rannsókninni á
þessum útflutningi sagði Sigur-
björn það sérkennilegt að hann
hafi ekki enn verið kallaður til
skýrslutöku né verið rætt við
sig af hálfu embættisins.
Sigurbjörn kvaðst þess full-
viss að niðurstaða þessa máls
yrði á þá Ieið enginn Islending-
ur hvorki hann né aðrir, hafi
brotið lög í þessu máli.
„Hér er fyrst og fremst um
að ræða fljótfærnislegar og illa
fgrundaðar ákvarðanir yfir-
dýralæknis að ræða og mun ég
fara fram á að yfirdýralæknir
hreinsi mannorð mitt af þeim
áburði sein liann hefur borið á
mig,“ sagði Sigurbjörn að end-
ingu.
Sýslumaðurinn á Höfn, Páll
Björnsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið að lögreglu-
skýrslur væru konmar í sínar
hendur og myndi hann líta á
þær á næstu dögum og yrði
tekin ákvörðun um framhaldið
að því loknu.
Barnaefni
í úrvali
Skólavörðustíg 21, sími 551 4050
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
öðuntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Hvernig hugsa leiðtogar? - Leiðtoganámskeið
Vilt þú vísa veginn?
Leiðtogahugsun má þjálfa með áhrifaríkum hætti
í dag er þess krafist aó innan fyrirtækja starfi einstaklingar
meó leiðtogahugsun, jafnt stjórnendur sem starfsfólk.
Taktu forystu!
Skref fyrir skref heldur opið námskeió
í Leiðtogatíglinum®, fyrir einstakl-
inga á vinnumarkaði.
28. október kl. 9-12 og 17.-18
nóvember kl. 9-18, báóa daga.
Vió bjóðum þeim, sem vilja mæta nýjum kröfum um
árangur og nýsköpun, öfluga leiðtogaþjálfun.
Nánari upplýsingar í sima 581 1314
eða hjá martha@step.is
Með Leiðtogatiglinum® tileinka einstaklingar sér
árangursríkar aðferóir og tækni til að vaxa í krafti hæfni
sinnar og reynslu.
Skreffynskref
Ármúla 5 • 108 Reykjavík • sími 581 1314 • fax 581 1319 • sfs©step.is • www.step.is
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 41 ,
---------------------------V
CLINIQUE
Alveg fullkominn
Nýi Stay Perfect Lightweight Compact farðinn SPF 15
Opnaðu nýja Stay Perfect
Lightweight Compact farðann
SPF 15 og uppgötvaðu einstaka
eiginleika hans.
Með einni stroku hylur hann
flnar línur og galla í húðinni.
Áferðin er létt og gerir húð þína
frísklega og fallega I hvaða
birtuskilyrðum sem er.
Þar að auki verndar hann húð-
ina með andoxunarefnum og
sólvarnarstuðli 15. Húðin helst
mött allan daginn.
Allt þetta í handhægu hulstri
sem er áfyllanlegt.
Clinique. 100% ilmefnalaust.
Lyf&heilsa
A P 0 T E K
Kringlan, Austurver, Melhagi, Domus, Mjódd og Hafnarstræti, Akureyri.
Unglingsstúlkan Sofiefær undarlegt
bréfþar sem spurt er: Hver ert þú?
Þetta er upphafið á tímaferðalagi
hennar i gegnum sögu heimspekinnar
þar sem hún hittir marga af
þekktustu hugsuðum
mannkynssögunar.
Hver er
, VERÖLD SOFFÍU“ Á NRKi
Til loka októbermánaðar verður nýjasta vlðbót *
Breiðvarpsins, 6 norrænar stöðvar, i opinni dagskrá
hjá þeim sem tengdir eru breiðbandinu.
jj d**, ‘Jfk m**, ^
Þessar stöðvar eru allar þekktarfyrir vandað
afþreyingar-, íþrótta-, frétta- og menningarefni
óg erufrábær kosturfyrir alla þá sem viljafylgjast
með frændum vorum á Norðurlöndunum.
', L ' * N
ItDqtnj] vifl breiÁlHindhl r* tótiqifig víð Htkffdefi