Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
Árnad heilla
f\ ÁRA afmæli. í dag,
I V/ miðvikudaginn 11.
október, verður sjötug
María Guðrún Konráðs-
dóttir, Jökulgrunni 4,
Reykjavík.Eiginmaður
hennar er Jón Haukdal Þor-
geirsson. Þau hjónin verða
að heiman.
BRIPS
Uinsjón Uuðinunilur
IMII Arnai'sou
ÞVÍ fylgir ánægjuleg til-
finning í vörninni þegar
ljóst er að sagnhafi er kom-
inn niður á samningi sínum.
Þessi tilfinning lýsir sér
sem eins konar léttir og fyr-
ir vikið slaka menn á klónni
og missa oft einbeitinguna.
Sem getur verið kostnaðar-
samt, sérstaklega í tví-
menningi. Setjum okkur í
spor vesturs, sem kemur út
með laufdrottningu gegn
fjórum hjörtum suðurs:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
* AD84
¥ 73
* K106
* 8764
Vestur Austur
* 1063 * KG92
¥ D4 ¥ 1096
♦ Á732 ♦ D954
+ DG105 * 92
Suður
* 75
¥ AKG852
♦ G8
+ ÁK3
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 3hjörtu
Pass Pass 4 hjörtu Pass Pass
Suður tekur fyrsta slag-
inn með laufás, leggur niður
trompásinn og svínar svo
spaðadrottningu. Austur
drepur og spilar laufi. Suð-
ur tekur á kóng, fer inn í
borð á spaðaás og svínar
hjartagosa. Vestur er
ánægður að fá slag á tromp-
drottningu og spilar hálauíi.
Austur stendur sig nú vel
þegar hann trompar með
tíunni og spilar spaðagosa.
Vörnin hefur fengið þrjá
slagi: einn á spaðakóng,
einn á hjartadrottningu og
svo laufslaginn sem austur
trompaði. Vestur heldur á
tígulás og veit að spilið er
tapað. Sagnhafi trompar
spaðagosann og spilar tígul-
áttu. Hvað á vestur að
gera?
Af þvi vörnin er komin
með bókina er hætt við að
vestur rjúki upp með tígul-
ás til að „taka dáninn“. En
ekki er víst að austur sé
ánægður með þá vörn. Með
því að trompa fríslaginn í
laufi og spila spaða gerði
austur makker sínum kleift
að ná upp fullkominni taln-
ingu á hendi suðurs. Hafi
vestur verið vakandi átti
hann að vita að sagnhafi var
með nákvæmlega tvo spaða,
sexlit í hjarta, þrílit í laufi
og þar af leiðandi TVO
TIGLA. Þess vegna gat
ekkert kostað að dúkka og
láta sagnhafa giska.
ÁRA al'mæli. í dag, miðvikudaginn 11. október, verð-
ur fimmtug Eyrún ísfold Gísladóttir, Reynihvammi
8, Kópavogi. Eiginmaður hennar, Sturla R. Guðmundsson,
verður fimmtugur 22. október nk. Þau taka á móti ættingj-
um, vinum og félögum laugardaginn 14. október í Glaðheim-
um, Félagsheimili Gusts, Kópavogi, frá kl. 17-20.
ÁRA afmæli. Nk.
fóstudag 13. október
verður fimmtugur Kristinn
Jörundsson, Goðatúni 17,
Garðabæ. Eiginkona hans
er Steinunn Helgadóttir.
Þau taka á móti gestum á af-
mælisdaginn í félagsheimili
Frímúrara í Hafnarfirði,
milli kl. 18-21.
SKÁK
Uins.jún llclgi Áss
Grétarsson
STAÐAN kom upp á
minningarmóti Najdorfs er
lauk fyrir skömmu í Buenos
Aires. Hvítt hafði
Facundo Pierrot
(2.428) gegn Diego
Flores (2.358). 50.
Hxd6! Hb5 50.
...Hxd6 51. e5 +
Ke7 52. exd6+
Kxd6 53. Kg5 og
svartur situr uppi
með gjörtapað
peðsendatafl.
Hróksendataflið er
einnig tapað og hin
tæknilega úr-
vinnsla vefst ekki
fyrir hvítum. 51.
Ha6 Hc5 52. g4
hxg4 53. fxg4 Hc7 54. e5+
Kf7 55. Kg5 Hb7 56. Kh6
Hb4 57. Ha7+ Kf8 58. g5
Hxh4+ 59. Kxg6 Hf4 60.
Ha6 Ke7 61. Kh6 Hh4+ 62.
Kg7 Hf4 63. g6 Hf5 64. Ha5
Hfl 65. Ha7+ Ke8 66. Hf7
Hgl 67. KfB Hg2 68. g7 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Alþjóðlegt stærðfræðiár
Heimasíða Alþjóða stærðfræðiársins http://wmy.khi.is/
Þraut 21
Hver er hundraðasti bókstafurinn í þessari runu?
ABBCCCDDDD...........
Svar við þraut 20.
Svarið er 34. Meðaltal sjö ólíkra náttúrlegra talna er summa
þeirra deilt með 7 svo summa þeirra er 49. Til þess að finna
stærstu mögulegu töluna verða hinar að vera eins litlar og
hægt er. 0+1+2+3+4+5 = 15. 49-15 = 34
Hér em 3 vefslóðir fyrir
þá sem vilja spreyta http://www.ismennt.is/vefir/heilabrot/
sig á stærðfræði- http://syrpa.khi.is/~stae/krakkar.htm
þrautum. http://www.raunvis.hi.is/~stak/
LJOÐABROT
SOFÐU, UNGA ÁSTIN MÍN
Sofðu, unga ástin mín,
- úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Það er margt, sem myrkrið veit,
- minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun bezt að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.
Jóhann Sigurjónsson.
STJÖRMJSPÁ
eftir Franees Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur listrænum
hæfileikum, sem fólk kann
vel að meta en síður duttl-
ungafullt skap þitt.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þótt fátt virðist ætla að ganga
upp í dag skaltu engar
áhyggjur hafa. Áður en varir
skiptir um og þér gengur
flest í haginn með þolinmæði
oglagni.
Naut
(20. apríl - 20. maí) í**
Ef þú viit deila áhyggjum þín-
um með einhverjum skaltu
velja þér trúnaðarvin af kost-
gæfni. En þegar allt kemur til
alls er útíitið ekki svo svart.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní)
Þér finnst þú þurfa að gera
svo margt, en hafa til þess svo
stuttan tíma. Þá er ekki um
annað að ræða en setjast nið-
ur og skipuleggja hlutina.
Krabbi
(21.júní-22. júlí)
Þú getur ekki ætlast til þess
að aðrir kaupi hugmyndir
þínar, ef þú getur ekki sett
þær fram á skiljanlegan og
rökstuddan hátt. Vandaðu
þig-
Ljón
(23. júh' - 22. ágúst) m
Þú þarft að gefa þér tíma tii
þess að koma fjármálunum á
hreint. Og í einkaiífmu mun
gamall vinur koma þér til
hjálpar með ferskum hug-
myndum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) VUtL
Þótt athygli hins kynsins
kunni að virka uppörvandi
skaltu halda þig á mottunni
og særa ekki þá, sem þér í
raun og veru þykir vænt um.
Vos 'jrf'x
(23.sept.-22.okt.)
Þú kannt að neyðast til þess
að grípa til aðferða sem eru
þér ekki beint að skapi en
láttu þig hafa það því eftir það
ertu á hreinum ís.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft ekki að berja bum-
bur og tilkynna hvert framlag
þitt er. Verk þln sanna sig
sjálf svo þú skalt fara þér
hægt en njóta árangurs erfið-
is þíns.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) M+r
Ovænt atburðarás hrífur þig
með sér svo þú kemur engum
vörnum við. En þetta er bara
saklaust ævintýri svo þér er
óhætt að njóta þess.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar)
Loksins finnst þér vinnufé-
lagar þínir meta þig að verð-
leikum. Þá er gott að þú íhug-
ir stöðu annarra og viðhorf
þitt til þeirra.
Vatnsberi , .
(20. jan. -18. febr.) CSel
Öll athyglin snýst um þig
þessa dagana en farðu þér
hægt í yfirlýsingunum og
mundu að aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) V%**>
Þegar allt gengur þér í hag-
inn sem þú skalt hugsa til
vina þinna sem hafa staðið
með þér í gegnum þykkt og
þunnt. Leyfðu þeim að deila
velgengni þinni með þér.
Stjörnuspána á að iesa sem
dægradvöi. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
L0GSUÐUTÆKI
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
L0GSUÐU-
SLÖNGUR
ÁRVÍK
ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
%y)Á/^kw\ Brúðhjón
Allm boröbiínaður Glæsileg gjalavara Briíóhjónalistar
yj.V)//M\\Á VERSLUNIN
Ltiugttvegi 52, s. 562 4244.
BARNAFATNADUR
SCHIESSER nxrfót
Bolir - buxur - gallar - vettlingar - náttföt
'Wí BÚÐIN |
Garðatorgi, sími 565 6550.
EIGNAMIÐLUMN
sölom., Óskor R. Horíórson, söfaimoSor, Riarlon
ri, Ingo Hormesdóttir, simovorsla og ritari, Olóf
r, símavarsla og öflun skjola.
m
Sími 58« 9090 • Fax 588 9095 • Síöunu.la 21
Mikil sala - vantar eignir
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar stærðir og
gerðir eigna, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði, á söluskrá. Um
þessar mundir er verð fasteigna hátt og sterkar greiðslur í boði.
Nokkur einbýlishús óskast til kaups
Flest einbýlishús á söluskrá okkar hafa seist á síðustu vikum.
Enn eru þó allmargir kaupendur á kaupendaskrá. ( mörgum
tilvikum er um staðgreiðslu að ræða.
Einbýlishús eða raðhús í Kópavogi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 200-300 fm einbýlishúsi Foss-
vogsmegin í Kópavogi. Góðar greiðslur í boði.
Raðhús eða parhús á Seltjarnarnesi eða í vesturborg-
inni óskast
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 200-300 fm
raðhús eða parhús í vesturborginni eða á Seltj. Mjög góðar
greiðslur i boði. Allar nánari uppl. veita Stefán Hrafn og Sverrir.
Sérhæð óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 120-160 fm sérhæð í vesturborg-
inni eða Þingholtunum. Sterkar greiðslur í boði.
Sérhæð í Rvík óskast - eða hæð og ris
Höfum kaupanda að 120-160 fm sórhæð í Rvík. Hæð og ris
kemur einnig vel til greina. Traustar greiðslur í boði.
íbúð við Skúiagötu, Kirkjusand eða Neðstaleiti óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 3ja-4ra herb. 80-120 fm íbúð á
pfangreindum svæðum. Staðgreiðsla í boði.
íbúð í Mosfellsbæ óskast
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 3ja herb. íbúð í
Mosfellsbæ til kaups.
íbúð i vesturborginni óskast
Skrifstofuhæð í lyftuhúsi
Vorum að fá í söiu mjög góða og vel innréttaða um 200 fm skrif-
stofuhæð í lyftuhúsi við Nýbýlaveg í Kópavogi. Hæðin er vel
skipulögð, m.a. 5 skrifstofuherbergi, vinnusalur, snyrtingar o.fl.
Malbikuð bílastæði. Gott verð.