Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Haust í Lystigarðinum HAUSTLITIR skarta nú sínu fegursta og þar eru trén í Lystigarðinum á Akureyri engin undantekning. Stefnt að því að bjóða út byggingu knattspyrnuhúss fyrir áramót Framkvæmd- ir hefjist næsta vor ÞÓRARINN B. Jónsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Akur- eyrar, sagði að stefnt væri að því að bjóða út byggingu knattspyrnu- húss á félagssvæði Þórs við Hamar fyrir áramót og að byggingafram- kvæmdir hæfust næsta vor. Áætl- aður kostnaður við framkvæmdina er að sögn Þórarins rúmar 200 milljónir króna. Þórarinn sagði að vilji manna stæði til þess að bjóða verkið út í alútboði, húsið yrði byggt á næstu tveimur árum og tilbúið til notkun- ar haustið 2002. Hann sagði að bærinn legði upp með þetta sem tveggja ára verkefni. „Ef einhver Glerárkirkja Vinafundur eldri borgara VINAFUNDUR eldri borgara verð- ur í Glerárkirkju á morgun, fimmtu- daginn 12. október kl. 15. Gestur fundarins verður séra Birgir Snæbjömsson. Nemendur frá Tón- listarskólanum á Akureyri koma í heimsókn og boðið verður upp á kaffiveitingar. aðili býðst hins vegar til þess í al- útboði að byggja húsið alfarið á næsta ári og fjármagna verkið þannig að bærinn geti borgað það á næstu tveimur árum er ekkert því til fyrirstöðu. Við erum að tala um miklu einfaldara hús en var byggt í Reykjanesbæ, þannig að þessi möguleiki er fyrir hendi.“ Þórarinn sagði að enn væri beð- ið svars frá Þór varðandi staðsetn- ingu hússins á félagssvæðinu og einnig svara frá Ungmennafélagi Akureyrar varðandi frjálsíþrótta- aðstöðu í húsinu. Þórsarar hafa rætt um að húsið verði byggt sem næst Hamri, þannig að tengingin við félagsheimilið verði sem mest og þá á grasvellinum norðan við Hamar. Baðaðstaða og bílastæði eru fyrir hendi í og við Hamar. Knattspyrnuhúsið verður 110 metra langt, um 75 metra breitt og hæð upp í mæni 12,5 metrar. Þór- arinn sagði að húsið yrði óupphitað og sjálfloftræst en mjög vandað að allri gerð. Hann sagði að undirlag- ið, sjálfur knattspyrnuvöllurinn, væri það sem máli skipti og að ekki mætti spara á því sviði, hvort sem sandgras yrði fyrir valinu eða eitthvað annað. Ölvaður maður á ferð á Akureyri Olli skemmd- um á fímm bflum FIMM bílar skemmdust eitt- hvað eftir næturævintýri ölv- aðs manns á Akureyri í fyrr- inótt. Maðurinn stal bifreið í Stórholti, þar sem lögreglan kom að honum og veitti eftir- för niður á Óseyri. Þar stökk maðurinn út úr bifreiðinni á ferð og rann hún áfram og ut- an í tvo bíla og stöðvaðist á þeim þriðja. Maðurinn tók hins vegar á rás, stökk upp á þak bifreiðar sem stóð við girðingu á Óseyri og þaðan yfir girðinguna, þar sem lög- reglan hafði hendur í hári hans. Yfírlit yfír veðrið sumarið 2000 Aldrei fleiri sólskins- stundir á Akureyri SÓLSKINSSTUNDIR á Akureyri síðastliðið sumar voru alls 749,3, rúmum 193 stundum umfram meðal- lag og hafa aldrei verið fleiri. Sumar- ið 1976 kemst næst þessu þegar sólskinsstundir á Akureyri voru 723,2. Þetta kemur fram í veðuryfirliti yfir sumarið 2000 sem birt er á vef Veðurstofunnar á Netinu. Þar segir að sumarið hafi verið fremur hlýtt og sólríkt, talsverð hlýindi verið í júlí og september og þá hafi ágúst einnig verið góður en júní aftur á móti í meðallagi. Sumarið 1996 hafi þó ver- ið hlýrra bæði á Akureyri og í Reykjavík. í Reykjavík var líka hlýrra árin 1998 og 1991 en á Akur- eyri þurfi að fara aftur til ársins 1984 til að fá hærri sumarhita. Meðalhitinn á Akureyri í sumar var 10,3° sem er 1,3° yfir meðaltali áranna 1961-1990. Úrkoma mældist fjórðungi minni en venja er, 106,8 mm. Meðalhiti í Reykjavík í sumar var 10,l°sem er 0,8° yílr meðallagi. Úrkoman var 260,6 mm, rúmum tíunda hluta umfram meðallag. Sólskinsstundimar í Reykjavík voru 651,7 sem er um 41 stund meira en venja er. Líka meiri sól í september Hvað septembermánuð síðastlið- inn varðar var meðalhiti á Akureyri 8,4° og er það nokkuð yfir meðallagi áranna 1961-1990, eða2,l°. Arið 1996 var hitinn 11,4°. Úrkoma mældist 30,2 mm á Akureyri í september, fjórðungi minni en vant er. Sólskins- stundirnar voru 125,2 eða 39 stund- um umfram meðallag. Aðeins þrisv- ar sinnum hafa sólskinsstundir verið fleiri á Akureyri í september, 1976, 1994 og 1986. í Reykjavík var meðalhitinn 8,7° sem er 1,3° yfir meðaltali áranna 1961-1990 en svipað og meðaltal ára- nna 1931-1960. Árið 1996 var mun hlýrra, 10,4°, og einnig var hlýrra ár- ið 1993. Urkoman mældist 87,2 mm sem er þriðjungi meira en venja er og sólskinsstundir voru 140 sem er 15 stundum um fram meðallag. Átak í brunavörnum KK söng fyr- ir krakkana UM 700 áhugasöm börn á Akur- eyri hlýddu á tónlistarmanninn Kristján Kristjánsson, KK, taka lagið á Slökkvistöðinni á Akur- eyri í gær en þau sk'iptust niður í tvo hópa. KK er nú á hringferð um iandið og hún ber yfir- skriftina „Eldsnöggt um landið - í einum grænum.“ Alls mun hann koma fram á um 20 stöðum og leika á tónleikum, heimsækja leikskóla og slökkvistöðvar. KK, Samband slökkviliðsmanna; Ung- mennafélag íslands og Slökkvi- stöð höfuðborgarsvæðisins standa sameiginlega að átaki þar sem brunavarnir eru í brennidepli og er ferð tónlistarmannsins um landið liður í því að vekja athygli á átakinu. Geisladiskur sem KK hefur gefið út verður seldur ásamt reykskynjara hjá ung- mennafélögum um land allt í tengslum við átakið. Morgunblaðið/Kristján 700 börn á leikskólum á Akureyri fengu tækifæri til að hlýða á tónlistarmanninn Kristján Kristjánsson, KK, taka lagið á slökkvistöðinni á Akureyri í gær og kunnu vel að meta. Þrír menn í gæslu- varðhaldi á Akureyri Tveir viður- kenndu innbrot og þjófnað BROTIST var inn í húsnæði Happ- drættis Háskóla íslands á Akureyri aðfaranótt sl. laugardags og stolið þaðan um 200 þúsund krónum í pen- ingum og miklu magni af happa- þrennum. Á laugardagsmorgun voru þrír menn handteknir, grunaðir um aðild að málinu og í kjölfarið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í viku. Við yfirheyrslu viðurkenndi einn mannanna að hafa brotist inn í húsnæði happdrættisins. Einnig voru mennimir grunaðir um að hafa brotist inn í togarann Geira Péturs ÞH, sem liggur við bryggju á Akureyri, og stolið þaðan lyfjum úr lyfjaskáp. Tveir mannanna viður- kenndu við yfirheyrslur innbrot í togarann, þar af annar þeirra sem viðurkenndi innbrot í HHI. Þá var lögreglan á Akureyri með aðsent mál frá kollegum sínum í Hafnarfirði og viðurkenndi einn þremenninganna, annar þeirra sem viðurkenndi innbrot í togarann, að hafa náð tæplega 200 þúsund krónum út af stolnu debetkorti úr Hafnarfirði. Öllum mönnunum var sleppt úr varðhaldi að loknum yfírheyrslum sl. mánudag en rannsókn þessara mála er á lokastigi. -------*-+-*----- Fræðslufundur um alzheimer- sjúkdóminn VETRARSTARF Félags áhugafólks og aðstandenda alzheimerssjúklinga og heilabilaðra á Norðuriandi, FAASAN, hefst með fræðslufundi sem haldinn verður í sal dvalarheim- ilisins Hh'ðar annaðkvöld, fimmtu- dagskvöldið 12. október, kl. 20. Á fundinn koma Helga Hjálmai’s- dóttir félagsráðgjafi og Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir og kynna stuðningshópa fyi’ir aðstand- endur og minnismóttöku á Krist- nesspítala. Einnig verður sýnd stutt fræðslumynd. Allir þeir sem áhuga hafa eða þörf fyrir fræðslu og upp- lýsingar um þessi mál eru hvattir til að mæta á fundinn. Stefna félagsins í vetur verðui' að efla starfsemina með fræðslu og upp- lýsingum og reyna að fá fleira fólk til liðs við félagið. Þörfin er mikil því æ fleiri greinast með alzheimersjúk- dóminn og aðra heilabilunarsjúk- dóma. Kalla má þessa sjúkdóma fjöl- skyldusjúkdóma því bæði sjúklingar og aðstandendur þjást. Félagið hefur símatíma á kvöldin frá kl. 20 til 22 í síma 867-9600. ----------------- Yfir 10 milljón ára millilag við Borgarbraut Náttúrufyrir- brigði sem verði varðveitt HALLDÓR Pétursson, jarðfræðing- ur hjá Náttúrufræðistofnun íslands, hefur lagt til við náttúruverndar- nefnd Akureyrar að gerðar verði ráðstafanir til að varðveita rautt millilag sem kom í ljós við gerð Borg- arbrautar. Millilag þetta myndaðist fyrir að minnsta kosti 10 milljónum ára, þegar hraun rann yfir jarðveg. Halldór lagði jafnframt til við nefndina að millilag þetta verði gert aðgengilegt til fróðleiks fyrir vegfar- endur og til nota við kennslu. Tryggvi Marinósson umhverfisstjóri og Halldór fóru í vettvangsskoðun og gerðu lauslega athugun á möguleik- um á frágangi svæðisins með ofan- greint í huga. Náttúruverndarnefnd leggur til að allra leiða verði leitað til að vernda og gera náttúrufyrirbrigði þetta að- gengilegt og fól umhverfisdeild að gera tillögu að frágangi svæðisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.