Morgunblaðið - 11.10.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 35
LISTIR
Fjölbreytt útgáfa hjá JPV-forlaginu á þessu hausti
Fjórar nýj ar skáldsögur
EFTIRTALDAR bækur koma út í
haust á vegum JPV-forlags, Sögu-
steins og Islenskra mynda.
SkáldsögTir og smásögur
Sumarblús eftir Fríðu A. Sigurð-
ardóttur. Sex smásögur, sjálfstæðar
en þó laustengdar. 121 blaðsíða.
Heimsins heimskasti pabbi eftir
Mikael Torfason. 196 blaðsíður.
Gaga eftir Ólaf Gunnarsson. Gaga
kom fyrst út 1984 og í enskri þýð-
ingu 1988. I bókinni eru myndir
kanadísku myndlistarkonunnar
Judy Pennanen. 64 blaðsíður.
í allri sinni nekt eftir Rúnar
Helga Vignisson. Þetta smásagna-
safn er fimmta skáldverk Rúnars
Helga Vignissonar. 145 blaðsíður.
Spegiisónatan eftir Þóreyju Frið-
bjömsdóttur. Þetta er fjórða skáld-
saga höfundar og sú fyrsta fyrir full-
orðna en Þórey hlaut Islensku
barnabókaverðlaunin fyrir Epla-
snepla árið 1995.162 blaðsíður.
Blár þríhymingur eftir Sigurð
Pálsson. Þetta er önnur skáldsaga
Sigurðar Pálsson en áður hefur hann
sent frá sér Parísarhjólið. Sigurður
hefur jöfnum höndum samið ljóð,
leikrit og skáldsögur. 179 blaðsíður.
íslenskar barna- og
unglingabækur
Hundaeyjan Lítið ævintýri um
undrun, frelsi og fyrirgefningu eftir
Sindra Freysson og Höllu Sólveigu
Þorgeirsdóttur. Hundaeyjan er
fyrsta bamabók Sindra og er ríku-
lega myndskreytt af Höllu Sólveigu
Þorgeirsdóttur. 31 blaðsíða.
Allir með strætó eftir Guðberg
Bergsson og Halldór Baldursson
Þetta er önnur bamabók Guðbergs í
búningi Halldórs Baldurssonar
teiknara. 31 blaðsíða.
Guöbergur Mikael
Bergsson Torfason
Halla eftir Stein Steinarr og Lou-
isu Matthíasdóttur. Ljóðabálkur
Steins Steinars um hana Höllu, með
myndum Louisu Matthíasdóttur,
hafði næstum lent í glatkistunni.
Myndir Louisu auðga ljóðið og
gleðja augað.
Þýddar barna- og
unglingabækur
Stelpur í strákaleit eftir Jacquel-
ine Wilson í þýðingu Þóreyjar Frið-
bjömsdóttur. Unglingabók eftir
margverðlauaðan metsöluhöfund.
Kafteinn Ofurbrók og ævintýri
hans eftir Dav Pilkey í þýðingu
Karls Ágústs Úlfssonar. 120 blað-
síður.
Islensk
skáldverk
Vorhænan og aðrar sögur eftir
Guðberg Bergsson.125 blaðsíður.
AM 00 Söguleg skáldsaga eftir
Hjört Marteinsson. Sagan hlaut
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar árið 2000. 410 blaðsíð-
ur.
Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann Sig-
urjónsson. Ný útgáfa þessa fræga
leikrits í nýrri íslenskri gerð sem
hefur verið endurskoðuð með hlið-
sjón af endanlegum texta skáldsins á
Rúnar Helgi Sigurður
Vignisson Pálsson
dönsku. Jón Viðar Jónsson annaðist
útgáfuna og ritar inngang. 218 bls.
Þýdd skáldverk
Orðabók Andskotans eftir Amb-
rose Bierce í þýðingu Hallbergs
Hallmundssonar. 114 blaðsíður.
Platero og ég eftir Juan Ramón
Jiménez í þýðingu Guðbergs Bergs-
sonar. Juan Ramón Jiménez (1881-
1958) var eitt af höfuðskáldum 20.
aldar og hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1956.159 blaðsíður.
Þrjár sögur eftir Saki/H.H.
Munro í þýðingu Vilborgar Dag-
bjartsdóttur. Þrjár sögur eftir Saki
em gefnar út í tilefni af sjö-
tugsafmæli Vilborgar 18. júlí. 54 bls.
Ljóðabækur
Biómið sem þú gafst mér Úrval
ljóða Nínu Bjarkar Árnadóttur rit-
stýrt af Jóni Proppé. Þetta Ijóðaúr-
val hefur að geyma meira en helm-
ing Ijóðanna sem Nína birti á ferli
sínum sem og ljóð og nokkrar kven-
lýsingar úr handriti sem var ólokið
þegar hún lést. 200 blaðsíður.
Sögur af aldri og efa eftir Sig-
mund Erni Rúnarsson. Þetta er
fimmta ljóðabók Sigmundar Ernis.
63 blaðsíður.
Hnattflug eftir Sigurbjörgu
Þrastardóttur. Hnattflug hlaut við-
urkenningu dómnefndar í sam-
keppni um Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar árið 2000.
120 blaðsíður.
Fræði og bækur
almenns efnis
Betri heimur. Hvernig öðlast má
hamingju og þroska hæfileika sína.
Dalai Lama. Þýðing Súsanna Svav-
arsdóttir. 182 blaðsíður.
Sinfóníuhljómsveit íslands Saga
og stéttartal eftir Bjarka Bjarna-
son. Sinfóníuhljómsveit íslands
fagnar 50 ára afmæli í ár. Bókin er í
senn afmælisrit og 1. bindið í ritröð
um tónlist og tónlistarmenn á ís-
landi og er saga hljómsveitarstarfs á
íslandi rakin allt frá árinu 1921. 400
blaðsíður. Sögusteinn. Saga Kaup-
mannasamtaka Islands eftir Lýð
Björnsson. Rakin er saga Kaup-
mannasamtakanna, fyrirrennara
þeirra og aðildarfélaga um land allt.
280 blaðsíður. Sögusteinn.
Rangæingaættir, Lækjarbotna-
ætt. Hér er rakin ætt hjónanna Guð-
brands Sæmundssonar og Elínar
Sigurðardóttur á Lækjarbotnum í
Landsveit í upphafi 19. aldar. Sögu-
steinn.
Snæfellingar og Hnappdælir.
Kolbeinsstaðahreppur. Ábúendur
og saga Kolbeinsstaðahrepps frá
1900. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson.
Sögusteinn.
Arnesingar, Grúnsneshreppur.
Ábúendur og saga Grímsneshrepps
frá 1890. Ritstjórar Ingibjörg
Helgadóttir og Þorsteinn Jónsson.
Sögusteinn.
Snæfellingar og Hnappdælir.
Eyja- og Miklaholtshreppur.
Ábúendur og saga Eyja- og
Miklaholtshrepps frá 1900. Ritstjóri
Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn.
Undir bárujárnsboga. Braggalíf í
Reykjavík 1940-1970 eftir Eggert
Þór Bemharðsson. 350 blaðsíður.
Ljósmyndarar á íslandi 1845-1945
eftir Ingu Láru Baldvinsdóttur.
Birtar myndir eftir alla sjálfstætt
starfandi ljósmyndara á tímabilinu.
Bókin er gefin út í samvinnu við
Þjóðminjasafn íslands. 250 blaðsíð-
ur.
Saga stjörnumerkjanna eftir 111-
uga Jökulsson. 113 blaðsíður.
Listin að lifa, listin að deyja Hug-
leiðingar læknis um líf og dauða eftir
Óttar Guðmundsson. 277 blaðsíður.
Island í sjónmáli eftir Æsu Sigur-
jónsdóttur. í þessari bók eru birtar
fyrstu ljósmyndir teknar á íslandi
sem sýna horfinn heim fortíðar, fólk
við störf sín, híbýli þess og þjóð-
þekkta menn samtíðar. 136 blaðsíð-
ur._
Island í aldanna rás 20. öldin
1900-1950 eftir Illuga Jökulsson o.fl.
Bókin er í stóru broti, prýdd á annað
þúsund mynda sem mai’gar koma
hér í fyrsta sinn fyrir augu almenn-
ings. 400 blaðsíður.
Island í eina öld Þrjár mynda-
öskjur, um Akureyri, Isafjörð og
Vestmannaeyjar, sem hver um sig
innihalda tuttugu sérvaldar og sér-
prentaðar Ijósmyndir. 20 myndir og
24 bls. hefti í hverri öskju. Islenska
myndasafnið.
Ævisögur og
endurminningar
Leit að ævi skálds eftir Gylfa
Gröndal. Ævi skáldsins Steins Stein-
ars. 380 blaðsíður.
Svínahirðirinn Islenskur ævin-
týramaður í vist hjá drottningu ást-
arsögunnar - Danielle Steel. Jeffrey
Kottler og Þórhallur Vilhjálmsson
Þýðing Sverrir Hólmarsson. 224
blaðsíður.
Dagur við ský. Viðtöl við fólk í ís-
lenskri flugsögu eftirJónínu Micha-
elsdóttur. 300 blaðsíður.
Engin venjuleg kóna. Litríkt líf
Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulista-
konu eftir Þórunni Valdimarsdóttur.
300 blaðsíður.
Eintöl á skjánum
Sértilboð til
Morgunblaðið/Arnaldur
Viðar Eggertsson leikstjóri og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona.
SJONVARP
L e i k r i t
ÍSLENSK ÞRÁ
Tvö eintöl eftir Guðberg Bergsson.
Leikstjóri: Viðar Eggertsson.
Leikmynd og búningar: Ása Björk
Rikharðsdóttir. Leikarar. Unnur
Osp Stefánsdóttir, Þóra
Friðriksdóttir. Sunnudagur
8. október 2000.
EKKI verður sagt að hátt sé risið
á leiklistarframleiðslu íslenska sjón-
varpsins á þessu hausti þegar loks
er boðað að nýtt leikið efni verði á
boðstólum. Tvö eintöl fyrir leikkon-
ur, aðra ekki útskrifaða úr Leiklist-
arskólanum og hin alls ekki eins
fjörgömul og persónan átti að vera
og lék Þóra Friðriksdóttir hér
hressilega uppfyrir sig, gott ef hún
oflék ekki svipbrigði, mæðu og
þreytu hins alíslenska gamalmennis
Guðbergs Bergssonar.
Hvort það hefur verið af sparnað-
arástæðum sem Guðbergi var falið
að rita eintöl er ekki gott að segja
en hitt er jafnljóst að eintöl í sjón-
varpi eru fráleitur kostur; listrænar
forsendur sem hugsanlega hafa ver-
ið lagðar til eiga einfaldlega ekki
heima gagnvart svona efni í sjón-
varpi. Þetta gerði sig ekki og tæp-
lega við leikkonumar að sakast sem
reyndu eins og þær gátu að gera
þetta steindauða efni lifandi á ein-
hvern hátt. Leikstjóri og mynd-
stjóri gerðu líka sitt besta, með
mjúkum klippingum og mynd í
mynd; leikmyndin og búningar voru
útí blátt og svart og svo grænt, fal-
legar litasamsetningar sem ýttu
undir draumkenndan blæ textans.
Ekki hjálpaði það leikkonunum að
megnið af textanum var lesið yfir
mynd sem hugsanir persónanna svo
þeirra hlutskipti var fólgið í því að
túlka með svipbrigðum þann innri
talanda sem bærðist með þeim.
Unnur Ösp Stefánsdóttir er enn
leiklistarnemi og tekur nokkra
áhættu með því að birtast í sjón-
varpi á þessu stigi. Hún ætti þó
ekki skaðast á þessu, hefur vakið
nokkra athygli en ekki verður af
þessu framlagi metið hvað bærist
með henni af hæfileikum. Þóra
Friðriksdóttir lék fallegt gamal-
menni, afskaplega hlýlega konu,
dreymna og smáskrýtna sem sner-
ist í kringum sjálfa sig meðan hún
hugsaði heil ósköp.
Eintalið sem leikform er þá best
heppnað þegar leikarinn eða per-
sónan nær sambandi við áhorfand-
ann, talar við hann og gerir hann að
mótleikara sínum á einhvern hátt
eða a.m.k. finnur sér mótleikara í
umhverfi sínu svo textinn sé ekki
talaður eða hugsaður útí bláinn. Að
sjá persónu í sjónvarpinu hugsa
upphátt og tala við sjálfa sig er ekki
bara ofurleiðinlegt heldur einfald-
lega út í hött; sjónvarpið er raun-
sær miðill og býður ekki upp á list-
ræna spretti af þessu tagi nema í
framhjáhlaupi þegar best lætur.
Manni verður líka fyrir að hugsa að
byrjað sé á öfugum enda þegar loks
er tekinn upp þráður að nýju í
leiknu sjónvarpsefni og borið fram
slíkt tormeti að betur ætti heima
sem hliðarréttur við aðalrétt.
Hvað var svo höfundurinn að fara
með þessu? Ung kona og gömul
kona að búa um rúmið sitt. Velta
fyrir sér lífi sínu. Stappa í gólfið,
skipta um föt og hökta um með staf.
Hugsa um líf sitt í þátíð og framtíð.
Dreyma um átthagana. Hin íslenska
þrá. Líkingamál með rúm, sæng og
svæfil. Eitthvað í þá áttina. Senni-
lega mun skemmtilegri texti að lesa
en horfa á með þessum hætti. Leik-
ararnir, leikstjórinn og myndavél-
arnar voru nánast til trafala eða
m.ö.o.þetta efni hentaði hreinlega
ekki til flutnings í sjónvarpi.
Hávar Sigurjónsson
Prag
23. október frá
kr. 16.900
með Heimsferðum
Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki-
færi til að kynnast þessari ótrúlegu
borg með beinu flugi til Prag þann
23. október. Þú bókar á mánudag eða þriðjudag og tryggir
þér sæti út á órúlegu verði. í boði eru góð 3 og 4 stjömu
hótel og spennandi kynnisferðir um borgina og gamla
bæinn með íslenskum fararstjórum Heimsferða, þar sem
þú kynnist alveg ótrúlega heillandi mannlífi þessarar heil-
landi borgar sem á engan sinn líka í Evrópu.
Verð kr.
16.900
Flugsæti fyrir fuilorðinn,
m.v. flug út 23.október,
heimflug 26.október.
Skattar kr. 2.780.-
Hótel ffá kr. 2.600 kr. á nótt.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is