Morgunblaðið - 11.10.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 57
FRÉTTIR
Heimurinn
er heima
Afmælisleikur Kaffitárs
HEIMURINN er heima - fjölmenn-
ingarlegt samfélag á íslandi - er yfir-
skrift ráðstefnu á vegum samstarfs-
nefndar um málefni nýbúa á Grand
Hóteli 12.-13. október.
Fyrri ráðstefnudaginn hefst ráð-
stefnan með afhendingu gagna kl. 12
á hádegi. Eftir skemmtiatriði flytja
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Is-
lands, og Helgi Hjörvar, forseti borg-
arstjórnar, ávörp. Af fyrirlesurum
má nefna að Jón Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri þróunar- og fjölskyldu-
sviðs Reykjavíkurborgar, fjallar um
stefnumörkun borgarinnar og sam-
vinnu sveitarfélaganna á höfuðborg-
arsvæðinu um stofnun og rekstur Al-
þjóðahúss. Póra Ásgeirsdóttir og
Þorlákur Karlsson frá Gallup segja
frá niðurstöðum rannsóknar á högum
og viðhorfum útlendinga á íslandi.
Elizabeth Fullon frá Háskólanum í
Massachusetts flytur erindi undir yf-
irskriftinni Að sjást en ekki heyrast
og Sigurlaug Svavarsdóttir frá Há-
skóla Islands talar um innflytjenda-
konur á íslandi. Seinni ráðstefnudag-
inn hefst ráðstefnan kl. 9 með því að
Saskia Sassen frá Háskólanum í
Chicago segir frá stefnum og straum-
um varðandi fólksflutninga fyrr og nú
og G. Pascal Zachary, blaðamaður og
rithöfundur, veltir fyrir sér spuming-
unni um hvernig fjölbreytni geti nýst
íslensku samfélagi. Eftir kaffihlé
fjallar Mikael Rundquist frá Svíþjóð
um sænsku samþættingarstefnuna
og Ingibjörg Pétm-sdóttir frá Multi-
kulturelles Forum um nýjar áherslur
í Þýskalandi. Að loknum hádegisverði
segir Sigurður Guðmundsson skipu-
lagsfræðingur frá þátttöku erlendra
ríkisborgara í íslensku hagkerfi og
vinnumarkaði og gerð verður grein
fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar
Ungt fólk 2000. Ráðstefnunni lýkur
með pallborðsumræðum. Fjölmenn-
ingarleg veisla á vegum Reykjavíkur-
borgar og samtakanna Fjölbreytni
auðgar verður haldin í nýju húsnæði
Borgarbókasafnins í Tryggvagötu 15
kl. 20.15 á fimmtudagskvöldið.
Gestamóttakan ehf. tekur við bók-
unum á ráðstefnuna.
AFMÆLISHÁTÍÐ var haldin í
kaffibrennslu Kaffitárs ehf. laugar-
daginn 30. september sl. í tilefni 10
ára afmælis fyrirtækisins. Margir
tóku þátt í kaffibaunaleik á afmæl-
ishátíð Kaffitárs sem ætlaður var
bæði börnum og fullorðnum. Þátt-
takendur áttu annars vegar að
giska á fjölda kaffibauna í 70 kg
sekk af Gvatemala-kaffi og hins
vegar að reyna að áætla fjölda
kaffibolla sem hægt væri að laga úr
þessum 70 kg af baunum. Rétt svar
er 401.100 baunir, en það var Jónas
Jóhannesson, Borgarvegi 1, Njarð-
vík, sem var næst þeirri tölu með
420.000 baunir. Það reyndist erfið-
ara að giska á fjölda kaffibolla, en
næst réttri tölu komst Stefanía
Pálsdóttir, Hlíðarbyggð 11, Garða-
bæ. Hún giskaði á 7.999 kaffibolla
en rétt svar er 7.636 bollar. Vinn-
ingshafar í afmælisleiknum fengu
gjafakörfur frá Kaffitári í verð-
laun. Á myndinni er Aðalheiður
Héðinsdóttir, kaffimeistari og
framkvæmdastjóri Kaffitárs, ásamt
vinningshöfum í afmælisleiknum;
Stefaníu Pálsdóttur og Jónasi Jó-
hannessyni.
Kínakynning
Kínaklúbbs
Unnar
NÆSTA Kínaferð Kína-
klúbbs Unnar verður kynnt
fimmtudaginn 12. október kl.
20 á veitingahúsinu Shanghæ,
Laugavegi 28.
„Unnur Guðjónsdóttir,
stjórnandi Kínaklúbbsins,
mun sýna litskyggnur frá
Kína og veita allar upplýsing-
ar um þessa 22ja daga ferð
sem farin verður 15. maí til 5.
júní á næsta ári.
Ferðin verður yfirgrips-1
mikil en staðir sem verða
heimsóttir eru: Bejing, Xian,
Kunming, Steinskógurinn,
Dali, Lijian, Shanghæ og að
sjálfsögðu Kínamúrinn.
Kínakynningin er opin öll-
um sem hug hafa á að fara í
ferðina.
Eftir að kynningu lýkur
geta gestir fengið sér að
borða kínverskan mat, ef þeir
vilja,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
RAOAUGLÝSINGA
FUIMDIR/ MAIMNFAGNAÐUR
Rannsóknir - nýbreytni - þróun
4. málþing Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla íslands laugardag-
inn 14. október frá kl. 9:00—16:30. Skráning hefst kl. 8:30.
Aö þinginu standa Félag leikskólakennara, Félag grunnskólakennara, Félag
framhaldsskólakennara, Skólastjórafélag íslands, menntamálaráöuneytiö,
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Leikskólar Reykjavíkur, Þroskaþjálfafélag
íslands og Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla íslands.
Á málþinginu verða flutt 87 erindi og á göngum og í sal verður náms-
efniskynning og yfir 20 veggspjaldakynningar.
Erindin veröa flutt samtímis í sjö lotum en innan hverrar lotu eru fjögur þemu.
Yfirskrift þeirra er:
Á mótum grunn- og framhaldsskóla
Áherslur i skólastarfi
Breyttar áherslur I leikskólastarfi?
Félagsleg hegðun
Greining - ráðgjöf
Heilsufar
Hljóð- og málvitund
íslenskt mál
Kidlink
Lestur, ritun, stafsetning
Margar þjóðir í einu landi
Mat - greining
Menntun kennara
Nám fyrir alla
Náttúrufræði
Náttúrufræði - Netið
Nemendur - foreldrar
Norræn tungumál
Nýbreytni - frumkvæði
Nýsköpun - textílmennt
Skólaþróun - starfshættir
Skóli - saga og samfélag
Stærðfræði
Tjáning - móðurmál
Tölvutækni - námsumhverfi
Umhverfið - sköpun
Upplýsinga- og tölvutækni
Upplýsingatækni - þróunarskólar
Lýsingar á erindum og veggspjaldakynningum er að finna á vefslód-
inni: http://www.khi.is/khi/rkhi/malthing2000.htm
Málþingið veröur haldiö í húsnæöi Kennaraháskóla íslands við Stakkahlíð og
er öllum opið. Þátttökugjald er 1.000 kr. (fundargögn og kaffi innifalið).
Tekið er á móti skráningum hjá Rannsóknarstofnun KHÍ eða við innganginn.
Netfang: siging@khi.is, símar 563 3827, 563 3805.
m \
BAUGUR
i
Til hluthafa í Baugi hf.,
tilkynning um hækkun
hlutafjár
Á hluthafafundi Baugs hf., sem haldinn var
mánudaginn 9. október sl., var samþykkt að
hækka hlutafé í félaginu um 110.000.000 kr.
að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar
í félaginu hafa forgangsrétt til að kaupa hlutafé
að nafnvirði 100.000.000 kr. á genginu 11,60
í hlutfalli við skráða hlutafjáreign sína. Frestur
til áskriftar að nýjum hlutum er til 25. október
2000 á skrifstofu félagsins í Skútuvogi 7,
Reykjavík, og ber að staðgreiða þá fyrir 3. nóv-
ember 2000.
UPPBOO
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður hðð ó þeim
sjálfum, sem hér segir:
Borgarholt 6, Snæfellsbæ, þingl. eig. Ólafía Ósk Runólfsdóttir, gerð-
arbeiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn 16. október kl. 13.30.
Grundargata 67, íbúð 0201, Grundarfirði, þingl. eig. Jón Sigurðsson,
gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn 16. október 2000
kl. 13.00.
Háarif 13, 2. hæð, Snæfellsbæ, þingl. eig. Jón Bjarni Andrésson,
gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, mánudaginn
16. október 2000 kl. 14.00.
Hótel Búðir, Snæfellsbæ, þingl. eig. Hótel Búðir ehf., gerðarbeiðandi
Ferðamálasjóður, mánudaginn 16. október 2000 kl. 15.00.
Ægisgata 11, Stykkishólmi, þingl. eig. Gunnar G. Sigvaldason, gerð-
arbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs, mánudaginn 16. október
2000 kl. 11.00.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrifstofu
embættisíns, Borgarbraut 2, Stykkishólmi, sem hér segir:
Byr, skrnr. 6613, þingl. eig. Jón Bjarni Andrésson, gerðarbeiðandi
innheimtumaður ríkissjóðs, mánudaginn 16. október 2000 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi,
10. október 2000.
HÚSIMÆOI í BOOI
Steinsstaðir í Skagafirði
Til sölu er 106 fm íbúðarhús auk bílskúrs (54
fm) við Lækjarbakka 11, Steinsstöðum.
Upplýsingar í símum 453 8072 og 453 5900.
KENNSLA
Kynning á „Flower of Life"
námskeiðum 14/10 kl. 19—22.
Á þessum námskeiðum er notuð
þekking frá dögun mannkyns
um eðli raunveruleikans og okk-
ar sjálfra til að virkja Ijóslíkam-
ann (Merkaba). Frir aðgangur á
meðan húsrúm leyfir. (Hörða-
land 6, Karl Þorsteinsson).
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 7 = 181101181/2 = Fl.
I.O.O.F. 18 = 18110118 sKk.
Skyggnilýsingafundur i Góð-
templarahúsinu fimmtudag-
inn 12. október með Maríu
Sigurðardóttur. Fundurinn
hefst kl. 20.30 stundvíslega.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Góðtemplarahúsinu mið. 11.
okt. frá kl. 17—19, einnig við inn-
ganginn fyrir fundinn. Miðaverð
700 kr. fyrir félagsmenn en 1.000
kr. fyrir aðra. Stjórnin.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins. '
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
□ HELGAFELL 6000101119 VI
I.O.O.F. 9 = 18110118V2 = 9.0.
□ GLITNIR 6000101119 III
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
___f KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma (kvöld kl. 20.30.
Umsjón hefur kristniboðsflokk-
urinn Vökumenn. Hjónin Abigail
og Curtis Snook syngja. Tertu-
uppboð (takið með smámyntiri-
Bjarni Gíslason flytur hugvekju.
Allir hjartanlega velkomnir.
http://sik.is
KR-konur KR-konur
Munið fundinn í KVÖLD,
miðvikudaginn 11. október,
kl. 20.15.
Séra Þórhallur Heimisson fjallar
um lifið og hjónabandið.
Allir velkomnir. .. .
Stjornin.
Stjórn Baugs hf.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi,
10. október 2000.