Morgunblaðið - 11.10.2000, Side 68

Morgunblaðið - 11.10.2000, Side 68
68 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÍBÍCÓLABÍÓ r HASKOLABIO Hagatorgi www.haskolabio.is simi 530 1919 Kvikmyndahátíð íReykjavík Montenegro Tuvalu Sýnd kl. 10. kS&.mf&fiífíft kyjríftj ane O'dfcson BJÖRK CATHERINE DENEUVE ■iftil—ón NYTT OG BETRA'*»'| SMArlf ASfabakka 8, simi 58T 8900 og 587 8905 VINSÆLASTA GAMANMYNDIN A ISLANDI WituzWl Heuut tru venftðwv mnm mt< e«ra (HntweiWí tím »lá vmttuesar aitíMsim mmmni Leyfð öllum aldurshópum en at- riði í myndinni gætu vakið óhi riði i myndinni gætu vakið óhug Stórmyndin U-571 er byggð á sannsögulegum atburóum sem átti sér stað í síöari heimsstyrjöldinni. í aóalhlutverkum Matthew McConaughey, Harvey Keitel og Bill Paxton. Sýnd kl. 3.50, 6, 8 og 10.15. i.i.14 Vit nr. 133. Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.15. 8.1.16 ára. VÍt OT. 129. Sýnd kl Synd kl. 4. Isl. tal. 3.50. fsi. tal. Vitnr. 103 Sýnd kl. 4.15 og 5.45. íslenskt tal. Vit nr. 131. Sýnd kl. 8.10 og 10.20. Enskt tal • Enginn textl.Vit nr. 145. Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is Er orðið tónlist? r TONLIST Hljóm/ljóðleikar ORÐIÐ TÓNLIST Orðið tónlist - hátíð talaðrar tónlistar í ís- lensku dperunni, laugardag'inn 7. október 2000. Fram komu múm og Andri Snær, Ás- gerður Júníusdóttir og Steinunn Birna Ragn- arsdóttir, Bragi Ólafsson, Þorvaldur Þor- steinsson, Sjón og Curver, Linda Vilhjálms- dóttir, Birgir Orn Steinarsson, Sverrir Guðjónsson og Einar Kristján Einarsson, Joan La Barbara, Erpur (Blazroca) Eyvindar- son ásamt Sesar A og DJ Magic, Didda, Einar Örn Benediktsson, Einar Már Guðmundsson ásamt Kvartett Tómasar R., Elisabeth Belile, Michael Pollock ásamt Þórdísi Claessen og Daniel Pollock, Jóhamar og Einar Melax, Hallgrímur Helgason, Berglind og Bibbi, David Toop og Sigur Rós ásamt Steindóri Andersen. Kynnir var Magga Stína. SMEKKLEYSA sm/ehf ásamt Menningar- borginni Reykjavík stóð fyrir ofangreindri samkomu og var hugmyndin að sjá hvort ljóðagerð og tónlist - tvö form sem hafa átt til að nudda sér upp við hvort annað en kannski enn oftar átt í stappi - gætu leiðst saman, hönd í hönd, þetta kvöld. Hátíðin tókst mjög vel og þrátt fyrir að dagskráin hafí verið með _-lengra móti, um fimm klukkutímar með einu tuttugu mínútna hléi, voru atriðin fjölbreytt, úr mörgum og mismunandi áttum, og aldrei leiddist manni þófíð. Skipulag tónleikanna var og með afbrigðum gott og dagskráin rann hratt og örugglega áfram. Fulltrúar og aðdá- endur listformanna tveggja græddu vel á þessu kvöldi (í menningarlegum skilningi a.m.k.), fengu þarna innsýn í heima sem þeir hefðu kannski aldrei lagt sig eftir að kynnast. Múm og Andri Snær hleyptu kvöldinu af stað en stutt innlegg Andra gufaði nokkurn veginn upp í loftið, stemmningin á sviðinu og í salnum virtist einhvern veginn ekki komin í gang. Múm náði sér hins vegar ágætlega á strik, spilaði fallegt, minimalískt lag og alltaf taka krakkarnir sig jafn glæsilega út á sviði. Ásgerður Júníusdóttir var næst og stóð sig með prýði, leikræn tjáning í síðasta laginu Var sérstaklega skemmtileg. Framlag Braga Olafssonar var í áreynslulausara lagi en skemmtileg tónlistin náði að ýta nokkuð und- ir flutninginn. Þorvaldur Þorsteinsson las svo eigin útfærslu af dæmisögum Esóps og tókst vel upp, fyndið bæði og skemmtilegt. Sjón og Curver spiluðu ljóð eftir Sjón sem var búið að táknbinda í tóna og voru flottir á að líta. Ég skildi samt ekki hvers vegna þeir voru að endurtaka flutninginn. Næst upp á svið var Linda Vilhjálmsdóttir. Hún flutti ljóð sem voru svo sem ágæt en tónlistin var víðsfjarri og engin tilraun virtist vera gerð til að koma að þema kvöldsins. - Skrýtið. Birgir Örn Steinarsson settist næst upp á svið með fartölvu sér til halds og trausts. Hann skrifaði svo ljóð á hana „í beinni út- sendingu“ við undirleik tónlistar og var inn- slættinum varpað upp á tjald, með tilheyr- andi innsláttarvillum. Tónlistin sem spiluð var undir var fín, ljóðið sæmilegt en hug- Morgunblaðið/Jón Svavarsson David Topp flutti ægilega heillandi verk. myndin aftur á móti framúrskarandi. Sverrir Guðjónsson söng ljóð eftir ísak Harðarson við undirleik gítarleikara og það atriði var vel heppnað, einfaldur gítarleikur- inn var fallegur og undirstrikaði vel flutning Sverris. Sérstaklega var flutningur á ljóðinu „Hafboð" frábær. Síðust fyrir hlé var hljóð- listakonan Joan La Barbara. Hinn vægast sagt óvenjulegi söngstíll hennar er fallegur, furðulegur og jafvel ógnvekjandi á stundum. Atriði hennar var í lengra lagi og sumir óstöðugir voru að ærast undir það síðasta. Og þá var komið hlé. Erpur „Blazroca" Eyvindarson henti seinni hlutanum rækilega í gang með kröft- ugu rappi og kom miklu stuði af stað. Á eftir honum steig upp á svið ljóðskáldið Didda, flutti ljóð sitt „0 Reykjavík" sem hljómsveit- in Vonbrigði gerði ódauðlegt hér í eina tíð, og flutningur hennar var ljómandi góður í ein- faldleik sínum. Strax á eftir mætti Einar Örn Benediktsson og flutti skemmtilegan sam- hræring af ljóðum sínum, snöggt og snaggaralega. Einar Már tróð svo upp ásamt Kvartett Tómasar R. en ljóðadjass þeirra var nánast pönkaður. Einar var stórskemmtilega kærulaus uppi á sviðinu og ruddi Ijóðunum út úr sér hratt og flausturslega. Elisabeth Belile er bandarískt „beat“- skáld sem flutti ögrandi en um leið fremur til- gerðarleg og ófrumleg Ijóð. Pollockbræðurnir Michael og Daniel ásamt Þórdísi Claessen tróðu svo svipaða slóð. Hápunktur kvöldsins var hiklaust er ljóð- skáldið Jóhamar sneri aftur úr tíu ára útlegð ásamt Einari Melax. Þeir komu, sáu og sigr- uðu og var harmrænn (eins og Andri Snær orðaði það) og kraftmikill flutningur Jóham- ars ótrúlegur og salurinn var skilinn eftir í losti. Hallgrímur Helgason kom svo og rapp- aði, stóð sig með ágætum en stórsigur Erps skyggði óneitanlega nokkuð á. Berglind og Bibbi áttu svo sætasta atriði kvöldsins þar sem Bibbi hoppaði um allt í kanínubúningi. Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Dav- id Topp las upp úr bók sinni Exotica við und- irleik tónlistar. Það var eitthvað ægilega heillandi við atriði Toop þótt það hafí verið í það lengsta og mun betra hefði verið ef Toop hefði verið framar í dagskránni. Sigur Rós endaði svo samkomuna ásamt rímnamanninum Steindóri Andersen og var samneyti þeirra bæði fallegt og heillandi. Arnar Eggert Thoroddsen SKIPTA ORÐIN MÁLI? MALÞING íslenska ópcran ORÐIÐ TÓNLIST Orðið tónlist, málþing haldið í Tjarnarbíói laugardaginn 7. október. Þátttakendur voru David Fricke, David Toop, Davíð Ólafsson, Geir Svansson og Úlfhildur Dagsdóttir. HÁTÍÐIN Orðið tónlist var haldin í ís- lensku óperunni sl. laugardag eins og fram hefur komið, en í tengslum við hana var málþing í Tjarnarbíói þar sem erlendir gestir ræddu málin með íslenskum fræði- mönnum. Gestirnir erlendu voru banda- ríski tónlistargagnrýnandinn David Fricke og breski rithöfundurinn og blaðamaðurinn David Toop, sem komu hingað a vegum Smekkleysu, Davíð Ólafsson sagnfræðing- ur, Geir Svansson bókmenntafræðingur og Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur, öll frá Reykjavíkurakademíunni. Davíð flutti skemmtilega tölu um sam- band tónlistar og texta og sérstaklega voru eftirminnileg dæmi sem hann lék með Tom Waits og Sonny & Cher. Einnig var erindi Úlfhildar áhugavert þar sem hún hélt uppi vörnum fyrir ljóðlist á íslandi. í erindi Geirs kom fram að hann var nokkuð á annarri skoðun en Úlfhildur um íslenska Ijóðlist, en reyndar sýnist ágreiningurinn helst felast í því hvort rætt væri um ljóðið eða Ljóðið. Erindi Geirs var einskonar herhvöt til þess að menn gæfu Ljóðinu spark í rassinn. (Blaz Roca gerði revndar eftirminnilega út um þessar deilur í Öperunni síðar um kvöldið þegar hann sýndi að ljóðið er bráðlifandi þó Ljóðið sé búið að lifa sitt fegursta.) Annars var erindi Geirs hið fróðlegasta, ekki síst er hann tók við að mæra Burroughs og fleiri bandarísk beat-skáld, þótt hann hefði mátt geta betur sterkra áhrifa sem tónlistarvinir gi-eina frá djass og djassmönnum í ljóðagerð beat- skáldanna, ekki síst jive-mállýsku og vout Slims Gaillards. David Fricke fjallaði nokkuð almennt um samskipti sín við tónlistarmenn og það hvort orðið skipti yfirleitt máli. Hann benti á það að oftar en ekki séu menn að leggja meiri merkingu í texta en vakað hafi fyrir textahöfundinum, ekki síst þegar akadem- ían kemst í málið. Einnig kom Fricke inn á það að orðin skipti ekki alltaf máli, fjölmörg dæmi séu um bulltexta sem séu þrungnir merkingu engu að síður, eins og til að mynda þegar Little Richard syngur „awop- bop-a-loo-mop-alop-bam-boom“ í Tutti Frutti. Víst er það bull, en þó skilja allir setninguna og það sem hún faldi í sér á þeim tíma og felur enn. Þar má því segja að Morgunblaðið/Jim Smart Bandarfski tónlistargagnrýnandinn David Fricke. orðið hafi breyst í tónlist. Eins gerði Fricke að umtalsefni að tónlist getur verið ljóð og einnig kallað fram ljóðræn áhrif. David Toop er merkur tónlistar- fræðingur en ekki var mikið að græða á er- indi hans, sem var heldur sundur- og stefnulaust. Ekki bætti úr skák þegar hann spilaði tónlist eftir sjálfan sig við upplestur, sem gaf ekki góðar væntingar fyrir kvöldið. Hann var aftur á móti mun betri þegar spurningum var beint til hans, svaraði þeim skemmtilega og hnitmiðað. Páfagauks- sagan sem hann sagði verður lengi í minn- um höfð. Eftir að mælendaskrá var tæmd var ósk- að eftir fyrirspurnum úr sal. I salinn vant- aði reyndar tónlistarmenn, gaman hefði verið að hafa fleiri slíka á staðnum og fá innlegg þeiiTa og ekki hefði síst verið gam- an að hafa tónlistarmann meðal frummæl- enda. Það var hinsvegar nóg af skáldum á staðnum sem stóðu upp og sögðu sögur af sjálfum sér sem skálda er siður. Jan Sneum, frá danska ríkisútvarpinu, stóð einnig upp og sagði sögur, en hann varpaði einnig fram ágætri spurningu sem snerti reyndar það sem David Fricke hafði áður nefnt, þ.e. hve langt komast menn yfir landamæri tungumálsins án þess að glata merkingunni. Gaman hefði verið að velta því fyrir sér og þá kannski hvort röddin skipti meira máli en textinn þegar grannt er skoðað. Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.