Morgunblaðið - 12.10.2000, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
AKUREYRI
Unnið að því að fjölga leikskólarýmum á Akureyri
Ársfundur Hafnasam-
bands sveitarfélaga
haldinn á Akureyri
Ný hafnalög
o g breytt
flutninga-
mynstur til
umræðu
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
Þessi börn léku sér sæl og glöð á leikskólanum Flúðum á Akureyri.
Fleiri börn á biðlista en í fyrra
RÚMLEGA 170 börn á leikskóla-
aldri, tveggja til fimm ára, eru nú á
biðlista eftir leikskólaplássi á Ak-
ureyri. Þetta eru nokkru fleiri
börn en voru á biðlista um síðustu
áramót en þá voru þau 119.
Hrafnhildur Sigurðardóttir leik-
skólafulltrúi Akureyrarbæjar
sagði að unnið væri að því að setja
upp auka kennslustofur við leik-
skólana Flúðir og Kiðagil og að
þar fengjust 15 dagvistarrými á
hvorum stað til viðbótar. Þá verið
að gera lagfæringar og breytingar
á leikskólanum Lundarseli en við
það fjölgar rýmum þar um 9. Alls
munu 44 börn eiga kost á mislangri
vistun í þessum nýjum rýmum og á
biðlista verða þá um 130 börn.
Iðavöllur, nýr leikskóli, sem
byggður er á gömlum grunni á
Oddeyrinni verður tilbúinn í mars
eða apríl á næsta ári en þar verða
um 90 rými. Þau 24 börn sem voru
í gamla húsnæði Iðavalla og rifið
var fyrr á árinu, hafa fengið inni
tímabundið á Krógabóli í kjallara
Glerárkirkju.
Hrafnhildur sagði að við-
verutími barna hefði verið að
lengjast, úr 4 tímum á dag upp í 6
og jafnvel 8 ti'ma, sem þá hefur þau
áhrif að færri börn komast að. Þá
sagði Hrafnhildur að vel yfir 90%
barna á leikskólaaldri í bænum
væru komin inn á leikskóla eða eru
á biðlista og þörfin því að aukast.
„Þetta sýnir að foreldrar óska í
auknum mæli eftir því að koma
börnum sínum á leikskóla, auk
þess sem þeir óska eftir lengri
þjónustu."
ÁRSFUNDUR
Hafnasambands
sveitarfélaga verð-
ur haldinn í Nýja
bíó og Hótel KEA-
Hörpu á Akureyri í
dag, fimmtudag og
á morgun, föstu-
dag.Meðal helstu
mála ársfundarins
er kynning á drög- ó£j££n
um að frumvarpi tu
nýrra hafnalaga sem Einar K. Guð-
finnsson alþingismaður mun sjá um.
Þá verður fjallað um umhverfisstefnu
hafna, en Már Sveinbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Hafnarfjarðarhafnar
hefur framsögu um auknar kröfur í
umhverfismálum. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarfulltrúi og formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfélaga l
ræðir um samræmda samgönguáætl-
un og Kristján Vigfússon fulltrúi |
samgönguráðuneytisins í Brussel |
fjallar á fundinum um breytingar í
flutningamunstri. Kurt Vemer vara-
formaðúr danska hafnarsambandsins
mun á ársfundinum greina frá nýjum
hafnalögum sem tekin vora upp í
Danmörku um síðustu áramót. Loks
má nefna að Gunnlaugur Júlíusson
deildarstjóri hagdeildar Sambands
íslenskra sveitaifélaga ræðir á fund-
inum um fjárhag tekjulítilla hafna.
Pétur Ólafsson skrifstofustjóri §
Hafnasamlags Norðurlands sagði að f
menn hefðu töluverðar áhyggjur af
breytingum í flutningamynstri, þ.e.
fyrir hönd hafnanna. Hann sagði
þannig að Akm-eyrarhöfn yrði af um
10% af tekjum sínum í kjölfar þess að
Samskip hafa hætt strandsiglingum
1. ágúst síðastliðinn en það er um 10
til 12 milljónir kr. Pétur nefndi einnig
að minni tekjur hefðu líka í fór með
sér minni getu til að sinna viðhaldi.
-------------------------
_ Sparisjóður
Olafsfjarðar og
Islandspóstur
Samstarf um
póstafgreiðslu
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
ÍSLANDSPÓSTUR og Sparisjóður |
Ólafsfjarðar munu hefja samstarf f
um rekstur póstafgreiðslu á Ólafs-
firði hinn 1. nóvember nk. Ein breyt-
ingin gagnvart viðskiptavinum Is-
landspósts er sú að afgreiðsla
póstsins flyst í húsnæði sparisjóðs-
ins. Þjónusta íslandspósts á Ölafs-
firði mun verða frá og með þessum
tíma jafn góð og hingað til, segir
Magnús Brandsson, sparisjóðsstjóri.
Tilgangur þessara breytinga er að
renna tryggaiá stoðum undir starf- |
semi íslandspósts á staðnum, en í
sameiningu munu sparisjóðurinn og
íslandspóstur leggja metnað sinn í
að tryggja viðskiptavinum beggja
fyrirtækja heildarþjónustu á sviði
dreifingar og fjármála á einum og
sama staðnum.
Dreifingin á Ólafsfirði verður
áfram í höndum íslandspósts þótt
aðsetur bréfbera verði í húsnæði
sparisjóðsins.
Atta sinnum
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
Hafnasamlag Norðurlands
Kreíjast uppboðs á rúss-
neska togaranum Omnya
V6fí ffð 9.930 kr. metflujvallarsköttuni
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is
HAFNASAMLAG Norðurlands
hefur lagt fram beiðni til sýslu-
manns um uppboð á rússneska
togaranum Omnya, en skipið hefur
legið við bryggju á Akureyri frá
því í ágúst 1997. Eigendur skips-
ins, útgerð í Murmansk, hafa ekki
greitt hafnargjöld frá því í nóvem-
ber á síðasta ári og nemur skuld
útgerðarinnar við Hafnasamlag
Norðurlands 1.650 þúsund krón-
um.
Omnya kom sem áður segir til
hafnar á Akureyri í ágúst fyrir
þremur árum og sá Marel Trading
um greiðslur fyrir skipið, en fyrir-
hugað var að gera á því gagngerar
endurbætur í Slippstöðinni, nú
Stáltaki. Áður höfðu tvö skip út-
gerðarinnar verið í endurbótum
hjá stöðinni. „Frá því Marel Trad-
ing hætti að skipta sér af skipinu
hefur ekki komið ein einasta rúbla
hingað,“ sagði Pétur Ólafsson
Morgunblaðið/Kristján
Unnið er við að steypa þekju á vesturkant Fiskihafnarinnar, en sjá má
rússneska togarann Omnya í baksýn.
skrifstofustjóri Hafnasamlags
Norðurlands.
Hann sagði skipið hafa valdið
verulegum vandræðum á þessum
tíma, það liggur nú við slippkant-
inn og tekur um þriðjung hans
þannig að ekki er mikið rými eftir
fyrir þau skip sem leita þjónustu
þangað. Áður hefur skipið legið við
Torfunefsbryggju við litla hrifn-
ingu margi-a, en það þótti ekkert
augnayndi inni í miðjum bænum.
Síðar var skipið fært í Fiskihöfn-
ina, en þar er einnig takmarkað
viðlegupláss og olli það sem fyrr
segir verulegum vandræðum af
þeim sökum.
Pétur sagði að gert væri ráð fyr-
ir að uppboðsbeiðnin yrði til með-
ferðar hjá sýslumanni í um þrjá
mánuði, “en það er að minnsta
kosti orðið ljóst að skipið verður
farið héðan innan hálfs árs,“ sagði
hann.
Strætisvagnar
Akureyrar
Far-
þegum
fjölgar
áný
NOKKUÐ færri farþegar
ferðuðust með strætisvögnum
á Akureyri á síðasta ári en árin
1997 og næstu tvö ár þar á
undan. Hins vegar var far-
þegafjöldinn í fyi-ra heldur
meiri en árið 1998, samkvæmt
yfirliti frá Strætisvögnum Ak-
ureyrar.
Farþegar með strætisvögn-
um bæjarins voru um 290 þús-
und á síðasta ári en eknir kíló-
metrar vagnanna voru um 330
þúsund. Árið 1998 var farþega-
fjöldinn 260 þúsund en á bak
við þá tölu voru aðeins 150 þús-
und eknir km. Árin þijú þar á
undan var farþegafjöldinn með
vögnunum um 300 þúsund
manns á ári en eknir km á bil-
inu 180-230 þúsund á ári.
Á síðustu fimm árum hefur
biðstöðvum verið að fjölga og
biðskýlum einnig. Árið 1995
voru biðstöðvar 111 en 126 í
fyrra og árið 1995 voru 27 bið-
skýli í bænum en voru orðin 40
á síðasta ári.
Strætisvagnar Akureyrar
eru ennfremur með þrjá bíla í
ferliþjónustu og á síðustu
fimm árum hefur farþegafjöldi
í ferliþjónustu verið frá 13.500
og upp í 15.000 á ári.
í fyrra voru farþegarnir
14.000 og 15.000 árið 1996.