Morgunblaðið - 21.10.2000, Síða 14

Morgunblaðið - 21.10.2000, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR fslenska bókasafnið við Manitoba-háskóla í Winnipeg í Kanada flutt í helmingi stærra húsnæði Nemandi situr við lestur í bókasafni Manitob -háskóla. Húsnæði safnsins standsett. Safnið virk- ar vonandi sem segull á fólkið íslenska bókasafnið við Manitoba-háskóla í Winnipeg í Kanada flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði í Elizabeth Dafoe-safninu, aðal- bókasafni háskólans, í gær. Af því tilefni ræddi Steinþór Guðbjartsson við Sigrid Johnson, sem hefur verið forstöðumaður safnsins í aldarfjórðung. Morgunblaðið/Kristinn Sigrid Johnson, bókavörður í fslenska bókasafninu við Manitoba-háskóla. ISLENSKA bókasafnið er ein- stakt sinnar tegundar í Kan- ada og það næststærsta í Norður-Ameríku, aðeins Fiske-safnið við Cornell háskóla í Iþöku í Bandaríkjunum, sem er ann- að stærsta safn íslenskra bóka utan Islands, er stærra. Safnið hefur að geyma um 26.000 bækur auk blaða og tímarita en það varð til 1936 þegar Amljótur Bjornsson Olson á Gimli í Manitobafylki gaf- Manitobaháskóla 1.300 íslenskar bækur. 1939 ákvað ís- lenska ríkisstjómin að safnið fengi allar íslenskar bækur, sem kæmu út eftir það. Seinni heimsstyrjöldin setti reynd- ar strik í reikninginn en Sigrid segir að fyrsta sendingin frá fslandi hafí komið 1944. Fjóram áram áður hætti íslenskur unglingaskóli í Winnipeg, Jon Bjarnason Academy, og fékk safnið allan bókakost skólans sem var mikill. Stuðningur íslenska ríkis- ins var breytilegur næstu áratugina en 1978 minnkaði framlagið til muna og síðan hefur safnið fengið mun minna af íslenskum bókum sér að kostnaðarlausu, en frá 1989 hefur styrkur ríkisins verið um 300.000 krónur að meðaltali á ári. Manitoba- háskóli metur gildi safnsins og veitir því ákveðna upphæð árlega auk þess sem almenningur, fyrst og fremst fólk af íslenskum ættum, styrkir reksturinn með fjárframlögum og bókagjöfum. Takmörkuð fjárráð „Við höfum fjárveitingu héðan upp á 10 til 15 þúsund kanadíska dollara, um 650 til 826 þúsund krónur, á ári til bókakaupa en upphæðin hrekkur skammt því flutningskostnaðurinn frá íslandi er svo hár,“ segir Sigrid. „Við fáum Morgunblaðið í flugpósti og því er blaðið aðeins fjögurra til sex daga gamalt þegar við fáum það en kostnaðurinn hefur farið upp í 5.000 dollara á ári. Við þurfum því að halda að okkur höndum, veija bækur af kostgæfni og reyna að kaupa þær bækur sem við viljum kaupa í ár á næsta ári. En svo fáum við líka bæk- ur úr til dæmis dánarbúum og frá einstaklingum og því er ekki að neita að hér era margar verðmætar bæk- ur.“ í því sambandi nefnir hún að séra Einar Sturlaugsson á Isafirði hafi ferðast um ísland um miðja öld- ina, safnað bókum og gefið safninu. „Þá fengum við meðal annars þessa Guðbrandsbiblíu," segir hún og dreg- ur fram biblíuna sem er geymd á sér- stökum stað með öðram verðmætum bókum. „Svo eram við hérna með tvö eintök af Þorláksbiblíu og í safni Jóns Bjarnasonar vora margar fágætar bækur eins og til dæmis fyrsta útgáfa af Njálssögu frá 1772 og Víga-Glúms- saga og Eyrbyggja frá svipuðum tíma að ógleymdum söfnum rithöf- undanna Stephans G. Stephanssons og Guttorms J. Guttormsons. Fyrsti bókasafnsfræðingurinn Skuli Johnson, prófessor við klass- ísku deildina, hélt utan um safnið fyrstu árin og skipulagði það. Frá 1952 til 1975 var það hluti af úkra- ínska safninu og safni fágætra bóka en 1975 var Sigrid ráðin og er hún fyrsti og eini bókasafnsfræðingurinn, sem hefur starfað við safnið. Hún er alfarið með það á sinni könnu en fær nú að ráða starfsmann í hálft starf í sjö mánuði á ári og hefur Ámý Hjaltadóttir, sem flutti ft-á íslandi fyrir um 30 áram, sinnt aðstoðarstarfmu. „Stjórnendur aðalbókasafns skól- ans vildu ráða Kanadamann, sem hafði lært íslensku og var með háskólagráðu í bókasafnsfræðum og því hentaði þetta mér ágætlega," segir Sigrid, aðspurð hvemig á því hafi staðið að hún hafi tekið við stjóminni. Hún er frá Árborg sem er skammt fyrir norðan Winnipeg, dótt- ir hjónanna Guðnýjar og Snorra Johnson sem þar búa en langafar og langömmur hennar fluttu frá íslandi 1883. ,Amma var þá fjögurra ára og hún mundi alla tíð hvemig hlutirnir vora á Islandi. „Þar sem ég bjó var grasið svo grænt, vatnið svo blátt og hraunið svo svart/‘ sagði hún og þeg- ar ég fór fyrst til Islands 1976 fór ég á bernskustöðvar hennar, að Helgafelli á Snæfellsnesi. Þá sá ég allt sem hún hafði sagt mér frá og það stóð sem stafur á bók nema hvað mosi var kominn á hraunið," segir Sigrid, sem er gift Rob Sproule og eiga þau þrjú börn. 50 milljónir frá íslandi Safnið hefur verið á hrakhólum nokkuð lengi en er nú komið þar sem það var upphaflega. Á þriðju hæð í norðurenda aðalsafnsins með gluggavegg sem snýr að University College þar sem íslenskudeildin er. Áður tók safnið reyndar ekki mikið pláss á þessu svæði enda hluti af öðra en nú hefur íýmið tvöfaldast og er um 1.000 fermetrar. Framlag ís- lenska ríkisins gerði hér gæfumun- inn en í fyrra samþykktu ríkisstjórn íslands, Eimskipafélagið og Há- skólasjóður Eimskipafélagsins að gefa safninu og íslenskudeild háskól- ans samtals 50 milljónir króna sem greiðast á þremur árum. Þetta er hluti af sérstakri söfnun, Valuing Icelandic Presence, sem var hrandið af stokkunum til að styðja við bakið á safninu og íslenskudeildinni. í byrjun § var markmiðið að safna að minnsta j kosti 1.650.000 kanadískum dollur- um, en nú er takmarkið að ná tveim- ur milljónum kanadískra dollara. ,AHur þessi stuðningur er ómetan- legur,“ segir Sigrid, „en endurbæt- urnar á safninu kosta ekki minna en 700.000 kanadíska dollara." Breytingin er gífurleg. Áður hafði Sigrid vinnuaðstöðu, borð og stól, nánast inni á milli bókahillnanna en j nú fær hún skrifstofu í fyrsta sinn. | „Og ég get farið að loka að mér. Tvö | fullbúin rannsóknaherbergi era til staðar, eitt stórt vinnuherbergi fyrir starfsfólk, eitt vinnuherbergi fyrir gesti, þrír afmarkaðir básar og borð fyrir samtals 20 manns auk móttöku. Framkvæmdir hófust í maí og þeim lauk í gær.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg- arstjóri í Reykjavík, Hjörleifur Sveinbjömsson, eiginmaður hennar | og Steinunn Sigurðardóttir, rithöf- | undur skoðuðu safnið í fylgd Sigrid og Guðrúnar Ágústsdóttur um liðna helgi og þá sá Steinunn ljóðabók sína Verksummerki innbundna í fyrsta sinn. Snæfellsjökull gengur á land heitir eitt ljóðið og hún las það fyrir viðstadda en í safninu er einmitt mál- verkið Snæfellsjökull eftir meistara Kjarval. I því era sérstakir grænir litir og arkitektinn, sem skipulagði íslenska safnið, notaði sömu liti á 1 borð og veggi. „Þetta er eins íslenskt | og það getur orðið,“ segir Sigrid. Ættfræðin vinsælust Áður en Netið kom til sögunnai' biðu íslenskir nemendur við Mani- toba-háskóla gjarnan eftir því að Morgunblaðið kæmi á íslenska safnið en yfirleitt komu nokkur blöð í einu. Undanfarin ár hafa fáir íslenskir stúdentar verið í háskólanum en Sigrid segir að Mogginn sé áfram j vinsælt lesefni. „Þegar á heildina er t litið er það annars ættfræðin sem I dregur flesta að. Fólk er alltaf að " grúska í ættum sínum og í því sam- bandi get ég nefnt að Robert Norren- berg, ungur maður af íslenskum ætt- um sem býr í Vancouver, hefur komið héma annað hvert ár í 10 ár til að afla sér upplýsinga um uppranann en hann er að setja saman fjölskyldu- sögu. En það er breiður hópur sem notar safnið. Nemendur í íslensku | era auðvitað áberandi og kennarar við íslenskudeildina en annars virð- I ast gestir vera frá mörgum deildum 1 háskólans. Við erum ekki bara með bækur á íslensku heldur líka á ensku og svo er oft enskt yfirlit. En í ætt- fræðinni þarf ekki að kunna íslensku til að geta nýtt sér bækurnar. Nóg er að þekkja mannanöfnin en svo lærir fólk oft íljótlega að lesa og skilja ís- lensku auk þess sem við veitum því aðstoð. Fólk í Islendingabyggðunum k kemur ekki eins oft og áður en ég ( vona að safnið með þessum miklu 8 breytingum virki semsegullá það.“ 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.