Morgunblaðið - 21.10.2000, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ
40 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
Visindavefur Háskóla íslands
VIKU
Hvað er ofurflæði?
VISINDI
A Vísindavefnum hafa að und-
anförnu birst svör um starf-
semi hjartans, áhrif hita og kulda á mannslíkamann, ópíöt,
iengd tíðahringsins, lífið i hafinu, vetnisbruna, grá hár, strok-
leður, geispa, erfðafræðilegan mun á ___ manni og mann-
apa, uppruna prótína og DNA, heila-
stöðvar, kippi í svefnrofunum, nítjánhyrn-
inga, nauðhyggju, blótsyrði, uppruna orða,
notkun forsetninganna "að" og "af",
staðarþágufall og risasmokkfiska.
Margir hafa lagt hönd á plóginn við
svörun á Vísindavefnum. Fjöldi höfunda
nú um 200 og fer sívaxandi.
Hver er erfðafræðilegi
munurinn á manni og
mannapa? Er órangúfan
ekki 97% maður?
Svar:
Af mannöpunum standa simp-
ansar næst manninum og eru prót-
ín simpansa og manna flest nauða-
lík. Oft er því slegið fram að
erfðafræðilegur munur á þessum
tegundum sé ekki nema 1% en ná-
kvæm vitneskja um þennan mun
fæst ekki fyrr en búið er að rað-
greina genamengi apans og bera
saman við genamengi mannsins.
Líkamsbygging simpansa og
manns er býsna ólík. Hún ræðst ef-
laust að miklu leyti af starfsemi
gena. Ekki er víst að genin sem
þar skipta máli séu gjörólík hjá
apa og manni. Mismunandi stjórn-
un á starfsemi líkra gena gæti ráð-
ið úrslitum.
Annað sem augljóslega skilur á
milli manns og apa er hæfileiki
mannsins til hugsunar langt um-
fram það sem þekkist hjá öpum
eða öðrum dýrum. Nánast ekkert
er vitað um erfðafræðilegan
grundvöll þessa mismunar. Að lík-
indum er um að ræða mismun á
genum sem sérstaklega starfa í
taugafrumum eða á tjáningu
þeirra. Það er alls ekki víst að um
„ný“ gen sé að ræða hjá mannin-
um. Þetta gæti snúist um breyting-
ar á gömlum apagenum eða
breytta tjáningu þeirra. Skipulag
gena hjá dýrum og mönnum býður
til dæmis upp á það að sama genið
geti gefið af sér mörg mismunandi
afbrigði prótína. Við þróun manns-
ins hefðu getað komið fram ný af-
brigði mikilvægra taugaprótína.
Þetta eru ágiskanir en samanburð-
ur á taugaprótínum manna og apa
á efalítið eftir að varpa ljósi á þann
mismun sem máli skiptir.
Ekki er þar með sagt að þessar
rannsóknir muni á neinn hátt
skýra sjálfa hugsun mannsins.
Hún lætur ekki stjórnast af genum
þótt ákveðin genastarfsemi liggi
henni til grundvallar. Hugsunin
veitir manninum einmitt frelsi frá
stöðugri afskiptasemi gena og af-
urða þeirra. Genin eru hins vegar
ekki óhult fyrir hugsun mannsins.
Guðmundur Eggertsson,
prdfessor í líffræði við HI.
Hve langt er lögreglunni
heimilt að ganga gagnvart
einkalífi einstaklings, án
sérstakrar heimildar?
Svar:
Friðhelgi einkalífs er vernduð í
71. grein stjórnarskrár lýðveldis-
ins Islands nr. 33/1944. Samkvæmt
Líkamsbygging apa og manns
er býsna ólík.
þessari grein stjórnarskrárinnar
má ekki gera líkamsrannsókn eða
leit á manni, leit í húsakynnum
hans eða munum, nema samkvæmt
dómsúrskurði eða sérstakri laga-
heimild. Það sama á við um rann-
sókn á skjölum og póstsendingum,
símtölum og öðrum fjarskiptum,
svo og hvers konar sambærilega
skerðingu eða truflun á einkalífi
manns.
Nánari ákvæði um hús- og lík-
amsleit, hlustun síma og skyldar
ráðstafanir er að finna í lögum nr.
19/1991 um meðferð opinberra
mála. Samkvæmt þeim er megin-
reglan sú að framangreindar ráð-
stafanir þurfi úrskurð dómara. Frá
þessari meginreglu eru hins vegar
ýmsar undantekningar. Þannig má
lögreglan gera leit ef brýn hætta
er á að bið eftir úrskurði valdi sak-
arspjöllum. Einnig má leita án
úrskurðar að manni sem handtaka
skal ef honum er veitt eftirför eða
hætta er á að hann komi sér undan
ef beðið er dómsúrskurðar. í húsa-
kynnum sem eru opin almenningi
og í húsum þar sem lausungarlýð-
ur og brotamenn venja komur sín-
ar má leita, ef þörf þykir, þótt
úrskurðar hafi ekki verið aflað.
Líkamsleit er einnig heimil án
úrskurðar ef brýn hætta er á að bið
eftir úrskurði valdi sakarspjöllum.
www.opinnhaskoli2000.hi.is
Að lokum er þess að geta að í ýms-
um sérlögum er að finna ákvæði
sem heimila leit án úrskurðar dóm-
ara, til dæmis í 42. grein tollalaga
nr. 55/1987 svo að eitthvað sé
nefnt.
Skúli Magnússon,
lektor í lögfræði við HÍ.
Hvað er ofurflæði?
Svar:
Ofurflæði (superfluidity) er sá
eiginleiki vökva að geta streymt án
núnings. Ofurflæði er einungis
þekkt í tveimur helínsamsætum,
He-4 og He-3. Ástæða þess er sú
að önnur efni hafa þegar breyst úr
vökva í fast efni við það lága hita-
stig sem þarf til að ofurflæði geti
átt sér stað. Sem dæmi má nefna
að ofurflæði í He-4 verður við 2,17
K (það er 2,17 gráðum yfir alkuli,
jafngildir -270,98°C).
Helstu einkenni ofurflæðis eru
þau að suða hættir, eðlisvarminn
vex mikið og varmi getur borist um
vökvann sem púls eða högg (í stað
þess að dreifa úr sér í allar áttir).
Auk þess ber mismunandi seigju-
mælingum ekki saman (seigja er
mælikvarði á getu vökva til að
flæða, til dæmis hefur karamella
meiri seigju en súrmjólk sem hefur
meiri seigju en vatn). Ef við mæl-
um seigjuna með plötu sem sveifl-
ast í vökvanum breytist seigjan lít-
ið við að fara niður fyrir
markhitastig ofurflæðis og verður
ekki núll fyrr en við alkul. Ef við
tökum aftur á móti rör sem er svo
mjótt að venjulegur vökvi kemst
ekki í gegn um það rennur ofur-
flæðandi vökvinn viðstöðulaust í
gegn upp að vissum hraða; vökvinn
virðist ekki hafa neina seigju. Að
lokum má nefna að ef ofurflæðandi
vökva er komið á hringstreymi í
fötu heldur snúningurinn stöðugt
áfram án nokkurs núnings - þessi
eiginleiki kallast sístreymi.
En hvað veldur ofurflæði? Að
baki öllum þessum eiginleikum
liggur sú staðreynd að geil er í
orkurófinu um örvanir vökvans.
Það merkir að vissa lágmarksorku
þarf til að örva atómin. Ef við lítum
á kúlu sem ferðast í kyrrstæðum
vökva koma fram núningskraftar
við að orka flyst frá kúlunni í vökv-
ann. En ef kúlan er of hægfara nær
hún ekki að komast yflr orkugeil-
ina þannig að enginn orkuflutning-
ur á sér stað og því mælist enginn
núningur.
Það eðlisfræðilega líkan sem
best lýsir ofurflæði er svonefnt tví-
vökvalíkan. Þá er litið á vökvann
sem samsettan úr tveimur vökvum,
annars vegar venjulega vökvanum
og hins vegar ofurvökva. Ofur-
vökvinn birtist fyrst við markhita-
stigið og vex svo hlutfallslega með
lækkandi hitastigi. Með þessu lík-
ani má útskýra alla fyrrnefnda eig-
inleika ofurflæðis. Til dæmis stafa
mismunandi seigjumælingar af því
að fyrrnefnda mælingin mælir
seigju alls vökvans og þar sem
venjulegi vökvinn hefur seigju
verður heildarseigjan ekki núll. I
seinni mælingunni er það hins veg-
ar einungis ofurvökvinn sem
streymir gegnum rörið og því virð-
ist seigja alls vökvans vera núll.
Að lokum má geta þess til gam-
ans að það er einnig orkugeil sem
veldur ofurleiðni í ýmsum efnum
en ofurleiðni er sá eiginleiki efnis
að leiða rafmagn án nokkurs við-
náms.
Árd/s Eliasdóttir,
nemandi i eðlisfræöi við HÍ.
Bakverkinn burt
Oryggistrúnaðarmað-
urinn og vinnuumhverfi
Vinnuvernd-
arvikan 2000
Vinnuvernd-
arvikan 2000
verður haldin á
Islandi í næstu
viku. Um er að
ræða fræðslu-
og upplýsinga-
átak en sérstök
áhersla verður
lögð á vandamál sem tengjast
baki. Álitið er að 70% til 85%
fólks fái bakverk einhvern tíma á
ævinni og meðal fólks á vinnu-
markaði er bakverkur algengur
kvilli sem kvartað er undan.
Hann fer ekki í manngreinarálit
og herjar á alla starfshópa. Or-
sakirnar geta verið margvíslegar
en vinnuumhverfl og vinnuaðferð-
ir eru mikilvægir þættir sem
starfsmenn ættu að huga vel að
því trúlega eru allir sammála um
að vilja heilnæmt 'og öruggt
starfsumhverfi.
Vinnuverndarlögin
Lög um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum kveða á
um að starfsmenn skuli fá hiut-
deild í skipulagningu vinnusvæðis
og vinnustöðvar á vinnustað sín-
um. Þennan rétt sinn vill Vinnu-
eftirlitið hvetja starfsmenn til að
notfæra sér. Vinnustaður er um-
hverfi innan húss eða utan þar
sem starfsmaður hefst við eða
þarf að fara um vegna starfa
sinna. Þetta þýðir með öðrum
orðum að starfsmenn sjálfir geta
samkvæmt lögum haft áhrif á
hvernig starfið og vinnuumhverfið
er skipulagt. Það gera þeir með
því að kjósa sér fulltrúa úr sínum
hópi og kallast hann öryggistrún-
aðarmaður.
Oryggisvörður og öryggis-
trúnaðarmaður
Til þess að vinna að framgangi
innra eftirlits í fyrirtækjum hafa
verið gefnar út reglur um heil-
brigðis- og öryggisstarfsemi inn-
an fyrirtækja en þar segir: „I fyr-
irtækjum þar sem eru 10
starfsmenn eða fleiri skal at-
vinnurekandi tilnefna af sinni
hálfu öryggisvörð og starfsmenn
skulu kjósa úr sínum hópi örygg-
istrúnaðarmann.“ Ef starfsmenn
fyrirtækis eru 50 eða fleiri skulu
vera tveir öryggisverðir og tveir
öryggistrúnaðarmenn og kallast
þá hópurinn öryggisnefnd. I fyrir-
tækjum þar sem eru 1-9 starfs-
menn skal atvinnurekandi í sam-
vinnu við félagslegan trúnaðar-
mann sinna vinnuverndarstarfinu.
Leið til úrlausnar
á vandamálum
í stuttu máli sagt eiga öryggis-
trúnaðarmaður og öryggisvörður
að fylgjast með því að aðbúnaður,
hollustuhættir og öryggi á vinnu-
stað sé í samræmi við lög og
reglur. Starfsmenn á vinnustað
skulu koma ábendingum til þeirra
um allt það sem þeir telja að geti
verið slysa- eða sjúkdómsvaldur.
Þeir geta rætt um vinnuskipulag
ef þeim finnst þeir vera undir of
miklu álagi o.s.frv. Þannig er bent
á farveg til úrlausnar á vandamál-
um sem upp kunna að koma á
vinnustaðnum. Öryggisnefndir
skulu taka til umfjöllunar öll mál
og ábendingar er til þeirra berast
er varða aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi. Öryggistrúnaðarmenn
og öryggisverðir eru bundnir
þagnarskyldu.
Líf eftir starfsævina
Allir starfsmenn eru hvattir til
að líta í eigin barm í vinnuvernd-
arvikunni og hugsa á gagnrýninn
hátt um líkamsbeitingu við vinnu.
Gott er ef starfsmenn geta horft
hver á annan við vinnu og borið
Betur vinnur vit en strit.
síðan saman bækur sínar um hvað
megi gera og hvort hægt sé að
bæta eitthvað í vinnuumhverfinu
með tilliti til þess að bakinu sé
hlíft. Starfsmannafundur er kjör-
inn vettvangur fyrir umræðu í
kjölfarið. Mikilvægt er að fara vel
með líkama sinn í starfinu og ekki
má gleyma því að allir eiga rétt á
því að eiga líf eftir starfsævina.
Inghildur Einarsdóttir, fræðslu-
fulltrúi hjá Vinnueftirlitinu
og verkefnisstjóri vinnuvemd-
urvikunnur 2000.