Morgunblaðið - 26.10.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 37
W M-2000
Fimmtudagur
GALLERÍ 18
Jyrki Parantainen
Parantainen er finnskur listamaöur
sem hefur vakið mikla athygli fyrir
Ijósmyndir af brennandi byggingum
sem hann kveikir sjálfur í en eldur-
inn er aðal listmiðill hans. í huga
Parantainen er eldlist það að
standa frammi fyrir dauðanum í
baráttu sem stundum vinnst en
stundum ekki. Þar með storkar
Parantainen í senn sjálfum sér,
áhorfendum, listinni jafnvel og líf-
inu sjálfu. Sýningin stendur frá 26.
október til 26. nóvember.
www.i8.is
Nýjar bækur
• UT er komin bókin
Glermeistarinn eftir Olav H.
Hauge í þýðingu Óskars Árna
Óskarssonar sem einnig ritar for-
mála að bókinni.
„Olav H. Hauge (1908-1994) er
hiklaust eitt af mestu ljóðskáldum
Norðmanna á tuttugustu öldinni.
Jafnframt ritstörfum var Hauge
eplabóndi í Ulvik í Harðangurs-
firði þar sem hann bjó og starfaði
mestan hluta ævi sinnar. Kveð-
skapur hans er látlaus en hnitmið-
aður og hittir lesandann beint í
hjartastað. Ljóð Hauge hafa verið
þýdd á ekki færri en tuttugu og
fimm tungumál. Hér birtist úrval
úr ljóðum hans,“ segir í kynningu.
Útgefandi er bókaútgáfan
Bjartur. Bókin er 60 bls. og prent-
uð í prentsmiðjunni Gutenberg.
Verð: 1.880 krónur.
-----------------
Síðasta
sýningarhelgi
cafe9.net
Lokadagur cafe9.net sem verið
hefur í gangi í menningarborgum
Evrópu síðastliðna tvo mánuði er
sunnudaginn 29. október. Megin-
áhersla hefur verið lögð á sam-
skipti og samspil borganna með
framlagi ýmissa listamanna. Þrátt
fyrir formlegan lokadag cafe9.net
eru þau verkefni sem unnin voru í
cafe9.net þess eðlis að hægt er að
þróa þau og bæta eins og hverjum
líkar og fjölmargar vefsíður enn
opnar þeim sem áhuga hafa, til
dæmis http://www.takesyou.to/
dictionary og http://www.discuss-
ion.is.
Samstarfsaðilar cafe9.net eru Is-
landssími og Skjár einn en verk-
efnið er einnig unnið með stuðn-
ingi frá Reykjavík - Menningar-
borg Evrópu, EU Culture 2000
programme og EU Youth for Eur-
ope programme.
Ásmundarsafn
Yfirlitssýningu á verkum Ás-
mundar Sveinssonar í Ásmundar-
safni við Sigtún lýkur sunnudaginn
29. október.
Á sýningunni eru verk sem
spanna allan feril listamannsins og
sýna þá þróun sem varð á list hans
í gegnum tíðina. Meðal hinna elstu
eru höggmyndir sem hann gerði
sem nemandi við sænsku ríkis-
akademíuna. Safnið er opið dag-
lega frá kl. 13-16.
Gangurinn
20 ára afmælissýningu Gangsins
í Listasafni Reykjavíkur - Hafnar-
húsi lýkur sunnudaginn 29. októ-
ber.
Gangurinn er heimagallerí sem
myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils
Friðjónsson hefur rekið um tutt-
ugu ára skeið. Vegna tímamótanna
bauð Listasafn Reykjavíkur Helga
að halda yfirlitssýningu með úrvali
þeirra verka sem hafa verið á sýn-
ingum Gangsins. Leiðsögn er um
sýninguna sunnudaginn 29. októ-
ber kl. 16.
Islendingasögurnar
á kínversku
f TILEFNI sýningar Margrétar
Guðmundsdóttur í kaffistofu
Hafnarborgar, verður opnuð
gluggasýning, kynning á verkum
hennar, hjá Meistara Jakob,
Skólavörðustíg 5, á morgun,
föstudag.
Þar eru m.a. sýndar blaðsíður
úr Islendingasögunum, en þær
komu út á kínversku síðastliðið
sumar og voru kynntar á 2000
Dalian International Art Fair.
Margrét er þátttakandi í þrem-
ur sýningum f Kina, í Shanghai
Art Fair, Guangzhou og The
Macau Museum of Art, sem
haldnar verða í nóvember og des-
ember nk. Sýning hennar í Hafn-
arborg er kynning hennar á þeim
sýningum, sem hún hefur þegar
sent út. Þema sýningarinnar er
náttúra landsins, andstæður þess,
eldgos, jöklar, ný sköpun, sterkir
kraftar. En tenginguna til aust-
urs fær hún með blaðsiðum úr ís-
lendingasögunum.
Opið er alla daga kl. 11-18
nemaþriðjudaga, þá er lokað.
Eitt af vcrkunum á sýningunni.
.....................................................'
*-ts mQmzmmi
WSbVK&tmx&mr. mx
i, ftT4bfiÍ!Ii±ft!j.?iHA<j®ft—\m
noo ípai
íWo&fciWiW
Til varnar
skáld-
skapnum
Á SÚFISTANUM, bókakaffi í versl-
un Máls og menningar, Laugavegi
18, verður dagurinn í dag helgaður
ljóðum, og hefst dagskráin kl. 20.
Umræður verða um ljóðlist í tilefni
af útkomu bókarinnar „Ritgerðir og
pistlar“ eftir Sigfús Daðason. Einar
Már Guðmundsson minnist Sigfús-
ar. Berglind Gunnarsdóttir, Bima
Bjarnadóttir og Hallgrímur Helga-
son ræða um stöðu ljóðlistarinnar í
ljósi ritgerðar Sigfúsar „Til vamar
skáldskapnum“ og Hjalti Rögn-
valdsson les úr verkum skáldsins.
Aðgangur er ókeypis.
FRÁBÆR OPNUNARTILBOÐ
Rúllukragapeysa 2.900 • Buxur 3.900 • Bolir 1.900 • Hnepptar peysur 4.900 • Skyrtur 2.900
STÆRRI STÆRÐIR • FALLEGUR FATNAÐUR
Stærðir 34-46
PARTTWO
Kringlunni 8-12 • s. 568 6845
NÝ SPENNANDI VERSLUN VERÐUR
OPNUÐ í DAG KL.13 í KRINGLUNNI