Morgunblaðið - 30.11.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
276. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skulda hálfa
milljón í stöðu-
mælasektir
Ósltf. AP.
TVEIR breskir bræður skulda nú
sem svarar hálfri milljón fslenskra
króna í stöðumælagjöld fyrir eðal-
vagn af gerðinni Rolls Royce, sem
lagt var í bílastæði & Flesland-
flugvelli, nálægt Björgvin í Noregi,
í mars á síðasta ári. Mælirinn er
enn í gangi, en bræðurnir hafa eng-
in áform um að færa bifreiðina.
Rolls Royce-bifreiðin hefur vakið
óskipta athygli þeirra sem ferðast
til og frá flugvellinum, og varð það
til þess að dagblaðið Bergeas Tid-
ende ákvað aðreyna að hafa uppi á
eigendunum. f Ijós kom að það voru
bresku bræðumir Hugh og Adrian
Lyall. f
„Við tókum Rollsinn með okkur
til Bergen í mars 1999 og notuðum
hann í nokkra daga á meðan við
sinntum viðskiptaerindum," hafði
blaðið eftir Adrian Lyall, sem var
að eigin sögn akandi í annarri Rolls
Royce-bifreið þegar blaðamaður
náði tali af honum í síma. „Við er-
um með tvo eða þrjá Rollsa í viðbót
á flugvöllum hér í Bretlandi. Það er
þægilegt að hafa þá tiltæka þegar
maður ferðast," bætti Lyall við.
Hann kvaðst ekki hafa áhyggjur af
stöðumælasektinni, en gjaldið er
um 800 íslenskar krónur á dag.
A1 Gore áfrýjar úrskurði domara í Flórída til hæstaréttar ríkisins
Þrýstingur eykst á vara-
forsetann að gefa eftir
Tallahassee. Washington. AFP, AP.
AL Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna og forsetaefni demókrata,
áfrýjaði í gær til hæstaréttar Flór-
ída úrskurði undirréttar í ríkinu,
sem hafði neitað að taka strax til
umfjöllunar kröfu um tafarlausa
endurtalningu vafaatkvæða í tveim-
ur sýslum. I bandarískum fjölmiðl-
um verður vart vaxandi þrýstings á
Gore að játa sig sigraðan.
Sanders Sauls, dómari í Leon-
sýslu þar sem ríkishöfuðborgin
Tallahasse er, hafði á þriðjudag
hafnað kröfu demókrata um að fyr-
irskipa tafarlaust endurtalningu á
samtals um 14 þúsund vafaatkvæð-
um í sýslunum Miami-Dade og
Palm Beach. Sauls hyggst taka mál-
ið fyrir á laugardag, en demókratar
vonast til að það fái skjótari með-
ferð fyrir hæstarétti Flórída, enda
eru dómararnir sjö allir skipaðir af
ríkisstjórum úr röðum demókrata.
Repúblikanar eru andvígir því að
aðeins hluti atkvæða í sýslunum
verði endurtalinn, og krefjast þess
AP
A1 Gore veifar til ljósmyndara í
Washington í gær.
að fari endurtalning fram yfir höfuð
verði öll atkvæðin í sýslunum talin.
Þau eru samtals um ein milljón og
talningin myndi taka nokkra daga.
Sauls hefur fyrirskipað að öll at-
kvæðin verði flutt til Tallahasse í
dag, svo þau verði tiltæk ef hann
úrskurðar að þau skuli talin.
Jeb Bush, ríkisstjóri í Flórída og
bróðir Georges W. Bush, fagnaði
því í gær að þingið í Flórída íhugaði
að tilnefna hina 25 kjörmenn ríkis-
ins ef útlit væri fyrir að málarekst-
ur vegna úrslita forsetakosning-
anna drægist fram yfir 12.
desember, þegar frestur sambands-
ríkjanna til að tilnefna kjörmenn
rennur út. Kjörmenn úr öllum ríkj-
unum eiga að koma saman 18. des-
ember til að kjósa forsetann form-
lega.
Almenningur búinn að fá nóg
af „sögunni endalausu“
í bandarískum fjölmiðlum verður
nú vart sívaxandi þrýstings á Gore
að gefa eftir og viðurkenna sigur
Bush og skoðanakannanir benda til
þess að meirihluti Bandaríkja-
manna hafi fengið nóg af „sögunni
endalausu“.
The Washington Post hefur í gær
eftir háttsettum mönnum í Demó-
krataflokknum að ef ekkert mark-
vert komi fram til stuðnings mál-
stað Gores á allra næstu dögum
muni reynast erfitt að halda samúð
almennings. „Ótti er að vaxa [í her-
búðum demókrata] um að stuðning-
urinn muni minnka og loks hverfa
ef við vinnum ekki sigur [fyrir dóm-
stólum],“ hafði The Washington
Post eftir starfsmanni kosningabar-
áttu Gores. „Mikilvægasta verkefni
[Gores] er að halda stuðningi
bandarísku þjóðarinnar og honum
hefur ekki tekist það,“ sagði annar
heimildamaður blaðsins og vísaði til
skoðanakannana þar sem 60% að-
spurðra töldu að varaforsetinn ætti
að gefa eftir. „í lok vikunnar verður
hlutfallið örugglega komið upp í sjö
af hundraði. Það myndi einungis
styrkja stöðu Bush og þá væri
[Gore] að grafa undan möguleikum
sínum á forsetaframboði árið 2004.“
■ Eins og að láta/31
Efnt til mótmæla þegar 53 ár eru liðin frá skiptingu Palestfnu
Undirbúning-
ur kosninga
hafinn í Israel
Gaza-borg, Jcrúsalem, SÞ. AFP, AP.
PALESTÍNUMENN efndu víða til
mótmæla í gær, í tilefni af því að 53
ár voru liðin frá því að Sameinuðu
þjóðirnar samþykktu ályktun um
skiptingu Palestínu. Á meðan byrj-
uðu stjórnmálamenn í Israel að búa
sig undir þingkosningar, sem sam-
þykkt var á þriðjudag að boða til.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna hvatti hinn 29. nóvember árið
1947 til þess að Palestínu yrði skipt
milli gyðinga og araba, en Bretar
fóru þá með stjórn svæðisins. Þús-
undir Palestínumanna minntust
þess með mótmælum á sjálfstjórn-
arsvæðunum í gær, og araþar í
Israel stóðu einnig fyrir friðsam-
legum mótmælagöngum í borgun-
um Haifa, Nazaret og Sakhnin til
að sýna Palestínumönnum stuðn-
ing. Víða kom til átaka milli mót-
mælenda og ísraelskra hermanna á
sjálfstjórnarsvæðunum, meðal ann-
ars í bænum Husan á Vesturbakk-
anum og i Bureij-flóttamannabúð-
unum á Gaza-svæðinu.
Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst
29. nóvember sérstakan samstöðu-
dag með Palestínumönnum, og af
því tilefni lagði Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, í gær fram
skýrslu til Allsherjarþingsins um
stöðu mála í Miðausturlöndum. Þar
leggur hann áherslu á að bæði
Israelar og Palestínumenn þurfi að
fara að samkomulaginu, sem náðist
á leiðtogafundinum í Egyptalandi í
síðasta mánuði, og taka friðarvið-
ræður tafarlaust upp á ný. „ísrael-
ar og Palestínumenn vita mætavel
að þeir þurfa að lifa hverjir innan
um aðra, og að þeir þurfa að leysa
vandamál sín með samræðum og
samvinnu," segir í skýrslunni.
Sharon útilokar
ekki þjóðstjórn
Fulltrúar frá Verkamannaflokki
Ehuds Baraks forsætisráðherra og
stjórnarandstöðuflokknum Likud
áttu í gær fund til að ræða hvenær
gengið skyldi til þingkosninga í
Israel, en búist er við að það verði
næsta vor. Barak varði deginum á
fundum með helstu ráðgjöfum sín-
um, til að leggja á ráðin um hvern-
ig kosningabaráttunni skyldi hátt-
að.
Harðlínumaðurinn Ariel Sharon,
leiðtogi Likud-flokksins, lýsti því
yfir í gær að hann útilokaði ekki
þátttöku í þjóðstjórn, en hann hafði
áður hafnað boði Baraks þar að lút-
andi. „Ef okkur berst boð frá for-
sætisráðherranum munum við
ræða það við hann,“ sagði Sharon í
viðtali við útvarpsstöð ísraelska
hersins.
■ Barak freistar/31
Palestínumenn í mótmælagöngu fyrir framan bækistöðvar Sameinuðu
þjóðanna í Gaza-borg í gær.
Dregur úr hagvexti
í Bandaríkjunum
Otti um
„harðari
lendingu“
Washington. AFP.
VERG landsframleiðsla í Banda-
ríkjunum óx um 2,4% á árs-
grundvelli á þriðja ársfjórðungi
þessa árs, en hagvöxtur hefur ekki
verið eins lítill á einum ársfjórðungi
í fjögur ár. Sérfræðingar létu í ljósi
áhyggjur af því að „harðari lending"
kynni að vera í vændum í banda-
rísku efnahagslífi en búist hafði ver-
ið við, eftir að viðskiptaráðuneyti
Bandaríkjanna kynnti þessar tölur í
gær.
Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi
var 0,3% minni en viðskiptaráðu-
neytið hafði spáð í síðasta mánuði,
og þetta er jafnframt umtalsverð
lækkun frá öðrum ársfjórðungi,
þegar hagvöxtur var 5,6%.
Tölurnar þykja sýna að vaxta-
hækkanir bandaríska seðlabankans
hafi haft umtalsverð áhrif í þá átt að
hægja á vexti efnahagslífsins.
Hagnaður bandarískra fyrirtækja
eftir skatta óx aðeins um 0,6% á
þriðja ársfjórðungi, sem er versta
afkoman í næstum tvö ár. En vaxta-
hækkanimar hafa einnig orðið til
þess að draga úr verðbólguhættu.
Verðbólgan mældist aðeins 1,9% á
ársgrundvelli á þriðja ársfjórðungi,
og vai- minni en á fyrri hluta ársins.
MORGUNBLAÐK) 30. NÓVEMBER 2000