Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
fslensk erfðagreining stofnar fyrirtæki um krabbameinsrannsókir
íslenskar lyfjarannsóknir munu
færa ÍE 3-5 millj. dollara 2001
Skólastjórnendur
framhaldsskóla funda
Stappa
stálinu í
nemendur
Á SÍMAFUNDI með fjárfestum og markaðssér-
fræðingum sem Islensk erfðagreining stóð fyrir á
Netinu í gær kom fram að í máli Kára Stefánssonar,
forstjóra fyrirtækisins, að vænta mætti tilkynning-
ar frá fyrirtækinu um mitt næsta ár um tímamót í
krabbameinsrannsóknum. Fundurinn var haldinn
til að kynna nánar áform Islenskrar erfðagreining-
ar með tvö ný dótturfyrirtæki sín, Islenskar lyfja-
rannsóknir ehf., sem ÍE keypti sl. þriðjudag, og Is-
lenskar krabbameinsrannsóknir ehf.
Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri íslenskrar
erfðagreiningar, sagði að hin tvö nýju dótturfyrir-
tæki Islenskrar erfðagreiningar væru liður í að
auka verðmæti Islenskrar erfðagreiningar og auka
tekjumöguleika móðurfyrirtækisins. Hann sagði að
íslenskar lyfjarannsóknir ehf. sérhæfðu sig í lyfja-
prófunum og í lyfjaerfðafræðilegum rannsóknum.
Kaupin á fyrirtækinu eru í samræmi við stefnu ís-
lenskrar erfðagreiningar að stunda rannsóknir á
víðu sviði og að geta boðið samstarfsaðilum úr lyfja-
iðnaðinum upp á þjónustu við að nýta nýjar upp-
götvanir í erfðafræði til að hanna betri og öflugri
meðferðarúrræði. Fyrirtækið hefur allt frá stofnun
þess fyrir einu ári verið í nánu samstarfi við ís-
lenska erfðagreiningu um rannsóknir í lyfjaerfða-
fræði. Stærsta samstarfsverkefnið til þessa hefur
verið stjómun alþjóðlegrar lyfjarannsóknar fyrir
lyfjafyrirtækið Astra-Zeneca, sem framkvæmd er í
yfir 20 rannsóknarstöðvum í átta Evrópulöndum
auk Bandaríkjanna. Meðal annarra erlendra sam-
starfsaðila em lyfjafyrirtækin Novartis og Merck
og Schering Plough.
Tímamóta í krabbameinsrannsóknum
að vænta um mitt næsta ár
Alþjóðlegi lyfjaiðnaðurinn kaupir í síauknum
mæli ýmsa rannsóknaþjónustu frá fyrirtækjum á
borð við Islenskar lyfjarannsóknir og er áætlað að
heildarveltan í þessum viðskiptum nemi 7-8 millj-
örðum Bandaríkjadala á þessu ári. Hannes sagði að
áætlað væri að tekjuframlag íslenskra lyfjarann-
sókna til móðurfyrirtækisins í gegnum hin ýmsu
samstarfsverkefni yrði 3-5 milljónii' dollara á næsta
ári. Hann sagði þetta mikilvægt þar sem um' nýja
tekjulind væri að ræða fyrir Islenska erfðagrein-
ingu.
Fram kom að íslenskar krabbameinsrannsóknir
munu taka yfir og stórauka rannsóknir íslenskrar
erfðagreiningar á krabbameini og sjá um markaðs-
setningu meðferðar- og greiningarúiræða. Kári
Stefánsson sagði á símafundinum að nýja fyrirtæk-
ið myndi nýta sérstöðu íslands til læknisfræðilegra
rannsókna, svo sem nákvæma skráningu sjúk-
dómstilfella og lífsýnasöfn. Pað mun einnig hafa
fullan aðgang að einstæðum ættfræðiupplýsingum
IE og stærstu rannsóknarstofu til arfgerðargrein-
inga í heiminum. Hann var spurður á fundinum
hvort fyrir lægi samkomulag um samstarf við sam-
tök lækna á sviði krabbameinsrannsókna á íslandi.
Hann sagði Islensk erfðagreining hefði samstarfs-
samninga um rannsóknir á mörgum gerðum
krabbameina og innan skamms tíma yrðu gerðir
flefri slíkir samningar sem næðu til allra gerða
krabbameina. Kári sagði að krabbameinsrannsókn-
ir íslenskrar erfðagreiningar væru á frumstigi.
Hann kvaðst ekki búast við að fyrirtækið gæfi yfir-
lýsingar um sérstök tímamót í þessum rannsóknum
fyrr en um mitt næsta ár.
Hann sagði að þessi tvö nýju dótturfyrirtæki
væru mikilvægir hlekkir í þeim áformum Islenskr-
ar erfðagreiningar að bjóða upp á víðtækar lausnir
og þjónustu til samstarfsaðila og til eigin nota.
Háskólinn
í Reykjavfk
53 umsókn-
ir í alþjóð-
legt MBA-
nám
HÁSKÓLANUM í Reykjavík bár-
ust 53 umsóknir í alþjóðlegt MBA-
nám sem hefst 1. febrúar, en fjöldi
þeirra sem komast í námið verður
á bilinu 25 til 30. Um er að ræða
viðskipta- og stjórnunarnám með
sérstaka áhersiu á rafræn viðskipti
og verða fyrstu nemendurnir út-
skrifaðir í júní árið 2002.
I fréttatilkynningu frá Háskól-
anum í Reykjavík kemur fram að
bakgrunnur umsækjenda sé mjög
fjölbreyttur enda sé námið hugsað
fyrir fólk með háskólamenntun úr
ólíkum greinum. Námið er starfs-
tengt sem þýðir að nemendur geta
stundað það samhliða vinnu og
verkefni sem nemendur gera
tengjast þvf fyrirtæki sem viðkom-
andi vinnur hjá.
Eins og kom fram að ofan er
námið alþjóðlegt og standa 10 há-
skólar saman að því. Skólarnir
verða með sameiginlegt kennslu-
efni og námsskrár og meira en
helmingur kennara í náminu á Is-
landi mun koma frá samstarfsskól-
Jólaskrautið
farið að sýna sig
ÞESSA dagana eru kaupmenn og
bæjaryfirvöld um land allt að ljúka
við að setja upp jólaskraut og
minna íbúa landsins þannig á
komu hátíðar ljóss og friðar. Hús-
eigendur eru einnig farnir að huga
að jólaskreytingum. Þessi maður
var önnum kafinn við að skreyta
húsið sitt í vikunni. Eins og sjá má
er þetta vandasamt verk.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
SKÓLASTJÓRNENDUR flestra
framhaldsskóla ætla að bjóða nem-
endum að koma til fundar í skólun-
um næstu daga en þetta var meðal
þess sem rætt var á fundi skóla-
stjórnenda í gær. Ragnheiður Torfa-
dóttir, rektor Menntaskólans í
Reykjavík, segir breytilegt eftir
skólum hvenær fundirnir verða
haldnir, einhverjir verði á dag, aðrir
á morgun og margir á mánudag.
Hún segist gera ráð fyrir því að á
fundunum verði fyrst og fremst
reynt að stappa stálinu í nemendur
og yngri nemendur myndu hafa sér-
staklega gott af því að mæta: „Það
eru svo margir nemendur sem við
höfum ekki náð til í verkfallinu og því
er eðlilegt að við söfnumst saman í
skólanum og spjöllum saman.“
Ragnheiður segir að síðast hafi
verið talað við alla nemendur áður en
verkfallið hófst og þeir hvattir til að
koma í skólann og lesa upp námsefn-
ið líkt og þeir væru að fara í próf, en
aðeins hluti nemenda hafi gert það.
Áður en verkfall hófst var áformað
að síðasti kennsludagur í MR fyrir
jól yrði á morgun og fyrstu próf yrðu
á mánudag.
Rætt um
markmið kenn-
arasamnings
ELNA Katrín Jónsdóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara,
sagði í samtali við Morgunblaðið að á
fundi með samninganefnd ríkisins í
gær hefði verið fjallað nokkuð um
markmið nýs kjarasamnings. Ekki
væri þó hægt að tala um að sú um-
ræða hefði skilað árangri. Menn
hefðu áður fjallað um markmið
samninga en ekki væri útilokað að
umræða um þessi mál nú gæti skilað
einhverju.
Múrarafélag Reykjavíkur hefur
vísað kjaradeilu félagsins við Sam-
tök atvinnulífsins til ríkissáttasemj-
ara. Samningur félagsins rennur út í
dag.
Samstarfssamningur um aukinn rekstur sjúkrahotels
Hjúkrunarþjónusta
fyrir 54 gesti
•Jl
-Elfas Snæland Jónsson
f bókinni Víkingagull eftir Elías
Snæland Jónsson er Bjólfur
aðalsöguhetjan. Hann er snjali
15 ára strákur sem kemst yfir
gamalt skinnhandrit. Þar eru
vísbendingar um fjársjóð frá
víkingaöld, sem grafinn er í jörðu
en á óþekktum stað. Þetta verður
upphafið á sérlega spennandi
atburðarás. Við sögu koma ýmsar
skemmtilegar persónur, svo sem
tvíburasystumar Sonja og Sylvía,
sem rugla Bjólf f ríminu og fá
hjarta hans til að slá hraðar.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Samstarfssamningurinn undirritaður í húsakynnum sjúkrahótelsins.
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri Landspítalans, Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Gunnhildur Sigurðardóttir, formaður
sljómar sjúkrahóteisins, og Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Rauða kross íslands.
SKRIFAÐ var undir samning í gær
milli Landspítala - háskólasjúkra-
húss og Rauða kross íslands um
stækkun og aukna þjónustu á sjúkra-
hóteli Rauða krossins við Rauðarár-
stíg 18, þar sem Fosshótel Lind er
einnig til húsa. Með samstarfssamn-
ingi þessara aðila nærri tvöfaldast
rýmið sem sjúkrahótelið hefur til um-
ráða, auk þess sem Landspítalinn
leggur til þjónustu hjúkrunarfræð-
inga. Til að byija með skipta tveir
hjúkrunarfræðingar með sér vöktum
frá morgni til kl. 23 á kvöldin, auk
þess sem bakvakt hjúkrunarfræðings
verður að næturlagi.
Nú er húsrúm fyrir 32 gesti á efstu
hæð hótelsins við Rauðarárstíg en
með samkomulaginu í gær, sem gildir
til 31. október á næsta ári, verður
bætt við 22 eins manns herbergjum á
hæðinni fyrir neðan, sem Fosshótelið
hefur haft til umráða. Með stækkun-
inni verður því hægt að taka á móti 54
gestum á sjúkrahótelinu. Þegar er
farið að bóka í þau herbergi sem bæt-
ast við.
Rauði kross íslands hefur frá árinu
1974 rekið sjúkrahótel, einkum fyrir
fólk af landsbyggðinni sem sækir
sjúkraþjónustu í Reykjavik en þarf
eklri að dvelja á sjúkrahúsi. Við undir-
ritunina í gær kom fram að stækkun
hótelsins er langþráður áfangi þar
sem kannanir hafa sýnt að margir
þeirra sem hingað til hafa dvalið á
sjúkrahúsi hefðu getað gist á sjúkra-
hóteli með hjúkrunarþjónustu, sem
talið er mun ódýrara og hagkvæmara
fyrir þjóðarbúið.
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri Landspítala, sagði að þótt um
tilraunaverkefni til eins árs væri að
ræða væri vonast til að þetta fyrir-
komulag héldi áfram með góðum vilja
þeirra sem að hótelinu koma. Hún
sagði spítalann hafa mætt velvilja
heilbrigðisráðherra vegna þessa
máls, sem hefði stutt aukinn rekstur
sjúkrahótels með ráðum og dáð.