Morgunblaðið - 30.11.2000, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Saiiiíylking skipar
Evrópu- nefnd
■ .....11/11'
Samíylldngin fer sömu
leið og Framsóknar-
flokkurinn með stofn-
un Evrópusambands
nefndar
G/MuM£>
Nei, nei, krakkar mínir, leikherbergið er næstu dyr til vinstri.
Dæmdur fyrir líkamsárás-
ir og ólöglegan vopnaburð
TUTTUGU og tveggja ára karlmað-
ur var í fyrri viku dæmdur í hálfs
árs fangelsi fyrir tvær líkamsárásir
í Reykjavík í fyrra. Maðurinn af-
plánar nú þegar níu mánaða fang-
elsisdóm sem hann hlaut fyrir
líkamsárásir þann 8. desember í
fyrra.
Auk fangelsisdóms var honum
gert að greiða öðru fórnarlambi sínu
tæplega 400.000 krónur í bætur á-
samt vöxtum í rúmt ár auk alls sak-
arkostnaðar, þ.m.t. helming máls-
varnarlauna verjanda síns, 50.000
krónur. Dómurinn var kveðinn upp
af Pétri Guðgeirssyni héraðsdómara
við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Maðurinn var annars vegar fund-
inn sekur um líkamsárás aðfaranótt
laugardagsins 2. október í fyrra við
Keiluhöllina í Öskjuhlíð í Reykjavík.
Fómarlamb hans í þeirri árás tví-
brotnaði á vinstri kjálka auk þess
sem fimm tennur brotnuðu.
Þá var hann sakfelldur fyrir að
hafa ráðist á karlmann á fertugs-
aldri við Keilu í Mjódd. Við árásina
brotnaði augntóttarrönd mannsins
og hann hlaut miklar bólgur við
vinstra auga. Rúmur mánuður leið
milli árásanna.
Var með tvo hnífa
Maðurinn var auk þess sakfelldur
fyrir ólöglegan vopnaburð. Sam-
kvæmt framburði lögreglunnar
hafði hún afskipti af slagsmálum í
Hafnarstræti þann 8. janúar sl. Var
hennitjáð að sá ákærði væri einn
upphafsmannanna að þeim. Þegar
lögreglumaður tók í öxlina á ákærða
sá hann að ákærði var með opinn
hníf í hendi. Hnífurinn var af svo-
kallaðri „butteríly" gerð. Jafnframt
fannst fláningarhnífur með 11 sm
löngu blaði á honum við leit.
Akærði hefur þrisvar verið
dæmdur fyrir líkamsárásir áður og
afplánar nú 9 mánaða fangelsisdóm,
fyrir líkamsárásir, sem hann hlaut í
desember í fyrra. Refsing ákærða
er að hluta til hegningarauki við
þann dóm.
------♦_*_*------
Líkamsárás í
Bankastræti
RÁÐIST var að karlmanni í Banka-
stræti í fyrrinótt og honum veittir
áverkar á höfði. Arásarmennirnir
voru tveir piltar um tvítugt sem
komust undan.
Lögreglan í Reykjavík fékk til-
kynningu um árásina um kl. 1.30. Að
sögn lögreglunnar voru hjón á gangi
um Bankastrætið þegar piltarnir
tóku að hreyta í þau ókvæðisorðum
að tilefnislausu. Síðan munu þeir
hafa ráðist á karlmanninn og slegið
hann niður. Maðurinn hlaut skurð
við augabrún og var fluttur á slysa-
deild Landspítalans - háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi til aðhlynning-
ar.
Skömmu síðar var tilkynnt um að
tveir drengir væru að fremja
skemmdarverk á bifreiðum í Þing-
holtunum. Þeir beygluðu m.a. rúðu-
þurrkur og spörkuðu í hurðir bif-
reiða. Þegar lögreglan kom á staðinn
höfðu drengimir haft sig á brott.
Hvaða dekk er betra í snjó
en nagladekk?
Svarið er: Bridgestone Blizzak
Bridgestone Blizzak er sérstaklega gert fyrir norðlægar slóðir
og hin einstaka tækni, sem notuð var við hönnun þess, gefur
ótvíræða kosti: Betri aksturseiginleika, meiri stöðugleika,
minni eldneytiseyðslu, og betri endingu.
Sparaðu naglana og sparaðu aurinn
-veldu dekkið sem var hannað fyrir þær aðstæður
Fimir fætur halda fund
Meðferð
klumbufóta
til umræðu
Sigurlaug Vilbergsdóttir
SAMTÖK foreldra
bama með klumbu-
fætur heldur
íræðslufund á laugardag 2.
desember nk., klukkan 14 í
sal Umhyggju, Laugavegi
7. Þar verða tveir fyrirlestr-
ar um klumbufætur og
meðferð þeim tengdum.
Sigurlaug Vilbergsdóttir
var spurð hvort mörg böm
á Islandi væm með þessa
fötlun.
„Um það bil tvö til þijú
böm fæðast með klumbu-
fætur hér á íslandi á ári.
Ymist með annan fótinn
bæklaðan eða báða.
Klumbufætur eru tvisvar
sinnum algengari hjá strák-
um en stúlkum.“
- Hvers konar fótiun er
þetta?
„Klumbufótur er það ástand fót-
ar þegar tær vísa niður og fætur
snúa inn á við. Meðferðin miðast að
því að ná fætinum réttum. Fötlunin
á fætinum er öll fyrir neðan hné og
hún er afleiðing vanþróunar á vöðv-
um, sinum og beinum á fyrstu stig-
um fósturskeiðsins."
- Hvemig er meðferðin ?
„Meðferð við klumbufæti hefst
hér á landi fljótlega eftir fæðingu
hins fatlaða. Fyrsta stigið er gifs-
meðferð, svo spelkumeðferð og að-
gerð ef hennar er þörf. Framvind-
an ræðst af því hversu mikil
fötlunin er.“
- Hversu mikil eða lítil getur hún
orðið?
„Einstaklingur fæddur með
klumbufót þarf alltaf sérsmíðaða
skó. Sumir jafnvel líka spelkur upp
að hrjám. Fólk með þessa fötlun
getur gengið en þreytist fljótt.
Hversu miki] fötlunin er ræðst m.a.
af stífleika fótarins og ástandi lið-
banda og hásinar.“
- Hvað verður fjallað um á fund-
inum á laugardag?
„Þorvaldur Ingvarsson bæklun-
arlæknir frá Akureyri mun ræða
um klumbufætur og Björg Guð-
jónsdóttir sjúkraþjálfari ræðir um
meðferð ogþjálfun á klumbufæti.“
- Er hægt að ráða bót á þessari
fótlun?
„Þetta er ástand sem er alltaf til
staðar, en það er hægt að bæta líð-
an fólks mjög mikið. Mikilvægt er
að fólk fái stuðning við fætuma og
hann er veittur með með spelkum
og sérsmíðuðum skóm. Einnig eru
gerðar aðgerðir þar sem t.d. hásin-
in er lengd. Beinin ofan á ristinni
eru færð til þannig að þau liggi rétt
og reynt er að fá liðleika í fótinn
með aðgerðinni. Eitt einkenni á
klumbufæti er að hann getur verið
rnjög stífur í liðamótum og þess
vegna teljum við reglulega sjúkra-
þjálfun heppilega. Margir þurfa
nokkrar aðgerðir áður en viðunandi
bata er náð.“
- Hvenær voru Samtök foreldra
bama með klumbufót stofnuð?
„Við höfum gefið samtökum okk-
ar nafnið Fimir fætur,
því að því er stefnt.
Samtökin voru stofnuð í
nóvember 1999 og eru
þau aðildarfélag að Um-
hyggju, sem eru samtök
langveikra bama. Við vildum með
stofnun samtakanna veita bömum
með klumbufót og foreldrum þeirra
stuðning og koma af stað umræðu
um klumbufætur og meðferð þeim
tengdum. Einnig að beijast fyrir
réttindamálum þeirra sem eiga við
þessa fötlun að stríða og skapa
vettvang þar sem foreldrar og ein-
staklingar geta hist og rætt saman
um vandamál sín. Við erum með
► Sigurlaug Vilbergsdóttir
fæddist 27. apríl 1971 í Reykja-
vík. Hún stundaði nám í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og lauk
prófi 1996 frá Þroskaþjálfaskóla
Islands. Hún hefur starfað á
Lyngási, dagvistun fyrir fötluð
böm og hefur einnig unnið á
leikskóla sem þroskaþjálfi. Hún
er formaður Samtaka foreldra
barna með klumbufætur. Sigur-
laug er gift Páli Sævari Guðjóns-
syni verkstjóra hjá Eimskip og
eiga þau einn son.
heimasíðu: www.tv.is-klumbufaet-
ur. Einnig höfum við gefið út bækl-
ing sem við erum búin að dreifa á
sjúkrahús og fleiri staði."
- Hvað áttu við með baráttu fyrír
réttindamálum?
„Við teljum að böm með
klumbufætur þurfi sjúkraþjálfun
og viljum að hún sé greidd af
Tryggingastoihun. Einnig teljum
við þörf á fleiri sérsmíðuðum skóm
á ári fyrir fólk með klumbufætur en
þeir fá í dag.“
- Hvað fá þeir mörg pör af skóm
á ári núna?
„Þeir fá tvö pör á ári en það dugir
skammt, einkum fyrir böm og
unglinga. Fætumir stækka og
bömin slíta skónum fljótt og illa.
Einnig höfum við ákveðið að beij-
ast fyrir að foreldrar fái umönnun-
arbætur á meðan á bameignarleyfi
stendur og jafnvel að fá lengingu á
bameignarleyfinu því ef bam með
klumbufót þarf aðgerð er hún gerð
áður en bamið nær eins árs aldri -
þ.e. áður en barnið fer að ganga.“
-Átt þú sjálf bam með þessa
fótiun?
„Já, sonur minn er að verða
tveggja ára og fæddist með
klumbufætur á báðum fótum. Hann
gekkst undir aðgerð í janúar og var
áður búinn að vera í gipsi og spelk-
um upp í nára. Hann bytjaði að
ganga í haust og er að verða mjög
góður, en þarf ennþá spelkur upp
að hnjám.“
- Er þetta ættgeng fótlun?
„Það er ekki vitað, en
maðurinn minn er t.d.
með klumbufót á öðrum
fæti og ég veit um íleiri
dæmi í félaginu þar sem
foreldrar em líka með
klumbufót. Samkvæmt minni
reynslu bendir því ýmislegt til að
þetta sér ættgengt.“
- Greinist þessi fótlun fyrír fæð-
ingu?
„Já, hún greinist í ómskoðun
þannig að ég t.d. hafði góðan tíma
til þess að undirbúa mig og hafði
samband við foreldra sem gátu
miðlað mér af reynslu sinni. Það
var hvatinn að stofnun Fimra fóta.“
Fötlunin
greinist
í ómskoðun