Morgunblaðið - 30.11.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 29
ERLENT
Morð á
dreng vek-
ur óhug
LÖGREGLAN í Lundúnum
leitar nú banamanna tíu ára
drengs, sem lést af völdum
stungusárs á
mánudag.
Morðið hefur
vakið mikinn
óhug í Bret-
landi.
Drengur-
inn, Damilola
Taylor, var
frá Nígeríu
en flutti með
móður sinni
tii Bretlands fyrir þremur mán-
uðum, þar sem þau bjuggu í leig-
uíbúð í alræmdu hverfi í suður-
hluta Lundúna. Að sögn
lögreglu virðist sem þrír drengir
á aldrinum 11-15 ára hafi ráðist
á hann er hann var á leið heim úr
skólanum síðdegis á mánudag
og stungið hann í hægri fótlegg,
hugsanlega með brotinni flösku,
en við það slitnaði slagæð í fót-
leggnum. Damilola fannst þar
sem hann lá í blóði sínu í stiga-
gangi nálægt heimili sínu, en
hann lést á leiðinni á sjúkrahús.
Móðir drengsins, Gloria Tayl-
or, sakar skólayfirvöld um að
hafa gert lítið úr áhyggjum
hennar af því að Damilola hafi
verið lagður í einelti af skólafé-
lögum sínum.
Starfsmenn
SÞ viðriðnir
mansal?
SEX starfsmönnum lögregluliðs
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu
hefur verið vikið úr starfi og þeir
sendir til síns heima, í kjölfar
rannsóknar á mansali.
Bosníska lögreglan réðst fyr-
ir tveimur vikum til inngöngu á
þrjá bari í bænum Prijedor í
norðurhluta Bosníu, og frelsaði
34 konur, sem var haldið þar
nauðugum og látnar stunda
vændi. Eftir aðgerðimar kom
upp orðrómur um að meðlimir
lögregluliðs SÞ væru viðriðnir
málið. Að undangenginni rann-
sókn var sexmenningunum vikið
úr starfi „fyrir að hafa farið út
fyrir valdsvið sitt og fyrir óvið-
urkvæmilega hegðun“. Rann-
sókninni verður haldið áfram og
útiloka fulltrúar SÞ ekki að fleir-
um verði vikið úr staifi.
Mansal er vaxandi vandamál í
Bosníu, en á undanfömu einu og
hálfu ári hafa yfir 200 konur,
sem seldar höfðu verið í vændi,
verið leystar úr ánauð. Flestar
konumar em frá þeim ríkjum
sem áðm- tilheyrðu Sovétríkjun-
um.
Endeavour á
leið út í geim
GEIMSKUTLAN Endeavour á
að leggja í leiðangur til Alþjóð-
legu geimstöðvarinnar í kvöld.
Fimm geimfarar verða í áhöfn
skutlunnar, en þeim er ætlað að
koma risavöxnum sólarrafhlöð-
um fyrir á geimstöðinni.
Áformað er að skjóta Endeav-
our á loft frá Canaveral-höfða í
Flórída klukkan 22:06 að staðar-
tíma í kvöld. Það mun taka
geimskutluna tvo daga að kom-
ast tii Alþjóðlegu geimstöðvar-
innai’, en ferðin tekur alls 11
daga. Sólarrafhlöðumar sem
komið verður fyrir á geimstöð-
inni em 73 metra langar og vega
17 tonn, en eftir að þær verða
komnar í gagnið fimmfaldast
orkumöguleikar stöðvarinnar.
Damilola
Taylor
Uppgangur hægriöfgamannsins Tudor í Rúmeníu vekur áhyggjur
Óttast einanffrun landsins
Búkarest. AP.
TALSMENN ýmissa stjórnmálaflokka í Rúm-
eníu og dagblöð í landinu vöruðu landsmenn við
í gær og sögðu, að bæri frambjóðandi öfgafullra
hægrimanna sigur úr býtum í síðari umferð for-
setakosninganna 10. desember nk., myndi Rúm-
enía einangrast innan Evrópu.
Hægriöfgamaðurinn Corneliu Vadim Tudor
og frambjóðandi Stómúmenska flokksins mun
takast á við Ion Iliescu, fyrrverandi kommún-
ista, í síðari umferðinni en af tólf frambjóðend-
um í þeirri fyrri fengu þeir flest atkvæði. Var II-
iescu með 36% en Tudor 28%.
Tudor, sem fékk aðeins 5% atkvæða í kosn-
ingunum 1996, hefur látið hafa eftir sér að eina
leiðin til að stjórna Rúmeníu liggi „um byssu-
hlaupið" og hefur sagt margt niðrandi um gyð-
inga, sígauna, Ungverja og samkynhneigða.
„Ef Vadim Tudor og Stórrúmenski flokkurinn
sigra í kosningunum mun Rúmenía verða að
eins konar gettói í Evrópu,“ sagði dagblaðið
Adevarul. „Lánveitingar til landsins munu
stöðvast og til Búkarest mun enginn frammá-
maður siðaðs ríkis koma.“
Flest bendir raunar til, að Iliescu, sem var við
stjórnvölinn frá 1990 til 1996, muni sigra en
hann þykir hins vegar hálfgerður spýtukarl í
samanburði við Tudor, mælsku hans og leik-
ræna tilburði. Tudor hefur m.a. ort kvæði til lofs
og dýrðar Nicolae Ceausescu, fyrrverandi ein-
ræðisherra.
AP
Corneliu Vadim Tudor, leiðtogi Stórrúm-
enska flokksins, á kjörstað í Búkarest í fyrri
umferð forsetakosninganna siðastliðinn
sunnudag.