Morgunblaðið - 30.11.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 35
LISTIR
Að leggja upp í ferðalag
EG HLAKKA til er
titill nýútkominnar
geislaplötu Ingu J.
Backman sópran-
söngkonu. Þetta er
fyrsta plata hennar
og hefur hún að sögn
söngkonunnar verið í
undirbúningi alllengi.
„Þetta er langþráður
draumur sem ég hef
gengið með í mörg ár
og lofað sjálfri mér
og öðrum að láta ræt-
ast,“ segir hún.
Hún segir íslensk
ljóð og lög svo mikinn
og stóran fjársjóð að
henni finnist hún vera rétt að
byrja. „Ég er að leggja upp í
ferðalag sem ég vonast til að geta
haldið áfram. Svo er sífellt að
bætast í þennan sjóð frá núlifandi
tónskáldum og ljóðskáldum,“ seg-
ir Inga, sem leitaði aðallega aftur
í tímann að lögum og ljóðum á
þessa fyrstu plötu sína.
Tvö lög eftir bróður söng-
konunnar og ljóð eftir afa
Mörg laganna tók hún ástfóstri
við á skólaárum sínum í Söngskól-
anum í Reykjavík. A plötunni eru
m.a. lög eftir þrjá kennara hennar
þaðan, Jón Asgeirsson (Jólaljóð
og Á jólanótt), Jón Þórarinsson
(Islenskt vögguljóð á hörpu, Nú
legg ég augun aftur og Morgun-
vísur) og Jórunni Viðar (Mamma
ætlar að sofna og Við Kínafljót).
Meðleikari Ingu á píanó er Ól-
Inga J. Backman
afur Vignir Alberts-
son en þau hafa
starfað saman í
fjölda ára. Geisla-
platan hefur að sögn
Ingu að geyma mörg
uppáhaldslög þeirra
beggja. Titillagið,
Ég hlakka til, er eft-
ir bróður söngkon-
unnar, Arnmund
heitinn Backman, í
útsetningu Jóns Ás-
geirssonar, við ljóð
Jóhannesar úr Kötl-
um. Annað lagið á
plötunni, Sofa urtu-
börn, er einnig eftir
Arnmund og í útsetningu Jóns.
Arnmundur lést fyrir rúmum
tveimur árum eftir að hafa gengið
í gegnum löng og erfið veikindi.
„Eg var búin að lofa honum að
taka upp sönginn minn - en ég
hafði reyndar ekki lofað að ég
myndi taka upp lögin hans,“ segir
Inga.
„Eygló fríð
og unaðsblíð“
Annað lag tengist einnig fjöl-
skyldunni en það er við ljóð eftir
afa Ingu, Ammund Gíslason.
Ljóðið heitir Morgunvísur og það
syngur Inga við lag Jóns Þórar-
inssonar. „Ljóðið er um sólina,
sem afi minn kallaði „Eygló fríð
og unaðsblíð". Hann fæddist á
Langanesi inn í algjöra örbirgð og
missti helminginn af systkinum
sínum og báða foreldra ungur að
árum. En hann var svo heppinn að
komast til séra Ingvars á
Skeggjastöðum sem hjálpaði hon-
um til mennta vegna þess að hann
þótti svo efnilegur," segir Inga og
bætir við að hann hafi ungur sent
frá sér ljóðabók. „Æskuvinur
hans, Örn Amarson ljóðskáld,
hvatti hann til að gefa út þessi
æskuverk. Gagnrýnandi Morgun-
blaðsins tók afa minn svoleiðis í
gegn, eins og þá tíðkaðist, að hann
orti aldrei meir! Um það er til
ljóðabálkur í 25 erindum eftir Öm
Amarson, sem heitir Æmprís og
birtist í ljóðabókinni Illgresi," seg-
ir hún.
Auk þeirra laga sem þegar em
talin er að finna á plötunni lög eft-
ir Pál ísólfsson, Gylfa Þ. Gíslason,
Sigfús Einarsson, Karl 0. Run-
ólfsson og Sigvalda Kaldalóns.
Upptökurnar fóm fram í Víði-
staðakirkju í ágúst sl. og upptöku-
stjórn og hljóðvinnsla var í hönd-
um Halldórs Víkingssonar. Inga
gefur diskinn út sjálf og bróðir
hennar, Ernst Bachman, sá um
útlitshönnun. „Mig langar til að
þakka móður minni og allri fjöl-
skyldu og vinum mínum fyrir
hjálpina við útgáfu disksins," seg-
ir hún.
Undanfarin ár hefur aðalstarf
Ingu verið að stjóma „Litla kórn-
um“, kór eldri borgara við Nes-
kirkju, og aðstoða Reyni Jónasson
við raddþjálfun hjá kirkjukór
Neskirkju. Auk þess syngur hún
með Hljómkórnum við jarðarfarir
og syngur einsöng.
Farsæll
háski
BÆKUR
L j ö ð o g
inj'ndskrcylingar
HALLA
Ljóð Steins Steinarr og
myndskreytingar Louisu
Matthfasdóttur. 23 síður -
JPV forlag 2000.
Steinn
Steinarr
Louisa
Matthíasdóttir
Á SÍNUM tíma (og reyndar enn)
ortu skáld ljóð handa börnum og
myndhstarmennn skreyttu, oft með
góðum árangri. Tindátar Steins og
Mjallhvít Tómasar koma fyrst í
hugann.
Nú hefur komið fram í dagsljósið
áður óprentuð bók eftir Stein Stein-
arr og Louisu Matthíasdóttur.
Halla nefnist bókin og mun ort fyrir
kynslóð barna sem nú hefur náð
sextugsaldri.
Halla er h'til stúlka sem býr hjá
afa sínum í litlu þorpi. Hann stund-
ar sjóinn og þegar hann rær til
fiskjar veiðir Halla á bryggjunni og
er fiskin eins og afinn.
Að því kemur að Halla er send í
sveit en hana langar heim til afa.
Tilraun hennar til að komast heim
reynist háskaleg.
Háskann þekkti
Steinn og eflaust
Louisa líka. En
háskaljóð Steins enda
ekki öll jafnvel og
bálkurinn um Höllu.
Ljóðið um Höllu er
viðfelldinn texti og
myndirnar skemmti-
legar. Inn á milli en
þó ekki oft skín í
snilldartök skáldsins
og kímnina.
Um afann segir að
hann hafi kunnað
sögur, „því sjálfsagt
hefur ýmislegt/ hent
svona gamlan mann“.
Þegar háskinn er
hvað mestur er komist svo að orði:
„Og engan skyldi furða/ þó að okk-
ur setji grátJ á hafsins trylltu öld-
um/ í áralausum bát.“
Hver kannast ekki við Stein í er-
indinu um að margt þurfi að hugsa í
þorpi út við sjó?: „Og hvað mikið
sem fiskast/ það fiskast aldrei
nóg“.
Jóhann Hjálmarsson
KVIKMYJVDIR
Stjörnnbfó, Laugar-
á s b í«, S a m b í ó i n
Á1 fabakka, Borgarbíó
A k u r e y r i o g N ý j a - B f ð
Keflavfk
ENGLAR CHARLIES
„Charlie’s Angels“ ★ ★%
Leikstjóri: McG. Aðalhlutverk:
Drew Barrymore, Cameron Diaz,
Lucy Liu, Bill Murray
og Tim Curry. 2000.
ÞAÐ er einstaklega frískandi í
þeirri formúlukenndu hasarmynda-
veröld sem við þekkjum að sjá
þrjár konur fara með hlutverk Arn-
olds Schwarzeneggers og jafnvel
enn meira frískandi að vita til þess
að þær slógu honum við í miðasöl-
unni vestra; Englar Charlies með
Drew Barrymore, Lucy Liu og
Cameron Diaz fengu myljandi góða
aðsókn á meðan austurríska goðið
sat eftir með sárt ennið, forsmáður
af sínum fyrri aðdáendum. Englar
Charlies vitna kannski um breytta
tíma í hasarmyndunum, gamlir
Þrír
englar
harðhausar kveðja (Stallone í Get
Carter dó við komuna í bíóin vestra
fyrir skemmstu rétt eins og Arn-
old) en ný andlit taka við eins og
Keanu Reeves og svo þessar fínu
stelpur, englarnir hans Kalla.
Formúlan hefur hins vegar ekk-
ert breyst. Charlie’s Angels er
svona delluverk sem aldrei verða
til nema í Hollywood. Þrjár ungar
konur eru sérfræðingar á sviði
njósna og bardagaíþrótta sem
vinna fyrir dularfulla persónu er
heitir Kalli og er aðeins rödd í
hátalara (hann sést aldrei). Hann
útdeilir verkefnum til þeirra og í
þetta skiptið eiga þær að bjarga
undrabarni og milljónamæringi úr
höndum mannræningja, ég held
hreinlega svo heimurinn farist
ekki.
Söguþráðurinn er sumsé svona
vitleysa sem James Bond er vanur
að leysa á milli hanastéla en
skemmtigildið felst ekki í því eink-
anlega heldur aðalpersónunum
þremur. Það er að vísu í rauninni
ekkert sem skilur þær að, þær
gætu auðveldlega verið ein og
sama persónan, en þær bjóða svo
sannarlega upp á nýbreytni. Barry-
more (sem einnig er framleiðandi
myndarinnar) er blondína sem
kann að sparka frá sér. Cameron
Diaz er önnur blondína sem kann
að brosa breitt. Lucy Liu er sú
þriðja og sker sig ekki að neinu
leyti úr nema hún er Asíubúi. Bill
Murray er svo fjórða stelpan í
partíinu, tengiliðurinn við Charlie,
alltaf jafn skemmtilega á skjön við
umhverfi sitt.
Helsti kosturinn við myndina er
sá að hún tekur sig ekki of hátíð-
lega heldur gerir grín að sjálfri sér
og viðfangsefninu og formúlumynd-
unum sem hún tilheyrir. Hún byrj-
ar eins og „Mission: Impossible" og
endar eins og Bond-mynd. Hasar-
atriðin eru ágætlega útfærð af leik-
stjóra sem vill láta kalla sig McG
og myndin bíður upp á stundar-
afþreyingu sem virkar ágætlega á
meðan á henni stendur, en púff, er
svo horfin á 60 sekúndum.
Arnaldur Indriðason
Nýjar plötur
• ÚT er komin geislaplata með úr-
vali af efnisskrám Vínartónleika
Sinfóníuhljómsveitar Islands. Peter
Guth leiðir hljómsveitina og Ulrike
Steinsky syngur nokkur Vínarlög.
í fréttatilkynningu segir: „Flest
þekktustu og vinsælustu Vínarlögin
er að finna á þessum geisladiski, m.a.
Dónárvalsinn, Keisaravalsinn, Rad-
etzky-marsinn og Þrumur og elding-
ar svo eitthvað sé nefnt, alls sextán
lög.
Nú eru liðnir tæpir þrír áratugir
frá því að Sinfóníuhljómsveit íslands
hélt sína fyrstu Vínartónleika en það
var árið 1972. Næstu Vínartónleikar
voru ekki haldnir fyrr en níu árum
síðar, árið 1981 og þeir næstu
1983. Frá þeirri stundu var ákveð-
ið að halda Vínartónleika á hverjum
vetri og var tónleikunum settur fast-
ur staður í dagskrá hljómsveitarinn-
ar fljótlega eftir áramót og ennfrem-
ur var ákveðið að gera ráð fyrir
endurtekningu tónleikanna.
Nú er svo komið að húsfyllir er á
Vínartónleikana á hverjum vetri og
frá árinu 1990 hefur þessi ljúfa tón-
list dregið áheyrendur að og fyllt
sæti Háskólabíós á tvenna og jafnvel
þrenna tónleika hverju sinni. Hljóðr-
itin á geisladiskinum eru birt með
góðfúslegu leyti Ríkisútvarpsins og
er hljóðupptaka í höndum tækni-
rekstrardeildar Ríkisútvarpsins en
tónmeistari er Bjarni Rúnar Bjarna-
son. Útiitshönnun annaðist Sigurður
Sveinn Halldórsson en útgefandi er
Polarfonia Classics ehf.
Rýmum fyrir nýjum vörum
Bjóðum eldri gerðir
á gjafverði!
Veiöistangir
Veiöikassar
Leikföng
Dúkkur
Bílar
Litabækur
Gervijólatré
Fjöltengi - gott verð!
Hérna færðu
ódýra jólagjöf
I. Guðmundsson ehf.
Vatnagörðum 26-104 Reykjavík
Sími 533 1991