Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sérstaðan
í hættu
Hins vegar má alls ekki bera sérstöðu-
stefnuna fyrir borð þarsem það er meðal
/
annars hennar vegna, sem sérstaða Is-
lendinga erjafn mikil ograun bervitni.
Eftir Karl
Blöndal
Hin íslenska sér-
staða hefur löng-
um verið sérstakt
útspil er tryggja
skal stöðu Islands
í hinum harða heimi. Oft og tíð-
um hefur það verið þungur róð-
ur að sannfæra útlendinga, sem
aðeins vilja hugsa um sjálfa sig,
um þessa sérstöðu, en þó hafa
fulltrúar landsins verið gletti-
lega iagnir við að ná sínu fram í
krafti sérstöðunnar.
Frá upphafi lýðveldistímans
og allt til loka kalda stríðsins
áttu íslenskir ráðamenn sérdeil-
is auðvelt með að knýja fram
vilja sinn í krafti sérstöðunnar
og skipti þar ekki litlu máli
hversu mikilvægur hlekkur
landið var í varnarkeðjunni
gegn heimsveldi hins illa. Þar
var á ferðinni sérstaða, sem
VKIHORE gagn var að
oggerðiland-
ið einstakt.
Síðan hefur
hins vegar
syrt í kokkálinn. Sérstöðunni
fylgir ekki lengur sama vog-
stangaraflið og áður, þegar ís-
lendingar gátu til dæmis fengið
afgreidd lán, sem engum öðrum
stóðu til boða eingöngu vegna
þess að hér eru menn engum
líkir.
Nú þarf að hafa meira fyrir
hlutunum, enda bæði gömul
sannindi og ný að nýir tímar
kalla á nýjar aðferðir og siði.
Breytt staða á hins vegar ekki
að verða til þess að við leggjum
árar í bát, heldur virka sem
vítamínsprauta - bæði ögrandi
og eggjandi krafa um að leggja
harðar að sér í Ieit að frumleg-
um og um leið sannfærandi
lausnum til að geta haldið þeirri
sérstöðu að reka okkar mál í
krafti sérstöðu.
Það er augljóst þegar litið er
yfir umræðuna undanfarin miss-
eri að ákveðinn vandræðagang-
ur er ríkjandi hvað sérstöðu-
stefnunni viðvíkur. Það hefði til
dæmis verið stjórnmálamönnum
fyrri tíma metnaðarmál að tak-
ast á við jafn vandasamt verk-
efni og að komast inn í Evrópu-
sambandið án þess að þurfa að
gefa eftir sérstöðu íslendinga í
fiskveiðimálum. Á fáum sviðum
höfum við jafn skýra sérstöðu
og sú staðreynd að ríki Evrópu-
sambandsins hafa sameiginlega
fískveiðistefnu, sem við gætum
haft sérstöðu gagnvart, ætti
fremur að vera ákefðinni sem
olía á eld en deyfilyf gagnvart
doða. Gráuppiagt væri að nota
sérstöðu íslands í sjávar-
útvegsmálum sem prófstein á
stöðu okkar í heimi hnattvæð-
ingar og póstmódernisma þar
sem ekkert er sem sýnist og allt
er mögulegt. Ber því að harma
það kjarkleysi að ráðast ekki til
innrásar í Evrópusambandið.
Ekki eru íslenskir ráðamenn
þó dauðir úr öllum æðum. Sér-
stöðustefnan lifir góðu lífi í um-
hverfismálum. Um nokkurt
skeið höfum við barist fyrir því
að lítil hagkerfi fái undanþágu
til stórkostlegrar aukningar í
mengun og er það rökstutt með
því að hér á landi sé hægt að
stunda ýmsan iðnað með orku,
sem ekki mengar, á meðan ýms-
ir aðrir á hnattkúlunni þurfi að
framleiða rafmagn með brúnkol-
um, gasi, olíu og öðrum álíka
óþverra. Mengunin frá orku-
frekum iðnaði sé því tvöföld þar
sem endurnýjanlegir orkugjafar
á borð við vatnsföll séu ekki til
staðar. Málflutningur okkar i
þessum málum hefur slíka sér-
stöðu að talað er um íslenska
ákvæðið. Hér er á ferðinni kjör-
ið sérstöðumál, sem við höfum
staðið á fastar en fótunum.
Við höfum hins vegar ekki
haft erindi sem erfiði. Ekki var
tekið tillit til hinnar íslensku
sérstöðu á loftslagsráðstefnunni
i Kyoto og höfum við því ekki
enn skrifað undir þær ákvarð-
anir, sem þar voru teknar um að
draga úr útblæstri hinna ýmsu
eiturefna út í lofthjúpinn. Bar-
áttan hefur hins vegar haldið
áfram og færðist í hana aukinn
kraftur á loftslagsráðstefnunni,
sem nýlokið er í Haag í Hol-
landi. Þar var reyndar hver
höndin upp á móti annarri, en
ekki tókst að nýta glundroðann
til að lauma hinu íslenska sér-
ákvæði í gegn.
Hins vegar beitti Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra
þar ákaflega nýstárlegum áróð-
ursaðferðum. Þegar hún kom
heim frá Hollandi fullyrti hún
kinnroðalaust að hún hefði rætt
við ýmis umhverfisverndar-
samtök, sem þarna áttu fulltrúa,
og hefði áherslum Islendinga
verið vel tekið.
Daginn eftir sté fram Árni
Finnsson, framkvæmdastjóri
Náttúruverndarsamtaka Is-
lands, og sagði þessa fullyrð-
ingu ekki standast.
Siv var síðan spurð um þenn-
an stuðning á Alþingi og neydd-
ist þá til að afhjúpa slóttuga og
klóka aðferð sína til að koma
sjónarmiðum íslendinga á fram-
færi og vinna þeim brautar-
gengi.
„Þá býst ég við því að
háttvirtur þingmaður [sé að
vitna] í viðtal [á sunnudag] í
Ríkissjónvarpinu þar sem ég
sagði að ég hefði hitt fólk frá
umhverfisverndarsamtökum
sem að ég hafði spjallað við,“
sagði hún. ,,[Þ]au voru ekki for-
svarsmenn neinna samtaka. En
þau voru þarna í einkennisbún-
ingum að dreifa bæklingum og
[ég] átti við þau ágætt samtal
og þau vilja leggja mjög mikla
áherslu á nýtingu endunýja-
nlegra orkugjafa eins og við er-
um að bjóða upp á hér.“
Siv brá sem sé á það ráð i
Hollandi að biðla til grasrótar-
innar. Meðan allt lék í lyndi og
sérstöðustefnan var nánast
óbrigðul var ávallt leitað til
æðstu ráðamanna þeirra ríkja,
sem knýja þurfti til samstarfs -
utanríkisráðherra, forsætis-
ráðherra eða forseta. Nú þarf
nýja siði og það er ánægjulegt
að sjá að íslenskir stjórnmála-
menn deyja ekki ráðalausir. Ef
topparnir láta ekki segjast er
byrjað neðst í stiganum og síð-
an er að vinna sig upp - til
dæmis mætti ræða við dyra-
verði banka um lán og landa-
mæraverði um viðskiptasamn-
inga. Hins vegar má alls ekki
bera sérstöðustefnuna fyrir
borð þar sem það er meðal ann-
ars hennar vegna, sem sérstaða
íslendinga er jafn mikil og raun
ber vitni.
Foreldrar eru líka fólk
BÆKUR
Minningabók
TAKK, MAMMA MÍN
Eftir Þorstein J. Vilhjálmsson.
Prentun Gutenberg hf. Hönnun
Snæbjörn Arngrímsson. títgefandi
höfundur. 70 bls.
„ÁSTIN er tíminn sem það tekur
að lifa“ yrkir Þorsteinn Joð til móður
sinnar, Ingibjargar Þorsteinsdóttur, í
þessari persónulegu minningabók um
móður sína. Takk, mamma mín er tit-
ill bókarinnar og felst í þessum orðum
endalaust þakklæti sonarins til móður
sinnar, þakklæti íyrir að hafa gefið
honum lífið, kennt honum að elska,
búið hann út fyrir lífsbaráttuna, með
þeim aðferðum sem hún kunni og
henni voru tiltækar. Þorsteinn rekur
söguna um uppvöxt sinn og tvíbura-
systur sinnar í skjóh einstæðrar móð-
ur á mjög sérstakan hátt; brot úr
samtölum á dánarbeði móðurinnar,
myndir úr fjölskyldu-
albúmi, bréf á milli
fjölskyldumeðlima, við-
tal við vinkonu móður-
innar, uppskrift að upp-
áhaldskökunni, innihald
handtösku móðurinnar
að henni látinni.
Lífshlaup Ingibjarg-
ar Þorsteinsdóttur er
ekki viðfang þessarar
bókar en verður engu að
síður lesandanum hug-
stætt, brotin eru hlaðin
sársauka, erfiðleikum,
upp er dregin mynd af
konu sem elskaði bömin
sín en ástin var þrúguð
af þeim alvarlega sjúk-
dómi áfengissýkinni. Að lokum var
það krabbamein í lungum sem lagði
Ingibjörgu að velli 63 ára að aldri.
Vissulega má velta íyrir sér til-
gangi með útgáfu slfla-ar bókar. Hve-
nær verður saga svo persónuleg að
hún á ekki erindi við aðra? Hvemig
verður svo persónuleg saga gædd vís-
unum útfyrir sinn
þrönga stakk að aðrir
megi hafa af henni eitt-
hvert gagn. Styrkur
bókarinnar og réttlæt-
ing fyrir útgáfu hennar
felst hiklaust í þeim
kjama hennar sem er
fyrirgefningin. Skiln-
ingur hins fullþroska
manns á kjörum móður
sinnar sem manneskju,
skilningur sem ristir
nægilega djúpt til þess
að geta fyrirgefið henni
misgjörðir og skilið að
þær voru henni ekki
sjálfráðar, gleðin yfir að
minnast þeiiTa við-
burða í uppvextinum sem vom ham-
ingjuríkir og þakklætið fyrir að hafa
fengið það í uppeldinu sem mestu
skiptir í lífi sérhvers manns, hæfileik-
ann til að taka því sem að höndum ber
af æðruleysi og skilningi á þeirri stað-
reynd að foreldrar em líka fólk.
Hávar Sigurjónsson
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
• ÚT er komið 11. bindi af Borg-
fírskum æviskrám, og hefur að
geyma stuttorðar æviskrár íbúa
Borgarfjarðarhéraðs frá upphafi
átjándu aldar og til þessa tíma.
Upphafsmenn og fyrstu höfundar
æviskránna vom þrír mætir fræði-
menn, borgfirskrar ættar, Aðal-
steinn Halldórsson, Ari Gislason og
Guðmundur Rlugason. Þeir em nú
allir látnir og stendur Sögufélagið og
borgfirsk ættfræði í stórri þakkar-
skuld við þá fyrir mikið og óeigin-
gjamt starf. Fyrir nokkmm ámm
tók dr. Þuríður J. Kristjánsddttir
fyrrv. prófessorvið Kennaraháskóla
Islands við ritstjóm verksins og hef-
ur jafnframt unnið að ritun æviskráa
ásamt Sveinbjörgu Guðmundsdótt-
ur, er tók við verki föður síns, Guð-
mundar Illugasonar, er hann féll frá.
Gert er ráð fyrir að með næsta
bindi verði hægt að ljúka útgáfu meg-
inmáls ritsins, en síðan er þess að
vænta að gefið verði út viðbótarbindi
með viðbótum og leiðréttingum.
I æviskránum er að finna miklar
upplýsingar um ættir og æviferil
þess fólks sem lifað hefur og starfað í
héraðinu og þar er um heimildir að
ræða sem á ókomnum áram munu
gagnast öllum sem fást við ættfræði
og gersónusögu Borgfirðinga.
Utgefandi er Sögufélag Borgar-
fjarðar.
• ÚT er komin að nýju skáldsagan
Hvunndagshetjan eftir AuðiHar-
í fréttatilkynn-
ingu segir: „Eftir
tvo áratugi er
loksins endurút-
gefin þessi ber-
orða, skarp-
skyggna og
bráðfyndna saga
af hetjunni sem
fann þrjár óbrigð-
ular aðferðir til
að eignast óskil-
getin börn. Bókinni var aldrei ætlað
að koma út aftur, heldur átti hún að
vera bam síns tíma. Samt kemur les-
endum samtímans fátt á óvart í þess-
ari sögu. Enn era til nákvæmar for-
skriftir um það hvemig konur eigi að
haga lífi sínu og enn em til konur
sem ákveða að virða þær ekki.“
Útgefandi er Forlagið. Kápu
hannaði Margrét E. Laxness. Bókin
erprentuð hjá Norhaven a/s í Dan-
mörku oger303 blaðsíður. Leiðbein-
andi verð er 1.590 krónur.
alds.
Auður
Haralds
• ÚT er komin bókin Heilabrot og
þrautir en í henni er að finna afar
fjölbreytta hugarleikfimi fyrir alla
aldurshópa.
Bókin skiptist í þrjá hluta: Fyrst
koma léttar og þroskandi þrautir
fyrir böm, næst em spumingar af
öllum þyngdargráðum, allt frá full-
yrðingum sem svara má játandi eða
neitandi til þyngri landafræði- og
Nýjar bækur
söguspuminga og að lokum em svo í
þriðja hlutanum reikningsdæmi sem
krefjast töluverðra heilabrota.
Hér birtast heilabrot og þrautir
sem þjálfa hugann og em skemmti-
leg dægradvöl. Þetta er bók sem
hentar allri fjölskyldunni og hér má
finna þrautir við allra hæfi.
Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bók-
in er255 bls., prentuð hjá Odda hf.
Efnissöfnun önnuðust Werner Niel-
sen, Sigurður Helgason, AxelAmm-
endrup og Carl-Otto Johansen en
Jörgen Lövgret, Flemming Aabech,
Ole Werner og Arne Hansen mynd-
skreyttu. Guðni Kolbeinsson þýddi
ogstaðfærði. Björg Vilhjálmsdóttir
hannaði útlit ogkápu. Leiðbeinandi
verð bókarinnar er 2.980 krón ur.
• ÚT er komin bókin Morguiíverð-
urá Tiffany’s eftir Truman Capote.
Atli Magnússon þýddi.
í þessu munúðarfulla og trega-
blandna snilldarverki leiddi Traman
Capote ungfrú Holly Golighly fram á
sjónarsviðið, en nafn hennar er fyrir
lögnu orðið að hugtaki í bandarísku
þjóðlífi og hluti af hinu bókmennta-
lega landslagi. Holly er viss um að
innan um demantana og krókódfla-
skinnið í verslunum Tiffany’s sé
óhugsandi að nokkuð slæmt geti
komið fyrir! Lífskvöl hennar, orð-
heppni og barnslegt sakleysi heillar
sérhvern lesanda, eins og verið hefur
frá því er sagan kom fyrst út árið
1968.
Hér er ennfremur að finna þrjár
af þekktustu smásögum Tramans
Capote, en þær em „Hús blómanna“,
„Demantsgítar" og ,Jólaminning“.
Útgefandi er Skjaldborg ehf. Bók-
in er 121 bls. Verð: 2.980 krónur.
• ÚT er komin bamabókin Lóma,
mér er alveg sama þó einhver sé að
hlæja að mér eftir Guðrúnu
Ásmundsdóttur
og myndskreyt-
ingum eftir Rúnu
Gísladóttur.
í frétt frá út-
gefanda segir að
söguhetjan Lóma
sé lítil tröllastelpa
sem er komin til
Reykjavíkur til að
læra að lesa því
það kann engin í
Hrollaugsdal. Lóma kemur í fylgd
mömmu sinnar og kýrinnar Jám-
gerðar en vandinn er sá að bannað er
að vera með kýr í Breiðholtinu.
Krökkunum í skólanum finnst Lóma
mjög skemmtileg en þau geta ekki
stillt sig um að stríða henni.
Höfundurinn Guðrún Ásmunds-
dóttir er þjóðkunn leikkona. Hún
hefur samið leikrit fyrir böm og full-
orðna og Möguleikhúsið sýnir nú
leikritið um Lómu tröllastelpu. Þetta
er fyrsta barnabók höfundar.
Útgefandi er Guðrún Asmunds-
dóttir og er bókin 128 bls.
Guðrún
Ásmundsdóttir
• ÚT er komin bókin Seiður
Grænlands, skráð af Reyni
Traustasyni.
Bókin ljallar um líf og starf sex
Islendinga sem búsettir em á
Grænlandi.
Á slóðum víkinga í Eystribyggð á
Suður-Grænlandi búa fóstbræðurn-
ir Helgi Jónasson verkstjóri og
ferðafrömuður í Narsaq og Stefán
Hrafn Magnússon hreindýrabóndi í
Isortoq. Helgi rekur gistiheimili
þar sem áður var refabú.
Stefán Hrafn fetaði slóð víking-
anna og braut land í óbyggðum.
Hann rekur nú hreindýrabú og nýt-
ir hjörð fimm þúsund hreindýra.
Kristjana Guðmundsdóttir Motz-
feldt er eiginkona Jonathans Motz-
feldt, þjóðhöfðingja Grænlendinga.
Hún hefur um margra ára skeið
stundað gróðurrannsóknir.
Gunnar Bragi Guðniundsson býr
í einnig í Nuuk. Hann er forstjóri
eins stærsta sjávarútvegsfyrirtækis
Grænlands, Nuka A/S.
Halldóra Grétarsdóttir hjúkrun-
arfræðingur er deildarstjóri á
Dronning Ingrids Hospitale í Nuuk.
Sigurður Pétursson fyrrverandi
togaraskipstjóri býr við framstæð
kjör í þorpinu Kuummiit í sveitarfé-
laginu Ammassalik á austurströnd
Grænlands. Hann rær plastbáti sin-
um innan um borgarísjaka og veiðir
grálúðu á línu.
Útgefandi er íslenska bókaútgáf-
an. Bókin er 240 bls., oghana prýða
fjöldi ljósmynda. Leiðbeinandi verð
4.380 krónur.
• ÚT er komin bókin Upp-
eldishandbókin - frá fæðingu til
unglingsára.
I fréttatilkynningu segir: „Bókin
fjallar um allt sem viðkemur upp-
eldi barna. Bókin er bandarísk að
upprana, rituð af sérfræðingum á
hverju sviði, en íslenskir læknar og
sálfræðingar hafa staðfært hana og
lagað að íslenskum aðstæðum.
Staðfærsluna önnuðust þeir Gísli
Baldursson heimilislæknir, Ólafur
Ó. Guðmundsson barna- og ungl-
ingageðlæknir og Páll Magnússon
sálfræðingur, sem einnig þýddu
bókina ásamt Helgu Þórarinsdótt-
ur.
I bókinni er bæði fjallað ítarlega
um eðlilegan þroska og atferli
bama og um hvemig bregðast skuli
við ef eitthvað ber út af; hvenær er
raunveruleg ástæða til að hafa
áhyggjur af baminu og hvert ber að
leita með ýmis áhyggjuefni. Helstu
einkenni sálrænna og líkamlegra
kvilla em skýrð og greint frá úr-
ræðum sem unnt er að grípa til.“
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er 402 bls., með ítarlegri at-
riðisorðaskrá, prentuð hjá Odda hf.
Hönnun bókarkápu og útlits á síð-
um annaðist Ragnar Helgi Ólafs-
son. Leiðbeinandi verð er 6.900
krónur.