Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 48

Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓNÁGÚST GUÐBJÖRNSSON + Jón Ágúst Guð- bjömsson fædd- ist á Brekkustig 3, Reykjavík, 7. nóvem- ber 1923. Hann lést á Landspitalanum Fossvogi hinn 19. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans vom Guðbjöra Ás- mundsson, verka- maður í Háteigi, Garðahreppi, f. 27.6. 1 1893, í Sveinskoti, Bessastaðahreppi, d. 19.7.1966. Kona hans var Kristbjörg Jóns- dóttir, f. 11.1. 1898, í Krókshúsum, Rauðasandshreppi. Ilún iést hinn 7.3. 1977. Systkini Jóns Ágústs: Ól- afur, kvæntur Gyðu Einarsdóttur; Ásmundur; Ingibjörg, gift Hans Sigurjónssyni; Sigríður, gift Steini Gunnarssyni og Guðmundur Vest- mann. Kona hans var Jónúia Þóra Helgadóttir, sem nú er látin. Hálf- bróðir þeirra systkina er Ragnar Er ég hugsa til föður míns er mér efst í huga góðvildin og væntum- þykjan sem frá honum streymdi. ■ Hann var einstakur maður og ætíð til staðar, boðinn og búinn að hjálpa og aðstoða þegar við þurftum hans við. Missir okkar allra er því mikill og erfiður. Eftir að faðir minn lagðist inn á sjúkrahús, hinn 9. október síðastlið- inn, kom fljótlega í ljós að veikindi hans voru það alvarleg að hann myndi ekki lifa lengi. Tíminn varð þó styttri en okkur hafði órað fyrir og í hönd fór erfið barátta. Faðir minn sýndi einstakan dug og æðruleysi þó ^svo að hann gerði sér fullkomlega grein fyrir að hverju stefndi - hann bar þjáningu sína í hljóði og var Hafsteinn. Kona hans var Bryndís Baldvins- dóttir, sem nú er látin. Eftirlifandi eigin- kona Jóns Ágústs er Anna Björgúlfsdóttir, f.18.8.1922 í Neskaup- stað. Foreldrar hennar vom Björgúlfur Gunn- laugsson, búfræðingur og verslunarmaður í Neskaupstað, f. 29.11. 1895 á Fljótsdalshér- aði.d. 18.5.1963. Kona hans, Ólöf M. Guð- mundsdóttir frá Vöðlavík, f. 12.4. 1897, d. 30.7.1986. Böm Jóns Ágústs og Önnu em: 1) Margrét Jónsdóttir, tanntæknir, f. 6.9. 1955, gift Hjalta H. Hjalta- syni. Synir þeirra em: Jón Agúst, Einar og Jóhann Markús. 2) Mar- teinn Steinar Jónsson sálfræðing- ur, f. 11.4.1960, kvæntur Úlfhildi S. Úlfarsdóttur. Synir þeirra eru Úlf- ar Ilildingur og Steinar Ágúst. fyrst og fremst umhugað um velferð sinna nánustu. Eftirfarandi Ijóðlínur endurspegla vel þær minningar og tilfinningar sem bærast innra með mér þegar ég hugsa til okkar síðustu stunda: Kveðja þín var klökkva-hlý. Kvíði’ ég harmi’ og trega. Höldumst enn þá hendur í hlýtt og innilega. Gegn um tárin geisli skín, gleðioghuggunvekur. Göfug andans áhrif þín enginnfrámértekur. (Guðfinna Þorsteinsdóttir.) Fráfall ástvinar skapar sáran söknuð og tómarúm í sálinni. Þann tíma sem við fáum notið samvista við Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan ^ v sólarhringinn. % Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Kveikt verður á jólaljósum í tiiufunes- og: Fossvogfskirkjugrarði í upphufi advenlu. sunnudagrinn 3. desember kl. IV.OO. tjiplýNÍngar varðandi lýningru i <íiif'iiii«*s- kirkjugarði er hægt að fá hjá ltaf jtjóniintn■■ ni Lijós i sima 535 1055 og 698 4423. IJpplýsing- ar varðandi lýsingu í Fossvogrskirkjugrarði lijá raflý.singai'lt jóiiiistu Fossvogrskirkjugarðs i sima H«il» 1608. JÓLALJÓS Anna átti son fyrir, Úlfar Her- mannsson, starfsmann Islenskra aðalverktaka, kvæntur Sigrúnu Eyjólfsdóttur. Sonur þeirra er Ey- þór Ámi. Börn Úlfars af fyrra hjónabandi em Helga Sigríður og Olöf Marín. Helga Sigríður er gift Helga Kárasyni. Þeirra böm era Anton Öm og Hilmir Orri. Böm Ólafar Marínar em Halldóra Birta og Egili Gauti. Jón Ágúst nam rafvirkjun við Iðnskólann í Reykjavík og lauk sveinsprófi 1947. Meistari hans var Guðmundur Þorsteinsson. Hann Iauk prófi frá rafmagnsdeild Vél- skóla íslands 1951 og fékk meist- arabréf í rafvirkjun sama ár. Leyfi fyrir lágspennuvirkjun hlaut hann 1951 og háspennuvirkjun 1959. Hann starfaði við rafvirlqun hjá Júhusi Bjömssyni, Lúðvfld Guðmundssyni og Magnúsi Hann- essyni í Volta. Iljá Sogsvirkjun sem verkstjóri frá 1952-54. Sjálfstætt frá 1954-57. Var rafvirki hjá Elli- heimilinu Grund 1957-62. Árið 1962 hóf hann störf hjá heildversl- un Ásbjamar Ólafssonar hf. og starfaði þar 132 ár. Útför Jóns Ágústs fer fram frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ástvini okkar tökum við oft sem sjálfsagðan hlut og erum ekki nægj- anlega vel meðvituð um hversu dýr- mætt það er sem við fáum að njóta. Þegar dauðinn ber að dyrum minn- umst við þess með söknuði að hafa ekki notað tímann betur - að hafa látið hjá líða að segja það sem við vildum hafa sagt/gert. Reynsla okk- ar er þó ekki án ávinnings. Við höf- um öðlast næmari skilning á hvað skiptir máli í lífinu og í hverju sönn lífsgæði er að finna. Það var sannarlega ekki í eðli föð- ur míns að hugsa fyrst um eigin hag, heldur hag annarra. Hann gerði aldrei miklar kröfur sjálfum sér til handa. Hann var sérstaklega nægju- samur og tók því sem að höndum bar með jafnaðargeði og jákvæðu hugarfari. Pabbi sýndi væntum- þykju í verki fremur en að flíka til- finningum sínum, því hann var frek- ar dulur maður. Hann kappkostaði að auðsýna trúfestu og heiðarleika í öllu því sem hann tók sér fyrir hend- ur. Pabbi var sérlega barngóður og laginn við börn. Börnin hændust að honum hvar sem hann fór og hann gaf sér alltaf tíma til þess að sinna þeim og gleðja þau. Nú er komið að leiðarlokum. Guð geymi þig, elsku pabbi minn. Marteinn Steinar Jónsson. Okkur systur langar til að minn- ast afa okkar með fáeinum orðum en hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 19. nóvember af illvíg- um sjúkdómi. Það var erfitt fyrir litlar mann- eskjur að segja Gústi afi og þess- vegna varð úr að við kölluðum hann Dúski afi þegar við voram litlar stelpur. Alltaf var til nóg af Prins pólói í skápnum hjá Dúska afa sem hann gaukaði oft að okkur og stund- um fengum við heilan kassa á af- mælum eða við önnur tækifæri. Eitt sinn lét hann fylgja með í afmælis- korti vísu til okkar systra sem hljóð- ar svona: Góðar stúlkur þekki ég tvær, HelgaogÓlöfheitaþær. Duglegar við nám og störf, stúlkna slíkra er alltaf þörf. Þetta þótti okkur skemmtilegt og afar vænt um og miðinn með vísunni var geymdur á góðum stað. Við heimsóttum afa á sjúkrahúsið laug- ardaginn 18. nóvember og töluðum um það okkar á milli hvað það ríkti mikill friður yfir honum afa, honum virtist líða vel og svaf vært. Morgun- inn eftir sofnaði hann síðan friðsöm- um svefni og hvílir sig núna hjá Guði og englunum. Elsku amma, Mar- grét, Steinar og fjölskyldur, Guð geymi ykkur. Helga, Ólöf og Ijölskyldur. Trúmennska, greiðvikni og heið- arleiki er það sem okkur dettur fyrst í hug þegar við minnumst Jóns Ágústar. Þetta era þeir mannkostir sem ekki era öllum gefnir, en af þeim hafði Jón nóg til að bera. Alveg sama hvert erindið var, alltaf tók Jón því jafn ljúfmannlega og leysti hvers manns vanda. Jón var rafvh'ki að mennt og hóf störf hjá Ásbimi Ólafssyni um mitt ár 1962 við Véla: og Raftækjavöra- verslunina sem Ásbjöm rak. í upp- hafi sá Jón um viðgerðir á ýmiskon- ar raftækjum svo sem sjónvörpum og ísskápum sem fyrirtækið hafði umboð fyrir og seldi. Síðar starfaði Jón í versluninni ásamt Huldu Gunnarsdóttur, sem nú er nýlega látin. Eftir að verslunin hætti rekstri, fékkst Jón við hvaðeina sem til féll hjá heildversluninni. Hann var jafnvígur á alla hluti; sölu- mennsku, lagerstörf og útkeyrslu svo eitthvað sé nefnt en þekktastur var hann þó fyrir innheimtuna, en þar skaraði hann fram úr. Jón var einkar bóngóður enda einstakt ljúf- menni og heiðursmaður. Hann átti vini um allan bæ og allsstaðar þar sem hann átti erindi var honum vel tekið. Jón sá gjarnan um allskonar við- hald á eignum fyrirtækisins. Við þá iðju, jafnt á húsþökum sem á stiga- pöllum, gekk hann oft fram á ystu nöf í orðsins fyllstu merkingu, en Jón kenndi aldrei lofthræðslu og hafa margar sögur spunnist þar um. Stundum mátti sjá hann við vægast sagt glæfralegar aðstæður og varð samstarfsmönnum hans þá oft bragðið. Það var fátt sem Jón hræddist og það sem var eðlilegt fyrir Jóni, þótti okkur hinum oft hættulegt. Jón lét af störfum hjá Ásbirni Ól- afssyni ehf. um mitt árið 1995, og fór þá að sinna áhugamálum sínum af meiri kostgæfni. Jón hafði afar gaman að kveð- ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is skap, og setti ósjaldan saman stökur af ýmsu tilefni. Hann hafði sérstakt viðhorf til lífsins og var hann vel les- inn um dulspeki og andleg málefni ýmisleg. Nú undir það síðasta var auðséð að Jón óttaðist ekki það sem beið hans hinumegin, heldur hlakk- aði hann til að takast á við ný verk- efni. Hann sagði okkur meira að segja frá því að ef Ásbjörn væri búinn að stofna nýtt fyrirtæki á æðri stöðum, sem hann reyndar gerði ráð fyrir, færi hann vonandi að vinna hjá honum aftur! Jón átti gott heimili sem Anna kona hans bjó honum. Hann var sér- stakt snyrtimenni, alltaf vel til fara, nýstrokinn og fínn, fyrirtæki sínu og samstarfsmönnum til sóma. Nú er við kveðjum Jón hinstu kveðju, er okkur efst í huga þakk- læti fyrir gott samstarf og vel unnin störf. Megi góður guð vera Önnu til huggunar, svo og allri fjölskyldunni. Samstarfsfólk, Ásbirni Ólafssyni ehf. Upp vak! I húmsins hvolfskál morgun nýr. Þeimhnettívarp er sérhver stjama flýr Ogsjá! Úr austri björt og hæðin hönd um hátum soldáns vað úr geislum snýr. (Omar Khaýýám.) Þetta ljóð úr Rúbáiyád kemur í hugann þegar við nú kveðjum Jón Ágúst, Gústa eins og við kölluðum hann. Það era liðin 28 ár síðan við kynntumst þeim sæmdarhjónum Gústa og Önnu þegar við hófum bú- skap í Gyðufelli. Gústi var lágvaxinn grannur, snaggaralegur, hjálpsamur maður, vildi alltaf hvers manns vanda leysa. Lítið dæmi um hversu Gústi var snöggur að leysa vanda annarra. Einn íbúinn í stigahúsinu hafði lokað sig úti og Gústi ekki seinn á sér, braut sér leið inn í íbúð- ina en á rangri hæð. Svona var Gústi, fljótur til en svolítið fljótfær. Við kveðjum með söknuði þennan góða mann, það era ekki nema átta mánuðir síðan Gústi og Anna fluttu úr Gyðufelli 6 sem hefði sjálfsagt verið erfitt fyrir Gústa. Hann var búinn að sjá um fjármálin í Gyðufelli 6 megnið af tímanum með miklum sóma. Gústi var mikill karmalögmáls- maður, hafði mikla ánægju af því að ræða þessi mál. Hann er því öragg- lega staddur á góðum stað nú. Kæra Anna, við vottum þér og fjölskyldu þinni okkar dýpstu sam- úð. Hjördís, Sigurður og Ingibjörg, Gyðufelli 6. Mig langar að kveðja Jón Ágúst með örfáum orðum því hann verður mér alltaf minnisstæður frá því að ég bjó í Gyðufellinu. Þetta voru skemmtilegir tímar og íbúamir í stigaganginum sem ein, stór fjöl- skylda. Jón Agúst gaf sér alltaf góð- an tíma til að spjalla við okkur börn- in og maður fann hjartahlýjuna sem hann bjó yfir og ekki skemmdi fyrir þegar hann laumaði að manni gamla góða Prince Pólóinu. Önnu og fjölskyldu Jóns votta ég samúð mína Ragnhildur Sigurðardóttir (Ranka). Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem íjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.