Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 49
MINNINGAR
ASTHILDUR
JÓHANNESDÓTTIR
r
+ Ásthildur Jó-
hannesdóttir
fæddist í Hafnarfirði
16. febrúar 1942.
Hún lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 22. nóvember
síðastliðinn. Hún var
dóttir Guðbjargar
Lilju Einarsdóttur, f.
25. aprfl 1912, frá
Arngeirsstöðum í
Fljótshlíð og Jó-
hannesar Eiðssonar,
f. 31. desember
1912, frá Klungur-
brekku á Skógar-
strönd, síðar sjómanns í Hafnar-
firði. Þau eru bæði látin. Hún átti
tvær systur og þijá bræður.
Systkini hennar eru: Eiður, f. 14.
mars 1932; Jóhann Smári, f. 6.
september 1935; Brynhildur, f.
30. aprfl 1937, d. 11. janúar 2000;
Marfa, f. 20. september 1940, og
Einar Ægir, f. 28. febrúar 1948.
Ásthildur missti ung unnusta
sinn, Valgeir Geirsson, sem lést
af slysförum. Dóttir þeirra er
Rebekka, f. 11. ágúst 1960. Maki
hennar er Björn Árnason, f. 7.
maí 1953. Börn þeirra eru
H
h
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfisdrykkjur
Jakobína Elísabet,
Baldvin og Valgeir.
Ásthildur giftist
Baldvini Jóhanns-
syni árið 1965. Þau
skildu. Dætur
þeirra eru: 1) Mál-
fríður, f. 12. ágúst,
1965, maki hennar
er Þröstur Auðuns-
son, þeirra börn eru
Henný, Kári og
Harpa. 2) Lilja
Björk, f. 22. janúar
1973, maki hennar
er Þórir E. Þóris-
son, barn þeirra er
Svala Birna. Ásthildur giftist
Pétri Sigurðssyni sem lést 15.
desember 1996.
Ásthildur ólst upp í Hafnar-
firði og bjó þar alla sína tíð, nú
síðustu árin á Laufvangi 1. Hún
vann sl. 21 ár á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Þar átti hún góðar stund-
ir með samstarfsfólki og heimil-
ismönnum. Var þar mikil
væntumþykja og hlýja á báða
bóga.
Utför Ásthildar fer fram frá
Víðistaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku mamma. Hvemig eigum við
að geta sætt okkur við að þú sért far-
in frá okkur aðeins 58 ára gömul? Þú
áttir eftir að gera svo margt með
okkur og bamabömunum þínum og
hvemig eigum við að komast af án
þín því alltaf var leitað til þín ef eitt-
hvað var að, hvort sem einhver var
lasinn eða keypt var ný flík þá urðum
við að sýna þér fyrst. Elsku mamma,
þegar Binna systir þín var veik varst
þú þar með opna arma þar til hún
lést í janúar síðastliðinn. Missir þinn
var mikill loksins þegar hún var flutt
í bæinn og þið ætluðuð að hafa það
skemmtilegt saman. Þú stóðst líka
við hlið systur þinnar, hennar Mæju,
sem missti son sinn í júlí síðastliðinn
og hafði miklar áhyggjur af henni.
Þú hafðir líka áhyggjur af Einari
bróður þínum sem kominn er í ör-
ugga höfn norður á Dalvík með þinni
aðstoð. Við viljum trúa því að þér líði
vel, að þú sért ávallt hjá okkur systr-
unum og styrkir okkur í þessari
miklu sorg og haldir verndarhendi
yfír barnabörnunum þínum sem
sakna þín sárt. Þau vilja fá ömmu
aftur því hún var alltaf til í að grín-
ast. Þau eru viss um að það tjúttar
engin amma við viskustykki nema
þú, mamma mín, og mætir flissandi
með asnalega húfu í heita pottinn.
Þvi miður fær yngsta barnabamið
þitt, hún Svala Birna, ekki að kynn-
ast þér, en við verðum duglegar að
sýna henni myndir af ömmu og segja
henni skemmtilegar sögur af þér.
Seinna getum við rifjað upp fallegar
og góðar minningar án þess að gráta.
Það eru margir sem sakna þín
mamma mín, gömlu vinir þínir á
Hrafnistu sem stöðugt spurðu um
þig þó þú værir ekki búin að vera frá
nema í rúma viku. Daginn áður en þú
lést sagðist þú ætla að fara drífa þig í
vinnuna því þar leið þér svo vel með
öllu þessu góða samstarfsfólki og
heimilisfólki. Elsku mamma mín
hvíldu í friði, við vitum að það tóku
margir á móti þér, fólk sem þú sárt
saknaðir.
Þínar dætur,
Rebekka (Bekka), Málfríður
(Malla) og Lilja Björk.
i
««
N
N
Vertu yfir og allt um kring
með eilífðar blessun þinni
sitji guðs englar saman í hring
sænginniyfirminni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Hvíldu í friði, elsku amma mín.
Þín bamabörn.
Henný, Kári og Harpa.
Hún amma er farin frá okkur.
Aldrei hélt ég að við myndum kveðja
hana svona fljótt. Hún átti að verða
gömul og falleg kona og búa á Hrafn-
istu sinni. Svo átti ég að koma í heim-
sókn til hennar og passa upp á að
hún væri vel til fara og með hálsmen
í stíl við eyrnalokkana. Amma var
svo góð og hjartahlý og hún laðaði
það besta fram í fólki, ungum sem
öldnum. Hún var alltaf glöð og stutt í
brosið og dillandi hláturinn. Hún var
ein af mínum bestu vinkonum og við
áttum margar skemmtilegar stundir
saman yfir kaffibolla í eldhúsinu á
Laufvangnum. Þaðan fór maður allt-
af með bros á vör því hún amma sá til
þess með blöndu af kaffisopa og léttu
gríni.
Elsku amma. Mig langar svo að
hringja í þig og koma í heimsókn. Við
sem ætluðum að gera svo mikið sam-
an og að sjálfsögðu hafa það alltaf
notalegt og skemmtilegt. Við ætluð-
um að hafa það svo gott yfir jólin og
kannski vinna saman eina og eina
vakt. Það verður skrítið að sjá þig
ekki á göngunum á Hrafnistu og ég
veit að þar á allt fólkið þitt eftir að
sakna þín mikið því það var alltaf að
spyija um þig og vona að þú kæmir
bráðum aftur í vinnuna, en öllum að
óvörum kemurðu aldrei aftur.
Við mamma, Malla og Lilja stönd-
um þétt saman og reynum að standa
okkur án þín. En það er okkur mikils
virði að finna hvað mörgum þótti
vænt um þig með því að sýna okkur
hlýhug í orði og verki. Við erum viss-
ar um að þú vakir yfir okkur og
vemdar okkur. Svo hittumst við aft-
ur seinna, elsku amma og þá munt
þú taka á móti mér með opinn faðm-
inn. En þangað til að því kemur mun
ég ylja mér við fallegar minningar.
Þín
Jakobína (Bína).
Drottinn vakir, Drottinn vakir
dagaognæturyfirþér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hannþigífaðmisér.
Mir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(S. Kr. Pétursson.)
Elsku amma. Ég á eftir að sakna
þín.
Þinn
Valgeir.
Okkur langar í fáum orðum að
minnast samstarfskonu okkur á
Hrafnistu í Hafnarfirði sem lést 22.
nóvember sl. Það eru ekki nema
rúmar fjórar vikur síðan við áttum
skemmtilegar stundir saman í Prag
og lífið virtist blasa við Ásthildi. Hún
hafði tekið Maríu systur sína með
sér í ferðina þar sem hún hafði misst
son sinn í haust og gerði hún allt til
að létta undir með henni. Alltaf var
Ásthildur reiðubúin að rétta öðrum
hjálparhönd og reyndist hún Einari
bróður sínum stoð og stytta í gegn-
um lífið. Hún var nýbúin að fá lítið
barnabarn sem hún var svo stolt af.
Að sjálfsögðu þurfti að versla svolítið
á barnið eins og sannar ömmur gera.
Hvem hefði órað fyrir því þá, að
svona stutt væri í kallið mikla? En
svona er lífið, enginn veit sína ævi
fyrr en öll er. Ásthildur var hvers
manns hugljúfi. Alltaf var stutt í
brosið, hlýjuna frá henni og kær-
leikinn fann maður langar leiðir. Átti
starfið á Hrafnistu einstaklega vel
við hana en þar vann hún í rúm
tuttugu ár. Þar hlúði hún að eldra
fólkinu með sérstakri umhyggju sem
seint gleymdist. Þar verður hennar
sárt saknað. Þær voru ófáar
skemmtiferðirnar sem við stelpurn-
ar fórum í. I þeim var alltaf gaman.
Var Ásthildur þar hrókur alls fagn-
aðar. Með þessum fáu orðum vottum
við dætrum hennar og fjöldskyldum
þeirra okkar innilegustu samúð. Með
þessum orðum kveðjum við góða
samstarfskonu og vin.
Þó ég sé latinn,
harmið mig ekki með tárum.
Hugsið ekki um dauðann
með harmiogótta.
Égersvonærri
aðhverteittykkartár
snertirmigogkvelur,
þótt látinn mig haldið.
En þegar þið hlæið og syngið
með glöðum hug,
lyftist sál mín upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát
fyrir allt sem lífið gefur,
og ég, þótt látinn sé,
tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu.
(Höf. ók.)
Málmfríður, Margrét M.,
Sæunn, Margrét H., Stella
og Hrönn.
P E R L A N
Sími 562 0200
JLxiiiixxuitxxi;
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GYÐA HELGADÓTTIR,
Víðihlíð, Grindavt'k,
áður til heimilis
í Smáratúni 15, Keflavík,
andaðist sunnudaginn 26. nóvember sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þóra Helgadóttir, Njáll Skarphéðinsson,
Björn Helgason, Þóra Margrét Guðleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÁGÚSTA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Hrísmóum 4,
Garðabæ,
lést á St. Jósepsspítala, Hafnarfirði, þriðju-
daginn 28. nóvember 2000.
Jón Guðmundsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, fóstur-
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN KORT ÓLAFSSON,
Haganesi,
Fljótum,
andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði
sunnudaginn 26. nóvember síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 2. desember kl. 11.00.
Jarðsett verður að Barði í Fljótum.
Guðlaug Márusdóttir,
Jónína Elísabet Jónsdóttir, Þórir Hermannsson,
Stefanía Jónsdóttir,
Kári Jónsson,
Björk Jónsdóttir,
Gyða Jónsdóttir,
Erla Sjöfn Jónsdóttir,
Elsa H. Jónsdóttir,
Ari Már Þorkelsson,
Ómar Ólafsson,
Snorri Evertsson,
Kristín Alfreðsdóttir,
Jón Sigurbjörnsson,
Pétur Stefánsson,
Baldvin Einar Einarsson,
Björn Einarsson,
Ólöf Pálsdóttir,
Rannveig Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUNNAR ÁGÚST HELGASON,
Skólavegi 2,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmanna-
eyjum, laugardaginn 2. desember kl. 14.00.
Ingibjörg Lovísa Guðjónsdóttir,
Páll Guðjón Ágústsson, Sigurbjörg Stefánsdóttir,
Helga Guðbjörg Ágústsdóttir, Guðmundur Snædal Jónsson,
Hrönn Ágústsdóttir, Sigurður Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegi maðurinn minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN FANDAL TORFASON,
Hvítadal,
Dalasýslu,
verður jarðsunginn frá Staðarholtskirkju, Saur-
bæ, laugardaginn 2. desember kl. 14.00.
Elísa Berhelsen,
Torfi Sigurjónsson,
fósturbörn, tengdabörn
og barnabörn.
LOKAÐ
Skrifstofa Orkustofnunar verður lokuð frá kl. 13.00 fimmtudaginn
30. nóvember vegna útfarar HELGU B. SVEINBJÖRNSDÓTTUR.
Orkustofnun.