Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 52

Morgunblaðið - 30.11.2000, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t ’-útför eiginmanns míns, föður okkar, bróður og afa, ÁSMUNDAR STEINARS JÓHANNSSONAR lögfræðings, sem lést fimmtudaginn 23. nóvember, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. desember kl. 13.30. Ólöf Snorradóttir, Ásta Margrét Ásmundsdóttir, Snorri Ásmundsson, Jóhann Ásmundsson, Ásmundur Ásmundsson, Valur Ásmundsson, Margrét Jóhannsdóttir og fjölskyldur. •t t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GESTUR KRISTJÁNSSON, frá Hreðavatni, Snorrabraut 56, er lést sunnudaginn 26. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 4. desember kl. 13.30. Guðríður Helgadóttir, Guðrún H. Gestsdóttir, Viðar Þorsteinsson, Sigurlaug Gestsdóttir, Fanney Gestsdóttir, Páll Pálmason, Kristján Gestsson, Hjördís M. Agnarsdóttir, Heiða Gestsdóttir, Jón Kári Jónsson, barnabörn og langafabörn. J Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, UNA HALLDÓRSDÓTTIR frá ísafirði, Háaleitisbraut 40, Reykjavík, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 5. nóvem- ber, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstu- daginn 1. desember kl. 13:30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Þorgeir Hjörleifsson, Elísabet Þorgeirsdóttir, Halldór Þorgeirsson, Arnaldur Máni Finnsson, Sjöfn Heiða Steinsson, Berglind Halldórsdóttir, Hákon Atli Halldórsson. t Ástkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ÞORGERÐUR NANNA ELÍASDÓTTIR, Bústaðavegi 63, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 1. desember kl. 15.00. Valdimar Karlsson, Guðrún Guðlaugsdóttir, Guðmundur Páll Arnarson, Einar Elías Guðlaugsson, Auður Egilsdóttir, Kristján Guðiaugsson, Marit Wilhelmsen, Guðmunda Elíasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts föður míns, tengdaföður og afa okkar, JÓNS GUÐNASONAR, Hamraborg 14, Kópavogi. Guðmundur Jónsson, Guðiaug M. Jónsdóttir, Tryggvi Rúnar Guðmundsson, Hjördís Hilmarsdóttir, Magðalena Ósk Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Jón Trausti Guðmundsson. ELÍN ÞORVARÐAR- DÓTTIR + Elín Þorvarðar- dóttir fæddist í Reykjavík hinn 16. febrúar 1933. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut 23. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar: Þorvarður H. Guð- jónsson, stýrimaður, f. 4.1. 1898, d. 8.8. 1963, og Halldóra R. Guðjónsdóttir, hús- móðir og listakona, f. 27.5. 1903, d. 25.11. 1966. Systk- ini: Eldri bróðir var Baldur Stefán Þorvarðarson, bif- vélavirki og verslunarmaður, f. 3.9. 1931, d. 21.9. 1991, og tví- burabróðir Elínar var Guðjón Þorvarðarson, endurskoðandi, f. 16.2. 1933, d. 29.7. 1973. Eiginmaður Elínar var Haukur Zophaníasson vélstjóri, f. 4.12. 1933, d. 27.5. 1988. Börn þeirra eru: 1) Hrafnhildur Gyða, fyrr- verandi flugfreyja og bankamað- ur, f. 23.11. 1956, fráskilin. Börn: a) Pétur Örn Rafnsson nemi, f. 3.2. 1980. b) Guðmundur Haukur Rafnsson nemi, f. 25.7.1984. 2) Ragnar Þór, flug- stjóri hjá Cargolux, búsettur í Lúxem- borg, f. 25.12. 19Q0, kona hans er Anna Sigríður Skúladótt- ir húsmóðir, f. 3.3. 1967. Börn: a) Sveinn Stefán, f. 17.1. 1993, b) Hildur Jóna, f. 23.3. 1994. 3) Björn Steinar, f. 23.7. 1962, kona hans er Þórhildur Jónsdóttir leik- skólakennari, f. 19.11. 1965. Börn: a) Erla Rún, f. 7.11. 1989. b) Urður Mist, f. 14.9. 1993. Elín og Haukur bjuggu lengst af í Reykjavík. Elín sat á hús- mæðraskólanum að Staðarfelli, starfaði sem stofustúlka í Reykjavík, vann á sfldarárunum á Siglufirði og eftir að hún hóf búskap starfaði hún hjá KRON við kryddframleiðslu. Mestan hluta ævi sinnar var hún hús- móðir. titför Elínar Þorvarðardóttur fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Til móður minnar. Um heita nótt, ég hugsa heitt, af hafí heim til þín, sem ávallt hefur alúð veitt, ó, elsku mamma mín. Nú kvöld er liðið, orðið hljótt og klukkan orðin þrjú, á öldum ösla hægt og rótt æðarfugla hjú. 0, mamma mín ég sendi þér mitt litla ljúfa ljóð, þú alltaf ert svo góð, svo góð, þú alltaf ert svo góð. Nú dagur skín og döpur nótt, í dvala leggst um sinn, og fuglamergðin, furðu fljótt nú fljúga um himininn. Litlar öldur leika sér við ljósa bátsins kinn og skýjahnoðri bjartur ber mð bláan himininn. 0, mamma mín ég sendi þér mitt litla ljúfa ljóð, þú alltaf ert svo góð, svo góð, þú alltaf ert svo góð. (Gylfi Ægisson.) Bjöm Steinar. Lengst af bjuggu Elín og eigin- maður hennar Haukur í Geitlandinu í Fossvogi góðu búi með bömum sínum. Er Haukur lést aðeins 53ja ára að aldri flutti Elín og bjó ein- sömul eftir það við mikið heilsuleysi. Elín barðist við erfiðan sjúkdóm og gafst ekki upp fyrr en líkaminn lét undan þessum erfiða vágesti sem sjúkdómur hennar var. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut. Hún naut sérstaklegra góðrar um- önnunar lækna og hjúkrunarliðs sem stigu lengra en hægt væri að hugsa sér í umönnun þessarar veiku en jafnframt sterku konu. Hún hélt samt léttleika sínum og æðruleysi þar til yfir lauk. Hennar er sárt saknað af okkur Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. börnunum en jafnframt er erfitt að horfa á móður sína þjást. Nú er hún komin á stað með forfeðrum sínum þar sem enginn þarf að þjást. Faðir Elínar, Þorvarður, bjó þeim systkinum útvalsgott heimili þegar þau voru lítil með Halldóru konu sinni, en hann var stýrimaður og skipstjóri á togurum Kveldúlfs. 01- ust þau upp við fallega muni og gott atlæti. Þau systkinin voru ávallt mjög samrýnd, en Elín var tvíburi við Guðjón bróður sinn. Hann lést aðeins fertugur að aldri. Baldur Stefán, eldri bróðir Elínar, var hennar stoð og stytta í uppeldinu á krökkum hennar. Haukur var ávallt á sjó sem vélstjóri á fraktskipum og togurum uns heilsuleysi batt enda á sjómennskuna og hann fór í land og stundaði ýmsa vinnu þar, svo sem var verkstjóri hjá útg. fél. ísbirnin- um og víðar. Baldur lést aðeins sextugur að aldri. Þannig varð Elín sífellt meira ein en mat mikils vin- skap við skólasystur sínar frá Stað- arfelli í Dölum en þar var lengi hús- mæðraskóli. Elín hafði góða granna í Þangbakkanum er fylgdust vel með henni. Mat hún mikils góðvild móðursystur sinnar, hennar Þór- unnar, og dóttur hennar Ernu. Við börnin hennar reyndum eins og við gátum að vera henni góð og innan handar en fjarlægðir og stundum veikindi Hrafnhildar gerðu erfitt um vik. Amma bamanna okkar reyndist þeim góð amma eftir því sem hún gat og var alltaf að gauka að þeim annað hvort gjöfum eða smá nammi og veit ég að þau sakna hennar sárt. „Fenna ár hlíðum rúnum ristum reynast við frosin kljúfa tár.“ Ragnar Hauksson. Elskuleg tengdamóðir mín lést á fögru stjörnubjörtu kvöldi, allt var kyrrt og hljótt, hvíldin loks fengin eftir langa sjúkdómsgöngu. Friður frá okkar veröld og ný heimkynni, okkar skilningi ofvaxin, könnuð. El- ín var fædd í Reykjavík og uppalin á Brekkustíg 5, í vesturbænum, af foreldrum sínum, sjómanni og hús- móður og listakonu. Hún átti tví- burabróður, Guðjón og eldri bróður, Baldur, sem alla tíð voru henni afar kærir, en þeir létust báðir langt um aldur fram og tók það afar mikið á Elínu. Á uppvaxtai-árum sínum starfaði hún sem stofustúlka og var vel metin og fékk annað starf við að hugsa um barn í framhaldi af því. Elín sótti nám við húsmæðraskóla, vann á síldarárunum á Siglufirði, og kynntist síðar eiginmanni sínum Hauki og stofnaði með honum heim- ili og eignuðust þau þrjú börn. Elín var sjómannskona, og þurfti því, oft svo mánuðum skipti, að stjórna börnum og búi. Þau Elín og Hauk- ur, áttu fallegt heimili í Fossvogi við hlið bræðra Elínar. Samgangur milli heimilanna var mikill og marg- ar innilegar minningar frá þeim tíma í fjölskyldunni. Elín var al- þýðukona og reyndi aldrei að vera neitt annað. Henni var mikið í mun að hafa snyrtilegt í kring um sig, og má með sanni segja að það hafi einkennt allt í hennar fari. Hún var hreinskilin, hjartahlý og gjafmild. Þessi blanda fór stundum ekki alltaf saman, svo öllum líkaði, en oft eru hlutirnir betur séðir að ígrund- uðu máli, og þannig var það með okkur tvær. Síðustu misserin áttum við margar góðar samræður, oftar í síma, því henni þótti betra að vera ein þegar hún var ekki vel hress, en síðustu dagana hennar sat ég hjá henni og við fórum oft yfir farinn veg. Hvað betur mætti fara, hvað okk- ur hefði farið á milli í gegnum tíðina og það var ljúft og gott að minnast þessarra hluta saman.Við náðum því sem hver tengdadóttir getur best óskað sér, að verða vinur tengda- móður sinnar. Hún var mér afar góð og jafnvel eins veik og hún var orð- in, þá sendi hún okkur mæðgum gjafir á afmælunum okkar í nóvem- ber. Ella amma passaði nefnilega alltaf upp á að allir fengju sinn pakka á jólum og afmælum, og þess á milli átti hún smágjafir til fyrir barnabörnin ef þau litu inn, eða voru lasin. Og ráðstafanir jafnvel gerðar fram í tímann. Síðustu tvenn jól átti hún með okkur fjölskyldunni, og nutum við öll hverrar stundar. Svo bauð hún að venju upp á hangikjöt, með kartöflumús og strákartöflum á jóladag, að ógleymdu malti og app- elsíni sem amma blandaði betur en mamma. Það var eitt mesta til- hlökkunarefni ömmustelpnanna að fara í sitt finasta púss og fara til Ellu ömmu á jóladag, núna þeirra fegursta minnig um ömmu. Eg varð þess aðnjótandi að sitja hjá henni á kveðjustund. Það er mér afar dýr- mætt. Ég kvaddi þá kjarnakonu, sem lagði áherslu á stundvísi og áreiðanleika, var hlý, skemmtileg, uppöi-vandi og gjafmild og gaf mér hluta af sjálfri sér, sem núna er fjöl- skyldan mín. Takk fyrir þetta allt og miklu meira. Þín Þórhildur. Elsku Ella amma, takk fyrir allt. Kristur minn, ég kalla á þig komdu að rúmi mínu. Gakktu hér inn og geymdu mig Guð í faðmi þínum. Þínar Erla Rún og Urður Mist. í dag verður kveðjuathöfn um mágkonu okkar Elínu Þoi-varðar- dóttur. Viljum við þakka henni sam- fylgdina gegnum árin. Hún var gift bróður okkar Hauki Zóphaníassyni sem lést 27. maí 1988. í huga okkar var hún ávallt Ella mágkona því þau góðu tengsl sem mynduðust milli okkar meðan þau bjuggu saman héldu áfram eftir fráfall hans. Þó það yrðu færri stundir sem við áttum saman voru þær góðar og hlaðnar vináttu. Á þeim fjórum árum sem bróðir okkar Haukur var að berjast við sinn sjúkdóm stóð hún við hlið hans og studdi hann með hlýju sinni og kærleik. Elín var föst fyrir og hafði sínar ákveðnu skoðanir sem hún lét ekki hagga hvað sem öðrum fannst en hún var vinur vina sinna. Hún átti lengst af við veikindi að stríða á sinni lífsleið. Núna þegar Ella kveð- ur eftir stutta en erfiða sjúkrahús- legu, hugsum við til barna þeirra og biðjum Guð að gefa þeim þann styrk sem þau þarfnast með æðruleysi foreldra þeirra að leiðarljósi. Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð þeirra mál ei talar tunga tárin eru beggja orð. (Ólína Andrésdóttir.) Birna og Kristín Zóphaníasdætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.