Morgunblaðið - 30.11.2000, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
STEINUNN SVALA
, INGVADÓTTIR
+ Steinunn Svala
Ingvadóttir
fæddist 9. mars 1936.
Hún lést 7. nóvember
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Grindavíkur-
kirkju 18. nóvember.
Elsku amma, með ör-
fáum orðum langar okk-
ur að minnast þín og alls
þess góða sem þú gafst
^okkur.
Veikindi þín voru þér
þungbær og mjög erfitt
fyrir ömmuböm að sætt-
ast á að amma, sem alltaf var svo glað-
vær og hlý, gæti ekki lengur notið lífs-
ins af sömu gleði og fyrr. Það er erfitt
að setja sig í spor þess sem ávallt var
hrókur alls fagnaðar en getur ekki
lengur tjáð sig og hreyft án aðstoðar
sökum veikinda. En amma, þú hélst
alltaf sömu reisn og baráttuþrek þitt
var undravert fram á síðasta dag.
Fyrir ömmubörn var ómetanlegt
að hafa þig alltaf til staðar þrátt fyrir
að búa ekki nálægt. Þú varst viðstödd
allar stórar stundir í lífi
okkar og varst alltaf
stoltust þegar við áttum
gleðistundir og á sama
hátt sýndir þú samhug
og hluttekningu á erfið-
um tímum. Síðast í maí
lagðir þú á þig ferðalag
vestur í Súðavík til að
vera viðstödd útskrift
Steinunnar frá Mennta-
skólanum á ísafirði. Þá
var líka gaman að fá þig
í heimsókn í Góuholt.
Við vitum að þetta
ferðalag var þér eins
mikils virði og okkur og
að af því gat aðeins orðið vegna þraut-
seigju ykkar afa.
Margar ánægjulegar stundir átt-
um við saman sem gott er að minnast.
Oft var glatt á hjalla þegar við komum
til ömmu og afa í Grindó. Þegar við
vorum lítil var gott að fá að kúra á
milli hjá ömmu og afa og fá alltaf
sama hlýja viðmótið. Þú varst alltaf
tilbúin með góðan mat sem þú varst
svo lagin við að gera. Þú lagðir þig
fram við að láta okkur líða sem best
og hafðir unun af því að snúast í
kringum okkur og gleðja okkur með
gjöfum, stórum og smáum. Þegar við
vorum orðin eldri og komum með
bömin okkar til að gista í Grindó
komstu alltaf og vaktir okkur
snemma dags til að fá langömmu-
bömin fram til að gefa þeim að borða
og leika við þau. Þú varst þeim sama
góða araman og okkur.
Það sem stendui’ upp úr er gleði þín
og glæsileiki. Þú varst alltaf svo falleg
og fín og heimili ykkar afa okkur til
fyrirmyndar. Þú kenndir okkur
margt sem mun reynast okkur gott
veganesti í framtíðinni.
Elsku amma, þú átt stóran stað í
hjarta okkar og með ást þinni gafstu
okkur meira en hægt er að lýsa með
orðum. Eftir þungbær veikindi ertu
nú á góðum stað.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofið rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þásælteraðvitaafþví
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Ingibjörg Sig.)
Elsku amma, Guð geymi þig. Takk
fyrir allt.
Ömmuböm,
Sædís, Steinunn og Kristján.
HELGIÖRN
FREDERIKSEN
+ Helgi Örn
Frederiksen
fæddist í Reykjavík
21. janúar 1971.
Hann lést 5. nóvem-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Digraneskirkju
16. nóvember.
Ég man hvað Helgi
var góður við okkur
krakkana þegar hann
var í sveit heima, jafn-
vel þótt við værum
óþolandi stundum.
Okkur Astu fannst til
dæmis mjög sniðugt þegar vinnu-
mennirnir, Helgi og Siggi, voru í
heita pottinum. Þá fórum við upp í
svefnherbergi og helltum ísköldu
vatni út um gluggann, þannig að
það steyptist yfir þá í pottinum.
Þeim fannst þetta ekki eins
skemmtilegt og okkur, en hafa
sjálfsagt hlegið að því eftir á. Það
var líka mjög skemmtilegt þegar
við „hreyfingin" vorum í pottinum
með Helga. Þá var aðalskemmtun-
in þegar við krakkarn-
ir röðuðum okkur á
bakið á honum á með-
an hann gerði arm-
beygjur í pottinum.
Okkur fannst hann
svo sterkur þegar við
vorum allt upp í fimm
á bakinu á honum.
Ég veit líka hvenær
Gummi bróðir fékk
áhuga á mótorhjólum.
Helgi var nefnilega
eitt sumarið með
krossara í sveitinni.
Gummi kom skæl-
brosandi inn einn dag-
inn og hann Ijómaði þegar hann
sagðist hafa fengið að sitja fyrir
framan Helga á hjólinu. Þetta var
eitt skipti af mörgum um sumarið
sem Helgi leyfði honum að fara
smáhring á hlaðinu, meira þurfti
ekki.
Helgi var líka alltaf eitthvað að
laga eða búa til úti í skemmu. Það
var gaman að fylgjast með honum
búa til minkagildrur sem hann fór
síðan með niður í skurð. Við fórum
AT VIIM IM U -
AUGLÝSINGAR
.4
Austur-Hérað
Umhverfissvið
Byggingafulltrúi
Austur-Hérað er sveitarfélag á austanverðu Fljótsdalshéraði, með
liðlega 2.000 íbúa. Tveir þéttbýliskjarnar eru í sveitarfélaginu, Egils-
staðir og Hallormsstaður. Austur-Hérað er eitt mesta skógræktar-
svæði landsins og hefur að bjóða gott og fagurt umhverfi, góða
og fjölbreytta þjónustu á öllum sviðum og góðar samgöngur. Egils-
staðir eru helsta miðstöð verslunar og opinberrar þjónustu á Austur-
landi. Bærinn er gróðursæll og í örum vexti. Þar er mjög góð
íþróttaaðstaða, hitaveita og flugvöllur með daglegum samgöngum
við Reykjavík.
Byggingafulltrúi er starfsmaður á Umhverfissviði Austur-Héraðs,
en þar starfa nú 5 manns, þ.a. einn í hlutastarfi.
Austur-Hérað auglýsir hér með starf bygginga-
fulltrúa laust til umsóknar. Leitað er að ein-
staklingi með arkitektúr-, verkfræði- eða tækni-
fræðimenntun sem uppfyllir skilyrði 48. og 49.
gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1977.
Verkefni byggingafulltrúa eru eins og þau eru
skilgreind í lögum og byggingarreglugerð, en
auk þess verða honum falin önnur verkefni eftir
því sem aðstæður segja til um og eru á hans
fagsviði.
Starf byggingafulltrúa er laust frá og með 1.
febrúar 2001. Laun samkvæmt samkomulagi.
Austur-Hérað getur verið til aðstoðar með út-
vegun húsnæðis.
Frekari upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri
í síma 471 1166 eða undirritaður í síma 471
1166 eða 863 3682.
Egilsstöðum 27.11. 2000,
Þórhallur Pálsson,
forst.m. umhverfissviðs.
11 I i 6 i I 111
Starfskraftur í
undirfataverslun
"“Óskum eftir starfskrafti í heilsdagsstarf.
Helgarvinna samkvæmt samkomulagi.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í des-
ember.
Skrifleg umsókn, sem tilgreini aldur, menntun
og fyrri störf, sendist til auglýsingadeildar
Morgunblaðsins, merkt: „S — 10381", fyrir
úkl. 17.00 þriðjudaginn 5. desmeber.
ATVIININUHÚSNÆÐI
Sindraskemman
í Borgartúni til leigu
Frá 1. febrúar nk. verður 3000 fm húsnæði
til leigu með lofthæð 5—8 metrar.
Allar nánari upplýsingar veita
Ársalir fasteignamiðlun,
Lágmúla 5, sími 533 4200
e-mail arsalir@arsalir.is
Til leigu
gott 271 fm iðnaðarhúsnæði á götuhæð með
góðum innkeyrsludyrum og góðri aðkomu.
Lofthæð 3,70 metrar. Laust strax.
Upplýsingar á skrifstofu.
Sími 533 4040 Fax 588 8366
Armúla 21
DAN V.S. WnUM, hdl. iögg. fasteignasali.
TIL SÖLU
Til sölu í Ólafsfirði
Til sölu er eignarhluti íslandspósts hf.
í húseigninni:
Strandgata 2, 625 Ólafsfirði.
Eignin skiptist í tvo eignarhluta:
0201 117,5 m2íbúd
0101 203,8 m2 afgreiðsla - skrifstofuhúsnæði
Tilboð óskast í eignarhluta, eða í alla eignina
í einu lagi.
Tilboðum skal skila til:
Fasteignir og bifreiðarekstur íslandspósts hf.,
Stórhöfða 29, 110 Reykjavík,
sími 580 1270, fax 580 1279,
fyrir 18. desember 2000.
Nánari upplýsingar eru gefnar á sama stað.
^^^m~mmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmm
Muggur
Hin þekkta teikning Guðmundar
„Muggs" Thorsteinssonar frá 1916,
„Djákninn á Myrká" (Garún, Garún)
er til sölu (í einkasölu), ef viðunandi
tilboð fæst.
Upplýsingar í síma 552 1030, Oddur.
TILBOÐ/ÚTBOÐ
LANDS SÍMINN
Útboð
Landssími íslands hf. óskar eftirtilboðum í
pappír í símaskrá fyrir árið 2001.
Helstu stærðir eru:
Supercalendered Mechanical (SC) pappír,
700 tonn.
Annar pappír, 21 tonn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Fjármála-
sviðs Landssímans við Austurvöll frá og með
mánudeginum 4. desember2000 milli kl. 9.00
og 15.30.
Landssími íslands hf.
.. ...r.. . . ... . . .
FELAGSSTARF
Jóla- og
aðalfundur
Félags sjálfstæðismanna í Laugarnes-
hverfi verður haldinn á Hótel Esiu í kvöld
30. nóvember kl. 18.30.
Dagskrá:
• Venjuleg aðalfundarstörf.
• Hið rómaða jólahlaðborð Hótel Esju.
• Gestur fundarins verður Guðlaugur
Þór Þórðarson, borgarfulltrúi.
Mætum vel og stundvíslega.
Stjórnin.
mbl.is