Morgunblaðið - 30.11.2000, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
I ríki Stóra bróður
<5? AÐ undanförnu hefur
það verið afþreying
mín, sem þetta skrifar,
að hlusta á prýðilegan
lestur á hljóðsnældum
frá Blindrabókasafninu
á nær hálfrar aldar
gamalli skáldsögu, 1984
eftir George Orwell.
Fyrir þá, sem ekki
þekkja til, er þetta ýkju-
saga um alræðisríkið
eins og höfundurinn sér
það geta þróast frá
háttum Sovétríkjanna
'•éins og þau voru á þeim
tíma, sem sagan var
skrifuð. Sagan var þess
vegna látin gerast í
framtíðinni, 1984.
Sagan er baneitruð ádeila, sem
leiðir fram skýra röksemdafærslu
fyrir því, hvemig það er meginmark-
mið yfirstéttar alræðisríkisins að
halda völdum með þeim ráðum, sem
duga, en láta það ekki henda sig, sem
svo oft hefur gerst í sögunni, að yfir-
stétt hefur orðið að láta völd sín af
hendi. í sögunni em öll meðöl leyfifeg
til að tryggja þetta markmið og þeim
beitt án miskunnar.
I ríki Stóra bróður er traust og
þaulhugsað skipulag á öflum hlutum.
-»•‘Friðarráðuneytið sér um eilífan hem-
að á jöðmm ríkisins tif að tryggja því
sífelldan óvin og sameina með því lýð-
inn. Gnóttarráðuneytið annast það að
halda öllum íbúum rfldsins við hung-
urmörk til að tryggja, að fólk hugsi
helst ekki um neitt annað en það að
lifa af. Kærleiksráðuneytið hefur
hugsanalögregluna á sínum snærum,
handtökur, pyntingar og aflífanir
þeirra, sem ekld em lengur æskilegir
þegnar ríkisins. Það á við um vinnu-
lýðinn, prólana, ef einhver þeirra sýn-
jr þar af sér minnsta sjálfstæði eða
mótþróa. Það á einnig við um flokks-
menn, sem verða blendnir í trúnni.
Það er kallað, að menn séu eimaðir, ef
þeir hverfa þegjandi og sporlaust ein-
hverja nótt. Það er svo verkefni sann-
leiksráðuneytisins að annast hver
sannleikurinn er á hverjum tíma. Sé
maður þannig eimaður, er öllum
skýrslum og skrám breytt þannig, að
sá maður var aldrei til. Og reynist
eitthvað verða eða kjósi flokkurinn að
breyta einhverju, sem ekki rímar við
liðinn tíma, er öllum blöðum, bókum
og skýrslum bóka- og skjalasafna
breytt þannig að hinn nýi sannleikur
er hinn eini rétti og annar hefur aldrei
verið til. Það er m.ö.o. ríkið, sem
ákveður, hvað er sannleikur og hvað
ekki. Þannig er það
orðið ákvörðunarefni
flokksins, að lygin sé
sannleikur, sem öllum
ber að trúa.
Þessa tilbúnu skáld-
söguveröld er einkar
fróðlegt að hugleiða á
okkar tímum, ekki hvað
síst verkefni sannleiks-
ráðuneytisins. SUkt fyr-
irbæri er ekki til í okkar
samfélagi sem formleg
stofnun. En er sann-
leiksráðuneyti ekki
engu að síður að verki?
Hversu margir eru þeir,
sem ekki láta uppskátt
um skoðanir sínar á
ýmsum málum, af því að þeir vita, að
það gæti skaðað þá, ef vitneskjan þar
um kæmist í hendur sannleiksráðu-
neytisins? Yfirleitt fer starfsemi
sannleiksráðuneytisins afarhljótt.
Það er eins og í sögunni 1984. Menn
eru einfaldlega eimaðir. Þannig grun-
1984
Nýlegt dæmi um veldi
sannleiksráðuneytisins,
segir Jón Signrðsson, er
sjónvarpsþáttur Páls
Benediktssonar um
fískveiðistjórn.
ar mig, að búið sé að eima Illuga Jök-
ulsson út úr pistlahöfundarstöðu á rás
2 Ríkisútvarpsins. Hann flutti einatt
hvassapistla, sem sannleiksráðuneyt-
inu voru alls ekki að skapi. Stundum
fór hann að vísu aðeins yfir strik, en
það er gjaldið, sem greiða verður fyr-
ir að fá gagnrýnið og vel ígrundað efni
um málefni samfélagsins í útvarpið.
En hann hjó beittum penna sínum
nærri ráðandi mönnum og því skal
hann hjjóta eimingu.
Þar með er nærri lagi, að sannleiks-
ráðuneytinu hafi tekist endanlega að
dauðhreinsa Ríkisútvarpið af öllu því,
sem gæti angrað sannleiksráðuneyt-
ið. I stað Illuga er kominn vikulegur
tuttugu mínútna hálfkæringskjaft-
háttur Egils Helgasonar, sem sann-
leiksráðuneytinu sýnist greinilega allt
í lagi með, af því að enginn tekur
minnsta mark á því, jafnvel ekki því,
sem þar er sagt bitastætt. Málfar téðs
Egils í þessum þáttum er þar á ofan
ekki boðlegt í útvarpi. Ég tók mig til á
dögunum með teljara í hendi og taldi
allar þær merkingarlausu málhækjur
og hikorð, sem Egill Helgason lét sér
um munn fara í tveimur slíkum
tuttugu mínútna viðtölum. Talin voru
orð eins og héma, ég meina (talið sem
eitt hikorð), sko, þama og fleiri sam-
bærileg. A daginn kom, að þessar
merkingarlausu uppfyllingai- í mál-
fari mannsins vom rösklega 120 í öðr-
um þættinum, en vel yfir 150 í hinum.
Maður, sem býður útvarpshlustend-
um upp á 6-8 slík orð að meðaltali á
hverri mínútu, sem hann talar í út-
varp, á að venja sig af því. Hlustand-
inn saknar gullvægs texta Illuga og
kann þeim sem eimar litlar þakkir.
Undantekningin frá hinu hljóðláta
starfi sannleiksráðuneytisins er þeg-
ar framámaður eins og forsætisráð-
herra tekur sig til og setur opinber-
lega ofan í við fjölmiðla eða segir
Hæstarétti fyrir verkum, kennir hon-
um lögfræði eða helstu hagfræðing-
um landsins hagfræði. Allt hefur
þetta gerst og er greinilega í verk-
sviði sannleiksráðuneytisins. Svipuð
atvik í einkaviðtölum em efalaust
óskráð til að forðast upplýsingalög
skv. nýfengnum frásögnum ráðherr-
ans á fundi sagnfræðinga. Davíð er
svo sem ekki einn um það meðal
stjómmálamanna að sjá hlutina eins
og hann vill að þeir séu. Sannleiks-
ráðuneyti er einmitt afamotadrjúgt
verkfæri til að koma þeirri sýn til al-
mennings og þar með er hún ekki að-
eins rétt, heldur hin eina sanna, rétt
eins og í ríki Stóra bróður.
Nýlegt dæmi um veldi sannleiks-
ráðuneytisins er sjónvarpsþáttur Páls
Benediktssonar um fiskveiðistjóm og
ágæti hennar. Þar sýndi Páll, hversu
trúr og dyggur þjónn hann er í þeim
störfum, sem hann tekur að sér. LÍÚ
kostaði þáttinn og þar var ekki aðeins
öllu til skila haldið, sem kostunar-
aðilinn gat kosið sér, heldur fór Páll í
hvívetna eftir því, sem hann vissi um
viðhorf sannleiksráðuneytisins.
Fingrafor þess vom á endilöngu verk-
inu og vantaði ekkert nema að það
væri skráð sem framleiðandi myndar-
innar. Þegar þessir þættir Páls em
frá getur hann ömgglega gengið að
einhverju starfi, sem er sannleiks-
ráðuneytinu þóknanlegt.
Sagan 1984 eftir George Orwell er
að sönnu fáránleg ýkjusaga, en það er
enn fáránlegra að hluti hennar skuli
vera að gerast í okkar samfélagi núna,
um það bil sem 21. öldin er að byija.
Höfundur er fv. framkvœm dustjóri.
LÍMMIÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða
Skemmuvegi 14,200 Kópcvoai. S. 587 0980. Fq» 557 4243
Skólavörðustíg 21 • sítni 551 4050 •Reykjavík
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Uáuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Nýjung í öldrun-
arþjónustu
Á MORGUN, 1. des-
ember, verða vígðar ör-
yggisíbúðir í Eirarhús-
um við Eir, hjúkranar-
heimili í Grafarvogi.
Öryggisíbúðir þessar
era tilraun til að leysa
að hluta þann vanda
sem steðjar að öldrað-
um og sjúkum. Þær
tengjast hjúkranar-
heimilinu og því geta
þeir sem þar búa leitað
þangað eftir þjónustu
hvemig sem viðrar,
auk þess sem auðvelt
verður að koma við allri
þjónustu við íbúa ör-
yggisíbúðanna. Náðst
hefur samkomulag milli Heilsu-
gæslu Reykjavíkur, Félagsþjónust-
unnar í Reykjavík og Eirar, hjúkr-
unarheimilis um að Eir veiti á þeirra
vegum þá þjónustu sem téðar stofn-
anir bjóða upp á. Þetta samkomulag
á að tryggja skilvirkari og hag-
kvæmari þjónustu en ella væri og
hægt verður að ná sambandi við
vakthafandi hjúkrunarfræðing allan
sólarhringinn.
Öryggisíbúðimar verða 37 að tölu
og er þeim nær öllum
ráðstafað. Ibúar þeirra
hafa aðgang að máltíð-
um á kostnaðarverði,
auk hárgreiðslu, fóta-
aðgerða, sjúkraþjálf-
unar, félagsstarfs og
ýmiss fleira. Þá verður
í Eirarhúsum sambýli
fyrir minnisskerta.
Þetta verður fyrsta
sambýlið af þessum
toga á íslandi sem frá
upphafi er hannað til
að sinna þörfum þeirra
sem minnissjúkir eru.
Um er að ræða hlýlegt
og fallegt umhverfi þar
sem allir búa í sérher-
bergjum en nýta sameiginlega borð-
stofu, setustofu og útigarð, svo
dæmi séu tekin.
Lengi hefur verið ljóst að vandi
þeirra sem eldast fer vaxandi. Sú
þróun heldur áfram næstu þrjátíu
árin og henni verður að mæta á ein-
hvem veg. Tíðkast hefur að einblína
á eina lausn í senn þar sem í raun
þyrfti að huga að fjölþættum lausn-
um ef gæta á hagkvæmni fyrir þjóð-
félagið og þá einstaklinga sem sér-
Sigurður Helgi
Guðmundsson
Umönnunar-
störf í nútíð og
framtíð
í DAG, fimmtudag-
inn 30. nóvember, er
haldin ráðstefna sem
mun fjalla um verð-
mæti umönnunarstarfa
fyrir íslenskt samfélag.
Á undanförnum áram
hefur störfum við um-
önnun fjölgað verulega
og á þeim enn eftir að
fjölga. Mikilvægi þess-
ara starfa er ótvírætt
og hafa allir hag af því
að til þessara starfa
veljist fólk sem hefur
áhuga og löngun til að
sinna slíku starfi. Um-
önnunarstörf nútímans
era fjölbreytt og gef-
andi og hægt er að velja sér
starfsvettvang við ólíkar aðstæður.
I starfi eins og heimaþjónustu
Aldraðir
Heimaþj ónustustarfs-
menn, segir Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir, eru
að vinna merkilegt og
afar mikilvægt starf.
veita starfsmenn öldraðum og fötl-
uðum tækifæri á að búa heima leng-
ur en ella hefði verið hægt.
Sú stefna að aldraðir og fatlaðir
búi sem lengst heima kallar á góða
og sveigjanlega þjónustu. Margii-
aldraðir eru mjög einmana og því af-
ar þakklátir og glaðir þegar heima-
þjónustan kemur og oft hef ég heyrt
að það sé jafnvel eina innlitið þá vik-
una hjá mörgum.
Starfið er oft fjölbreytt. Það getur
falist í samvera, tiltekt og aðstoð við
athafnir daglegs lífs sem geta gert
einstaklinginn færan um að sjá um
sig sjálfur. Misjafnt er hversu oft í
viku þjónustan er veitt en það fer
eftir heilsu hvers og eins. Af þessu
má sjá að samfélagslega eru þessi
störf afar mikilvæg og spara samfé-
laginu mikla fjármuni þar sem hvert
umönnunar- eða dvalarpláss kostar
margfalt meira. Heimaþjónustu-
starfsmenn vinna
merkilegt og afar mik-
ilvægt starf.
Starfsmenn sem
vinna inni á öldranar-
stofnunum öðlast mikla
reynslu þar sem um-
önnun aldraðra er afar
fjölbreytt og jafnframt
krefjandi. Það er stór-
kostlegt að fá tækifæri
til að umgangast aldr-
að, lífsreynt fólk sem
hefur lífsreynslu liðinn-
ar aldar í handraðan-
um. Viskan og þekking-
in sem þannig færist
frá einni kynslóð til
annarrar er ómetanleg.
En það eiga ekki allir aldraðir því
láni að fagna að halda heilsu út æv-
ina og þarfnast meiri umönnunar en
aðrir. Állar starfsstéttir við hjúkran
og umönnun veita því öldraðum lið á
mikilvægu æviskeiði. Við í nefndinni
sem höfum verið að skoða ímynd
öldranarstarfa á undanfömum vik-
um höfum átt því láni að fagna að
fara á milli öldrunarstofnana að hitta
fólk og höfum við séð frábæra starfs-
krafta að störfum og marga sem hafa
gert þessi störf að sínu ævistarfi.
Nú £ sumar hafa laun þess hóps
sem er í Eflingu - stéttarfélagi
hækkað veralega og eiga stofnanir
nú rneiri möguleika á að laða til sín
fólk þar sem launakerfið er sveigjan-
legra til mats á frammistöðu og
hæfni. Þetta er mikilvægur þáttur í
því að það frábæra starfsfólk sem vill
taka að sér erfið umönnunarstörf
ílengist í starfi og að nýir bætist í
hópinn. Að sjálfsögðu væri æskilegt
að laun væra veralega hærri en þar
skortir á vilja ríkisvaldsins eins og
svo oft áður. Mannauður í umönnun-
arstörfum er afar mikilvægur samfé-
lagslega og er það víst að þeir öldr-
uðu kunna vel að meta frábæra
umönnun starfsmanna á hjúkranar-
og dvalarheimilum sama í hvaða
starfsstétt þeir era.
Höfundur er 1. varaformaður
Eflingar - stéttarfélags og á sæti í
nefnd uni únynd ellinnar og þess að
starfa með öldruðum á vegurn
heilbrigðisráðuneytisins.
Þórunn H.
S veinbjörnsdóttir
Aldraðir
Öryggisíbúðir þessar
eru tilraun, segir Sig-
urður Helgi Guðmunds-
son, til að leysa að hluta
þann vanda sem steðjar
að öldruðum og sjúkum.
staklega þurfa á aðstoð að halda.
Eirarhús era innlegg í þá þjónustu.
En betur má ef duga skal. Aldr-
aðir verða sjálfir að koma að því að
leita lausna sem þeim hentar og þeir
þurfa að gera það meðan tími er til.
Margt má læra af þjóðum Evrópu
og Ameríku, en lausnir verða að
falla að íslensku þjóðfélagi og taka
mið af vilja þeirra sem senn horfa til
sólhvarfa í lífinu. Þeir sem að hjúkr-
unarheimilunum Skjóli og Eir
standa munu framvegis sem hingað
til leita leiða til þess að leysa vanda
þeirra sem aldraðir eru og bjóða
upp á lausnir sem henta fólki á nýrri
öld.
Höfundur er prestur og forstjóri
Skjóls og Eirar.