Morgunblaðið - 30.11.2000, Síða 77

Morgunblaðið - 30.11.2000, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 30. NÓVEMBER 2000 77 FÓLK í FRÉTTUM Stutt Stóri bróðir í fískabúri ► STÓRABRÓÐUR-þættir, þar sem fólk fær að íylgjast með einkalífi fólks, eru ákaflega vinsælir um þess- ar mundir. Aðstandendm- norsku vefsíðunnar ABC startsiden (www.startsiden.no) standa að nýj- asta stórabróður-þættinum en með nýju sniði þó: söguhetjumar eru fisk- ar í fiskabúri. Hægt er að fylgjast með fiskunum allan sólarhringinn og kjósa um hvaða fiskur yfirgefur búrið vikulega. Hverjum fiski fylgja upp- lýsingar um æviferil og áhugamál svosem uppáhalds tónlist. Vitaskuld hafa fiskarnir líka fengið nöfn, en þeir heita Tanya, Klaus, Wanda, Pál og Oddvar, en hann var kosinn úr þættinum síðast þar sem hann þótti vera leiðinlegur við Klaus. „Hann var alltaf að bíta hann í sporðinn,“ sagði umsjónarmaður síðunnar. Blindum mismunað á nektardans- stöðum ► Nektardansstaður í Essex, Eng- landi, hefur farið fram á undanþágu frá „bannað að snerta“-reglunni. Beiðnin er gerð á þeim grundvelli að það mismuni blindum að mega ekki snerta dansarana, þeir geti ekki með öðru móti gert sér grein fyrir útliti og hreyfingum þeirra og því ekki notið sýningarinnar á við aðra. Dansararnir sjáifir segjast hlynntir hugmyndinni, að því gefnu að hún verði aðeins notuð er sannað þykir að viðskiptavinurinn sé blindur. Vanrækti eiginvörn ► Dómstóll í Flórída hafnaði nýlega beiðni lögfræðingsins Philip G. Butl- er um áfiýjun máls síns. Butler hafði varið sjálfan sig í mútumáli og tapað málinu, en sótti um endurupptöku á grundvelli vanhæfni veijanda, þar sem honum hafði ljáðst að tjá sjálfum sér að það væri óráðlegt að flytja sjálfur eigið mál. Vantar ferfætta blóðgjafa ► Mikill þörf er á blóðgjöfum - af ferfættu gerðinni. Aukning í fjölda skurðaðgerða á bandarískum dýralæknastofum hefur orðið til þess að skortur er á blóði. Nú er svo komið að tveggja mánaða biðlisti er fyrir kattarblóðvökva og sex vikna bið eftir hundablóð- vökva. Dýrablóðbankinn í Kalifom- íuríki, stærsti blóðbanki landsins, framleiðir allt að 2.000 einingar af blóði á mánuði sem deilast niður á 3.000 dýralæknastofur í Banda- ríkjunum og Kanada. Aðalvandinn er sá að einungis 5% hunda teljast hæfir blóðgjafar. Amman kenndi vasaþjófnað ^ Þjáð af gigt og ófær um að komast ferða sinna nema í hjólastól stjómaði hin 63 ára gamla Ernestine Williams vasaþjófagengi. í tíu ár kenndi Ern- estine bömum sínum og bamaböm- um leyndarmál fagsins og sendi 15 manna þjófagengi sitt vítt og breitt um Flórídaríki, með það að markmiði að ræna sér í lagi eldri borgara. Eftir tveggja ára rannsóknarvinnu lög- reglu hafa Emestine, synir hennar tveir og sonarsonur verið kærð fyrir fjárkúgun og brask. Talið er að glæpagengi Emestine hafi á tíðum þénað allt að fjóra og hálfa milljón króna daglega með vasaþjófnaði. Ida er mætt! JÓLAHLAÐBORÐ hafa notið sívaxandi vin- sælda hérlendis sfðustu ár og er svo komið að vel flest veitingahús í Reykjavík bjóða upp á þess háttar kræsingar í einhverri mynd. Fyrir- komulagið er fengið að láni frá frændum vor- um í Danmörku og því hefur Hótel Loftleiðir ekkert verið að flækja hlutina neitt heldur leit- að beint í ræturnar og fengið hana Idu Davids- en, sælkera og matarfrömuð frá Danmörku, hingað til lands um hver jól til að sjá til þess að hlutirnir séu nú alveg örugglega á hreinu. Loftleiðamenn lögðu á borð í fyrsta sinn 17. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Marentza Poulsen og Ida Davidsen við jóla- hlaðborðið á Hótel Loftleiðum. nóvember og óhætt er að segja að borðin hafi svignað undan veigum þeim sem Ida og félag- ar snöruðu fram af miklum myndarskap. Sömuleiðis voru tappar dregnir úr forláta Tilþrifin hjá þjónunum á Hótel Loftleiðum voru fagmaimleg er þeir opnuðu flöskur af dýrindis Nouveau-víni. Nouveau rauðvínsflöskum, léttu og leikandi víni sem borið er fram kælt, en það er farið að þykja ómissandi partur jólahlaðborðsmenning- arinnar. Universal Pictures Kynna Eina Rómantískustu Gamanmynd Ársins SS Fnimsýnd í Háskólabíói 1. desember ar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.