Morgunblaðið - 19.12.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 37
LISTIR
Samtök menningarborga Evrópu 2000 verða lögð niður
Munu ekki halda áfram
formlegu samstarfi
Bologna. Morgunblaðið.
MENNINGARBORGIR Evrópu
árið 2000 munu ekki halda áfram að
vinna saman með formlegum hætti
eftir að þær afsala sér titlinum um
áramót. Samtök borganna níu verða
leyst upp á næstu þremur mánuð-
um. Þetta var ákveðið á fundi sam-
takanna hér í Bologna um helgina.
Auk stjómenda menningarborgar-
verkefnanna sátu fundinn borgar-
stjórar eða fulltrúar borgaryfirvalda
borganna níu.
Ljóst var að samtökin yrðu lögð
niður að árinu liðnu en fyrir fund-
inum lá tillaga þess efnis að stofnuð
yi'ðu ný samtök borganna níu, þar
sem borgaryfirvöld sjálf yrðu hinir
formlegu aðstandendur en ekki
stjórnendur menningarborgarverk-
efnanna enda láta þeir allir af störf-
um fljótlega á nýju ári. Ákveðið var
að fresta því að taka afstöðu til til-
lögunnar til næsta fundar, sem fram
fer í Kraká í mars, en Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri, sem
stýrði fundinum, og Þórunn Sigurð-
ardóttir, stjórnandi Reykjavíkur-
menningarborgar, segja að fram
hafi komið það margar efasemda-
raddir að ljóst sé að borgimar munu
ekki vinna áfram saman á þessum
forsendum.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar og
Þórannar sýndu fundarmenn því
meiri áhuga að efla samtök fyrrver-
andi menningarborga sem borgirnar
níu ganga nú í.
Þórann segir að þau samtök séu
fyrst og fremst samtök einstaklinga,
stjómenda menningarborgaverk-
efnanna, en borgirnar sjálfar komi
þar ekki að málum. Formaður þeirra
samtaka er Robert Palmer stjórn-
andi Briissel 2000 en hann var áður
stjórnandi verkefnisins þegar Glasg-
ow var menningarborg Evrópu.
„Hann talaði eins og við var að bú-
ast fyrir því að borgirnar níu gengju
allar í þessi samtök en sumar hafa
gert það nú þegar, meðal annars
Reykjavík. Þær myndu þá halda
áfram að starfa saman á þeim vett-
vangi. Að mínu mati þarf hins vegar
að marka stefnu og verkefni þessara
samtaka talsvert skýrar en verið
hefur. Það er þó algerlega pólitísk
ákvörðun og háð vilja borgarstjór-
anna sjálfra hvernig þeir vilja nýta
þennan titil í framtíðinni. Nú er mál-
ið í þeirra höndurn," segir Þórann.
Ingibjörg Sólrún segir vel koma
til álita að efla samtök fyrrverandi
menningarborga. Þau gætu orðið
spennandi samstarfsvettvangur ef
vilji er fyrir hendi. Fjórtán borgir
vora fyrir í samtökunum og nú bæt-
ast níu við. Ingibjörg Sólrún mun
sitja næsta fund samtakanna í Rott-
erdam eftir rúman mánuð ásamt
fulltrúum borgaryfirvalda í hinum
borgunum átta.
„Menn era ekki búnir að gera upp
við sig hvernig þeir vijja sjá þessi
samtök þróast. Hvert verði þeirra
hlutverk. Það er næsta skref. Eiga
menn að hittast einu sinni á ári til
skrafs og ráðagerða eða eiga sam-
tökin að vera með miðlæga skrif-
stofu, þá í Briissel, sem miðlaði upp-
lýsingum og skipulegði ráðstefnur
fyrir fólk sem starfar að menningar-
málum o.s.frv. Svo er auðvitað
spurning hvort fleiri borgir eigi að
koma inn í þetta samstarf en búið er
að tilnefna menningarborgir mörg
ár fram í tímann. Það verður fróð-
legt að kynnast þessum samtökum
betur á fundinum í Rotterdam. Sjá
hvort þau eru á vetur setjandi," seg-
ir Ingibjörg Sólrún.
Borgarstjóri segir í sjálfu sér ekki
skrýtið að samtök menningarborg-
anna árið 2000 leggist nú af. Borg-
imar hafi ekki valið sig saman í upp-
hafi, heldur Evrópusambandið, og
þótt samstarfið við flestar borganna
hafi verið með ágætum sé ekki óeðli-
legt að leiðir skilji.
„Samstarfið hefur gengið misjafn-
lega. í sumum tilfellum frábærlega
en í öðram heldur treglega. Það fer
allt eftir fólki og borgum. Samstarfið
hefur nýst okkur mjög vel. Við höf-
um stofnað til tengsla við borgir sem
hefði eflaust aldrei gerst undir öðr-
um kringumstæðum. Nefni ég þar
Kraká, Prag, Bologna og Santiago
de Compostela. Eg geri ráð fyrir að
samskipti okkar við þessar borgir
eigi eftir að halda áfram í einhverri
mynd,“ segir Ingibjörg Sólrún og
bætir við að af nálægari borgum hafi
samvinnan við Helsinki verið einkar
ánægjuleg.
Segir borgarstjóri menningar-
tengsl af þessu tagi ekki síst mik-
ilvæg í ljósi þess að menningarmál
muni í framtíðinni vega þyngra í
stjómsýslu borga en þau hafa gert
til þessa.
Ingibjörg Sólrún mun sækja loka-
fundinn í Kraká fýrir hönd Reykja-
víkur en eftir það gerir hún ráð fyrir
að Signý Pálsdóttir menningarmála-
stjóri Reykjavíkurborgar taki verk-
efnið að sér og sæki fundi samtak-
anna.
Þórann tekur um áramót við
starfi stjórnanda Listahátíðar í
Reykjavík. „Ég á ekki von á því að
Þórann sæki fleiri fundi í tengslum
við samstarf menningarborga enda
snýr hún sér nú að öðram verkefn-
um. Hún er þó ekki langt undan og
aldrei að vita nema Listahátíð geti í
framtíðinni notið góðs af starfi sam-
takanna,“ segir borgarstjóri.
Menningarborgirnar era hver fyr-
ir sig um þessar mundir að vinna
skýrslu um verkefnið og fram-
kvæmdastjóri samtakanna er að
gera sameiginlega skýrslu fyrir allar
borgimar sem skila ber til Evrópu-
sambandsins. Að sögn Þórunnar er
verkefnið mjög ólíkt í framkvæmd í
borgunum en stjórnendur í Reykja-
vík og Helsinki munu hafa haft mest
sjálfstæði frá borgaryfirvöldum við
starf sitt.
„Báðar þessar borgir hafa líka
notið góðs af því að stutt er síðan tit-
illinn var hjá Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi. Við höfum lært heil-
margt af þeim,“ segir Þórann.
Tilvalin
jolagjof
9.995 kr.
Moulinex matvinnsluvél
500 W, 3 lítra ská
19 aukahlutir
HÚSASMIÐIAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
UTSALA - UTSALA
40-60% afsláttur
Gerið góð kaup fyrir jólin
Dæmi um verð Áður Nú
Bodybolur 2200,- 1100,-
Bómullarpeysa 5800,- 2900,-
Peysa m/turtleneck 3500,- 1700,-
Organzaskyrta 4500,- 1900,-
Frakki 7500,- 3000,-
Síð úlpa m./hettu 7600,- 3500,-
Sett, tunika og peysa 4500,- 1900,-
Sett, toppur og jakkap. 4200,- 1900,-
Sítt pils 3800,- 1800,-
Dömubuxur 4700,- 1900,-
Einnig úrval af dömufatnaði
í stærðum 44-52
á 40-50% afslætti.
Opið frá kl. 10.00 til 18.00
friendfex
Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík.
Hefur þú fjárfest í myndlist á þessu ári?
Rauðarárstíg 14-16
sími 551 0400
og Kringlunni
sími 5468 0400
www.myndlist.is