Morgunblaðið - 19.12.2000, Side 73

Morgunblaðið - 19.12.2000, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 7\ FRÉTTIR Ur dagbók lögreglunnar Tilkynnt um 73 árekstra um helgina 15.-17. desember ADFARANÓTT laugardags var fá- mennt í miðbænum. Ölvun var í meðallagi, ástand gott og unglingar undir 16 ára aldri ekki áberandi. Einn maður var fluttur á slysadeild og tveir handteknir vegna ölvunar. Fremur rólegt var í miðbænum að- faranótt sunnudags. Nokkuð þurfti að hafa afskipti af ölvuðu fólki vegna slagsmála en þó var ölvun lítil. Einhverjir hlutu minniháttar meiðsl í þessum slagsmálum og flutti lögregla þá á slysadeild. Fjór- ir voru handteknir og tilkynnt var um fjórar líkamsárásir. Ótrúlegnr fjöldi árekstra Á föstudag féll fyrsti snjór vetr- arins á höfuðborgarsvæðinu og enn sem fyrr voru ökumenn vanbúnir til vetraraksturs og virtust undr- andi á því að það skyldi snjóa í des- ember. Mikill fjöldi árekstra og óhappa varð vegna hálku og óviðbúinna ökumanna en alls voru tilkynntir 73 árekstrar um helgina sem er ótrúlegur fjöldi. Hins vegar voru aðeins fjórir stöðvaðir vegna hraðaksturs og átta grunaðir um ölvun við akstur. Um helgina var talsvert kvartað yfir akstri jeppa utan vega, jafnvel á stöðum sem ætlaðir eru fyrir sleða- og skíðafólk. Aðfaranótt laugardags var bifreið stöðvuð og reyndist ökumaður vera undir áhrifum kannabisefna. Á meðan verið var að ræða við öku- mann reyndi einn farþeganna að stinga af á hlaupum en lögreglu- maður elti hann uppi. Ástæðan mun hafa verið sú að farþeginn var með ætluð fíkniefni á sér ásamt áhöld- um. Síðdegis á laugardag varð árekstur á gatnamótum Suðurgötu og Brynjólfsgötu. Fimm voru fluttir á slysadeild Landsspítala-háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi en áverkar ekki taldir alvarlegir. Snemma á sunnudagsmorgun var tilkynnt um bflveltu á Suðurlands- vegi við Litlu kaffistofuna. Meiðsli á fólki voru minniháttar. Golfvajgn fannst í trjálundi Á laugardagsmorgun var tilkynnt um innbrot í nýbyggingu þar sem stolið var talsverðu af verkfærum. Á laugardag kom erlendur ferða- maður á lögreglustöðina við Hverf- isgötu og tilkynnti um hvarf á svartri leðurtösku. Hann kvaðst hafa sett töskuna í farangurshólf flugrútunnar við flugstöðina en þegar hann ætlaði að taka töskuna við endastöð í Reykjavík var taskan horfin. í töskunni voru farmiðar og ýmis skilríki sem slæmt er að missa. Á laugardag fannst golfvagn í trjálundi í Seljahverfi. Þessum vagni hafði verið stolið fyrr í mán- uðinum í Höfðahverfi og var hann mikið skemmdur, jafnvel talinn ónýtur. Tilkynnt var um mann og konu sem voru að stela vörum úr versl- unum á Laugavegi. Þau voru flutt á lögreglustöðina og í framhaldi af því í fangageymslu. Þau voru með nokkra poka með sér sem í var ætl- að þýfi. Þetta var aðeins eitt af mörgum tilfellum þar sem fólk var handtekið fyrir að stela í verslunum um helgina. Tilkynnt var um að aðvörunar- kerfi hefði farið í gang í húsi í aust- urborginni. Öryggisvörður náði þar manni á hlaupum og var hann með ýmsa muni á sér. Maðurinn fékk gistingu í fangageymslu. Slegist um leigubíl Aðfaranótt laugardags var til- kynnt um þijá menn sem voru að ganga í skrokk á einum til móts við pylsuvagninn í Tryggvagötu. Þol- andinn komst undan og hljóp suður Lækjargötu og árásarmennimir hlupu á eftir. í öryggismyndavélum sást maðurinn fara inn í leigubfl á móts við Menntaskólann í Reykja- vflc en árásarmennimir náðu hon- um og veittust að honum í leigu- bflnum. Leigubflstjóri náði að skakka leikinn áður en lögregla kom og vora mennirnir þá famir af vettvangi. Aðfaranótt sunnudags var til- kynnt um fjöldaslagsmál við Þórs- café þar sem bifreið hefði m.a. skemmst. Slagsmál vora í gangi þegar lögreglumenn komu á stað- inn, þrír á móti tveimur. Slagsmálin munu hafa hafist vegna deilna um ferð með leigubfl. Einn maður var handtekinn en var sleppt að lokn- um viðræðum við varðstjóra. Aðfaranótt laugardags óskaði maður, sem var að ryðja snjó af bflastæði, aðstoðar vegna ölvaðs manns sem gerði sér að leik að standa í vegi fyrir moksturstækinu. Sá ölvaði hafði sig á brott er lög- reglu bar að. Gleðileg jól , Hólagarður Gull er gjöfin Gullsmiðir Fékkstu kartöflu í skóinn? Snúðu þá vörn í sókn! Búðu til nokkurs konar blómaskreytingu úr þeim kartöfium sem hafa safnast saman hjá þér á \Á aðventunni. Festu rauðkálsblöð á kartöflurnar V allan hringinn, stingdu prjóni í þær og festu svo einhvers konar salatblöð eða jafnvel brokkolí á þessa „stilka“. Stingdu svo „blómunum“ í þar til gerðan blómaskreytingakubb og settu greni allt í kring. Þarna er komin gullfalleg skreyting á hátíðarborðið. — v. . Pfnirvinir T fsienskir kartöflubændur Morgunblaðið/Ámi Sæberg Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti hjónunum Sigríði Vil- hjálmsdóttur og Má Sigurðssyni (2. frá hægri), eigendum Geysisstofu, og Guðjóni Hjörleifssyni, bæjarstjóra Vestmannaeyja, (2. frá vinstri), verðlaunin. Lengst til vinstri er Ámi Johnsen alþingismaður. Hlutu Nýsköpunar- verðlaun Ferðamálaráðs EIGENDUR Geysisstofu og Vest- mannaeyjabær hljóta Nýsköpunar- verðlaun Ferðamálaráðs í ár. Eig- endur Geysisstofu era verðlaunaðir fyrir dugnað og framsýni við stefnumótun og uppbyggingu á ein- um fjölsóttasta ferðamannastað ís- lands og Vestmannaeyjabær fyrir að hafa gert Skanssvæðið að enn einni perlunni sem laðar ferðamenn «1 Eyja. Það var samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, sem afhenti hjónunum Sigríði Vilhjálmsdóttur og Má Sigurðssyni, eigendum Geysisstofu, og Guðjóni Hjörleifs- syni, bæjarstjóra Vestmannaeyja, verðlaunin við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Formaður stjórnar Ferðamála- ráðs, Tómas Ingi Olrich, gerði grein fyrir valinu en verðlaunin eru veitt þeim sem að mati ráðsins hafa stuðlað að nýsköpun í ferðaþjón- 'ustu, annaðhvort með uppbyggingu á nýjum þáttum ferðamennsku eða með því að vekja athygli á þáttum tengdum menningu og sögu Islands og gera þá aðgengilega ferðamönn- Mikið úrval af íóiaskóm á börnin Staerð 28-38 Verð 4.990,- Stærð 24-30 Verð 3.490,- Gráir Opið 10 til 18, lau. 11-15 Smáskór r bláu húsi við Fákafen - Sími 568 3919 V. Hf. Eimskipafélag íslands Hlutafjársala Hf. Eimskipafélag íslands hefur ákveðið að bjóða hluthöfum til kaups eigin bréf félagsins. Tekið er fram að hér er ekki um hlutaijárhækkun að ræða heldur sölu á eigin bréfum. Salan fer fram dagana 20.- 29. desember. Fjárhæð hlutabréfa Nafnverð hlutabréfanna er 61.158.104 kr. sem er um 2% hlutur í félaginu, og bjóðast þau á genginu 7,1. Fyrírkomulag og skilmálar sölu Hluthöfum er heimilt að skrá sig fyrir hærri ijárhæð en þeir eiga hLutfallslegan rétt á. Nýti hluthafi ekki rétt sinn tiL kaupa að fullu, þá skiptast eftirstöðvar milli hluthafa, sem hafa skráð sig fyrir hærri ijárhæð, í hlutfalli við eignarhlut þeirra. Verði eftirspurn eftir hlutafé meiri en það hlutafé sem tiL söLu er, verður sala tiL hluthafa skert hlutfallslega. Ef eftirspurn eftir hlutafé verður minni en það hlutafé sem til sölu er, mun féLagið bjóða einum eða fleirum aðilum það til sölu án þess að bjóða hluthöfum forkaupsrétt að nýju. ÁskriftarbLöð verða send tiL hLuthafa. Einnig er möguLegt að fyLLa út áskriftarblað á heimasíðu félagsins www.eimskip.is. Útfýlltum áskriftarblöðum skal skiLað til fjárreiðudeildar Hf. Eimskipafélags ísLands, Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík, myndsími 525 7009, fyrir kl. 17:00 þann 29. desember n.k. Hluthöfum verður sendur gíróseðilL fyrir keyptum hLutum að forgangsréttartímabili Loknu, en hann þarf að greiða eigi síðar en 2. febrúar 2001. Nánari uppLýsingar og aðstoð við skráningu eru veittar af hLutahafaskrá Hf. Eimskipafélags íslands í síma 525 7188. EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.