Morgunblaðið - 19.12.2000, Side 47

Morgunblaðið - 19.12.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Á ögurbrún háskans TOJVLIST Langholtskii'kja ICAMMERTÓNLEIKAR Kammersveit Reykjavíkur flutti all- ar fjórar hljómsveitarsvíturnar eftir J. S. Bach. Konsertineistari: Rut Ingólfsdóttir. Stjórnandi: Reinhard Goebel. Einleikari: Martial Nardeau. Sunnudagurinn 17. desember, 2000. ÞAÐ er ákaflega margt óljóst varðandi hljómsveitarsvíturnar eftir J. S. Baeh, t.d. hvenær þær voru samdar og þá bæði talið, að þær væru samdar í Cöthen og einnig í Leipzig, þar sem verkin gætu mjög líklega hafa verið flutt og í því tilfelli haf! Bach jafnvel gert á þeim breytingar, aðallega vegna hljóðfæraskipunar. A þessum tíma gegndu hljóðfærasvítur svipuðu hlutverki og sinfóníurnar eft- ir 1750, en mikill munui' var á hljóð- færaskipan, sem gat verið margvís- leg í svítunum en skipan sinfóníuhljómsveitarinnai' var að mestu leyti stöðluð, sérstaklega hvað snerti jafnvægi á milli hljóðfæra- hópa. Fyrir utan forleikinn (Overt- ure), sem allar svíturnar hefjast á og var samkvæmt franskri formskipan hægur, hraður, hægur, eru flestir aðrir kaflar verkanna í tvenndar- formi, og byggðir á einu stefi, form- skipan, sem lögð var niður með til- komu sónötuformsins og nýira viðhorfa varðandi tematíska m-- vinnslu og samskipan a.m.k. tveggja stefja. Fyrsta verkið á tónleikunum var svítan nr. 3, með hinni frægu „aríu“, sem í umritun eftir August Wilhelm kallast Aría á g-streng og Donald Francis Tovey segir að frekar megi kalla „útúrsnúning en útsetningu". Strax við upphaf aríunnar var ljóst að stjómandinn, Reinhard Goebel, lagði áherslu á hraðan flutning. Annað verk tónleikanna var flautusvítan nr. 2, með sínum fræga, fjöruga stríðn- iskafla, Badinerie. í þessu verki er hljóðfæraskipanin aðeins strengir á móti flautunni og verkið því oft sagt vera flautukonsert. Einleikari á flautu var Martial Nardeau, sem ekki lét sér bregða við miklar hraðakröfur Goebels og lék verkið af snilld. Fyrsta svítan vai' þriðja viðfangs- efni tónleikanna og þar var ekkert gefið eftir í miklum hraðaleik. Tón- leikamir enduðu á fjórðu svítunni, sem sjaldnast er leikin. Forleikinn að fjórðu svítunni notaði Bach í kantöt- unni Unser Mund sei voll Lachens (BWV110) og þá með breyttri hljóð- færaskipan. Kammersveit Reykjavíkur undir forastu Rutar Ingólfsdóttur lék mjög vel og strengjasveitin, sérstaklega fiðlurnar, var glæsilega samtaka í þessum mikla fjörleik. Þess gætti nokkuð, að tónstaðan var ekki hrein í lágröddunum, á fyiri hluta tón- leikanna, en hins vegar á hreinu í tveimur síðustu svítunum. Trompet- leikararnir þiír, Asgeh', Eiríkur Órn og Einar léku mjög vel. Óbóleikar- amir Daði, Peter og Eydís og fagott- leikarinn Rúnar þurftu sannarlega að taka til hendi, því bæði er mikið að gerast hjá tréblásuranum og þá ekki síst fyrir mikla hraðakröfu stjóm- andans. Allir þeh- sem þarna komu að verki léku vel og sú ofuráhersla sem stjórnandinn, Reinhard Goebel, lagði á hraða kom mjög vel út, og góð til- breyting í að heyra t.d. menúettana, sem eiga að vera frekar hægir og virðulegir, allt að því í gönguhraða, leikna af galsafengnu fjöri. Eftirminnilegur var leikur Martial Nardeau, sem í fínlegum leik sínum náði að útfæra hraðan leik sinn á sér- lega sannfærandi máta og svo létti- lega, að hraðinn varð næsta eðlilegur. Þrátt fyrir að deila megi um hraðaval stjórnandans og hvort ofgert hafi verið t.d. í fúgato-köflunum, hröðu milliköflunum í forleikjunum, er eitt víst, að kammersveitin lék af slíku ör- yggi að tónmálið í þessum köflum var sérlega skýrt og leikandi skemmti- legt. Að þessu leyti vora tónleikarnir töluvert ævintýri þar sem stefnt var fram á ögurbrún háskans en öllu samt vel til haga haldið. Jón Ásgeirsson Sígilt og vandað barnaefni BÆKUR Sögur handa börnum LÍNA HELDUR AFMÆLISVEISLU OGBARNADAGUR í ÓLATAGARÐI Eftir Astrid Lindgren. Þýðandi Sigrún Árnadóttir. Teikningar eftir Rolf Rettich ogKatrinu Engelking. Mál og menning, 2000. TVÆR sígildar frásagnir í góðri þýðingu með vönduðum teikningum. Er einhverju við það að bæta? Til þess að gera stutta sögu langa má kannski gera lauslega grein fyi-ir framvindunni í sögunum um afmæli Línu langsokks og barnadag í Óláta- garði. Sigurlínu Soðningu Gluggablæju Hvannarót Eiríksdóttur, furðuleg- asta krakka í heimi, þarf varla að kynna fyrir nokkrum manni. Sagan um afmælið sem hér um ræðir er fengin úr bókinni um Línu, sem fyrst kom út fyrir rúmri hálfri öld og er alltaf jafn skemmtileg. Gestirnir, hin prúðu systkini Tommi og Anna, fá gjafir frá afmæl- isbarninu Línu, borða stórskrýtnar kökur með kínversku sniði, sleikja kakóbolla, ganga á húsgögnunum og leika sjóræningja. Draugaleit undh- myrkur kemur blóðinu líka á hreyf- ingu og best að ljóstra ekki upp nein- um leyndarmálum. Lykill að ógleymanlegum degi Kristín litla í Ólátagarði er bara eins og hálfs, eiginlega bara hálf manneskja segir Lassi. Börnin í Ólátagarði vilja helst ekki þurfa að leika við hana alla daga. Því ákveða þau að gleðja hana alveg sérstaklega mikið á barnadaginn sem þau vora búin að lesa um í blaðinu í von um að hún láti þau svo í friði. Kristín fer á hestbak, rólar og er látin renna út um glugga á efri hæði í kaðli en geld- ur bara fyrir sig með óhljóðum. Hvað er þá til ráða? Börnin finna út úr því og um leið lykilinn að frábæram barnadegi. Ekkert er skemmtilegra en að gleðja aðra. Frábærar bækur fyrir börn jafnt sem fullorðna. Helga K. Einarsdóttir Nýjar bækur • ÚT er komin bókin Áknll úr djúp- inu - um kristna íhugvn eftir Wilf- rid Stinissen í þýðingu Jóns Rafns Jóhannssonar. Bókin fjallar um margar hliðar kristinnar íhugunar og djúphygli og mætir annasömum heimi nútímans og viðleitni mannsins til að ná góðri einbeitingu við íhugun sína. I bókarlok er að finna tuttugu íhuganir sem geta komið þeim að góðum notum sem hyggjast iðka kristna íhugun. Rit höfundarins um kristna íhug- un og bænalíf hafa verið þýdd á fjöl- mörg tungumál. Biskup íslands Karl Sigurbjörnsson skrifar formála ís- lensku útgáfunnar. Útgefandi er Skálholtsútgáfan - útgáfufélag þjóðkirkjunnar. Bókin erl63 bls., prentuð í Steindórsprent- Gutenberg. Skerpla annaðist hönn- un og umbrot. Bókin kostar 2.580 krónur. Hún fæst í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 og í bókaverslunum um allt land. www.mbl.is ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 47 Laugavegi 61, sími 552 4910 0 Saeco Expresso- Cappuccino vélar í úrvali Verð frá kr. 13.965 stgr. Saeco er stærsti framleiðandi Ítalíu á gæðakaffivélum. Fjölmargir litir - handstýrðar - hálfsjálfvirkar eða sjálfvirkar með eða án kaffikvarnar Gerð Via Venezia úr stáli (hér að ofan) kr. 26.980 stgr. Eínar Farestvelt&Cohf. Borgartúni 28 BT 562 2901 og 562 2900 www.ef.is f tyrirdönmrSQmledt iyrirdðmurlQmlledt, Verð kr. 3.500 Verð kr. 4,100 ILMANDI JÓLAGJAFIR tKrirdrimúrSQmledt tKrirdðmurSðmledt, Verd kr, 4,100 Verðkr, 3.300 VLyfaheilsa J APÖTEK BETRI LIÐAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.