Morgunblaðið - 19.12.2000, Side 49
48 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 4Q..
fMtoStiiiMiifcifr
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
GLÆSTUR ARANGUR
ARNAR ARNARSONAR
Orn Arnarson, sundkappi ár
Sundfélagi Hafnarfjarðar,
náði þeim frábæra árangri á
Evrópumeistaramótinu í sundi í Val-
encia á Spáni nú um helgina að verða
tvöfaldur Evrópumeistari, í 200 og 100
metra baksundi, auk þess sem hann
varð í öðru sæti í 50 metra baksundi.
Örn varði með þessum árangri
Evrópumeistaratitil sinn í 200 metra
baksundi í þriðja sinn og setti jafn-
framt nýtt Norðurlandamet í grein-
inni og hann varði titilinn í annað sinn
í 100 metra baksundi, en þar setti hinn
ungi sundmaður nýtt Evrópumet.
Tími Arnar í úrslitasundinu í 100
metra baksundi í 25 metra langri laug
var 58,28 sekúndur og er það fímmti
besti tíminn sem náðst hefur í grein-
inni frá upphafi, sem ætti að vera til
marks um það hversu mikið íþrótta-
afrek Örn vann með þessu glæsilega
sundi sínu.
Örn keppti samtals átta sinnum á
Evrópumeistarmótinu á Spáni - tvisv-
ar sinnum í 200 metra baksundi og í
þrígang í hinum greinunum tveimur. í
þessum átta sundum bætti hann ís-
landsmet í fimm skipti, sló Norður-
landamet tvívegis og setti eitt
Evrópumet. Örn kom með heim í far-
teskinu tvenn gullverðlaun og ein
silfurverðlaun og þau meira að segja í
grein sem hann hefur ekki lagt mikla
stund á - fímmtíu metra baksundi.
Skemmst er að minnast frábærrar
frammistöðu Arnar á Ólympíuleikun-
um í Sydney í Ástralíu í sumar, þar
sem hann hafnaði í 4. sæti í 200 metra
baksundi. Það var í fyrsta skipti sem
íslenskur sundmaður komst í úrslit í
sundgrein á Ólympíuleikum. Hann
náði með fjórða sætinu þá bestum ár-
angri Evrópumanna í þeirri sundgrein
og setti um leið Norðurlandamet.
Það hefur verið einkar skemmtilegt
að fylgjast með keppnisferli þessa
unga og geðþekka Hafnfirðings. Örn
er ekki nema 19 ára gamall og í ljósi
hins unga aldurs hans er árangur hans
ekki síst merkilegur. Það verður bæði
fróðlegt og spennandi að fylgjast með
keppnisferli og afrekum hins unga
afreksmanns á næstunni, því ef að lík-
um lætur, þá er glæstur ferill hans
einungis nýhafinn og mörg og glæst
afrek geta beðið hans á næstu miss-
erum og árum. Morgunblaðið óskar
Erni Arnarsyni til hamingju með
glæsilega frammistöðu.
STARF MINJAVERNDAR
Götumynd Aðalstrætis eins og
hún er sýnd í Morgunblaðinu
um helgina, er falleg og skemmti-
leg. Þar lýsa tveir forsvarsmenn
Minjaverndar hf. framkvæmdum,
sem fyrirhugaðar eru í samvinnu
við Þyrpingu hf. um hótelbyggingu
á gatnamótum Aðalstrætis og Tún-
götu, þar sem Uppsalir voru fram á
miðja öldina. Minjavernd er félags-
skapur, sem spratt upp úr Torfu-
samtökunum, er þau gengu árið
1985 til samstarfs við fjármálaráðu-
neytið og Þjóðminjasafnið til upp-
byggingar á Torfunni. Upp úr þessu
samstarfí var Minjavernd stofnuð
sem sjálfseignarstofnun.
Meginverkefni Minjaverndar á
næstu árum er sem sé að endurnýja
og skipuleggja götumynd Aðal-
strætis. Þar á að endurreisa hús
landfógeta, sem brann og forhlið
Fjalakattarins, sem nú verður Aðal-
stræti 14, envar á sínum tíma nr. 8.
Þá er gamla Isafoldarhúsið úr Aust-
urstræti orðið að Aðalstræti 12.
Starfsemi Minjaverndar er til
mikillar fyrirmyndar og árangur af
því starfi að verða mjög sýnilegur
eins og m.a. má sjá á endurbygg-
ingu Isafoldarhússins gamla. Sú
endurbygging hefur tekizt svo vel
að það er orðið eitt fegursta hús í
Reykjavík. Það er full ástæða til að
styðja við þessa starfsemi eins og
nokkur kostur er.
POWELL UTANRÍKISRÁÐHERRA
George W. Bush hefur látið hendur
standa fram úr ermum á þeim
dögum, sem liðnir eru frá því að Ijóst
varð að hann yrði næsti forseti
Bandaríkjanna. Var um helgina til-
kynnt hverjir verði skipaðir í nokkur
lykilembætti stjórnar hans. Ber þar
hæst að Colin Powell verður næsti ut-
anríkisráðherra og Condoleezza Rice
næsti þjóðaröryggisráðgjafi auk þess
sem hinn verðandi varaforseti, Dick
Cheney, hefur viðamikla reynslu sem
fyrrverandi varnarmálaráðherra.
Colin Powell starfaði með ríkis-
stjórnum Ronalds Reagans og Ge-
orge Bush og var m.a. yfirmaður
bandaríska herráðsins í Persaflóa-
stríðinu. Hann nýtur einstaks trausts
og virðingar í Bandaríkjunum og
mun hann vafalítið verða öflugur
talsmaður Bandaríkjanna á alþjóða-
vettvangi.
Hin nýja stjórn Bandaríkjanna
gæti fyrr en varir staðið frammi fyrir
mjög vandasömum verkefnum á sviði
alþjóðamála. Enn hefur ekki tekist að
setja niður deilur fyrir botni Miðjarð-
arhafs og ekki má heldur gleyma því
að Saddam Hussein er áfram við völd
í Bagdad. Og þrátt fyrir að stjórnvöld
í Norður-Kóreu hafi sýnt vilja til að
koma til móts við umheiminn er langt
í land með að samkomulag náist á
Kóreuskaga. Samskipti Kína og
Bandaríkjanna gætu reynst erfitt
viðfangsefni og ekki útilokað að átök
muni blossa upp milli Kínverja og
Tævana. Framtíð Balkanskaga er
enn óráðin og enginn veit í hvaða átt
Rússland mun þróast á næstu árum.
Þá má ekki gleyma samskiptum
Bandaríkjanna við nánustu banda-
menn sína. Líkt og greinilega hefur
komið fram á síðustu vikum er tölu-
verð spenna í samskiptum ESB og
Bandaríkjanna vegna áforma um
Evrópuher. Þá á eftir að koma al-
þjóðlegum viðskiptaviðræðum í gang
á ný eftir skipbrotið í Seattle fyrir ári
og einnig verður að taka upp þráðinn
á nýjan leik þar sem horfíð var frá
Haagviðræðunum í síðasta mánuði.
Mary-Claire King telur krabbameinsrannsóknir geta faríð út á tvær brautir
Erfðafræðin sífellt
meira spennandi
Tillögur að matsáætlunum vegnajarðganga fyrir norðan og austan
V erkefnin tilbúin til
útboðs seint á næsta ári
Mary-Claire King er
einn frægasti erfða-
fræðingur heims. Hún
hefur beint sjónum að
arfgengu krabbameini í
brjóstum og eggja-
stokkum en þær rann-
sóknir vonast hún til að
á endanum gefí vís-
bendingar um orsök
krabbameins sem ekki
er arfgengt. En auk
þess hefur Mary-Claire
beitt erfðavísindum í
þágu margvíslegra
mannréttindamála.
______Sigríður B.____
Tómasdóttir hitti
hana að máli.
ASTÆÐA þess að ég
valdi upphaflega að
rannsaka brjósta-
krabbamein var sú að
ég vildi reyna að ein-
angra genin sem eiga þátt í um-
breytingu venjulegrar heilbrigðrar
frumu í krabbameinsfrumu. Það
hljóta að vera mörg skref í þessu
ferli og þar er gagnlegt að rannsaka
fjölskyldur þar sem stökkbreyting-
ar á frumum hafa erfst,“ segir
Mary-Claire King þegar hún er innt
eftir því hvers vegna hún hafi valið
að beina sjónum að brjóstaki'abba-
meini sem á sér erfðafræðilegar
rætur.
Mary-Claire, sem er prófessor
við Washington-háskóla, varð
heimsfræg þegar hún benti á stökk-
breytt BRCAl-gen sem krabba-
meinsorsakavald árið 1990. Það er
talið skýra um helming arfgengra
brjóstakrabbameinstilfella en ein-
göngu um 5-10% tilfella myndast
vegna erfða. Fjórum árum síðar var
búið að staðsetja BRCA2-genið sem
talið er skýra um 30% krabbamein-
stilfella þeirra sem hafa ættarsögu.
Mary-Claire hefur stundað erfða-
fræðilegar rannsóknir um áratuga
skeið og segir hún það verða sífellt
meira spennandi vegna þess að
erfðafræðin taki svo hröðum fram-
förum. En hvert beinast rannsóknir
hennar nú um þessar mundir?
„Ég beini enn sjónum að arf-
gengu brjóstakrabbameini og arf-
gengu krabbameini í eggjastokk-
um. Ég tel nefnilega að með því að
rannsaka arfgengt krabbamein,
sem er einungis um 5%-10% tilfella,
megi e.t.v. draga almennar álykt-
anir um myndun krabbameins."
Hægt verði að
taka i taumana
Mary-Claire segir, að þrátt fyrir
að erfltt sé að sjá íyrir
hvað gerist í rann-
sóknum á næstu árum
og áratugum, sé
markmiðið að greina
ferlið algerlega sem á
sér stað þegar einhver veikist af
krabbameini. „Enn höfum við bara
kenningar um hvað við munum
koma til með að geta gert í framtíð-
inni en þegar ferlið hefur verið
greint ætti að vera hægt að taka í
taumana á einhverju stigi málsins.
Það tekst vonandi hjá okkur, ekki
bara hjá konum sem eru með arf-
gengt krabbamein heldur líka þeim
sem ekki eru með arfgengan sjúk-
dóm.“
Þannig spáir Mary-Claire því að
rannsóknir á krabbameini geti farið
út á tvær brautir., jLnnars vegar að
finna einkenni krabbameins á al-
geru frumstigi. Nú sjáum við ekki
æxli fyrr en það er á stærð við litla
fingur. Ef við getum fundið breyt-
ingar sem eru sameindalegs eðlis
löngu áður en æxlið hefur myndast
gætum við fjarlægt þessar frumur
með nál. En til þess að ná þessum
árangri þurfum við að komast að
því hver fyrstu skref frumubreyt-
inganna eru, sem er mjög erfitt.“
Mary-Claire segir hinn mögu-
leikann að hægt verði að snúa við
þróun krabbameins. „Það er stór-
kostlegt ef við gætum gert þetta en
gallinn er að það er svo margt sem
hefur farið úrskeiðis með krabba-
meinsfrumur og mjög erfitt að eiga
við frumurnar þegar þær eru farn-
ar að dreifa sér um líkamann."
Þarna kemur erfðafræðin til sög-
unnar og bendir Mary-Claire á að
verði komist að þvi hvaða gen eiga
hlut að máli verði e.t.v. hægt að
finna lækningu gegn krabbameini.
Gott dæmi um þetta er mótefnið
sem þróað hefur verið gegn HER2-
geninu sem kemur við sögu í um
30% brjóstakrabbameinstilfella
sem ekki eru arfgeng.
Mikilvægt að fylgjast með
konum með stökkbreytt gen
Á íslandi hefur komið í ljós að
hættan á því, að konur með stökk-
breytta BRÁC2-genið fái krabba-
mein, er mun minni en erlendar
rannsóknir bentu tíl, eða um 30-
40%. Mary-Claire bendir þó á að
það sé mjög mikilvægt að fylgst sé
með konum sem eru með þessi
stökkbreyttu gen og
finnst að það ætti að
tilheyra krabba-
meinseftirliti hér á
landi að leita að þess-
um genum.
„Leitin að stökkbreyttum genum
getur verið mjög flókin í landi eins
og Bandaríkjunum þar sem upp-
runi þjóðarinnar er svo fjölbreyti-
legur. Þess vegna er mjög dýrt og
erfitt að leita að BRCA 1- og
BRCA2-genunum. Því er yfirleitt
eingöngu lagt til við konur í Banda-
ríkjunum að þær fari í genapróf
þegar brjóstakrabbamein og
krabbamein í eggjastokkum er ætt-
gengt í fjölskyldu þeirra, eða a.m.k.
fjögur tilfelli eru kunn.“
Sumar bandarískar konur hafa í
kjölfar þess, að fundist hafa stökk-
breyttar frumur í þeim, gengið svo
langt að ákveða að láta fjarlægja
brjóst, þrátt fyrir að þær séu ekki
með krabbamein. Þetta hefur að
sjálfsögðu verið mjög umdeilt en
Mary-Claire segir slíkar ákvarðanir
aldrei teknar í flýti og byggi yfir-
leitt á því að náskyldir einstakling-
ar hafi látist af völdum krabba-
meins.
„Þær hafa gert þetta til þess að
vera vissar um að halda lífi því þó að
röntgenmyndir séu góðar gæti farið
svo að þegar æxli greinist á þeim
hafi krabbameinið breiðst út um all-
an líkamann. Þetta er mjög afdrifa-
ríkt skref og þarf mjög óvenjulegar
aðstæður til að konur geri þetta."
Aðstoð við
argentinskar ömmur
En Mary-Claire hefur ekki ein-
göngu beitt þekkingu sinni á erfða-
fræði í þágu frumrannsókna. Hún
hefur margvísleg áhugamál og hef-
ur verið mjög virk í mannréttinda-
málum. Meðal þess sem hún hefur
komið nærri þar er leit sem konur í
Argentínu hafa gert að bömum sem
rænt var í tíð herstjómarinnar í
Argentínu. Það eru ömmur
bamanna sem standa fyrir þessari
leit og komu þær að máli við Mary-
Claire á níunda áratugnum, bæði
vegna þess að hún var þekkt nafn í
erfðavísindum en einnig vegna þess
að þær vissu að hún hafði reynslu af
kennslu í Suður-Ameríku en þar bjó
Mary-Claire um tíma á áttunda ára-
tugnum, áður en herinn hrifsaði til
sín völd.
„Ömmurnar
spurðu hvort ég gæti
hjálpað þeim við að
bera kennsl á bama-
börn þeirra sem voru
fædd á milli 1975 og
1983 sem hafði verið rænt af hern-
um ásamt foreldrum sínum sem
vom á mínum aldri og höfðu verið
myrtir en bömin seld eða gefin í
kreðsum hersins. Stundum var
bömunum rænt á meðan þau vora
ungbörn, stundum var mæðranum
rænt meðan þær vora þungaðar.
Þær vora pyntaðar en haldið á lífi
þar til bömin fæddust og þá vora
þær myrtar og barnið selt.“
Mary-Claire segir að fyrst hafi
hún í rauninni búist við að verkefnið
yrði meira í orði en á borði en þar
hafi hún aldeilis vanmetið ömmurn-
ar, „og það á aldrei að vanmeta
ömmur,“ segir hún og hlær við. Síð-
an verkið hófst hafa 59 börn fundist
en Mary-Claire þróaði sérstaka að-
ferð við að rekja skyldleika barna,
sem grunað var að væri eitt af þess-
um bömum, í kvenlegg.
Þetta er ekki eina tilfellið sem
Mary-Claire hefur nýtt sér erfða-
vísindin í þágu mannréttindamála.
Rannsóknastofa hennar hefur lagt
til sönnunargögn í mannréttinda-
málum og verið kölluð til að bera
kennsl á líkamsleifar hermanna, og
fleira.
Mary-Claire hreykir sér ekki af
þessu, bendh- einfaldlega á að öllum
áhrifamiklum tækjum, eins og
erfðafræðin sé vissulega, sé hægt
að beita í góðum tilgangi og slæm-
um. Rannsóknir á sjúkdómum sé
góður tilgangur sem og rannsóknir
til að sameina sundraðar fjölskyld-
ur og fleira.
fslenskar rannsóknir
til fyrirmyndar
Hér beinist talið að íslenskum
rannsóknum á brjóstakrabbameini
og Mary-Claire sparar ekki lofið.
„Hér era stundaðar rannsóknir
sem era með þeim bestu í heimi,“
segir hún en ástæða komu hennar
til íslands var einmitt að vera and-
mælandi við vöm doktorsritgerðar
Steinunnar Thorlacius um hlut
BRCA2 gensins í brjóstakrabba-
meini á Islandi sem unnin var á
Rannsóknastofu í sameinda og
frumulíffræði hjá Krabbameins-
félagi íslands undir leiðsögn dr.
Jórunnar Erlu Ey-
fjörð, dósents í erfða-
fræði.
Meðal ástæðu þess
hve rannsóknir era
framarlega hér telur
Mary-Claire vera þá hversu heil-
brigðiskerfið íslenska sé gott.
„Annað er upp á teningnum í
Bandaríkjunum þar sem kostnaður
við tiyggingar getur verið gífurleg-
ur fyrir einstaklinginn, sérstaklega
ef farið verður að mismuna fólki
vegna arfgengra sjúkdóma.“
ALÞINGI hefur í jarð-
gangaáætlun ákvarðað
fjármagn til fram-
kvæmda við jarðganga-
gerð frá og með árinu 2002. Þar er
annars vegar um að ræða jarðgöng
milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar og hins vegar á milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar. Vegagerðin
hefur sent SMpulagsstofnun tillögur
að matsáætlun vegna þessara verk-
efna.
Þar segir m.a. að fjármagnið nýt-
ist aðeins til framkvæmda á öðra
svæðinu í einu og ekM hafi verið tek-
in ákvörðun um hvar verði byrjað.
Framkvæmdaraðili miði undirbún-
ingsvinnu við að bæði verkefnin
verði tilbúin til útboðs seint á næsta
ári og framkvæmdir geti hugsanlega
hafist vorið 2002. Heildarverktími
við gerð jarðganga milli Reyðar-
fjarðar og Fáskrúðsfjarðar er áætl-
aðui' um tvö og hálft ár og þrjú og
hálft til fjögur ár milli Sigluijarðar
og Ólafsfjarðar.
Stytta leið milli Reyðarfjarðar
og Fáskrúðsfjarðar um 32 km
Leiðin milli Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar er 52 km löng og
munu jarðgöngin stytta leiðina um
u.þ.b. 32 km. í matstillögu er lagt tfl
að niðurstaða SMpulagsstofnunar
verði kunngjörð í desember 2000,
matsskýrsla verði send SMpulags-
stofnun í febrúar 2001, frestur al-
mennings til athugasemda renni út í
apríl 2001, úrskurður SMpulags-
stofnunar liggi fyrir í maí 2001 og
úrskurður ráðherra í ágúst 2001.
Út frá tækni- og hagkvæmnis-
sjónarmiðum eru jarðgöng á milli
Hrúteyrar í Reyðarfirði og Dala í
Daladal í Fáskrúðsfirði sá kostur
sem Vegagerðin stefiúr að. í núll-
kosti, sem einnig er bent á, felst að
ekM verði borað jarðgöng og að far-
ið verði í endurbyggingu á núver-
andi vegi milli Fáskrúðsfjarðar og
Reyðarfjarðar.
Gert er ráð fyrir að gerð verði 5,5
km löng jarðgöng milli Reyðarfjarð-
ar og Fáskrúðsfjarðar. Miðað er við
að göngin verði unnin frá báðum
endum og því verði tvöfalt manna-
og tækjaúthald við verMð á hverjum
tíma. EkM hefur verið teMn ákvörð-
un um hvort göngin verði einbreið
eða tvíbreið en kostnaður við síðari
kostinn er áætlaður ríflega 500 millj-
ónum kr. hærri en fyrir einbreið
göng. Heildarkostnaður með tví-
breiðum göngum, forskálum og nýj-
um vegum er áætlaður um 3 millj-
arðar kr.
EMBÆTTI landlæknis hef-
ur teMð saman nýja
skýrslu um biðlista á
helstu sjúkrastofnunum
landsins í október sl. Þá vora ná-
kvæmlega 8.127 manns á biðlistum,
sem er fjölgun um 12% frá því í maí
sl. sé miðað við samanburðarhæfar
upplýsingar, en misbrestur hefur
verið á að deildir sMli upplýsingum
til landlæknis. í greinargerð með
skýrslunni segir landlæknir að mið-
að við ástandið fyrr á árinu hafi al-
mennt orðið lítilsháttar eða nokkur
fjölgun á biðlistum margra skurð-
deilda. Meðalbiðtími eftir aðgerð-
um hefur víða staðið í stað eða styst.
Þrefalt fleiri bíða eftir
augnaðgerðum
Séu einstakar deildir sjúM'ahús-
anna skoðaðar hefur töluverð fjölg-
un orðið á almennum skurðdeildum
frá því í maí, eða um 20%. Biðtími er
að mestu áþekkur á flestum stofn-
unum en hefur þó styst frá því í
upphafi árs á Landspítalanum í
Fossvogi. Á Landspítala við Hring-
Byggja þarf 8 km langan veg til að
tengja jarðgöngin núverandi vega-
kerfi, þar af 1,5 km Reyðarfjarðar-
megin og 6,5 km Fáskrúðsfjarðar-
megin. Miðað við að göngin verði
unnin frá báðum endum er áætlað að
starfsmenn verði um 65 meðan á
gangagerð stendur en fjölgi í um 90
manns yfir sumartímann. Yfir allan
verktímann er áætlaður starfs-
mannafjöldi um 75 manns að með-
altali. Framkvæmdasvæðið liggur
braut hefur hann styst miðað við
janúarmánuð en heldur lengst síðan
í maí. Lengstur er meðalbiðtími eft-
ir almennum skurðaðgeram 70 vik-
ur á Landspítalanum við Hring-
braut en stystur 15 vikur hjá
Heflbrigðisstofnuninni á Sauðár-
króM.
Einnig hefur sjúklingum á bið-
listum eftir augnaðgerðum fjölgað
töluvert frá því í maí, eða um 30%.
Biðtími hefur lítillega styst og er að
meðaltali 13 vikur hjá FSA og 19
hjá Landspítalnum við Hringbraut.
Hjá barna- og unglingageðdeild,
BUGL, hefur orðið veraleg fjölgun
sjúklinga á biðlistum frá því í maí,
eða um 68%. Aðallega er það vegna
greiningar á ofvirkni barna og ung-
linga. I maí biðu 18 einstaklingar
ekM um svæði sem hefur verið frið-
lýst eða er á náttúraminjaskrá.
Jarðgöngmilli Siglufjarðar
og ÓlafsQarðar
Vegagerðin hefur hafið undirbún-
ing að mati á umhverfisáhrifum fyrir
jarðgangagerð á Tröllaskaga. Til at-
hugunar er Héðinsfjarðarleið sem
er meginframkvæmdarkostur Vega-
gerðarinnar, en aðrir kostir era
Fljótaleið og núllkostur, sem felur í
eftir slíkri greiningu en vora 60 í
október, eða meira en þrefalt fleiri.
Flestir sjúklingar bíða eftir að-
gerðum á bæklunardeildum sjúkra-
húsanna, eða 1.172 í október sl., en
1.002 í maí. Biðtími eftir bæklunar-
aðgerðum hefur styst.
Frá því í janúar á þessu ári hefur
orðið marktæk fjölgun á biðlistum
eftir endurhæfingu, eða um rúm
30%. Flestir bíða eftir því að kom-
ast að á Reykjalundi, eða 797 i októ-
ber miðað við 596 í janúar sl. Bið-
tími hefur einnig lengst og nú 30
vikur að meðaltali.
Á háls-, nef- og eyrnadeildum
fjölgaði sjúklingum á biðlistum
veralega milli maí og október, eða
um þriðjung. Mest er fjölgunin hjá
Landspítala í Fossvogi, eða úr 316
sér minniháttar lagfæringar á vegi
um Lágheiði. Leið 1, Héðinsfjarðar-
leið, felur í sér að gerð verða jarð-
göng frá Siglufirði til Héðinsíjarðar
og önnur göng frá Héðinsfirði til
Olafsfjarðar, samtals 15,2 km löng.
Tfl skoðunar eru tvær gangaleiðir
frá Héðinsfirði til Ólafsijarðar. Sam-
kvæmt kosti 1 er reiknað með
munna á jarðgöngum um 1.000 m
innan við Héðinsijarðarvatn. Reikn-
að er með 50-100 m löngum steypt-
um forskála við munnann og síðan 7
km löngum jarðgöngum tfl Ólafs-
fjarðar. Forskáli Ólafsijarðarmegin
verður um 40 m langur og síðan um
900 m langur vegur að Olafsfjarð-
arkaupstað. Áætlaður kostnaður
miðað við einbreið jarðgöng er 4,4
mflljarðar króna.
Samkvæmt kosti 2 verður munni
jarðganga í mynni Skeggjabrekku-
dals í Olafsfirði. Steyptur forskáli
yrði þá um 200 m langur og síðan
tæplega 2 km langur vegur til Ólafs-,
fjarðarkaupstaðar. Snjóflóðahætta
er meiri á þessum stað, lega vega ut-
an ganga fremur erfið vegna bratta
og óhjákvæmflegt yrði að skerða
golfvöll á svæðinu. Lengd ganganna
yrði 800 m minni, eða 6,2 km, for-
skáli yrði um 160 m lengri og nýr
vegur um 1,5 km lengri. Áætlaður
kostnaður við einbreið jarðgöng er
4,3 mifljarðar kr. í þessari útfærslu
yrði vegalengdin milli Siglufjarðar
og Ólafsfjarðar rúmlega 16 km.
Fljótaleið miðast við að leggja
göng frá Siglufirði yfir í Fljótin, úr.
Hólsdal yfir í Nautadal, og síðan úr
Fljótunum yfir í Ólafsfjörð, frá
Holtsdal að Þverá eða Kvíabekk.
Miðað við Fljótaleið yrði leiðin milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um 32
km löng. Um er að ræða tvenn jarð-
göng, 4,7 km og 7,9 eða 8,5 km að
lengd eftfr hæð gangamunna í
Holtsdal. Áætlaður kostnaður miðað
við einbreið göng er 5,4-5,6 milljarð-
ar kr. Núllkostur, þ.e. endurbættur
vegur um Lágheiði, felur í sér áætl-
aðan kostnað upp á 150 milljónir kr.
Ráðgert er að kynna drög að
matsskýrslu vegna þessarar fram-
kvæmdar fyrir almenningi og um-
sagnaraðilum í febráar nk. í mars
verða drög að matsskýrslu send til
SMpulagsstofnunar til yfirlestrar.
Matsskýrsla verður send í lok mars
til formlegrar athugunar hjá SMpu-
lagsstofnun og 12 vikum síðar mun
stofnunin úrskurða um fyrirhugaða
framkvæmd. Gert er ráð fyrir að
matsskýrsla og fyrirhuguð fram-
kvæmd verði kynnt þegar athugun
SMpulagsstofnunar er hafin.
sjúklingum í maí í 544 í október.
Færri bíða nú eftir hjartaaðgerð-
um en í maí og hefur biðlistinn styst
um þriðjung. Flefri bíða hins vegar
eftir smærri aðgerðum, s.s. hjarta-
þræðingu.
Eðli biðlista mismunandi
Þetta er í þriðja sinn á árinu sem
landlæknir leitar eftir upplýsingum
frá sjúkrastofnunum um fjölda
sjúklinga á biðlistum og biðtíma.
Upplýsingarnar era á ábyrgð
hverrar stofnunar fyrir sig, sem
sumar skiluðu upplýsingum fyrst
fyrir októbermánuð sl. Samanburð-
ur við stöðuna í janúar er því vart
marktækur. í greinargerð sinnj,,
minnir landlæknir á að eðli biðlistá
sé í raun mismunandi. Stuttir bið-
listar séu í raun ekki annað en áætl-
analistar þannig að unnt sé að raða
sjúklingum niður í valaðgerðir. Því
verði að telja að biðlistar með
nokkram tugum sjúklinga lýsi ekki
bráðri þörf. MiMU munur sé því á
þeim og biðlistum sem taki til nokk-
urra hundraða einstaklinga.
Erfitt að eiga
við krabba-
meinsfrumur
Finna þarf fyrstu
skref frumu-
breytinga
Sjúklingum á biðlistum fjölgaði um 12% frá því í maí að mati landlæknis
8.127 manns
á biðlistum