Morgunblaðið - 19.12.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 53
i
;,:vv'
IP
LISTIR
Otrúlegur athafnamaður
BÆKUR
Ævisaga
SKAGFIRÐINGUR SKÍR
OG HREINN
ÆVIMINNINGAR
Eftir Andrés H. Valberg. Árni
Gunnarsson bjó til prentunar.
Bókaútgáfan Skjaldborg,
Reykjavík, 2000,326 bls.
JÓN Andrés Sveinn Hallgrímsson
Valberg heitir hann, fæddur 15.
október 1919, kl. 0.30,33. Ættliður
frá Úlfí óarga í Hrafnistu í Noregi.
Nú gengur hann undir nafninu
Andrés H. Valberg, forstjóri í
Reykjavík, landskunnur vísnasmið-
ur og frægur safnandi náttúrugripa
og fomminja. Afi hans í móðurætt
var Sveinn Gunnarsson, bóndi og
kaupmaður frá Mælifellsá í Skaga-
firði, einnig landskunnur, ekki síst
fyrir sérstæða og merkilega sjálfs-
ævisögu sína útgefna árið 1921. Hún
bar nafnið Veraldarsaga Sveins frá
Mælifellsá í Skagafirði með fleiru.
Þessum tveimur ævisögum svipar
merkilega mikið saman. Báðir em
höfundarnir með ólíkindum athafna-
samir, fésýslumenn miklir, ókvalráð-
ir og með eindæmum óhlífnir við
sjálfa sig. Opinskáir bæði á kost og
löst, drjúglátir nokkuð, glettnir og
bragðvísir á köflum, en í raun heið-
arlegh', hlýir og raungóðir. I báðum
bókum er stíll hraður, lífmikill, litrík-
ur og skemmtilegur. Aðvitað er ótal-
margt sem greinir á milli, enda tímar
og aðstæður ólíkar. En skyldleikinn
leynir sér ekki. Svo er og raunar um
marga af ætt Skíðunga (Skíðastaða-
ætt í Skagafirði). Þar er kynfesta
mikil, svo að þeir sjálfir og aðrir hafa
orð á.
Andrés H. Valberg er alinn upp á
fjallajörðinni Kálfárdal í Göngu-
skörðum og síðar á Sauðárkróki.
Hann er orðinn vel fullorðinn þegar
hann flyst til Reykjavíkur og stund-
ar þar leigubílaakstur um langt
skeið.
Meginhluti írásagnarinnar í þess-
ari bók er frá Kálfárdals- og Sauð-
árkróksánmum, einkum frá fjórða
tug síðustu aldar. Þar er géysimiklu
efni safnað saman og margt tilgreint
nákvæmlega, s.s. afli í hverri veiði-
ferð á landi og sjó, verð á seldu og
keyptu o.s.frv. Þar hefur Andrés
haft við dagbækur sínar að styðjast,
sem hann hefur haldið frá bams-
aldri. Það er ekki smátt, sem Andrés
hefur fengist við: búskaparbasl, út-
gerð, minkaeldi, bílaakstur o.fl. o.fl.
Veiðimaður hefur hann verið af
„guðs náð“, ef leyfilegt er að nota
þau orð. Hann segist hafa skotið allt
og drepið sem kvikt var, rjúpur, end-
ur, meira að segja „pokaendur“,
svartfugl, máva og skúm, eftir að
suður kom, refi, seli og hvaðeina.
Ekki var alltaf farið að lögum og
reglum og sögur eru sagðar af
naumri undankomu frá lögreglu og
sýslumanni. En frábitinn hefur
Andrés alla tíð verið sportveiði og
aldrei hefur hann keypt sér veiði-
leyfi. Kaupmennskan og söfnunarár-
áttan er þó kannski það sem hefur
auðkennt hann mest fyrir utan
vísnagerð og kvæðamennsku á
seinni árum. Hann er bráðsnjall hag-
yrðingur og hraðkvæður með af-
brigðum. Margar vísur hans eru í
þessari bók.
Vera má að ég sé ekki fyllilega
hlutlaus dómari á frásagnir Andrés-
ar. Ég er alinn upp á Króknum eins
og hann og man vel fjórða áratuginn.
Persónur þær sem hann lýsir og seg-
ir frá þekkti ég einnig vel. En ég nýt
þess þá einnig að geta metið hvort
hann lýsir rétt og segir rétt frá. Og
því held ég fram að lýsingar hans
flestar séu réttar. Sumar hverjar eru
undragóðar, t.a.m. lýsingin á Pálma
á Stöðinni, sem er hreint afbragð.
Mikilsverðast finnst mér þó hversu
afbragðsgóða innsýn maður fær inn í
hið erfiða fátæktarbasl á Króknum á
kreppuárunum upp úr 1930. Ég
minnist þess ekki að hafa lesið eins
lifandi og alhliða frásögn. Þar var
vissulega allt undir því komið að vera
nógu útsjónarsamur að bjarga sér.
Þar var vissulega Seylufjölskyldan í
fararbroddi. Auðvitað verður því
ekki neitað að Andrés og hans fólk
lagði alveg ótrúlega hart að sér.
Andrés virðist stundum hafa gengið
næst lífi sínu með vosbúð, hrakning-
um og hungri. Margir myndu segja
að þar hafi einstök ágirnd og græðgi
ráðið ferðinni fram úr hófi.
Þessi ævisaga er með þeim merk-
ari sem ég hef lesið og langlífi á hún
skilið eins og Veraldarsagan afa
hans.
í upphafi bókar skrifar Árni
Gunnarsson frá Reykjum fáein orð
um höfundinn og bókina. Hinn rit-
færi Árni fylgir þar ævisögunni
skemmtilega úr hlaði, en hann hefur
búið söguna til prentunar. Tel ég víst
að Árni eigi drjúga hlutdeild að því
hversu vel bókin er úr garði gerð. -
Enda þótt ævisaga Andrésar sé löng
og efnismikil lætur Árni þess getið
að „ennþá liggur eftir ógrynni af efni
sem vert er að koma til bókar, og þó
öllu fremur skylt“. Er vonandi að úr
þvi geti orðið.
Sigurjón Björnsson
Allt til jólanna
í Hólagarði
JÓBdbækur
10-30% afsláttur
Moulinex blandari fylgir
hverri bók.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • Skútuvogi 16
Fylgir ekki með barnabókum