Morgunblaðið - 19.12.2000, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Ástkær föðurbróðir okkar,
ODDUR ÓFEIGSSON,
lést á Droplaugarstöðum föstudaginn
8. desember.
Jarðarförin hefur þegar farið fram.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Droplaugarstaða.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hólmfríður Davíðsdóttir,
Ófeigur Sigurðsson,
Þórey Sigurðardóttir,
Sigríður Sigurðardóttir,
Svanhildur Sigurðardóttir,
Auður Margrét Sigurðardóttir.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HERDÍS TORFADÓTTIR,
Víkurgötu 4,
Stykkishólmi,
lést laugardaginn 16. desember á St. Frans-
iskusspítalanum í Stykkishólmi.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðmundur Bjarnason,
Bragi Guðmundsson, Sigrfður Guðmundsdóttir,
Páll Guðmundsson, Ólöf Þórey Ellertsdóttir,
Bára Guðmundsdóttir, Guðjón Karlsson,
Áslaug Guðmundsdóttir, Halldór Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR BJARNADÓTTIR,
andaðist á Droplaugarstöðum föstudaginn
15. desember.
Hjördís Antonsdóttir,
Bjarni Ólafsson, Dagmar Kristjánsdóttir,
Jóhannes Ólafsson, Svanhildur Guðlaugsdóttir
og barnabarnabörn
+
Elskulegur bróðir minn, faðir og frændi okkar,
SIGURÐUR FINNSSON
útgerðarmaður
frá Siglufirði,
lést á heimili sínu, Álftamýri 4, laugardaginn
16. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Erla Finnsdóttir,
Arnar Sigurðsson,
Bára Hauksdóttir,
Bylgja Hauksdóttir,
Jóhanna Hauksdóttir.
+
Ástkær unnusti minn, faðir, sonur, tilvonandi
tengdasonur, bróðir og mágur,
JÓN ELÍS GUÐMUNDSSON
„Jón Massi“,
Suðurhólum 20,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 9. desember, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
21. desember kl. 10.30.
Sara Reginsdóttir,
Tristan Alex Jónsson,
Kristín Kristensen, Guðmundur H. Jónsson,
Ellen Björnsdóttir, Regin Grímsson,
Edvard H. Guðmundsson,
Fjóla H. Guðmundsdóttir, Pálmi Hjaltalín.
BERGLJÓT
SIGRÍÐUR RAFNAR
+ Bergljót Sigríður
Rafnar fæddist í
Reyly vík 20. septem-
ber 1922. Hún lést í
Landspítalanum 11.
desember siðastiið-
inn og fór útför
hennar fram frá Bú-
staðakirkju 18. des-
ember.
Nú þegar frú Berg-
ljót S. Rafnar er fallin
frá finn ég til þakklæt-
is fyrir að hafa kynnst
þessari heilsteyptu og
heillandi konu ágæt-
lega á síðustu árum og sömuleiðis
Bjarna Rafnar lækni, eftirlifandi
eiginmanni hennar.
Þau hjónin voru einnig gamlir og
kærir vinir foreldra minna.
Bergljót sýndi mér ýmiskonar
vináttuvott og áttum við nokkrar
ánægjulegar samverustundir, meðal
annars á hinu fallega og menning-
arlega heimili þeirra hjóna í Efsta-
leiti 12. Einnig reyndust þau hjónin
systrum mínum tveimur mjög vel er
þær voru við nám á Akureyri uppúr
1960. Fyrir þessa vináttu vil ég nú
þakka um leið og ég votta ástvinum
Bergljótar öllum innilega samúð
mína og konu minnar.
Mér fannst ekki ónýtt þegar leiðir
okkar Bergljótar lágu saman fyrir
nokkrum árum að kynnast þannig
dóttur Haralds Níelssonar prófess-
ors, sem fyrstur gegndi því starfi
við Háskóla Islands sem ég gegni
nú, þ.e. hann hafði með höndum
kennslu í gamlatestamentisfræðum
og þýddi að auki stærri hluta Gamla
testamentisins en nokkur íslending-
ur annar fyrr eða síðar. Bergljót var
aðeins á sjötta ári þegar faðir henn-
ar lést. Engu að síður kunni hún að
segja mér ýmislegt um hann sem
mér þótti fengur að enda frásagn-
argáfa hennar góð og minni hennar
sömuleiðis. Mörgum árum áður
hafði ég kynnst Sigurði hálfbróður
hennar, sem þá var vistmaður á
Hrafnistu, en ég starfaði þar um
hríð sem næturvörður á námsárum
mínum. Attum við oft langar sam-
ræður á nóttunni því Sigurður hafði
frá miklu að segja og greinilegt er
að hina góðu frásagnargáfu hafa
þau systkinin erft frá föður sínum.
Bergljótu var mjög annt um
minningu föður síns og á síðastliðnu
ári beitti hún sér fyrir því ásamt
Jónasi Haralz, bróður sínum, að
gefið var út úrval af prédikunum
föður þeirra. Völdu þau systkinin í
samvinnu við dr. Pétur Pétursson
prófessor prédikanir í það safn og
dr. Pétur skrifaði síðan ágætan inn-
gang að safninu sem kom út fyrir jól
1999 undir heitinu
„Það er yfir oss vak-
að.“ Er það safn þeim
öllum er að því stóðu
til sóma, og var vissu-
lega tímabært að gefa
út slíkt rit því prédik-
anir Haralds Níelsson-
ar prófessors eiga
vissulega enn fullt er-
indi til íslenskrar þjóð-
ar. Ekki er vafi á því
að Haraldur er einhver
áhrifamesti guðfræð-
ingur 20. aldar hér á
landi.
Mér er minnistætt
hversu elskulega frú Bergljót tók
mér strax þegar ég hitti hana fyrst
og hef ég nú á skrifstofu minni stóra
og fallega innrammaða mynd af föð-
ur hennar sem hún og Jónas bróðir
hennar færðu mér að gjöf. Þegar ég
horfi á þessa mynd minnist ég ekki
aðeins góðra gefenda heldur einnig
eftirfarandi bænarorða föður þeirra
og geri þau að mínum: „Kenn oss,
Drottinn, að nota betur þann náð-
artíma, er þú enn af miskunn þinni
veitir oss.“ Ég vil ljúka þessum
minningarorðum mínum um frú
Bergljótu Rafnar með því að vitna í
lokaorð úr nýársprédikun föður
hennar, sem flutt var í Dómkirkj-
unni í ársbyijun 1902, en þar segir:
,jUlir þeir sem af alvöru hjartans
hafa tileinkað sér náðarboðskap
Krists, vita það, að enginn læri-
sveinn hans þarf að óttast dauða-
stund sína. Þegar sú hin mikla
stund kemur og maðurinn á að yf-
irgefa allt hið jarðneska, þegar allt
það, sem honum þótti dýrmætast
hér í heimi, virðist hverfa sjónum
hans að eilífu, þá fer engill Guðs nið-
ur til jarðarinnar og hvíslar að deyj-
andi mannshjartanu: - Sjá ég geri
alla hluti nýja.“ Guð blessi minningu
frú Bergljótar S. Rafnar.
Gunniaugur A. Jónsson.
Bergljót Rafnar var falleg kona
og erfði marga góða eðliskosti úr
báðum ættum. Faðir hennar, sr.
Haraldur Níelsson prófessor, lést
þegar hún var mjög ung. Aðalbjörg
Sigurðardóttir, móðir hennar, var
mikil merkiskona og tengsl þeirra
mæðgna voru náin. Ekki þótti mér
Begga lík mömmu sinni, en þær
voru báðar sterkir persónuleikar,
vel gefnar, mælskar og skemmtileg-
ar. Aðalbjörg var alltaf mjög virk í
félagsmálum og stúdentinn Begga
var kannski þess vegna heimakær
og kaus að njóta móðurhlutverksins
þar til börnin fjögur voru flogin úr
hreiðrinu. Hún hvatti börnin sín til
dáða og síðar barnabörnin og var
+
Elsku sonur okkar, bróðir, mágur og frændi,
HANNES ÞÓR TRAUSTASON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn
17. desember.
Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir,
Trausti Tómasson,
Sóldís Björk Traustadóttir, Hörður Pálmarsson,
Rfkharður Traustason, Hulda Karen Auðunsdóttir,
Fjóla Kristín Traustadóttir.Guðmundur Ás Birgisson,
Trausti Traustason
og systkinabörn.
+
Móðir okkar,
ÁRSÓL KLARA GUÐMUNDSDÓTTIR,
andaðist á Hrafnistu sunnudaginn 17. desember.
Regína Svavarsdóttir,
Garðar Svavarsson,
Soffía Lúðvíksdóttir Taylor.
einstaklega umhyggjusöm um
þeirra hag. Begga var vinamörg og
um skeið bæjarfulltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn á Akureyri.
Rafnarsfjölskyldan er samheldin
og það voru þau líka systkinin
Begga og Jónas H. Haralz. A meðan
bræðurnir, Bjarni hennar Beggu og
Jónas faðir minn, bjuggu báðir á
Akureyri var stutt á milli heimil-
anna og samgangur mikill. Okkur
systrum þótti alltaf notalegt að
koma á Skólastíginn og síðar í Ása-
byggðina. Húsmóðirin var miðdepill
heimilisins, full af lífskrafti og dugn-
aði, gaf sér tíma til að spjalla við
unga fólkið, segja fréttir og vera
skemmtileg. Hún var víðlesin og
fróð, hlý og blátt áfram og ræktaði
vel garðinn sinn. Þegar Bjarni hætti
læknisstörfum á Akureyri og þau
fluttu suður urðu bræðumir aftur
nágrannar og alla tíð voru tengsl
fjölskyldnanna mikil. Það er ham-
ingja í því fólgin að eiga góða að og
rækta þá list að eíga sína að vinum.
Við Begga höfum verið spilafélagar
í mörg ár. Hún var notalegur félagi,
fastlynd og fundvis á færar leiðir.
Hún hafði allt það til að bera sem
skiptir máli um eftirsóknarverðan
félagsskap. Með frásagnargáfu
sinni sló hún upp myndum af liðinni
tíð og af mannfólki, sem varð ljóslif-
andi fyrir mér eins og ég hefði sjálf
verið viðstödd atvik hverrar sögu.
Mjög oft var kímni í frásögninni.
Slíkt er ekki öllum gefið.
Við systur og fjölskyldur okkar
sendum Bjarna, Björgu, Haraldi,
Kristínu, Þórunni, Jónasi H. Haralz
og öllu þeirra fólki okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Góð kona er
horfin af sjónarsviðinu og Bergljót
Rafnar verður öllum minnisstæð
sem henni kynntust.
Ásdís J. Rafnar.
Bergljót Rafnar, sem lést mánu-
daginn 11. desember, skilur eftir sig
sorg og söknuð en einnig bjartar og
leiftrandi minningar. Foreldrar
hennar, þau Haraldur Níelsson pró-
fessor og Aðalbjörg Sigurðardóttir,
kennari og húsfreyja, kvenréttinda-
kona og rithöfundur, voru lands-
þekkt fyrir menntun sína og störf.
Bergljót naut góðs af því andrúms-
lofti sem ríkti í foreldrahúsum og
varð víðsýn og fróðleiksfús. Hún
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1941. Bergljót
giftist eftirlifandi manni sínum,
Bjarna Rafnar, meðan hann var enn
í læknisnámi. Bjarni var um árarað-
ir kvensjúkdómalæknir og yfirlækn-
ir á sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar
byggðp þau sér fallegt hús og heim-
ili í Asabyggðinni. Það einkenndi
heimilið með öðru hve vel var tekið
þar á móti ungu fólki á skólagöngu.
Börn þeirra hjóna voru mannblend-
in og komu gjarnan með skólafélag-
ana heim til sín. Bergljót tók þeim
einstaklega vel, spjallaði við þau um
heima og geima og oftar en ekki
voru tekin upp spil ef gestirnir voru
til í að taka slag. Hún tók þeim öll-
um sem jafningjum sínum. Þessa
einstaka viðmóts naut Gunnar son-
ur minn í ríkum mæli þegar hann
kynntist konuefni sínu, Kristínu,
dóttur Bjarna og Bergljótar.
Heimilið var vettvangur Bergljót-
ar. Þar sinnti hún manni og börnum
af kostgæfni, hugsaði um skólann
og námið með börnunum og vann í
raun sem upplýsingafulltrúi og
einkaritari eiginmannsins sem
gegndi erilsömu og erfiðu starfi. Á
þeim tímum var oft leitað heim til
læknisins vegna lasleika eða alvar-
legra veikinda, og þá kom það í hlut
Bergljótar að skrá upplýsingar um
þann sem hringdi og hvert erindið
hefði verið og hafa samband sem
fyrst við Bjarna ef hún taldi að mik-
ið lægi við. Heimilið var alltaf hluti
af hringiðunni í kringum lækninn og
sjúklinga hans.
Bergljót naut þess að vera í
margmenni og var þar hrókur alls
fagnaðar. Hún hafði unun af félags-
störfum og lét að sér kveða þar eftir
því sem þörf var á hverju sinni. Ég
vil þakka Bergljótu fyrir þá ástúð
og umhyggju sem hún sýndi sam-
eiginlegum sonarsonum okkar og
samhryggist um leið þeim sem eiga
um sárt að binda við fráfall hennar.
Stefán Aðalsteinsson.