Morgunblaðið - 19.12.2000, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
(JMRÆÐAN
Skaðsemi
nagladekkja
HINN 29. nóvember
ritaði Sverrir Hjalta-
son, rafveitustjóri á
Hvammstanga, grein í
Morgunblaðið sem bar
yfirskriftina „Umferð-
aróhöpp, hálka og
mengun“. í byrjun
greinarinnar hnýtir
hann í gatnamálastjór-
ann í Reykjavík vegna
þeirra viðleitni hans að
spoma við notkun
nagladekkja. Sverrir
var óhress með að
gatnamálastjóri skyldi
ekki minnast á þann
skaða sem salt hefur á
malbik og segir í grein
sinni: „Ekki ræddi hann um samspil
saltaustursins og naglanna sem hefiir
þá væntanlega mest áhrif til
skemmda á malbiksslitlagi. Það skýr-
ist af því að saltið leysir upp bindiefn-
Hjólbarðar
Sú staðreynd, segir
Fríðrík Helgi
Vigfússon, að stjórn-
völd skuli ekki gefa
málinu meiri gaum,
vekur furðu.
ið í malbikinu þannig að naglamir
eiga auðveldara með að tæta það
upp“! í þessum orðum Sverris krist-
allast hin almenna vanþekldng á mál-
inu. Staðreyndin er sú, að salt leysir
ekki upp bindiefnið í malbiki frekar
en tjöm eða olíu. Saltið hækkar hins
vegar yfirborðshita malbiksins og býr
þannig í haginn fyrir eyðingarmátt
naglanna. Samkvæmt rannsóknum
þýskrar stofnunar (Bundes Anstalt
fur Wegwesen) eykst malbikseyðing
um 10% íyrir hverja gráðu sem hitinn
hækkar (Schlemmer, F.J.: Versc-
hleiss von Strassendeckschichten
durch Spikereifen - Zusammenfas-
sung der Untersuchungen im
Innentrommelprufstand - Research
reports of the Federal Highway
Research Institute, no. 249,1992).
Kjami málsins er að nagladekkin
era skaðvaldurinn, enda bönnuð víða
um lönd, til að mynda í flestum ríkj-
um sambandsríkisins Þýskalands
sem og mörgum ríkjum Bandaríkj-
anna og Kanada. Saltið er hér í auka-
hlutverki - á sama hátt myndi upp-
hitun gatna valda svipuðum áhrifum.
Þá finnur Sverrir að því, að gatna-
málastjóri vilji að við íslendingar, rétt
eins og fleiri þjóðir, líti til Noregs og
skattleggi notkun nagladekkja í þétt-
býli. Það sem einkum
fer fyrir bijóstið á
Sverri er að skatturinn
yrði fyrst og fremst
skattur á þá sem þurfa
að sinna öryggismálum,
ásamt íbúum dreifbýlis-
ins. Hér er enn.höggvið
í sama vanþekkingark-
nérunn. í Noregi era
allir sem sinna örygg-
imálum undanþegnir
skattinum sem og dreif-
býlisbúar. Það er aðeins
í hinum stærri borgum
sem skattlagningin er
viðhöfð. Kerfið virkar
þannig, að ökumenn
geta keypt mislöng
„naglaleyfi". Þannig getur utanbæj-
armaður, sem kemur til Oslóar á bif-
reið sinni, keypt naglaleyfi á næstu
bensínstöð fyrir einn dag. Á sama
hátt getur íbúi í Osló keypt leyfi fyrir
allt naglatímabilið. Þetta er nyög ein-
falt kerfi og notað víða um lönd, til
dæmis við innheimtu á hraðbrauta-
gjöldum í Austurrfld.
Kjami málsins er sá, að þeir einir
greiddu skatt sem ækju á nagladekkj-
um um höfúðborgarsvæðið, íbúar
Hvammstanga sem og aðrir lands-
byggðarmenn á nöglum yrðu því laus-
ir við slíka skattlagningu, nema því
aðeins að þeir kæmu til Reykjavfluu-
og tækju þátt í skemmdarverkunum
sem nagladekkin valda á götum og
heilsu íbúa svæðisins. í niðurlagi
greinar sinnar lýsir Sverrir aftur á
móti með réttu þeirri skaðsemi sem
naglar valda og hvetur til rannsókna
jafiit á öryggis- og umhverfisþáttum
notkunar þeiiTa. Það er gott mál og
þarft. I því sambandi vil ég aftur
minna á rannsókn dr. Haralds Sig-
þórssonar frá 1998. Niðurstaða þeirr-
ar rannsóknar var sú, að lítill ávinn-
ingur væri af notkun nagladekkja á
höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknin
byggðist á gögnum sem spanna yfir
12 ára tímabil og þykir af fræðimönn-
um ein sú besta sem til er í heimi um
efnið.
Sú staðreynd, að stjómvöld skuli
ekki gefa málinu meiri gaum, vekur
furðu og er ég Sverri sammála um
nauðsyn þess að rfld og borg taki
höndum saman um það hagsmunamál
íbúa höfuðborgarsvæðisins að ráðist
verði í umfangsmikla rannsókn á um-
hverfisþáttum málsins. Að mati und-
irritaðs ber stjómvöldum skylda til
þess að bæta lífsskilyrði borgaranna
með því að stemma stigu við þeirri vá,
sem óhófleg notkun nagladekkja í
rauninni er. Einnig bera fyrirtæki á
svæðinu siðferðilega ábyrgð og ættu
að leitast við að draga sem mest úr
neikvæðum umhverfisáhrifúm sem
þau valda með starfsemi sinni. Hér
ríkir ákveðið sinnuleysi og er dapurt
Friðrik Helgi
Vigfússon
til þess að hugsa að flest fyrirtæki á
höfúðborgarsvæðinu láti reka á reið-
anum. Þó ber að geta þess að til era
undantekningar eins og til dæmis
Landssíminn hf., sem verið hefur í
fararbroddi íslenskra fyrirtælqa á
þessu sviði, samanber grein tals-
manns fyrirtækisins í Morgunblaðinu
frá 13. október, „Nagladekkjavand-
inn - lausn Símans“. Þessi afstaða
Landssímans gefur manni tilefni til
þess að trúa því að fyrirtækið haldi
með jafnmyndarlegum hætti um aðra
þætti starfsemi sinnar og eigi þar af
leiðandi að njóta þess þegar ríki og
borg velja sér símaþjónustu. I lokin
skal á það bent, að Reykjavík nær
aldrei því yfirlýsta markmiði sínu að
verða hreinasta borg Norðurlanda,
komi ekki til viðhorfsbreyting ráða-
manna hennar. í Morgunblaðinu hinn
13. október bendir Björgvin Þor-
steinsson umhverfisverkfræðingur á
þá staðreynd að árlega losna u.þ.b. 15
þúsund tonn af asfalti af götum
Reykjavíkur af völdum nagladeklqa.
Samkvæmt norskum rannsóknum
losna 10% af þessu magni sem svif-
ryk. Hluti af þessum 150 tonnum af
svifryki enda svo í lungum borgarbúa
með ógnvekjandi heilsufarslegum af-
leiðingum. Árið 1998 létust 419
manns í Osló af völdum svifryks.
Hvað má rekja mörg dauðsföll og of-
næmistilfelli til svifryks í Reykjavík?
Fróðlegt væri að fá svar við þessari
spumingu frá til þess bæram aðilum.
Reykjavík, rétt eins og mörg önnur
sveitarfélög, hefur skuldbundið síg
með undirritun Staðardagskrár 21 til
þess að minnka mengun og vera til
fyrirmyndar hvað snertir umhverfis-
vænar lausnir í samgöngumálum.
Skattur á nagladekk er einn lykillinn
að góðum árangri í því eftfl því að
þrátt fyrir góðan vflja skflja menn
budduna best.
Höfuadur er rekstrarhagfræðingur.
S'ufísÁaríyripir
DEMAN AHUSIÐ
I Kringlan 4-12, sfmi 588 9944
Glæsileg LANCÖME jól!
Ö OUI! ilmur í öskju? —~~-
JÓLAVERÐ kr. 3.650
Verðmæti kr. 4.650 |www.ancoTO.comgi
LANCÖME
PARt
Fjöldi fallegra jólaaskja sem innihalda ilmvötn,
krem og fleira.
Gjafir sem konur elska!
LANCÖME UM LAND ALLT
Reykjavílc Bylgjan, Hamroborg, Kópavogi, s, 564 201 1
Árbæjarapótek, Hraunbæ 102b, s. 567 4200 Fína, Háholti 14, AÁosfellsbæ, s. 568 8000
Glæsibær snyrtiv.verslun, Álfh. 74, s. 568 5170 Nesapófek, Eiðistorgi 17, Seltj.nesi, s. 562 890$
Gullbrá, Nóatúni 17, s. 562 4217
Hygea, Kringlunni, s. 533 4533
Hygea, Laugavegi 23, s. 511 4533
lyf og heilsa, Austurstraeti 12, s. 562 9020
Lyf og heilsa Mjódd, Álfabakka 12, s. 557 3390
Lyf og heilsa Austurv., Háal.br. 68, s. 581 2101
Lyf og heilsa, Melhaga 20-22, s. 552 2190
Mist snyrtist/verslun, Spönginni 23, s. 577 1577
Sara, Bankastræti 8, s. 551 3140
Sigurboginn, Laugavegi 80, s. 561 1330
Snyrtimiðst., Lancome snyrtistofa, Kringlunni 7,
s. 588 1990
Andorra, Strandg. 32, Hafnarfirði, s. 555 2615
tANDÐ:
Hjá Maríu Amaro, Akureyri, s. 462 1730
Hjá Maríu, Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1733
Apófek Ólafsvíkur, ólafsvík, s. 436 1261
Egilsstaða Apótek, Egilsstöðum, s. 471 1273
Lyf og heilsa, Hellú, s. 487 5030
Lyf og heilsa, Hvolsvelli, s. 487 8630
Lyf og heilsa, Kjarnanum, Selfossi, s. 482 1177
Miðbær Vestmannaeyjum, s. 481 1505
Sauðárkróksapófek Sauðárkróki, s. 453 5336
Siglufjarðarapótek Siglufirði, s. 467 2222
Verslunin Perla Akranesi, s. 431 1504
Nú er vetur gengin í garð og tími til komin að setja
vetrardekkin undir bílinn. Hjá Bflkó færðu úrvals
vetrardekk aföllum stærðum og gerðum. Spólaðu
ekki í sama farinu! Pantaðu tíma í síma 557 9110
eða komdu við á smiðjuvegi 34-36 og þú færð
toppþjónustu á hreint ótrúlegu verði.
BÍLKÓ EHF.- Bifreiðaþjðnusta - Dekkjaverkstæði - Bilaþvottur Smiðjuvegur 34-36 ■ Kðpavogi ■ Simi 557 9110 ■ Rauð gata OPIÐ 08-18 MÁN-FÖS. OPIB 10-16 LAU. NEYBARÞ3ÓNUSTAN AU.TAF OPIN SÍMI800 49Ú9