Morgunblaðið - 19.12.2000, Blaðsíða 68
íg, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
Zt---------------------------
UMRÆÐAN
MORGUNBLADIÐ
Nýtum lesað-
1 stöðu Háskól-
ans til fulls
MIKIÐ hefur ver-
ið rætt um aðstöðu-
vandamál Háskólans
að undanförnu enda
er nemendafjöldi
Háskóla fslands orð-
iilrt svo mikill að hús-
næði skólans dugir
hvergi nærri til. Þeg-
ar próf standa yfír
finna stúdentar mjög
fyrir þessum vanda.
Þjóðarbókhlaðan er
full af stúdentum
þegar próf standa yf-
ir en auk þess stend-
ur þeim til boða að
lesa í öðrum bygging-
um Háskólans, þar á
meðal í kennslustofum. Þetta dugir
þó ekki til að fullnægja þörfinni.
Stúdentar læra
líka um helgar
meðan húsnæði og lestrarað-
staða stúdenta er af skornum
skammti er mjög mikilvægt að nýta
til fulls þá aðstöðu sem fyrir hendi
er. Þjóðarbókhlaðan kemur til að
mynda ekki nógu vel til móts við
Nám
Háskólastúdentar
eiga ekki helgarfrí
i*þegar prófín standa
yfír, segja Þorbjörg S.
Gunnlaugsdóttir og
Baldvin Þór Bergsson,
og þeir lesa lengur
en til kl. 17.
nemendur Háskólans yfir próftíma
og er opnunartími hennar í engu
samræmi við þörf okkar háskóla-
nema.
Þjóðarbókhlaðan er helsta lesað-
staða stúdenta en hún er opin frá
kl. 8-15-22 frá mánudegi til fimmtu-
dágs og frá 8.15-19 á föstudögum.
Um helgar er bókasafnið hins vegar
aðeins opið frá frá 9-17 á laugar-
dögum og á sunnudögum frá 11-17.
Háskólastúdentar eiga ekki helg-
arfrí þegar prófin standa yfir og
þeir lesa lengur en til kl. 17. Það er
sanngjörn krafa að opnunartími
Þjóðarbókhlöðunnar verði lengdur
til kl. 22.00 um helgar. Þessi krafa
okkar ætti heldur ekki að hafa mik-
inn kostnað í för með sér.
Andinn og
líkaminn
Fyrir tveimur árum veitti Alþingi
18 milljón króna aukafjárveitingu
til þess að gera stjórnendum Þjóð-
aHtekhlöðunnar kleift að lengja af-
greiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar
úr 59 í 81 klukkustund á viku.
Lenging sú sem nú er farið fram á
ætti ekki að vera nærri því eins
kostnaðarsöm. Fulltrúar Vöku voru
himinlifandi með þá lengingu sem
varð fyrir tveimur árum og fögnuðu
auknum skilningi stjórnvalda á
þörfum okkar stúdenta.
En sá tími sem Þjóðarbókhlaðan
er opin er sem stendur ekki í sam-
ræmi við þróun á öðrum sviðum
þjóðfélagsins og má til gamans
benda á þá staðreynd að margar
verslanir og jafnvel líkamsræktar-
stöðvar eru opnar langt fram eftir
kvöldum, jafnvel allan sólarhring-
inn. Eiga menn ekki að eiga tæki-
færi til þess að rækta andann á
kvöldin, rétt eins og líkamann?
Vaka vill opna
byggingarnar
Vaka lagði fyrir skömmu fram til-
lögu á Stúdentaráðsfundi um að
Stúdentaráð myndi beita sér fyrir
því að byggingar Háskólans yrðu
opnar stúdentum allan sólarhring-
inn. Röskva var samþykk tillögunni
og er það gleðilegt. Þetta hefur ver-
ið gert með góðum árangri í Há-
skólanum í Reykjavík enda er þessi
hugmynd mjög einföld í fram-
kvæmd.
Til stendur að smartkortavæða
háskólasvæðið en Vaka telur óþarfi
að bíða eftir því að tölvustýrt kerfi
komist í gagnið og vill hraða fram-
vindu mála. Fyrirkomulagið yrði
þannig að þeir stúdentar sem nota
aðstöðuna bera ábyrgð á bygging-
unum, rétt eins og gert er í Háskól-
anum í Reykjavík. Þá yrði komið
kerfi á sem gerði stúdentum mögu-
legt að bera ábyrgð á byggingun-
um.
Vaka telur að stúdentum sé
treystandi til að ganga vel um
byggingar Háskólans á kvöldin
ekki síður en á daginn. í um-
ræðunni um aðstöðuleysi stúdenta
á ekki bara að biðja um fleiri bygg-
ingar. Nauðsynlegt er að líta til
þeirra möguleika sem við höfum nú
þegar og nýta þá. Sú leið er fljót-
virkari og stúdentar þurfa úrræði
nú þegar.
Þorbjörg situr i Stúdentaráði fyrir
bönd Vöku og Baldvin Þór er fulltrúi
Vöku í Háskólaráði.
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
Innheimtustofnun sveitarfélaga
• Lágmúla 9 • sími 568 6099
• fax 568 6299 • pósthólf 5172
• 125 Reykjavík • kt. 530372 0229
N • Landsbanki íslands 139-26-4700
Vanhirtur
hrygningarstofn
í GREIN í Morg-
unblaðinu 3. nóvem-
ber 1993 athugaði ég
viðkomu þorskstofns-
ins í köldu loftslagi
áranna 1965-1986.
Þessi athugun benti
til þess að hefðbundið
mat á hrygningar-
stofni leiddi til vill-
andi niðurstöðu. Ný-
liðun þorsksins væri
svo að segja óháð því
hvað mikið væri til af
þorski yngri en 9 ára,
en aftur á móti væri
skýrt samhengi milli
nýliðunar og þorsks
eldri en 8 ára, fylgni
0,89. A þessu 22ja ára tímabili var
hrygningarstofninn orðinn lítill.
Vegna þess var hægt að viðhafa
einfalda aðferð, reikna með beinu
hlutfallslegu samhengi, sem stenst
allvel þegar stofninn er ekki stór,
enda minnkar nýliðunin þá hratt
með minnkandi stofni svo að fylgn-
in verður meiri og skýrari en ella,
ef hún er til á annað borð. - I
þessari sjö ára gömlu grein var
reyndar líka spáð hlýnandi haf-
straumum úr norðri og það hefur
gengið allvel eftir.
Sérstakar rannsóknir sem Guð-
rún Marteinsdóttir hefur stjórnað
hjá Hafrannsóknastofnun sýna að
það virðist einmitt vera þegar
þorskur er að ná háum aldri sem
hrygning fer að bera verulegan ár-
angur til að viðhalda stofninum.
Þar kemur ýmislegt til, svo sem
tiltölulega stærri, fleiri og lífvæn-
legri hrogn og lengri hrygning-
artími eldra fisksins en gert hefur
verið ráð fyrir í hefðbundnu mati
fiskifræðinnar á hrygningarstofni.
Þessar sértæku rannsóknir eru því
góð staðfesting á þeim tölfræði-
legu ályktunum sem komu fram í
grein minni árið 1993.
Nú hef ég gert víðtækari töl-
fræðilega athugun á nýliðun og
hrygningarstofni þorsks á öllu
tímabilinu frá 1955 fram á síðustu
ár. Framan af þessu tímabili var
hrygningarstofninn mjög stór.
Þegar svo er vex nýliðunin ekki
með stækkandi stofni,
fer jafnvel að minnka
nokkuð. Almennt
samhengi hrygningar-
stofns og nýliðunar
verður þess vegna
flókið og því verður
ekki lýst á öllu tíma-
bilinu nema með sér-
stöku bogadregnu
línuriti sem Beverton
og fleiri hafa fengist
við í fiskifræðinni.
(Við þær formúlur hef
ég sett fram tilbrigði
sem má laga hvort
sem er eftir virkum
eða hefðbundnum
hrygningarstofni:
N= a(H-b)0,5 / (1 + c(H-b)l,2 )
þar sem N er nýliðun í millj-
ónum þriggja ára fisks og H
hrygningarstofn í þúsundum
tonna, en a, b og c eru fastatölur).
Audlindin
Af rányrkjunni hefur
orðið mikill skaði,
segir Páll Bergþórsson,
sem þó er hægt að
draga af nokkurn
lærdóm um úrbætur.
Þess skal getið að í þessari
rannsókn eru notuð þriggja ára
keðjubundin meðaltöl, en ekki töl-
ur frá einstökum árum.
Það er áberandi hvað nýliðunin
fellur illa að hinum hefðbundna
hrygningarstofni sem samanstend-
ur af samanlagðri tonnatölu svo-
kallaðs kynþroska fisks (1. mynd).
Hann var að jafnaði ein milljón
tonna árin 1956-1960, en hefur
verið tvö til þrjú hundruð þúsund
tonn síðan kvótakerfið gekk í gildi.
Deplarnir dreifa sér vítt og breitt
út frá þeirri bogadregnu punkta-
röð sem má nota til að áætla þetta
samband, enda reiknast fylgnin
ekki nema tæplega 0,5 og er þess
vegna ekki marktæk að neinu
gagni. Astæðan virðist vera sú að
mestur hlutinn af þessum reiknaða
hrygningarstofni er gagnslaus til
hrygningar. Það ruglar samhengið
að iðulega er stærð þessa ónýta
hluta stofnsins úr takt við stærð
hins virka stofns. Því valda um það
bil tíu ára sveiflur í stofnstærð
sem geta orðið áberandi þegar
stofninn er lítill. Á teikningunni er
gert ráð fyrir að áætluð nýliðun
muni komin niður í ekki neitt þeg-
ar þessi hefðbundni hrygningar-
stofn er 150 þúsund tonn (b=150)
og er þar farið eftir þeirri reynslu
hér á landi að fyrst er gengið á
þann hluta hans sem hefur mest
áhrif á hrygninguna og nýliðunina,
en síðar á óvirka hlutann.
Öðru máli gegnir um samhengið
milli nýliðunar og golþorskastofns,
níu ára og eldri (2. mynd). Fylgnin
er þar nærri 0,8 og vel marktæk.
Nýliðunin fellur geysihratt þegar
hrygningarstofninn minnkar niður
fyrir 100 þúsund tonn og með
fáum undantekningum er sam-
ræmið þá gott milli golþorska-
stofns og nýliðunar. Þarna kemur
vel fram sú ógn sem hefur steðjað
að íslenska þorskstofninum í ára-
tugi, að öllum líkindum vegna of-
veiði samfara kulda í sjónum.
Þessi virki hrygningarstofn var
sex til átta hundruð þúsund tonn
1956-1960, minnkaði tímabundið
vegna nótaveiði á sjöunda áratugn-
um en féll niður fyrir 40 þúsund
tonn á áttunda áratugnum. Þó
keyrði um þverbak eftir að kvóta-
kerfið gekk í gildi, því að þá
hrundi þessi stofn niður í 20 þús-
und tonn, svo sem 2-3 prósent af
því sem hann var áður. Nýliðunin
minnkaði um helming, úr 200- 300
milljónum af þriggja ára þorski
niður í 100-150 milljónir og komst
eitt árið niður í 72 milljónir. Og
þorskaflinn hefur reyndar til
lengdar minnkað í beinu hlutfalli
við nýliðunina, úr 400-500 þúsund
tonnum í 200-250 þúsund tonn.
Vissulega átti kalt árferði í sjónum
þátt í þessu, en við því var heldur
ekki brugðist; þvert á móti var
gengið allt of mikið á eldri veiði-
stofninn og hlutfallslega miklu
meira en þann yngri. Þess vegna
stefndi sérstaklega í útrýmingu
golþorskanna, eins og ráða má af
annarri mynd, enda hvetur afla-
markskerfið mjög til veiða á
stærsta og verðmætasta fiskinum.
Sóknin var hörð með stækkandi
möskvum upp í 9 tommur og mun
meiri en aflatölur sýndu, því að nú
var ekki lengur komið með dauðan
netafisk í land, heldur er honum
kastað í sjóinn eins og öðrum fisk-
afurðum sem er síður sóst eftir
eða falla ekki undir tegundakvóta
skipsins. Þessa sóun sem gjarnan
einkennir aflamarkskerfi er ekki
hægt að réttlæta með því að of-
gnótt hafi verið í hafinu, þvert á
móti hefur verið bruðlað með
þorskstofn í tilvistarkreppu.
Það er hætt við að villandi mat
fiskifræðinnar á hrygningarstofni
hafi að nokkru leyti dulið þessa
rányrkju, þessa vanhirðu dýr-
mætrar auðlindar. Af rányrkjunni
hefur orðið mikill skaði sem þó er
hægt að draga af nokkurn lærdóm
um úrbætur. Meðal annars þarf að
athuga hvort ekki eigi að skipta úr
aflamarkskerfi yfir í sóknarstýr-
ingu og endurskoða reglur um
veiðarfæri. Það eru öfugmæli að
aflamarkskerfi okkar sé það besta
í heimi og hafi byggt upp þorsk-
stofninn. Þvert á móti hefur fram-
kvæmd þess átt þátt í að setja
hann í alvarlega útrýmingarhættu
og tafið vöxt hans í batnandi ár-
ferði.
9-14 ára hrygningarstofn og nýliðun
350 —--------:-----------------------
Nýliðun í milljónum
2. mynd
Samhengi hrygningarstofns og nýliðunar
350
300
250
200
150
100
50
Nýliðun I mllljónum
1. mynd
»♦ ♦
0 +
Hrygningarstofn í þús. tonna
—I----------1-------—|----
♦ Nýliðun í milljónum
■ Áætluð nýliðun
200
400
+~—■—+------1------1-
500 800 1000 1200 1400
Páll
Bergþórsson
Höfundur erfv. veðurstofustjóri.