Morgunblaðið - 19.12.2000, Page 96
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMl5691100, SÍMBRÉF5691181, FÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBLJS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Nýjar tillögur um eftirlit með fiskimjöli til umræðu hjá Evrópusambandinu
Gætu haft neikvæð áhrif
á viðskipti með fískimjöl
MIKLAR hömlur verða settar á við-
skipti með fiskimjöl samþykki dýra-
heilbrigðisnefnd Evrópusambands-
ins nýjar tillögur um eftirlit með
fiskimjöli á fundi sínum í Brussel í
dag og á morgun. íslensk stjómvöld
hafa brugðist við á svipaðan hátt og
í byrjun mánaðarins, þegar lagt var
til að ESB bannaði notkun alls dýra-
mjöls í skepnufóður, og komið sjón-
armiðum Islands á framfæri hjá við-
'-ís^fesmandi ríkjum.
Hinn 4. desember sl. samþykkti
Evrópusambandið að banna allt
dýramjöl í fóður nautgripa, kinda og
geita en heimilaði áfram notkun
fiskimjöls í fóður fyrir öll önnur dýr
en jórturdýr. Nú eru lagðar fram
nýjar tillögur um eftirlit og segir
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendi-
herra íslands í Brussel, að þær séu
strangari en efni standi til og svo
virðist sem fiskimjöl sé lagt að jöfnu
við kjötmjöl. Sama staða blasi því
við og fyrir rúmum þremur vikum
og segir hann að verði tillögurnar
samþykktar geti það leitt til veru-
legra erfiðleika í öllum viðskiptum.
Gunnar Snorri segir ekki víst að
lögð verði áhersla á að koma eftirlit-
inu í framkvæmd á sama hraða og
ákvörðuninni í byrjun mánaðarins.
í tillögunum er m.a. gert ráð fyrir
að viðskipti með fiskimjöl séu alger-
lega aðskilin öllu öðru hvað varðar
geymslu og flutning. „Þetta getur
verið verulega bagalegt fyrir öll við-
skipti með vöruna og hagsmunaaðil-
ar hafa talsverðar áhyggjur af
þessu,“ segir Gunnar Snorri.
Utanríkisráðuneytið, sjávarút-
vegsráðuneytið og landbúnaðar-
ráðuneytið hafa komið að málinu og
hafa samræmt aðgerðir. Gunnar
Snorri segir mikilvægt að ganga frá
því hvemig eftirliti verði háttað. Is-
lensk stjómvöld séu samþykk því að
eftirlitið verði að vera strangt og sjá
verði tO þess að skilja að fiskimjöl
og annað dýramjöl. Hins vegar verði
eftirlitið að vera innan eðlilegra
marka og á raunsæjum forsendum
þar sem aðalatriðið sé að taka á
vandanum. „Við gerðum alltaf ráð
fyrir því að gripið yrði tfi strangara
eftirlits en gengið hefur verið held-
ur lengra en við áttum von á. Við
höfum reynt að gera okkar besta til
að koma sjónarmiðum okkar á fram-
færi en nú er að reyna hvernig
framhaldið verður. Það er Ijóst að
þetta er alvarlegt mál og við höfum
tekið þannig á því,“ segir Gunnar
Snorri.
Lagt hald
á fíkniefni
ogþýfi
LÖGREGLAN í Reykjavík gerði
upptækt talsvert magn fíkniefna auk
þýfis í íbúð í fjölbýlishúsi í austur-
borginni aðfaranótt laugardags.
Lögreglumenn fóra á staðinn eftir
að kvartað hafði verið undan hávaða
úr íbúðinni. Að sögn lögreglu gat eng-
inn sem í íbúðinni var sannað að hann
væri húsráðandi eða ætti þar lögmætt
erindi. Því vísaði lögreglan fólkinu út.
Þá kom i Ijós að á staðnum fór fram
neysla og hugsanleg sala fíkniefna. I
íbúðinni fannst mikið af fíknieftium,
yfir 500 gr af hassi, rúmlega 500 e-
töflur, kókaín og amfetamín. Að auki
fannst skjávarpi og fleiri munir sem
taldir era vera þýfi úr innbrotum.
Jafnframt lagði lögreglan hald á hnífa
sem vora í íbúðinni.
Þrír karlmenn vora handteknir og
hefur einn þeirra verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald.
Viðræður í kennaradeilunni að
þokast í átt að samkomulagi
^Neita að afnema
kennsluafslátt
SAMNINGANEFND framhalds-
skólakennara lýsti því yfir á sátta-
fundi í gær að hún gæti ekki fallist á
samningstilboð Verzlunarskólans
með ákvæði um afnám kennsiuaf-
sláttar en lýsti sig reiðubúna að
halda áfram viðræðum á grandvelli
tilboðsins með ákveðnum breyting-
um. Boðað hefur verið til annars
sáttafundar í deilunni á morgun,
miðvikudag.
Þorvarður Elíasson, skólastjóri
..xJ^rzlunarskólans, segir að kennarar
hafí fyrst og fremst ekki getað faU-
ist á að kennsluskylda allra kennara
verði framvegis 24 stundir á viku og
viljað að kennarar haldi áfram svo-
kölluðum aldursafslætti. í tilboði
skólans var gert ráð fyrir að kenn-
arar héldu þeim kennsluafslætti
sem þeir hafa þegar áunnið sér en
frekari afsláttur yrði ekki veittur.
„Við þurfum að taka afstöðu til
þessa. Það er fyrirhugaður fundur á
miðvikudag og ég reikna með að við
munum leggja fram afstöðu okkar
þá,“ sagði Þorvarður.
Mörg atriði jákvæð
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður
^sjunninganefndar framhaldsskóla-
kennara, segir alls ekki hægt að
túlka það svo að tilboði Verzlunar-
skólans hafi verið hafnað með öllu
en hins vegar hafi lítill hljómgrunn-
ur verið fyrir breytingum á starfs-
kjöram um kennsluskyldu. Það sé
þó aðeins eitt atriði samningstilboðs
skólans en kennarar líti mörg atriði
tilboðsins mjög jákvæðum augum.
„Ég tel að ástæða sé til nokkurrar
bjartsýni í viðræðum við skólann á
grandvelli þessa tilboðs þótt ein-
staka útfærslur verði með öðram
hætti. Mér kemur mjög á óvart ef
Verzlunarskólinn metur málin eitt-
hvað öðruvísi.“
Minni árangur varð af sáttafundi í
kjaradeilu framhaldsskólakennara
og ríkisins á sunnudag en vonir
stóðu til. Næsti sáttafundur verður
haldinn í dag og er talið að þá muni
skýrast hvort einhverjar líkur era á
samningar geti náðst fyrir áramót.
Útilokað að skólastarf
geti hafist fyrir jól
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
segist aðspurður telja að ljóst sé
orðið að framhaldsskólamir taki
ekki til starfa fyrir jól, jafnvel þótt
samningaviðræður kæmust á skrið,
því frágangur flókinna kjarasamn-
inga taki yfirleitt nokkra daga.
Þarna sé um flókna samningagerð
að ræða og margir ásteytingarstein-
ar í deilunni.
Um væntingar framhaldsskóla-
kennara fyrir fundinn í dag sagði
Elna Katrín að vonir væra bundnar
við útspil ríkisins, jafnvel tilboð sem
fært geti deiluaðila nær lausn mála.
Frábærir
harðir
jólapakkar
fráACO.
Kynntu þér
úrvalið í
biaðinu
í dag.
Skaftahlið 24
Síml 530 1800
Fax 530 1801
-4
Morgunblaðið/Sverrir
Það er að mörgu að huga fyrir jólin. í verslun í Kringlunni var verið að kynna ýmiss konar snyrtivörur og ungir
sem aldnir notuðu tækifærið, þar á meðal þessi stúlka sem setti á sig varalit.
Kaupþing í New York selur islensk skuldabréf
Bandarískir fjárfestar
keyptu fyrir 600 millj.
KAUPÞING í New York gekk
síðastliðinn föstudag frá sölu á
skuldabréfum í íslenskum krónum til
bandarískra fjárfesta að verðmæti
600 milljónir króna. Um var að ræða
skuldabréf útgefin af Landsbanka
íslands og er þetta talin ein stærsta
sala íslenskra skuldabréfa í einu lagi
til erlendra fjárfesta.
Hreiðar Már Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings hf. í New
York, segist hafa fundið fyrir miklum
áhuga hjá fleiri fjárfestum á íslensk-
um ríkisskuldabréfum. Hann segir
mikilvægt að tekist hafi að beina
sjónum fjárfesta til Islands og segist
sannfærður um að þessi sala marki
aðeins upphafið á frekari viðskiptum
með íslensk skuldabréf á erlendum
mörkuðum.
Hreiðar segir að starfsmenn
Kaupþings í New York hafi lagt tölu-
verða vinnu í að kynna íslensk
skuldabréf á verðbréfamarkaði í
Bandaríkjunum á undanfömum
misseram. „Við höfum talið þau mjög
hagstæðan fjárfestingarkost í sam-
anburði við aðra kosti, þegar borin er
saman ávöxtun og áhætta. Það hefur
gengið treglega hingað til en í síðustu
viku tókst okkur hins vegar að brjóta
ísinn.“
Vextir háir á íslandi
miðað við önnur lönd
„Þeir bandarísku fjárfestar sem
hafa skoðað íslensk skuldabréf náið
hafa verið sammála okkur i því að
vextir á íslandi séu háir og svigrúm
til vaxtalækkana sé fyrir hendi. Með-
al annars í stöðu ríkisfjármála, vaxta
í öðram Evrópulöndum og spá um
hagvöxt á komandi misseram. Ef
tekst að laða að fleiri erlenda fjár-
festa mun það hjálpa Seðlabankan-
um að uppfýlla markmið sín um stöð-
ugt verðlag og gengi íslensku
krónunnar. Mat mitt er að Seðla-
bankinn ætti á komandi vikum að
lækka skammtímavexti á íslandi og
tel að hánn sé í raun að taka of mikla
áhættu með því að viðhalda svo háum
skammtimavöxtum við aðstæður þar
sem spáð er 1,6% hagvexti. í þessu
Ijósi verður sérstaklega áhugavert að
fylgjast með ákvörðun bandaríska
seðlabankans á morgun, þar sem æ
fleiri spá því að styttast fari í fyrstu
vaxtalækkun seðlabankans í langan
tíma.“
Kaupþing hf. hefur rekið dóttur-
félag í New York í samstarfi við
bandaríska verðbréfafyrirtækið
Auerbach Grayson frá því í maí.
„Þetta starf okkar að undanförnu
er að skila árangri. Okkur hefur tek-
ist að vekja áhuga fjárfesta bæði á
óverðtryggðum og verðtryggðum
skuldabréfum. Við eram bjartsýnir á
frekari viðskipti með íslensk verð-
bréf á næstunni í Bandaríkjunum.
Þetta sýnir mikilvægi þess að vera á
staðnum. Ég held að okkur hefði ekki
tekist þetta ef við hefðum ekki haft
starfsemi í New York,“ sagði hann.