Skírnir - 01.01.1875, Síða 48
48
FRAKKLAND.
seinustu árin veri8 við nám í foringjaskólu Englendinga í Woolwich
og náSi í vetur prófi meS góSum vitnisburSi. Ef hann er engu
miSur, enn af honum er látiS, þá er hann mannsefni í meir enn
meSallagi.
Suma lesenda vorra mun reka minni til, aS Frakkar hafa
frá öndverSum dögum Napóleons þriSja látiS eitt herskip liggja
viS Civita Vecchia, í því skyni aS vera til taks, ef þaS kynni
í aS skerast á Rómi, aS páfinn þyrfti aS leita sjer farborSa og
komast úr hers höndum. Opt hefur orS á því leikiS, aS Píusi
páfa væri ekki lengur vært í Rómaborg, og aS hann hugsaSi til
burtfarar á einhvern griSastaSinn i kristninni, en stjórn Frakka
hefur þá viljaS hafa af þvi heiSurinn aS koma honum undan. Nú
hafa Frakkar sleppt þessu ráSi og kannazt loks viS, hverja skap-
raun þeir hafa gert Itölum i þessu; þeir hafa kvaSt burt her-
skipiS, og meS því móti drepiS einum hlut á dreif, sem heldur
hefur orSiS fæSarefni meS þeim og ítölum. Vildu þeir hafa
þetta í gamni, gætu þeir sagt: „Pius páfi segist vera hnepptur í
dýflissu hjá Viktori Italíukonungi, og voru svo líkur til, aS vjer
yrSurn aS bíSa lengur eptir honum, enn vjer höfum þolinraæSi til,
og því höfum yjer nú heldur kosiS aS fara á burt enn bíSa
lengur.“
Frakkar hafa nú reist flest af því aptur, er hrundi og eyddist
fyrir eldganginum og ærslunum í París í vordögum 1871, t. d.
hús Thiers, sem nú er orSiS aS veglegum hallargarSi. Sjerílagi
viljum vjer nefna Vendome-súluna, eSa minnisvarSa Napóleons
fyrsta á Vendome-torginu, sem nú er langt á veg komin, ef ekki
fullbúin. þaS var einn af enum nafnkenndari litmyndaraeisturum
Frakka, Courbet aS nafni, sem lagSi ráSin á aS fella varbann.
Hann er nú dæmdur til aS bæta allt aS millíón franka fyrir þær
tillögur sinar, og því eru eigur hans gerSar upptækar, en þaS,
sem názt hefur, nemur ekki meira enn rúmum tiunda parti þeirrar
upphæSar. þaS varS Courbet til málsbóta, er herdómarnir voru
upp sagSir 1871, aS hann hafSi komiS dýrgripum og listaverkum
Thiers undan, þegar bölsótar skrílsins rifu hús hans í grunn
niSur. Annars hefSi hann hlotiS aS fylgja fjelögum sínum til
Nýju Kaledóníu.