Skírnir - 01.01.1891, Qupperneq 10
10
BISMARCK ÚR SESSI.
ngustu öld. Það mátti segja um hann: „enginn frýr honum vits, en grun-
aðar er hann um græzku“.
Þýzkaland.
Á öndverðu árinu var ríkisþingið í Berlín að þinga um, hvort fram-
lengja skyldi harðýðgislögin gegn sósíalistum, sem voru útrunnin 30. sept-
ember 1890. Stjórnin (Bismarek) vildi skerpa þau, t. d vísa mönnum úr
landi o. fl., og framlengja þau. Málið var lengi soðið í nefnd og varð ofan
á, að fella skerpigreinarnar i frumvarpinu, en framlengja lögin gegn sósíal-
istum eins og þau voru. Stjórnin tók þessum breytingum með hálfum
huga, og varð rauuar fegin, að frumvarpið var fellt, því hún vildi annað-
hvort hafa sitt upprunalega fruinvarp fram eða ekkert frumvarp. Það
kom síðar fram, að raunar voru keisari og Bismarck missáttir um lögin,
og skildi þá á um það, hvort nokkur sérstök lög skyldi hafa fyrÍT sósial-
ista.
Þegar Bismarck datt úr veldisstóli sínum, tók Georg Leo Caprivi
(de Montecuculi) við embættum bans. Hann er likur Bismarck á biún og
brá, jötunvaxinn og höfuðstór. Hann hefur verið herforingi og er rúm-
lega íimmtugur að aldri. Þing var sett í öndverðum mai; hélt hann þá
ræðu og bað menn að vera umburðarlynda við sig, sem tæki við af slíku
heljarmenni sem Bismarck. Því næst lagði hann fyrir þingið frumvarp
um nýlendurnar í Afriku, um herauka og til verkmannalaga. Moltke
hélt snjalla ræðu fyrir heraukanum, og kvað hann bráðnauðsynlegan til að
halda við friðnum. Var her Þjóðverja þannig aukinn um tíunda hluta af
her þeirra á friðartímum. Hermálaráðgjafinn skýrði nefnd þeirri, er sett
var í málið, frá, að heraukinn mundi kosta 40 miljónir marka þegar i
stað og 18 miljónir á ári, og þó væri her Prakka á friðartímum mann-
fleiri og hefði langtum fleiri fallbyssur. Er her Þjóðverja nú 516,000 í
friði.
Moltke varð níræður 26. október. Hellmuth von Moltke er fæddur í
Holstein um það leyti sem bardaginn stóð við Marengó, 1800, og var
þannig þýzkur þegn Danakonungs. Hann lærði hermennsku á hemaðar-
skóla í Höfn og var undirforingi (lieutenant) í Danaher. Hann sótti um
að mega ganga í herþjónustu á Þýzkalandi, 1822, og fékk leyfið, en lof-