Skírnir - 01.01.1891, Qupperneq 20
20
FRAKKLAND.
aptur ámóti að llytja einhverja vöru með líkumkjörum inn í það ríki, þáfær
í>ýzkaland um leið rétt til að flytja þá vöru inn í Frakkland með sömu
kjörum og þetta riki. Við árslok var ekki búið að útkljá þessi vanda-
mál.
Frakkar hafa lögtekið ýmsar góðar reglur, til að vernda verkmenn
gegn ójöfnuði húsbænda, og gengst maður sá, er heitir Jules Simon, mest
fyrir því. Hann var einn af hinum 5 fulltrúum Frakka á Berlínarfundin-
um i marzmánuði og sýndi Vilhjálmur keisari honum miklar virktir, gaf
honum skrautútgáfu af ritum Friðriks mikla o. s. frv.
Bæði Þjóðverjar og Englendingar hafa kannazt við, að Madagascar,
hin mikla ey austan við Afríku, væri undir vernd Frakka. Eyjarskeggjar
hafa drottningu og stjórn sér, en þegar tímar líða fram, verður eyjan
frönsk.
Englendingar hafa kannazt við, að Frakkar mættu leggja allt land
undir sig norðvestan til í Afríku, í Súdan, suður að línu, sem er dregin
frá Say við Nigerfljótið til Barrua við Tchadvatnið. Þó ná eignir hins
enska Nigerfélags spölkörn norður fyrir þessa línu, og tveir menn frá
hvoru ríki eiga að setja nánari takmörk og landamæri. Þannig stendur
hagur Frakka glæsilega i Afríku.
Hið franska þjóðveldi er nú tvítugt og virðist standa fastara en nokkru
sinni. Páflnn hefur látið kardínála rita Lavigerie þeim, er áður er um getið,
bréf á þá leið, að hinni kaþólsku kirkju standi á sama, hvort þjóðveldi eða
einveldi sé í landinu. Leo þrettándi hefur sætt sig við þjóðveldisstjórnina,
þegar hann sá, að tilrauuir konungsinna og Boulangersinna, að steypa því,
fóru svo hraparlega á höfuðið.
Bretaveldi 1790—1890.
Árið 1890 kom út bók eptir sir Charles Dilke, sem nefndist „Problems
of Greater Britain" (áhugamál Bretlands hins meira). Engin bók hefur
um langan aldur vakið jafnmikið athygli um hinnmenntaða heim, sem þessi
bók um framtíð Bretaveldis og hins enska kyns á jarðarhnettinum. Þeg-
ar síðasti ártugur hinnar nítjándu aldar var að byrja, lítur höfundur hundr-
að ár aptur fyrir sig og hundrað ár fram.