Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1891, Síða 50

Skírnir - 01.01.1891, Síða 50
50 AFRÍKA. hannes sá, er féll 1889, en vill þó ekki selja þeim einn blett af Abyssiníu. Heima á Ítalín er megn kurr yfir ólánlegum og dýrum fyrirtækjum stjórn- arinnar í Afríku. Spánverjar eiga lítið land í Afríku, enda hafa þeir enga samninga gert þetta ár. Þeim er illa við, að Englendingar haía dregið mikinn hluta af verzlun Marokkós í hendur sér, en fá ekki við því gert. Ameríka. Bnndurikin. Voðaleg tollöld gekk í garð í Bandarikjuuum 1890. Harrison og flokkur hans, „rep(ihlikanar“, situr að völdnm. En sá maður er ræður mestu er ekki Harrison heldur Blaine, utanríkisráðgjafi. Hann vill reyna að koma allri Ameríku í handalög gagnvart Evrópu með tolla, verzlun og því um líkt. Einn af fylgismonnum hans, Mac Kinley, lagði frumvarp fyr- ir alríkisþingið í Washington um að hækka tolla á öllum vörum, öllu lif- andi og dauðu, sem flutt er til Bandaríkjanna frá Evrópu. Kvað hann verknað, iðnað, landbírnað og alla framtaksemi Amerikumanna mundu blómgast moir en að undanföruu, ef þessu yrði framgengt; þá muudn verk- menn fá hærri laun o. s. frv. Lengi sumars var verið að þrefa um þetta á þingi, en 1. október var frumvarpið iögleitt. Matvæli, fatnaður o. fl., varð langtum dýrara en áður. Forseti getur, ef svo ber undir, að eitt- hvert ríki tálmar eða með einhverju móti bagar innflutning á vörum frá Bandáríkjunum, bannað um tiltekinn tíma innflutning á tilteknum vörum frá því ríki og þarf hann ekki að leita samþykkis þings í því efni. Hann getur bannað innflutning á matvælum eða drykk, ef hanu heldur, að þau séu fölsuð eða skaðvænleg. Tuttugu þúsund króna sekt eða 3 ára fangelsi liggur við að flytja inn í Bandaríkin svín, naut eða sauði, sem eru veik af sóttnæmum sjúkdómuin. Evrópa sá nú, að allir vöruflutningar til Bandaríkjanna mundu verða ógjörningur eptirleiðis. Margir komust á vonarvöl og misstu atvinnu sína. Vildu sum Evrópuriki setja liart móti hörðu, en gátu ekki orðið samtaka og varð því ekkert tir. Gladstone hélt ræðu um lögin, sagði, að þessi ólög mundu detta uin sig sjálf, og Englendingar þyrftu ekki að fara

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.