Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1891, Page 55

Skírnir - 01.01.1891, Page 55
MANNALÁT. 55 Johanne Louise Heiberg, mesta leikkona Dana, dó degi síðar en Gade. Hún fæddist í Höfn 1812. Foreldrar hennar voru fátækir. Þegar hún var 8 ára gekk hún á dansskóla hins konunglega leikhúss. Var hún talin ágæt dansmær. Fór síðan að brydda á að hún hefði afbragðsgáfur til að leika; ritaði Johan Ludvig Heiberg þá ýmsa leiki, er voru ætlaðir henni að leika í. Þegar hún var 17 ára, fékk hún nafnbótina „konungleg leik- kona". Hún giptist Heiherg árið 1831 og ferðaðist utanlands með honum. Hún hefur leikið 268 þætti (roller) i sorgarleikjum og gleðileikjum, allt jafn meistaralega og fagurlega. Hún ték í síðasta sinni 2. júlí 1864. Hún gaf út 1882 rit um Peter Andreas Heiberg og Thomasine Gyllemborg, for- eldra manns síns, sem eru bæði mjög merk í bókmenntasögu Dana. John Henry Newman, ritsnillingur mikill og foringi kaþólskra manna á Englandi, andaðist sumarið 1890. Hann fæddist 1801 í Lundúnum og varð á unga aldri prestur í Oxford. Á árunum 1835—41 gekk hann i bandalag með öðrum ungum mönnum til þess að vekja kirkjuna upp af andlegum svefni hennar. Gáfu þeir út ýms rit. Fékk hann ávítur af bisk- upi og gerðist kaþólskur 1845. Reyrnli hann síðar að útbreiða kaþólsku í ræðum og ritum og var hann talinn mestur snillingur allra guðfræðinga á Englandi, svo engin furða er, þó honurn yrði nokkuð ágengt. Hann var gerður kardináli 1879. Rit hans komu út i Lundúnum 1870—79 í 34 bindum. Annarafhinum ágætustu guðfræðingum, sem uppi voru, Johannes Josef Ignotus von Döllinger, andaðist í Miinchen. Hann fæddist 1799 í Bamberg og varð prófessor i kirkjusögu og kirkjurétti í Munchen 1826. Hann var mjög frjálslyndur maður og barðist fyrir rétti vísindanna gagnvart pátastólnum; 1861 ritaði hann bók og hélt fyrirlestur um, að bezt væri að páfaríkið kæmist undir ítaliukonung og vald páfa yrði einungis and- legt. í nafnlausu riti „Janus“ (1869) mótmælti hann og braut á bak apt- ár kenninguna um, að páfa gæti ekki skeikað. Samt vildi haun ekki fylgja þeim, er sögðu páfa í Róm upp hlýðni og hollustu útaf þessu. Pius níundi bannfærði hann 1871, en háskólinn í Miinchen kaus hann þá til rektors og margir háskólar utanlands og innan kepptust um að gera hann að heiðursdoktor.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.