Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 5

Skírnir - 01.08.1905, Side 5
Verzlun Islendinga og sainvinnufélagsskapnr. 197 göngumenn og birgðasalar hefðu af verzluninni við íslendinga, næmi að minsta kosti 1500000 kr. um árið. Auk þessa væri borgað í erfiðislaun fyrir vörur til Islands og frá Islandi um 360000 kr. á ári, og leiga eftir dönsk skip, sem þá voru í förum til Islands, kvað liann vera um 900000 kr. á ári (sjá Nationaltidende 24. April 1884). Um Oscar Muus skal þess getið að hanri átti mikla verzlun við Islendinga og hafði lesið hagfræði við háskól- ann í Kaupmannahöfn og er maður mjög vel að sér; má því ætla að hann væri manna færastur til þess að rita rétt urn þettta. Upphæð íslenzku verzlunarinnar (aðtiuttar og útíiuttar vörur) var árið áður (1883) 11823000 kr. Þrjú undanfarandi ár hafði verzlunarupphæðin verið nokkru hærri, 12470000 til 13400000 kr. hæst. Ef vér reikn- um upphæð allrar íslenzku verzlunarinnar á þeim árum 12 milj. kr., sem mun láta nærri sanni, þá verður ágóði verzlunarstéttarinnar í Kaupmannahöfn af henni 12 x/2 af hundraði hverju. Það er eigi lítið gjald fyrir 70 þúsundir fátækra manna hér á landi að borga hálfa aðra miljón kr. á ári til kaupmannastéttarinnar í Kaupmannahöfn, en menn mega þó eigi ætla að hér sé alt talið, sem bændur bæði við sjó og í sveitum, embættismenn og iðnaðarmenn, i einu orði allir landsmenn urðu að horga til kaupmanna- stéttarinnar. Utlendu kaupmennirnir halda sölubúðir hér á landi, eins og kunnugt er og nauðsyn er til eftir verzlunarlagi þeirra. Þeir hafa hver marga menn í þjón- ustu sinni, verzlunarstjóra og búðarmenn og aðra starfs- menn. Alt það kostar ógrynni fjár, og það urðu Islend- ar einnig að borga. Enn fremur verður líka að gæta þess, að hinir svo- nefndu íslenzku kaupmenn í Kaupmannahöfn höfðu eigi alla verzlunina í höndum sínum. Nokkur hluti af verzl- uninni var í höndum enskra eða skozkra kaup- manna og eitthvað í höndum Norðmanna; og þeir

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.