Skírnir - 01.08.1905, Blaðsíða 6
198
Yerzlun Islendinga og samvinnufélagsskapur.
græddu að tiltölu eins mikið af sínum hluta af yerzluninni
eins og' íslenzku kaupmennirnir í Kaupmannahöfn.
Um þetta vantar skýrslur.
I Landshagsskýrslunum segir, að árið 1883 hafi verið
44 útlendir kaupmenn, sem rekið hafi verzlun á ís-
landi. Hvort þeir voru allir í Kaupmannahöfn eða eigi,
er óvíst — um það er eigi getið í skýrslunum. — En ef
vér gerum ráð fyrir því og skiftum ágóðanum, rúmri hálfri
annari miljón kr., á milli þeirra allra, þá hefir hver þeirra
íengið að meðaltali rúmar 34000 kr. um árið. Xú verð-
ur að gæta þess að birgðasalarnir eru allmargir og all-
mikið af ágóðanum hefir lent hjá þeim. Það mun því
láta mjög nærri sanni, að íslenzku kaupmennirnir í Kaup-
mannahöfn hafi haft um 30000 kr. hver í tekjur á
ári að meðaltali, en það er þrisvar sinnum rneira en
ráðherra Islands hefir i laun. Það er kunnugt um suma
íslenzku kaupmennina í Kaupmannahöfn að þeir höfðu þá
um 70 til 90 þúsund kr. í tekjur á ári af íslandsverzlun
sinni, og að sumir þeirra hafa það einnig enn. Það eru
auðvitað einungis þeir af kaupmönnunum, sem eru ríkastir
og reka hér mesta verzlun og eru jafnframt lægnastir á
að græða. Einn einasti af þessum ríkustu kaupmönnum
í Kaupmannahöfn kostar landsmenn eins mikið og allir
sýslumenn landsins og dómarar til samans, eða eins mikið
og allir læknar landsins.
Ef gert er ráð fyrir að kostnaðurinn við hverja út-
lenda verzlun hér á landi hafi verið að meðaltali 20000
kr., verður það 880000 kr. við 44 verzlanir. Þetta
er líklega nærri sanni. Sumar útlendar verzlanir höfðu,
eigi sízt á þeim árum, menn svo tugum skifti við verzlun
sína og kostnaðurinn við að reka þær, hefir sjálfsagt verið
tvisvar 20,000 kr.
Arið 1883 ráku einnig 53 innlendir kaupmenn
verzlun á Islandi. Verzlun fiestra þeirra var lítil, en þeir
lifðu þó af verzlun sinni og fiestir þeirra liöfðu nokkra
menn í þjónustu sinni. Ef gert er ráð fyrir að ágóði
þeirra og kostnaður við verzlanir þeirra hafi verið um