Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 6

Skírnir - 01.08.1905, Page 6
198 Yerzlun Islendinga og samvinnufélagsskapur. græddu að tiltölu eins mikið af sínum hluta af yerzluninni eins og' íslenzku kaupmennirnir í Kaupmannahöfn. Um þetta vantar skýrslur. I Landshagsskýrslunum segir, að árið 1883 hafi verið 44 útlendir kaupmenn, sem rekið hafi verzlun á ís- landi. Hvort þeir voru allir í Kaupmannahöfn eða eigi, er óvíst — um það er eigi getið í skýrslunum. — En ef vér gerum ráð fyrir því og skiftum ágóðanum, rúmri hálfri annari miljón kr., á milli þeirra allra, þá hefir hver þeirra íengið að meðaltali rúmar 34000 kr. um árið. Xú verð- ur að gæta þess að birgðasalarnir eru allmargir og all- mikið af ágóðanum hefir lent hjá þeim. Það mun því láta mjög nærri sanni, að íslenzku kaupmennirnir í Kaup- mannahöfn hafi haft um 30000 kr. hver í tekjur á ári að meðaltali, en það er þrisvar sinnum rneira en ráðherra Islands hefir i laun. Það er kunnugt um suma íslenzku kaupmennina í Kaupmannahöfn að þeir höfðu þá um 70 til 90 þúsund kr. í tekjur á ári af íslandsverzlun sinni, og að sumir þeirra hafa það einnig enn. Það eru auðvitað einungis þeir af kaupmönnunum, sem eru ríkastir og reka hér mesta verzlun og eru jafnframt lægnastir á að græða. Einn einasti af þessum ríkustu kaupmönnum í Kaupmannahöfn kostar landsmenn eins mikið og allir sýslumenn landsins og dómarar til samans, eða eins mikið og allir læknar landsins. Ef gert er ráð fyrir að kostnaðurinn við hverja út- lenda verzlun hér á landi hafi verið að meðaltali 20000 kr., verður það 880000 kr. við 44 verzlanir. Þetta er líklega nærri sanni. Sumar útlendar verzlanir höfðu, eigi sízt á þeim árum, menn svo tugum skifti við verzlun sína og kostnaðurinn við að reka þær, hefir sjálfsagt verið tvisvar 20,000 kr. Arið 1883 ráku einnig 53 innlendir kaupmenn verzlun á Islandi. Verzlun fiestra þeirra var lítil, en þeir lifðu þó af verzlun sinni og fiestir þeirra liöfðu nokkra menn í þjónustu sinni. Ef gert er ráð fyrir að ágóði þeirra og kostnaður við verzlanir þeirra hafi verið um

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.