Skírnir - 01.08.1905, Blaðsíða 19
Verzlun Islendinga og saravinnufélagsskapur.
211
ýmsan hátt. Samfélagið danska lætur t. a. m. tvisva-r á
ári veita kenslu í bókfærslu og vörufræði (þ. e. þekkiugu
á vörum) og hnida fræðandi fyrirlestra um samvinnufé-
lagsskap. Þá er byrja skal á einhverju iiýju, ríður mest
á að fræðast um það, og gjöra sér glögga grein fyrir því,
sem þarf, til þess að geta komið því á. Það er byrjunin,
að afla sér þekkingar til framkvæmda.
Vér þurfum líka að bvrja með því að fræðast um
verzlunarmálefni vor og búa menn undir til þess að hrinda
verzlun vorri i rétt horf og koma á samvinnufélagsskap.
Og vér skulum líta fram í tímann og hafa það hug-
fast, að alt má bæta, og umskapa. Vér skulum hugsa oss
það, að mjög liægt væri að senda afurðir vorar liéðan úr
sýslunum til Reykjavíkur, og þaðan til útlanda þær vörur,
sem seldust eigi í Reykjavík, I útlöndum borga auðugir
menn vel góðar vörur. Dálitlir dilkar bornir um nýjár
kosta t. a. m. 25 kr. í miðjum marzmánuði í Kaupmanna-
höfn. Ef bændur kæmu velverkuðu dilkakjöti á markað-
inn með hægu móti og lítið söltuðu eða nýju, mundu þeir
fá það vel borgað. Já, hugsum oss það, að vér gætum
sent smjörið og aðrar afurðir daglega til Reykjavikur, þá
mundi verðið á þeim stíga og allar jarðir hér um 3veitir
hækka í verði. Þá tækju menn að rækta þær upp vel,
eins og Vilhjálmur bóndi Bjarnarson hefir þegar gert
við Rauðará hjá Reykjavík. Og bændur fengju einnig fé
til þess að gera það, er afurðirnar seldust vel.
Ég heyri menn nefna járnbraut hingað úr Reykjavík.
Ég mintist á járnbraut í bækling mínum, Framtíðarmál-
um, fyrir fjórtán árum, en ég vil nú leiða athvgli manna
að sporbraut fyrir »elektriska« vagna. Slík braut
er talin þrisvar sinnum ódýrari en járnbraut, þótt báðar
séu reknar með gufu. Tveir elektriskir sporvagnar geta
fiutt alt að því 150 manns í einu eða áburð af 150 hest-
um. Þeir geta hæglega farið á dag frarn og aftur jafn-
langa leið og héðan til Reykjavíkur, en vér þurfum eigi
að kaupa kol til þess að reka þá. Skamt héðan er dýr-
mætur blettur. Það er Búðafoss í Þjórsá. Hanngetur
14*