Skírnir - 01.08.1905, Blaðsíða 67
Verndun fnrnmenja og gamalla kirkjugripa.
25»
safnsverðirnir i hennar stað. Forngripasafnið var stofnað
kringum 1815 og jókst það brátt stórum. Arin 1809 og
1810 kom fornmenjanefndin því til leiðar, að stjórnin
fyrirskipaði friðanir á ýmsum föstum fornmenjum um
land alt í Danmörku, en þó voru friðanir þessar ekki á
lögum bygðar, enda trassað að skrásetja þær og þinglýsa,
svo að þær gleymdust brátt. Nefndin hafði heldur ekki
nægilegt fé til þess að senda umsjónarmenn út um land
og sjá urn að ekki yrði raskað fornmenjum. A þessu var
ráðin nokkur bót 1847 er J. J. A. Worsaae, fornfræðingur
og helzti frömuður alls þessa í Danmörku, baátist við
nefndina og fékk fé til ferða og kaupa, endurbóta og
rannsókna í þessar þarfir. En engin lög vildu Danir
semja um friðun fastra fornmenja; þótti þeim þá og hefir
æ síðan þótt sem þau myndu spilla fyrir. Jafnan var
reynt að fá menn til að friða af frjálsum vilja allar fastar
fornmenjar á jörðum sínum og vekja áhuga manna á að
endurbæta fornar hallir og kirkjur á sómasamlegan hátt.
fiekk stjórnin sjálf hér á undan með því að friða forn-
menjar allar á fasteignum þeim, er ríkið sjálft átti; sömu-
leiðis skoraði stjórnin á umsjónarmenn annara opinberra
fasteigna að gera hið sama. Fornmenjastjórnin (Direc-
tionen for de antiquariske Mindesmærkers Bevaring) skrif-
aði öllum óðalsbændum og bað þá um að friða fornmenjar
á jörðum þeirra.*) Worsaae ferðaðist stöðugt um landið
og rannsakaði fornmenjar, mældi og teiknaði, en öllum
rannsóknunum og myndunum var safnað í skjaladeild forn-
gripasafnsins. Smám saman hafa verið gerð fornmenja-
kort yflr alla Danmörku og eru á þeim markaðir haugar
allir og hvers konar fastar fornmenjar.
Þareð sí og æ vóru eyðilagðar fleiri og fleiri forn-
menjar, þrátt fyrir alt, af því að fornmenjastjórnin komst
ekki yflr að friða þær, veitti þingið (Den danske Rigsdag)
1873 og á eftirfarandi árum 7000 kr. árlega til þess að
*) Sjá „Bilag 1“ við ritgerð Worsaaes, Om Bevaringen af de fædre-
landske Oldsager og Mindesmærker i Danmark.
17*